Tíminn - 17.12.1982, Side 13
FÖSTUDAGllR 17. DESEMBER 1982',
21
Iþróttir
ATTfl MARKA TAP
A MÓTI SVÍUNUM
íslenska landsliðid tapadi 28:20
■ Ekki vegnaði landsliðinu í hand-
knattlcik vel í lciknum gegn Svíum á
mótinu í Austur-Þýskalandi sem leikinn
var í gær. Svíar sigruðu með 8 marka
mun, 28 mörkum gegn 20. Það var fyrst
og fremst varnarleikurinn sem brást hjá
íslenska liðinu í honum gekk dæmið alls
ekki upp. Grcinilcgt er að Hilmar
Björnsson á mikið starf fyrir höndum
áður cn liðið fcr á B-kcppnina í Hollandi
í lok febrúar.
Liðið tapaði í fyrrakvöld með 12
marka mun gegn Austur-Þjóðverjum,
en menn leyfðu sér að vona að dæmið
gengi betur upp á móti sænska liðinu,
sem ekki alls fyrir löngu gerði jafntefli
við Norðmenn, sem ekki hafa verið
mjög hátt skrifaðir í handknattleiknum.
Páll Ólafsson var markahæstur í
íslenska liðinu með 6 mörk, en næstir
honum komu Kristján Arason og Alfreð
Gíslason með fjögur mörk hvor.
í kvöld leika fslendingar við B-lið
Austur- Þjóðverja og þá er annað hvort
að duga eða drepast. Sigur verður að
vinnast. Ella er hætt við að liðið verrni
botnsætið á mótinu.
sh
■ Páll Ólafsson skoraði flest mörk
íslendinga í gær.
VEIKU PUNKTUNUM
Segir Sammy Lee, sem margir telja að
verði meðal skærustu stjarna 9.
áratugarins í enskri knattspyrnu
■ Á sama hátt og Alan Hudson, Peter
Osgood og George Best eru yfirleitt
nefndir sem dæmi um „svarta sauði“ í
enskrí knattspyrnu, þá er hægt að telja
Sammy Lee Liverpool algjöra andstæðu
þeirra. Hann er af mörgum talinn vera
sá leikmaður sem á sér hvað bjartasta
framtíð í enskri knattspyrnu.
Hann er oft nefndur sem gott dæmi
um það sem enska knattspyrnu vanti
fyrst og fremst til að standa fastari fótum.
Lee, sem er einn þeirra ungu lands-
liðsmanna Englands, sem gert hafa
garðinn frægan á undanförnum vikum er
það sem margir kalla „draumur fram-
kvæmdastjórans".
■ Sammy Lee er einn af fyrirmynd-
arpiltunum í enskri knattspymu og
er oft kallaður „draumur fram-
kvæmdastjórans.' Og sagt er að stjóri
Liverpool sé aHs ekki svikinn af
vinnubrögðum hans. Talið er, að
sleppi Lee við meiðsli geti hann
vænst þess að verða lykilmaður í
landsliði Englandsl986 á HM, sem
væntanlega verður háð í Brasilíu.
Hann erglæstasti fulltrúi knattspyrnu-
manna bæði utan vallar og innan sem
hægt er að hugsa sér.
Hann var spurður hvort hann áliti að
hann ætti langa feril fyrir höndum sem
landsliðsmaður Englands. hann svaraði
því á þennan hátt: “Það er ekki ég sem
vel liðið. Það væri gaman að fá tækifæri
til að leika fyrir England, en það er Hr.
Robson sem velur liðið. Hann ákveður
hvaða leikmenn hann telur hæfasta á
hverjum tíma.
Sammy Lee skoraði glæsilegt mark í
sínum fyrsta landsleik gegn Grikkjum
og hann sagði um markið eftir leikinn:
„Þetta var heppnismark. Ég held því
fram að það hafi fyrst og fremst verið
liðsheildin sem skapaði það. Ég fékk
mikla hjálp frá öðrum leikmönnum við
að skora það, einkum þó félögum
mínum í Liverpool Phil Neal og Phil
Thompson.
Á hvern hátt getur Sammy Lee styrkt
landslið Englands í Heimsmeistara-
keppninni 1986? Um það segir Lee:
„Styrkt liðið? Ég er enn að vinna að
því að bæta úr veiku punktunum í leik
mínum. Ég skila boltanum alls ekki
nógu vel frá mér og ég er lélegur
skallamaður. Ég hef til dæmis aðeins
skorað eitt mark fyrir Liverpool með
skalla.
Um sjálfan sig vill Lee ekki tala og
hann vill fremur tjá sig um félaga sinn í
landsliðinu, fyrirliðann Bryan Robson.
„Bryan Robson er frábær leikmaður,
jafnvel ennþá betri en ég hafði álitið
áður en ég lék með honum. Það sem
vakti sérstaklega athygli mína í Salonika
í leiknum gegn Grikkjum var, að Bryan
var alltaf, annaðhvort frír eða þá að
hann væri að spila sig frían. Hann er alls
staðar á vellinum þar sem þörf er fyrir
hann. Hann er frábær leikmaður.“
Sammy Lee hefur það orð á sér að
vera meðal þeirra leikmanna sem leggi
sig hvað mest fram. Sé hann ekki að
keppa er hann að æfa. Og sé hann ekki
að æfa eða keppa, er hann að horfa á
varalið Liverpool eða unglingaliðið
leika. Hann er eins og flestir leikmenn
Liverpool mikill félagsmaður og hann
segir að varamennirnir séu jafn miklir
vinir sínir og þeir sem leiká í aðalliðinu.
ÞARF AÐ BÆTA ÚR
■ Kristín Magnúsdóttir er í fremstu röð íslenskra badmintonmanna um þessar
mundir.
KÍNVERIINN
KEPPIR MEÐ
Undirbúningsmót fyrir landsliðið
verður á þriðjudaginn
■ Þann 18. janúar mun landsliðið í
badminton halda til Sviss til að taka þátt
í Helvetia Cup. Er þetta keppni sem
fram fer annað hvert ár og eru bestu
badmintonþjóðir heims útilokaðar frá
keppni þannig að um er að ræða nokkurs
konar B-keppni í badmintoninu. Island
hefur tvisvar áður veríð með í þessari
keppni og gcngið sæmilega. Nú hyggst
liðið rétta hlut sinn þó varla sé möguleiki
á sigri.
Til undirbúnings þessu ferðalagi mun
fara fram keppni í TBR húsinu þann 21.
des. n.k. þar sem allir bestu badminton-
menn og konur munu verða með. Hefur
Hrólfur Jónsson landsliðsþjálfari valið
tvö lið A og B lið sem munu keppa sín
á milli. Er B-liðið styrkt með You Sou
Rong kínverska badminton þjálfaranum
sem hér er starfandi. Fyrir utan að vera
mjög góður þjálfari er hann einnig mjög
sterkur spilari. Til marks um það var
hann kínverskur meistari 1977 en Kín-
verjar eru án efa ein mesta badminton-
þjóð heims.
Þetta verður sennilega fyrsta og eina
tækifærið til að sjá You Zou Rong leika
hér á landi í keppni. Eru badmintná-
hugamenn því hvattir til að nýta sér
þetta tækifæri. Það má geta þess að með
You Zou Rong innanborðs náði TBR
þeim frábæra árangri að komast í 8- liða
úrslit í Evrópukeppni félagsliða fyrr á
þessu ári.
Keppni þessi mun hefjast kl. 9.15 í
TBR núsinu þann 21. desember. Eru
badmintonáhugamenn eindregið hvattir
til að mæta nú einu sinni ogsjá það besta
í íslensku badmintoni í dag, og um leið
að styðja við bakið á landsliðinu sem
leggur mikið á sig þessa dagana til
undirbúnings fyrir Helvetia Cup.
Framlengt
þrívegis
í úrslitaleik í 5. flokki
■ Leikurinn var þrisvar framlengd-
ur er Þróttarar sigruðu Ármenninga
í úrslitaleiknum í Reykjavíkurmóti
5. aldursflokks í handknattleik í
Laugardalshöll í fyrrakvöld. En á
lokasprettinum höfðu Þróttarstrák-
arnir betur og sigruðu með sjö
mörkum gegn flmm eftir mjög spenn-
andi leik, sem fjöldi áhorfenda
fylgdist með.
Þá var leikið til úrslita í 3. flokki
karla og þar sigraði Ármann Víking
með 10 mörkum gegn 9.
KR og ÍR léku til úrslita í 2. flokki
karla og þar stóðu KR-ingar upp sem
sigurvegarar að leikslokum með 15
mörkum gegn 10.
í 1. flokki karla léku Valur og KR
til úrslita og sigruðu Valsmenn
örugglega með fimm marka mun
eða 23 mörkum gegn 18.
JJ/sh