Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 9
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN - VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI - HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : WWW.NTV.IS
Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is
MENNTUN ER BESTA SÓKNIN!
YFIRLIT YFIR SPENNANDI NÁMSKEIÐ SEM BYRJA Í FEBRÚAR
Skrifstofu- og tölvunám - 258 stundir - Verð: 199.000
Hagnýtt og uppbyggjandi nám fyrir fólk á öllum aldri sem vill styrkja
stöðu sína. Próf í tölvugreinunum gefa alþjóðlegt skírteini.
Í náminu er lögð mjög mikil áhersla á að styrkja einstaklinginn og gera
hann hæfari til að takast á við krefjandi störf á vinnumarkaðnum.
Meðal kennslugreina eru tölvubókhald, verslunarreikningur, Windows,
Word, Excel, Power Point, streitustjórnun, gerð kynningarefnis og
margt fleira.
Morgunnámskeið byrjar 2. mars
Eftirmiðdagsnámskeið byrjar 9. mars
Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 17. febrúar
Sölu- og markaðsnám - 264 stundir - Verð: 229.000
Þetta er líflegt og fjölbreytt nám fyrir þá sem vilja tileinka sér sérþekk-
ingu á sölu- og markaðsmálum. Eins er námið kjörið fyrir þá aðila sem
vilja styrkja sig í starfi.
Í náminu er farið í hlutverk sölumannsins, samskipti við viðskiptavininn
eru könnuð og farið í grundvallaratriði í gerð kynningarefnis. Einnig
er farið yfir helstu atriði markaðsfræðinnar. Náminu lýkur með um-
fangsmiklu lokaverkefni.
Morgunnámskeið byrjar 16. febrúar
Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 17. febrúar
Grunnnám í bókhaldi - 108 stundir - Verð: 99.000
Bókhaldsnámið er hagnýtt og hnitmiðað og er markmiðið að þjálfa fólk
til að starfa við bókhald. Námið hentar einnig þeim sem eru með sjálf-
stæðan atvinnurekstur eða hyggja á að stofna eigið fyrirtæki og vilja
öðlast skilning á bókhaldinu. Í tölvubókhaldshluta námsins er kennt á
Navision sem er eitt mest notaða bókhaldsforritið á markaðinum í dag.
Morgunnámskeið byrja 17. mars
Kvöldnámskeið byrjar 9. febrúar
•
•
•
•
•
•
•
Auglýsingatækni - 156 stundir - Verð: 196.000
Hér er um að ræða hagnýtt nám fyrir þá sem hafa þörf fyrir tölvutæknina
við gerð auglýsinga, kynningarefnis og bæklinga.
Markmiðið er að nemendur geti komið frá sér hugmyndum á tölvutæku
formi og að frágangur allra verka sé réttur hvort sem það er fyrir prentun
eða Internetið.
Kvöldnámskeið byrjar 23. febrúar
Photoshop Expert - 72 stundir - Verð: 112.000
Námskeið fyrir þá sem vilja fá dýpri á nær óendanlegum möguleikum
þessa frábæra verkfæris. Námið er undirbúningur fyrir alþjóðlegt próf
sem gefur gráðuna: Adobe Certified Expert. Námskeiðið er yfirgrips-
mikið þar sem mikið er lagt upp úr þeim þætti sem snýr að eftirvinnslu
s.s. litgreiningu, prófílum, upptöku aðgerða, skipulag, meðferð RAW
skráa, og öllum þeim aðgerðum sem áður fyrr voru framkvæmdar í
myrkrakompu.
Kvöldnámskeið byrjar 16. febrúar
Alvöru vefsíðugerð - 210 stundir - Verð: 209.000
Alvöru námskeið í vefsíðugerð þar sem farið er í alla mikilvægustu þætti
vefhönnunar s.s. útlitshönnun, myndvinnslu, HTML-kóðun, gagna-
grunnsfræði, Javascript, uppsetningu og viðhald bæði minni og stærri
vefsvæða. Í lok námskeiðs ætti nemandi að hafa lokið við eigin vef frá
hugmynd að fullunnu vefsvæði.
Námskeiðinu er skipt í þrjá sjálfstæða hluta sem einnig er hægt að taka
hvern fyrir sig:
1 - Myndvinnsla fyrir vefinn með Fireworks (54 stundir)
2 - Almenn vefsíðugerð með Dreamweaver (72 stundir)
3 - Gagnagrunnstengd vefsíðugerð með Dreamweaver (84 stundir)
Eftirmiðdagsnámskeið byrjar 23. febrúar
•
•
•
STARFSNÁM GRAFÍSKT NÁM
Dæmi um afslátt og styrki fyrir skráða atvinnulausa
Nám sem kostar 199.000- 25% afsláttur NTV = 49.750- Styrkur Vinnumálastofnunnar* = 70.000- Styrkur stéttarfélags = Kannaðu rétt þinn!!!
*Þarf að sækja um hjá ráðgjafa vinnumálastofnunnar