Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Páls Baldvins Baldvinssonar Það er ekkert ókeypis var fyrsta reglan í hinni hrundu lífsstefnu nýfrjálshyggjunnar: allt kost- ar og í framhaldi af þeirri loka- niðurstöðu á tilverunni var verð- miði settur á allt milli himins og jarðar. Beiting á gjaldtöku í sam- félaginu sótti fram á öllum svið- um. Aðgangseyrir var heimtur af sjúkrastofnunum – jafnaðargjald og síðan mishátt gjald eftir þjón- ustu. Skönnun í einhverju rádýru tæki kostaði þennan skattþega hátt á annan tug þúsunda og þótti ekki tiltökumál. Einhver stakk upp á að gestir spítalanna væru látnir borga þar aðgangsmiða, annar að best væri að láta lækn- ana borga sig inn – þeir væru svo mikið fjarverandi við einkarekst- ur þar sem þeir sinna sjúklingum sem hið opinbera borgar þeim svo fyrir. Svo tala menn í alvöru um að einkarekstur sé einhver nýjung í heilbrigðiskerfinu á eyjunni. NÚ þegar atvinnulausum fjölg- ar rösklega þótt menn geti ekki einu sinni komið sér saman um hvað þeir eru margir í alvörunni er rétt að hugað sé að lífsgæðum þeirra. Atvinnuleysisbætur eru lágar. Fólk á rétt á margvíslegum stuðningi verkalýðsfélaga hafi það á annað borð haft vit eða skyldu til að sitja í þeim. En betur má ef duga skal: margar listastofnanir bjóða nú öllum ókeypis inn. Menn- ingarstofnanir á borð við bókasöfn eiga nú snarlega að veita atvinnu- lausum ókeypis þjónustu. ÞÁ á einnig að bjóða atvinnulaus- um ókeypis aðgang að Þjóðleikhúsi og öðrum ríkisstyrktum leikhús- um. Sama á að gilda um Sinfón- íuna. Listamenn sem standa fyrir sjálfstæðum listviðburðum eiga að gefa aðgangseyri eftir fyrir þá sem missa vinnuna. Og verða fyrri til áður en tilmælin berast frá Katrínu Jakobsdóttur. AF hverju? Þeir atvinnulausu hafa greitt skatta alla sína starfstíð og nú er kominn sá tími að það á að endurgreiða þeim áralanga styrki við menningarlíf í landinu. Þeir eiga það inni. MUNAR það miklu? Nei, það munar litlu og þótt það sé í blóra við höfundarréttargjöld þarf ekki annað en bréfsnuddu til Leik- skáldafélagsins og erlendra rétt- hafa til að ná því fram tímabund- ið meðan enn hækka tölur í hópi vinnulúinna og atvinnulausra sem vonandi varir ekki lengi. Þeir greiddu sinn aðgang að veislunni og nú er að hleypa þeim inn. Frítt fyrir atvinnulausa Í dag er þriðjudagurinn 3. febrúar, 34. dagur ársins. 10.01 13.41 17.23 9.58 13.26 16.55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.