Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.02.2009, Blaðsíða 4
4 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR SRÍ LANKA, AP Á annan tug manna hafa látist af völdum sprengju- árása á sjúkrahús annan daginn í röð í Puthukkudiyiruppu á Sri Lanka. Stjórnin hvetur nú almenna borgara á átakasvæðunum til að forða sér. Talið er að nærri þrjú hundruð almennir borgarar hafi látist í átökum síðustu tvær vikur á norð- anverðri eyjunni, þar sem stjórn- arherinn hefur sótt inn á yfirráða- svæði uppreisnarsveita Tamíltígra. Á annað þúsund manns eru særðir og talið er að um 250 þúsund manns séu innikróaðir á átakasvæðinu. „Fólk hefur lent í skotlínunni, sjúkrahús og sjúkrabifreiðar hafa orðið fyrir sprengjum og nokkr- ir hjálparstarfsmenn hafa særst við flutning á særðu fólki,“ segir Jacques de Maio, yfirmaður starf- semi Alþjóðanefndar Rauða kross- ins í Suður-Asíu. Svo virtist sem stjórnarherinn hafi gert árásirn- ar á sjúkrahúsið, sem hafa orðið til þess að auka enn frekar áhyggjur manna af íbúum átakasvæðanna. Stjórnarherinn hefur undanfar- ið sótt hart fram gegn Tamíltígr- um og hefur náð á sitt vald helstu borgum og bæjum á yfirráðasvæði tígranna. Stjórnin segist þess full- viss að fullnaðarsigur sé í nánd, en uppreisnarmenn hafa áður átt auð- velt með að fara í felur í fjöllóttu skóglendi svæðisins meðan hart er sótt að þeim, en skotist úr skjólinu með gagnsóknum þegar um hæg- ist. - gb Stríðsátökin á Srí Lanka kosta æ fleiri almenna borgara lífið: Sprengjuárásir á sjúkrahús STJÓRNARHERMENN Hermenn stjórnar- innar á verði í bænum Mullaittivo á Sri Lanka. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Nýr félagsmálaráð- herra, Ásta R. Jóhannesdóttir, segist ekki endilega ætla að ráða sér aðstoðarmann. „Ég er ekki viss um það, en ég þarf örugglega að leita mér ein- hvers liðsinnis til að stýra þessu mikilvæga ráðuneyti við erfiðar aðstæður,“ segir hún. Hvort það verði aðstoðarmað- ur eða ráðgjafi eða annað sé óákveðið; hún hafi ekki haft mik- inn tíma til að undirbúa sig fyrir ráðherradóm. Þá hefur hún ekki ákveðið hvort breytingar verði gerðar á yfirstjórn ráðuneytisins. - kóþ Nýr félagsmálaráðherra: Ekki endilega aðstoðarmann STJÓRNMÁL „Þetta er ágætis árangur á 80 dögum,“ segir Árni Páll Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinn- ar, um stefnu nýrrar ríkis- stjórnar um Evrópusam- bandið. „Við höfum rutt úr vegi erfiðri hindrun í átt að fullri aðild,“ segir hann og vísar til sátt- ar um stjórnarskrárbreytingar sem þarf að fara í áður en aðild að Evrópusambandinu væri sam- þykkt. „Best væri að sækja um aðild strax, en við sættum okkur við að lengra verði ekki komist í aðdraganda kosninga.“ Árni Páll segir að ekki hafi verið rætt um þjóðaratkvæða- greiðslu um aðild í stjórnar- myndunarviðræðunum við Vinstri græna. - ss Stefna stjórnar um ESB: Hindrunum rutt úr vegi ÁRNI PÁLL ÁRNASON HEILBRIGÐISMÁL Ögmundur Jónas- son heilbrigðisráðherra hefur aft- urkallað ákvörðun um að rukka sjúklinga sem lagðir eru inn á sjúkrahúsin. Ögmundur bendir á að innritunargjöld á sjúkrahús hafi ekki tíðkast á Íslandi og þau eigi ekki að vera „fyrsti viðkomu- staður skattheimtumanna“. Ögmundur segir innritunar- gjöldin ekki spara né afla rík- issjóði ýkja mikilla tekna „en skipta miklu máli fyrir þá sem í hlut eiga. Þeir sem helst þurfa að leita til heilbrigðisþjónustunnar eru öryrkjar, aldraðir og fólk sem orðið hefur fyrir tekjumissi vegna sjúkdóma sinna,“ segir hann. „Þessi gjöld voru nýlunda í okkar heilbrigðisþjónustu. Það hefur aldrei verið rukkað fyrir að leggjast veikur inn á sjúkrahús og það mun ekki gerast svo lengi sem ég stjórna í þessu ráðuneyti,“ segir hann og telur allt koma til greina, líka endurskoðun á gjalda- hækkunum fyrri ríkisstjórnar. „Nú þarf að virkja þá sem starfa innan heilbrigðisþjónustunnar til að taka höndum saman um að leita leiða til sparnaðar því að öll vilj- um við fara sem best með pening- ana og varðveita það góða í okkar heilbrigðisþjónustu. Það er stóra viðfangsefnið á þessum niður- skurðartímum að standa vörð um velferðarþjónustuna og láta ekki rífa göt á þetta mikilvæga örygg- isnet.“ Fyrirætlanir um St. Jósefsspít- ala verða skoðaðar gaumgæfilega. „Ég hef óskað eftir fundi með bæjarstjóranum í Hafnarfirði og mun ræða við aðra sem tengjast starfseminni þar. Þetta er fyrst og fremst hafnfirskur spítali og því mun ég byrja á að ræða við bæj- aryfirvöld en síðan mun ég skoða málin, með hvaða hætti er hugs- anlega hægt að reka stofnunina á forsendum sem sátt getur skapast um. Ég gef mér ekkert fyrirfram í þeim efnum en það verður ekki rasað að neinu. Þetta verður skoð- að málefnalega.“ Sjúkratryggingastofnun fædd- ist um áramótin eftir „allerfiða meðgöngu og umdeilda. Það er nokkuð sem ég mun skoða. Mikil átök urðu innan stjórnsýslunnar þegar þessi stofnun varð til og menn fóru að kljúfa niður Trygg- ingastofnun. Ég mun leita sátta um það efni.“ Ögmundur segir að vanhugsað- ar breytingar séu dýrustu breyt- ingarnar. Flausturslega hafi verið að verki staðið og hraði einkenni vinnubrögðin. Mikilvægt sé að hlusta á fólk. ghs@frettabladid.is HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Ögmundur Jónasson segir mikilvægt að virkja starfsfólk heil- brigðisþjónustunnar svo taka megi höndum saman um að leita leiða til sparnaðar. Um leið þurfi að standa vörð um velferðarþjónustuna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Innritunargjöld á sjúkrahús afnumin Heilbrigðisráðherra hefur afnumið innritunargjöld á sjúkrahús og tekur ákvörðunin gildi fljótlega. Ákvarðanir um breytingar í heilbrigðiskerfinu verða endurskoðaðar. Ef ósætti ríkir verða málin endurskoðuð þannig að sátt takist. BAUGSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær frávísunarúrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur í skattahluta Baugsmálsins. Tveir ákærðu í málinu, Jón Ásgeir Jóhannesson og Kristín Jóhannesdóttir, kröfð- ust þess að rannsókn málsins yrði úrskurðuð ólögmæt og saksókn- ari látinn víkja sæti. Í dómi Hæstaréttar er bent á að þar sem búið sé að höfða saka- mál á hendur ákærðu geti þeir látið reyna á þessi sjónarmið í því máli, í stað þess að höfða sérstak- lega mál til að láta reyna á þau. Stefnt er að því að málið verði þingfest í Héraðsdómi Reykjavík- ur 25. febrúar. - bj Hæstiréttur staðfesti úrskurð: Rannsókn ekki dæmd ólögmæt Þú getur alltaf treyst á prinsinn Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200 Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220 www.hafid.is VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 16° 5° 3° 2° 4° 6° 8° 3° 3° 19° 4° 14° 2° 15° -6° 2° 18° 1° Á MORGUN 3-8 m/s og norðlægar áttir. FIMMTUDAGUR Hæg breytileg eða norðlæg átt. 2 0 -1 -2 -4 -2 -2 1 -1 2 -5 3 5 3 4 2 3 2 5 5 9 3 -2 -4 -6 -4 -4 -3 -5 -5 -4 -4 LITLAR BREYTINGAR Það verður áfram kalt og stillt veður næstu daga og kólnar heldur er líður á vikuna. Ekki eru horfur á miklum breyting- um fyrr en í fyrsta lagi næstu helgi. Á meðan er um að gera að klæða sig vel og njóta veður- blíðunnar! Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, segir koma til greina að birta lista yfir eigur sínar og eignatengsl. Þingmenn flokksins hafa birt slíkan lista á heimasíðu Framsóknar. Spurður hvort hann muni feta í fótspor þing- manna segir Sigmundur: „Ég gæti nú alveg gert það. Ég hef ekki fylgst með þessum birtingum, en ég mun þá eflaust gera það líka ef ég kemst í þing- mannahópinn.“ Spurður hvort það komi ekki til greina að gera það nú þegar hann er orðinn for- maður, segir hann: „Jú, ég gæti alveg gert það, jafnvel nú á næst- unni.“ - kóp Formaður Framsóknarflokks: Gæti birt lista yfir eigur sínar SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON MENNTAMÁL Allir nemendur Sæmundarskóla í Grafarholti voru sendir heim í gær vegna kulda. Hitakerfi skólans hafði bilað og var kuldinn innandyra við frostmark. Þóra Stephensen aðstoðar- skólastjóri segir að í samráði við menntasvið borgarinnar hafi verið ákveðið að hafa samband við foreldra krakkanna og biðja um að þeir yrðu sóttir. Ekki hafi verið hægt að kenna við þessar aðstæður. Þóra segir skólahald verða með eðlilegu móti í dag. Í Sæmundarskóla eru um 230 nemendur í fyrsta til áttunda bekk. - sh Nemendur sendir heim: Kuldi kom í veg fyrir skólahald GENGIÐ 02.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 193,3038 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,2 115,74 163,73 164,53 146,6 147,42 19,665 19,781 16,435 16,531 13,745 13,825 1,2934 1,301 171,43 172,45 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.