Tíminn - 04.01.1983, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
3
fréttir
Oánægja meðal kanadískra verkamanna á Djúpavogi:
„VORUM GINNT HINGAÐ A
FÖLSKUM FORSENDUM”
■ „Það er allt annað en þægilegt að vinna ólöglega í framandi landi vegna falskra
Ioforða,“ segja þær Norma Thomas og Kim Norvis, kanadískar stúlkur, sem verið
hafa í vinnu hjá Búlandstindi á Djúpavogi síðan í haust.
■ Mikil óánægja ríkir nú meðal
nokkurra kanadískra verkamanna sem
unnið hafa í fiskvinnu hjá Búlandstindi
á Djúpavogi síðan 12. september í haust.
Telja þau að munnlegir samningar, sem
gerðir voru áður en þau lögðu upp frá
Kanada hafi verið margbrotnir.
„Við réðum okkur 17 talsins í vinnu
hjá Búlandstindi hjá umboðsmanni fyrir-
tækisins í Winnipeg eftir að auglýsing,
þar sem boðið var upp á mjög góð kjör,
birtist í einu blaðanna í borginni," sögðu
þær Kim Orvis og Norma Thomas í
samtali við blaðamann Tímans.
„Umboðsmaðurinn talaði um að við
myndum fá milli fjóra og fimm kanada-
dollara á tímann, og á það hefði
verðbólgan engin áhrif. Raunin hefur
orðið sú, að tímakaupið nær ekki nema
rúmlega þremur og hálfum dollar.
Okkur var lofað góðu hótelherbergi,
tveggja manna með sturtu og eld-
húskrók. Þegar komið var til Djúpavogs
fengum við hótelherbergi, tveggja
manna, án baðs og við urðum að deila
eldhúsi með tuttugu manns, sem allir sjá
að er ómögulegt," sögðu stúlkurnar
ennfremur.
„Höfum ekki
atvinnuleyfi“
„Það sem sennilega er allra verst,"
sögðu stúlkurnar, „er að við erum hérna
án þess að hafa atvinnuleyfi. Okkur var
sagt áður en við fórum frá Kanada, að
það tæki kannski tvær vikur að útvega
atvinnuleyfi. Nú erum við búin að vera
hér í næstum fjóra mánuði og ekkert
bólar á leyfinu. Þegar við minntumst á
það við förráðamenn Búlandstinds, var
okkur sagt að við þyrftum að verða
okkur út um lungnamyndir áður en
leyfið fengist. Til að fá lungnamyndirnar
þurftum við að fara annað hvort til
Norðfjarðar eða Eskifjarðar, sem er 5
til 6 tíma ferðalag með bíl, en til þess
gátum við ekki fengið frí frá vinnu.
Nú vegna þess að við höfðum ekki
atvinnuleyfi fengum við mjög takmark-
aða gjaldeyrisyfirfærslu. Mörg okkar,
sennilega flest, þurftum að senda pen-
inga til Kanada, annað hvort til fjöl-
skyldna okkar eða þá til að borga lán,
til dæmis."
„Höfum ekki efni á
að kaupa farseðla“
- Af hverju snúið þið ekki aftur til
Kanada?
„Það er hægara sagt en gert. Það eina
sem við höfðum skriflegt áður en við
fórum frá Kanada, var að við ættum að
borga flugfar til íslands sjálf. Búlands-
tindur keypti miðana og við áttum aö
borga þá með átta jöfnum greiðslum.
hins vegar áttum við að fá frítt t'ar til
baka yrðum við 9 mánuði og eina viku
á Djúpavogi. Ekkert okkar hefur efni á
að kaupa farmiða eins og málin standa
nú.“
- Þið voruð 17 sem réðust í vinnu hjá
Búlandstindi - hversu margir hafa hætt?
„ Við erum að minnsta kosti fjórar sem
þegar erum hættar og ég veit um tvo
stráka sem búnir eru að segja upp frá og
með næstu mánaðamótum.,,
- Hvað tekur við?
„Við tvær erum að leita að vinnu hér
á íslandi og eigum von um að það gangi
fljótlega. Ef ekki, er ekki annað fyrir
okkur að gera, en að skrifa foreldrum
okkar bréf og biðja þau um aðstoð, sem
ekki er góður kostur vegna þess að
foreldrar mínir eru atvinnulausir og hafa
lítil fjárráð", sagði Kim.
- Hafið þið leitað til verkalýðsfélags-
ins á Djúpavogi vegna þessa máls?
„Við höfum auðvitað rætt við verka-
lýðsfélagið, en einu afskiptin sem þaö
hefur haft af okkur var loforð um að
halda fund um öryggismál með enskum
túlk, en við það hefur ekki verið staðið
enn.“
- Hvað höfðuð þið í kaup að meðaltali
ntcðan þið voruð á Djúpavogi.
„Ætli við höfum ckki fengið milli 16
og 1800 krónur að meðaltali þegar búið
var að draga allt frá. En cinn úr okkar
hópi fékk útborgaðar 14 krónur einn
föstudaginn, en hann hafði að vísu verið
fjarverandi í tvo daga, svo vinnuvikan
var þriggja daga.
Svo það má scgja að við höfum verið
ginnt hingað á fölskum forsendum,"
sögðu stúlkurnar.
Þrátt fyrir ítrckaðar tilraunir tókst
ekki að ná í framkvæmdastjóra Búlands-
tinds í gærkvöldi.
Framkvæmdastjóraskipti
hjá Framsóknarflokknum:
„Lifandi
þjónustu-
miðstöd”
— segir Haukur Ingibergsson,
sem tók vid framkvæmda-
stjórastarfinu um áramótin
■ Þráinn Valdimarsson afiienti í gær Hauki Ingibergssyni lyklavöldin að skrifstofu
framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins að viðstöddum Steingrími Hermannssyni,
formanni flokksins. Þeir gátu ekki varist brosi er við höfðum orð á að lykillinn yrði
í Hauks vörslu til ársins 2018 ef hann ætlaði sér að feta í fótspor Þráins.
Gísli Alfreds
son skipadur
Þjóðleikhús*
stjóri:
„Áfram
unnid ad
eflingu
innlendrar
leikritunar”
■ Gísli Allreðsson leikari var í gær
skipaður Þjóðleikhússtjóri og sam-
kvænit nýjuin Þjóðleikhúslögum var
hann skipaður frá 1. janúar og starfar
samhliða fyrirrennara sínum fram til 1.
scptember n.k. er liann tckur einn við
starfinu. Með þessum hætti er ætlunin
að gefa nýjum Þjóðlcikhússtjúra tæki-
færi til að móta sjálfur fyrsta starfsár
sitt jafnfraint þvi sem fráfarandi Þjóð-
lcikhússtjóri fylgir síðasta starfsári
sínu eftir til cnda. Kins og kunnugt er
gaf Sveinn Einarsson ekki kost á sér
til að gegna starfinu áfram, en í það cr
ráðið til fjögurra ára í senn.
„Það hefur verið stefna Þjóðleik-
hússins síðustu ár að styðja við bakið
á íslenskri leikritun, sem hefur í örum
þroska undanfarið, - Ég held að það
hafi verið eining innan leikhússins uni
þessa stcfnu og gcri ráö fyrir að henni
vcröi fylgt áfrani," sagði Gísli Alfrcðs-
son er Tíminn spurði hann í gær hvort
hann hcfði haft ákvcðnar hugntyndir
um breytta stefnu í verkefnavali er
hann ákvaö að sækja um starfið.
- Telur þú að hafi ríkt öánægja að
cinhverju leyti með listræna stefnu
hússins að undanförnu meðal
starfsfólks þcss?
„Nci, - ég hef ekki oröið var við
það. Ég held að það sé eining um þessa
grundvallarstcfnu sem ég nelndi áðan.
Ég vonast til að mér auðnist að
framfylgja henni áfram. Nú hcf ég
þennan tíma fram til 1. september til
að móta starfiö næsta leikár. Það fer
auðvitaö aldrei hjá því að smekkur
þcss sem stjórnar nióti vcrkefnavalið
að einhverju leyti cn þess ber þó að
gcta að Þjóðleikhússjóri einn ræður að
sjálfsögðu ckki verkefnavalinu, þar
kcmur til verkefnavalsnefnd, sem í
eiga sæti starlsmenn hússins, leikarar
og leikstjórar og fulltrúi frá Þjóðleik-
húsráði." JGK
„Er orðinn hæfi-
lega langur tími”
— segir Sveinn Einarsson,
sem brátt lætur af störfum
■ „Flokksskrifstofan er fyrst og fremst
lifandi þjónustumiðstöð fyrir framsókn-
arnienn og framsóknarfélögin í landinu
svo og Framsóknarflokkinn“, svaraði
Haukur Ingibergsson, er Tíininn spurði
hann í gær hvernig hann líti á starfssvið
flokksskrifstofu og framkvæmdastjóra
Framsóknarflokksins. En Haukur tók í
gær við því starfi að Þráni Valdimarssyni
sem framsóknarmenn munu flestir sam-
mála um að hafi verið farsæll fram-
kvæmdastjóri í 35 ár.
- Og leita þá margir til ykkar þarna á
Rauðarárstígnum?
„Daglega leggja margir hingað leið
sína vegna ýmissa mála og erinda. Ég
vil þó nota þetta tækifæri til að hvetja
framsóknarmenn til að koma hér enn
fleiri og enn oftar - þó ekki sé nema að
líta við hjá okkur í smá spjall. Það er
mjög mikilvægt að við séum í sem
nánustum tengslum við sem flesta til að
vita sem best hvaða skoðanir og álit þeir
hafa í hinum ýmsu málum. Flokkurinn
og skrifstofan cr að sjálfsögðu til fyrir
fólkið en ekki fólkið fyrir flokkinn og
skrifstofuna. Því er mikilvægt að heyra
sjónarmið sem flestra."
- Nú tekur þú við störfum rétt fyrir
alþingiskosningar?
„Það eru vitanlega miklar annir á
flokksskrifstofunni um þessar mundir og
verða örugglega næstu mánuði - fram
að kosningum. Hér er unnið að megin-
skipulagi kosningabaráttu Framsóknar-
flokksins. Ég tel m.a. afar mikilvægt að
skrifstofan sé sem allra virkust í
upplýsingagjöf og upplýsingaöflun fyrir
flokksmenn og framsóknarfélögin um
allt land."
- Hyggur þú kannski á breytta
starfsemi á þessum tímamótum?
„Það að Þráinn Valdimarsson skuli
vera búinn að gegna þessu starfi í 35 ár
hlýtur að vera sönnun þess að hann hafi
gegnt því mjög vel. Það er því varla
ástæða til neinna sérstakra breytinga.
Auðvitað hljóta hins vegar breyttir
tímar og aðstæður alltaf að kalla á
breytta starfshætti í tímans rás.“
■ Sveinn Einarsson
■ „Mcr flnnsl þessi tími sem ég hcf verið
leikhússtjóri vera orðinn hæfílcga langur
fyrir mig þella cru oröin 20 ár, fyrsl í Iðnó
og síðan i Þjóðleikhúsinu,“ sagði Sveinn
Einarsson Þjóðleikhússtjúri, í sumtali við
Tímann í gær, en hann lætur senn af
slörfum, en hann sólti ekki um stöðuna á
ný er hún var auglýst laus til næstu fjögurra
ára í fyrra mánuði.
„Ég heltl að það sé ágætt bæði fyrir mig
og leikhúsið að nú skuli skipt um. Hvað
mig snertir þá hef ég átt ágæt ár hjá
Þjóðleikhúsinu og saman höfum cg og
samstarfsmenn mínir komið ýinsu til leiðar
sem gaman er að minnast. En þar kemur
á móti að maður hefur kannske haft minni
tíma til að sinna ýmsum áhugamátum en
maður hefði viljaö. til dæmisuppsctningum
og skriftum sem hugur manns kann að hafa
staöið til. Þctta er taliö heldur erfítt starf
og ég held að þetta sé orðin ágæt útgerö.
- Ég finn þaö líka að hefði það komið til
að ég hefði orðið 4 ár í viðból, þá hefði
það orðiö erfiðara að hætta þá og snúa sér
aö öðru.
- Nú hljöta stjórnsýslustörf að hafa
tekið mikið af tíma þínum, - má búast við
að þú snúir í auknum mæli að leiksljórn
hjá leikhúsunum cftir að þú ert orðínn laus
úr sæti leikhússtjórans?
„Já. - það má vel vera segir Sveinn og
hlær, - við getum alla vega sagt að ég verði
á markaðnum og ef einhver býður í mig þá
reyni ég að standa mig.
Ég er alls ekki neitt sorgbitinn yfir því
að láta nú af störfum," segir Sveinn að
lokum, það er heldur létt yfir mér þessa
dagana. Það eina er að ég kem til með að
skna góðra starfsfélaga, sem ég hef átt gott
samstarf við á undanförnum árum. JGK
- HEI