Tíminn - 04.01.1983, Side 6

Tíminn - 04.01.1983, Side 6
V> ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 í spegli tímans Ballett-dansmærin Makarova: á leik- sviðinu ■ Natalia Makarova, hin heimsfræga ballctt-dansmær sem við sáum í sjónvarpinu á jólunum dansa í Svanavatninu, varð fyrir því slysi að axlar- brotna og fá mikið högg og skurð á höfuðið á sviði í Kennedy Center Operuhúsinu í Washington. Slysið vildi til, er vcrið var að skipta um svið í danssýningu, þar sem Natalia Makarova dansaði í sínum fyrsta söng- og dansskemmti- þætti, sem nefnist „On Your Toes“. Þungt stykki úr leik- tjaldi féll niður og beint á dansmeyna. Þarna var verið að undirbúa annan þátt í sýningunni, en henni var þegar í stað hætt, og áhorfendur sem voru um 1800 neyddust til að yfirgefa óperuhúsið. Það var farið með Nataliu Makarovu á George Washing- ton sjúkrahúsið, og það hefur verið tilkynnt, að það taki minnst 8-10 vikur að axlar- brotið grói. Höfuðhöggið var ekki eins alvarlegt og leit út í fyrstu, og ekki var talið að höfuðkúpan heföi brákast. Ekki er búist við að Natalia komi til með að dansa meira í þessum sýningum í Washing- ton, og enginn veit hver áhrif þctta slys kcmur til með að hafa á dansferil hennar. Natal- ia Makarova er 42 ára og talin ein af bestu ballcttdansmey- jum í heimi. ■ Natalia Makarova í ballettinum „On Your Toes“ ásanit meðdansara sínum George de la Pcna. ■ Alessandra Mussolini, systurdóttir Sophiu Loren og sonardóttir einræðisherrans Bcnito Mussolini, er nú álitin ein efnilegasta unga leikkona ítala. ■ Claudia Cardinale og Pasquale Squitieri hafa gert saman mynd um Benito Mussolini. Þar lék Claudia Clöru, ástmey einræðisherrans, sem gekk út í opinn dauðann með honum. CLAIIDIA MIRFTI EKKI AD HAFA AHYGGIUR ■ „Það er gott og blessað að treysta fólki, en aliur er þó varinn góður,“ sagði ítalska leikkonan Claudia Cardinale, pakkaði niður í ferðatöskur sínar og hélt heim til Rómar í hasti. Claudia var stödd í New York, þegar henni barst í hendur blað, þar sem fjallað var um nýjustu mynd sambýlis-. manns hennar, leikstjórans Pasquale Squitieri, en þar fer með aöalhlutvcrk Alessandra Mussolini. Myndin ber nafnið „Pupctta“ og fjallar um Mafíu- drottningu. Með blaðagrein- inni fylgdu myndir, og gat Claudia ekki betur séð en Alessandra og Pasquale stæðu hvort öðru óþarflega nærri. Og þar sem Alessandra þykir með afbrigðum fögur stúlka, enda systurdóttir sjálfrar Sopli- iu Loren, þótti Claudiu vissara að kanna málin nánar. Hún gat þó dregið andann léttara, þegar heim kom, því að í Ijós kom, að Alessandra ber svipaöar tilfinningar í brjósti til Pasquale, sem er 20 árum eldri cn hún, og dóttir til föður. Frank Sinatra afbrýðisamur ■ Frank Sinatra er alræmdur skapmaður. Því skyldi engan undra þó að hann fengi algert æðiskast, þegar honum bárust spurnir af því, að Barbara, kona hans, hefði sést á nætur- klúbbi í New York í fylgd með ungum manni og virtist fara mjög vel á með þeim. Það sljákkaði þó aöeins í Frankic, þegar málið upplýst- ist. Fylgdarsveinn Barböru var enginn annar en fyrrum stjúp- sonur hennar, Robert Marx, en Barbara var uin skeið gift gamanleikaranum Zeppo Marx. A þeim tíma kallaði Robert hana mömmu, en nú ávarpar hann hana með skírnarnafni. Héðan í frá hefur Frank gefið konu sinni ströng fyrir- mæli um að láta hann alltaf vita hvað hún tekur sér fyrir hendur og í hvaða félagsskap hún er. ■ Barbara Sinatra fór á diskó- tekið Xenon í New York með ungum manni. Þcgar betur var að gáð var hér kominn fyrrum stjúpsonur hcnnar, Robcrt Marx. viðtal dagsins „FYRSTA HUGSUNIN AÐ KOMAST HEIM MEÐ NÆSTU VÉL” - rabbað við Maríu Emmu Suarez, Filippseying sem sótt hefur um íslenskan ríkisborgararétt ■ „Ég er bara nokkuð ánægð með lífið hérna á íslandi þótt í fyrstu héldi ég að mér tækist aldrci að sætta mig við veðrátt- una. Ég er vön allt upp í fjörutíu stiga hita, enda var mér brugðið þegar ég kom hingað í svartasta skammdeginu fyrir þremur árum. Það var niðadimmt að morgni dags og kuldinn var meiri en ég haföi gert mér í hugarlund að hann yfirleitt gæti orðið. Mín fyrsta hugsun var að komast heim með næstu vél.“ Þetta sagði María Emma Su- arez, Filippseyingur að uppruna en núverandi húsmóðir í Reykjavík. María Emma er gift Sigurði Runólfssyni. bakara og eiga þau einn son. Hún var meðal þeirra sem sóttu um íslenskan ríkisborgararétt nú fyrir áramótin. „Þrátt fyrir allt, hef ég séð að það er mun betra að búa hér á Islandi en á Filippseyjum og ég

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.