Tíminn - 04.01.1983, Page 9

Tíminn - 04.01.1983, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 9 áramótaávarp forseta Islands: Á erfiðum tímum gerum við það hvert öðru best að standa saman ■ Ég óska öllum landsmönnum gleði- legs árs. Þegar nýtt ár gengur nú í garð býr mér engin ósk dýpra í hjarta en að okkur íslendingum takist með samstöðu og sameiginlegu átaki að vinna bug á örðugleikum, sem að steðja - að árið færi okkur trú á bjarta daga þar sem friður og samlyndi sitji í öndvegi. Það var eitt sinn fyrir allmörgum árum að eldri maður, sem hafði yndi af því að spjalla við börn og reyna ályktunarhæfni þeirra, spurði ungan samferðarmann sinn: „Hvert fer tíminn?“ Sveinninn ungi hugsaði sig um dágóða stund og svaraði síðan: „Hann fer í minningarn- ar“. „En hvert fara þá minningarnar?“ spurði maðurinn. Eftir nokkur heilabrot svaraði sveinninn: „Þær fara í mann- kynssöguna". Þetta þótti lífsreyndum manni gott svar og sagði börnum sínum, sem síðan hafa sagt það sínum börnum. Tíminn er sameign okkar allra Á fyrsta degi nýs árs hugleiðum við venju fremur tímann, hvernig hann hefur liðið og hvað hann kunni að bera í skauti sínu í framtíð: þessi óstöðvandi tími sem er eins og fugl sem aldrei tyllir sér niður eitt andartak heldur er horfinn. út í bláinn fyrr en varir og orðinn að fortíð. Hann er sameign okkar allra á jörðunni, óslitin keðja sem tengir alla atburði lífsins. í mynd reynslu og minninga er hann lærifaðir okkar sem heldur okkur sístarfandi við að móta okkur og gera okkur samtíðina skiljan- lega. Því er jafnan vert að spyrja hvernig við fáum best gert tímann að minningum sem eru þess virði að þeim sé haldið til haga. Það er hollt að reyna að átta sig á því hvort þær Ieiðir sem farnar hafa verið séu hinar einu réttu og hvort ekki sé unnt að velja betri leiðir eða ryðja enn fleiri. Hér á Bessastöðum leita minningar um liðinn tíma einatt á hugann. Staður- inn er svo nátengdur sögunni um afkomu íslensku þjóðarinnar. í raun og veru greina minningar Bessastaða skýr- ast sögustaða okkar frá því hvaða leið kynslóðirnar hafa gengið síðan norrænir menn höfðu valið sér íslenskt þjóðerni og fest rætur í landinu. Rismikið blómaskeið þjóðarinnar á miðöldum tengist Bessastöðum, þegar staðurinn var í eigu Snorra Sturlusonar, því næst daprar aldir örbirgðar doða og sinnuleys- is, þegar þjóðin hafði gefið líf sitt og vinnuþrek erlendu konungsvaldi. Enn eru Bessastaðir sögustaðurinn mikli þegar íslensk þjóð rumskar eftir langan svefn og vaknar til dáða með frelsishug- sjón að leiðarljósi. Með hlýju og stolti hugsum við til þeirra æskumanna sem hér gengu um dyr í gömlu Bessastaða- stofu eins og hún enn stendur, Latínu- skólann gamla, í byrjun 19. aldar og síðar urðu ritsnillingar, stórskáld og þjóðmálafrömuðir. Þegar þeir stofna Fjölni á Kaupmanna- hafnarárum sínum og senda heim til ís- lands er það meginmarkmið þessa „árs- rits handa íslendingum" „að vekja and- ann með þjóðinni" eins og þeir komust að orði. Þeirra tímar, tímar Jóns Sigurðssonar og þeirra ótalmörgu sem hver fram af öðrum áratug eftir áratug unnu að því frelsi þjóðarinnar sem við njótum nú hafa vissulega orðið að minningum sem aldrei firnast. Þegarsvo loks að því kom að langþráð lýðveldi fullfrjálsra íslendinga var endurreist höfðu Bessastaðir verið færðir þjóðinni að gjöf - til eignar og ábúðar; tíminn og sagan gátu haldið þar áfram að spinna minningar allra þeirra sem að garði ber um þjóð sem með fullri reisn er þjóð meðal þjóða. Einangrun rofin Þegar sá dagur nálgast á komandi sumri að sólargangur verði lengstur kemst íslenska lýðveldið á fertugasta aldursárið. Á þessum stutta tíma þjóð- arævinnar hefur meira áunnist en bjart- sýnustu menn mun hafa órað fyrir. Líf fólksins í landinu hefur tekið miklum - nær algjörum stakkaskiptum. Leiðin hefur legið frá fábrotnu líferni, aðhaldi og nýtni, til ótrúlegrar velmegunar þar sem lítt hefur verið til sparað - kannski stundum of lítið - til að gera lífið sem þægilegast. Einangrun eylandsins norð-. ur við Dumbshaf hefur verið svo ræki- lega rofin að við liggur að landið sé komið í þjóðbraut þvera. Allar helstu nýjungar- heimsins berast okkur með hraði. Sjálfir eru íslendingar á ferð og flugi um víða veröld og snúa margir hverjir heim ríkir af fróðleik um líf og störf fjarlægra þjóða. Af öllu því góða sem þessi tími hefur gefið okkur til að auðga minningarnar ber ekki síst að meta það að hann hefur blásið okkur þann anda í brjóst að framlag okkar til vísinda, lista, íþrótta og verkmenningar er orðið þekkt og eftirsótt í mörgum löndum. í svo ríkum mæli hefur okkur tekist að koma því á framfæri hversu skapandi fámenn þjóð okkar er, að stórþjóðir er hættar að leiða hugann að því að við séum smáþjóð. Ég tel mig geta trútt um talað, eftir að hafa verið fulltrúi fslands sem gestur meðal milljónaþjóða með list og menn- ingarauð mér til liðs. Frá liðnu ári er þátttaka íslands í menningarkynningu Norðurlanda í Vesturheimi minnisverð- ust á þessu sviði. Þótt ekki hafi verið hægt að koma á framfæri nú nema broti af því sem við hefðum viljað og talið verðugt var stigið skref sem athygli vakti og vænta má að sé upphaf langrar ferðar til vegsauka, ef rétt og vel er á málum haldið. Víst er, að listunnendum vestra og miklu víðar cr nú fullkunnugt um að við eigum býsna margt og fjölbreytilegt í fórum okkar til að sýna og kynna og þeir hafa látið þá ósk í Ijós að fá nýrra og meira að heyra. Gjöful menningartengsl ættu allar þjóðir að kostgæfa. Ég vík ekki frá þeirri skoðun, að því nánari kynni sem þjóðir hafa hver af annarri, þeim mun meira tillit taka þær hver til annarrar. Slík tengsl brýna friðarviljann og skapa skilyrði til að vopnum fækki. Þjóð okkar hefur einnig á velferðar- tímum reynst sómarík meðal þjóða fyrir hve einarðlega hún bregst við hvenær sem mannúðar- og mannréttindamál eru á baugi. Sameinuðu þjóðirnar hafa um skeið hvatt þjóðir til að sinna sérstaklegá ýmsum þeim málum sem betur mega fara í heiminum; ár aukinna kvenrétt- inda, ár barnsins, ár fatlaðra og ár aldraðra. Öllum þessum málum höfum við veitt brautargengi og einkum lagt okkur fram við að hlúa sem best að og gera sem mest til gleði þeim sem á einhvern hátt eru vanmegnugir. Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar tekið þá ákvörðun að nýja árið skuli helgað bættum fjarskiptum og samgöngum milli þjóða heims og er það vel. Enn búa margir við slíka einangrun að þeir þekkja ekkert til umheimsins. Unga fólkið En hvenær skyldum við mega vænta árs unga fólksins? Á því leikur enginn vafi að það gæti orðið öllum til gagns og gleði að staldra við oftar en gert er og leggja sérstaka rækt við æskufólk sem er á erfiðu skeiði lífsins á mörkum þess að vera börn og fulltíða menn. Við mættum koma því betur til skila hve óendanlega hlýtt okkur er til unga fólksins og hvernig við viljum veg þess sem mestan og bestan án þess að vera sírexandi til að leiða því fyrir sjónir okkar eigin sannleika oft ærið gamaldags. Við mættum reyna að skilja betur unga fólkið, nýstárleg og skemmtileg uppá- tæki þess. Þau eru mörg öðruvísi en við eigum að venjast sem eldri crum, þótt einu sinni höfum verið ung. Eitt af einkennum tímans, sem svo hratt líður yfir í minningar er að mcð honum breytist lífsafstaðan frá ári til árs með nýjum uppfinningum og nýjum lífsvenj- um. Löngum hafa cldri kynslóðirnar fjargviðrast út af yngri kynslóðum sem Þorsteinn Guðmundsson Skálpastöðum Glampar í fjarska á gullin þii Frásöguþættir Hörpuútgáfan. ■ Höfundur segir í formála: „Það myndi gleðja mig ef frásagnirnar, t.d. um dýrin, snertu streng í barnshuga eða ættu hljómgrunn í huga æskumanns." Þarsegir hann líka: „Nafnið á bókinni á að benda til þess að þetta séu svipmyndir frá liðinni tíð, sem bjarmar af í minningunni.“ Þetta hvort tveggja segir til um það, með hvaða huga jjættirnir eru skráðir. En aftast í bókinni er gerð grein fyrir höfundinum, svo semgerist í mannfræði- ritum. Þar segir Þorsteinn hafi „verið 'ekkcrt var um að fcta nákvæmlega troðnar slóðir. Það mætti cinnig spyrja hvort það væri æskilegt. Kynni það ekki að vera merki um stöðnun og aíturför? Unga fólkið þurfum við af mctnaði að virkja með okkur fyrir framtíðina, gleðjast með því og sameiginlega vinna bug á tómlæti scm víða virðist einkenna bæði unga fólkið og fullorðna. Enn skal á það minnst að ekkert er dapurlegra cn að hafa ekki annað fyrir stafni en að drepa tímann, láta hann hverfa út í buskann í gleymskunnar dá. En til bóta þarf sjált'saga og það ekki aðeins virkur í störfum fyrir sveit sína og hérað og í forystusveit borgfirzkra bænda um flest sem til heilla horfði. Hann hefur fengist nokkuð við ritstörf. Kvæði og greinar cftir hann hafa birzt í blöðum og tímaritum." Allt er þetta gott og blessað, cn segir raunar fátt um þessa þætti. Þeir eru næsta sundurleitir. En allir eru þeir sagðir á tæru máli og hvað framsetningu snertir.og málfar eru þeir prýðilegir. Segjá má, að efni þeirra flestra sé næsta hversdagslegt en lengstum erum við nú öll í hversdagsleikanum og hann mótar okkur. Og þó að líf okkar al.lt sé eintómur hversdagsleiki eru þar örlög okkar, auðna og ógæfa. Og listin er sú að sjá hið stóra í hinu smáa, sjá það og sýna það öðrum. Og þar er Þorsteinn æskunnar. Eigi fullorðið fólk að miðla æskunni af ríkidæmi reynslu sinnar þarf það einnig að tentja sér aga og síðast en ekki síst að rækta nteð sér kærleika. Hvað viljum við? Fyrir og um þessi áramót hefur ntönnum orðið einkar tíðrætt um mikinn vanda þjóðarbúsins og erfið úrlausnar- efni. Þegar litið er til minninganna sem cr saga þessa lands og þessarar þjóðar hefur svo ótal oft verið svart á álinn - svartara en nú er. Dr. Kristján Eldjárn, dyggur vinur okkar allra, sem við hugsum til með miklum söknuði, lét svo um mælt í áramótaræðu sinni árið 1980 er hann skildi við embætti: „Kjörorð Jóns Sig- urðssonar var Eigi víkja, og getur þýtt margt, meðal annars að aldrei megi láta undan síga í sókn þjóðarinnar að markmiðum frelsis og menningar í þessu landi, á hvaða vettvangi sem er. Það merkir einnig að ekki skuli æðrast og þaðan af síður örvænta, þó að eitthvað gefi á bátinn." Ég vil gera þcssi orð forvera míns að cinkunarorðum okkar á nýju ári. Islenska þjóðin er sífellt að velja sér framtíð, tilveru. Sú spurning hlýtur að vcra áleitin í hugum okkar um þessar mundir: Hvað viljum við íslendingar? Viljum við komast yfir scm mest, ná öllu sem hugurinn girnist og löngunin blæs okkur í brjóst? Viljum við setja markið svo hátt að cngin leið sé að ná því? Eða viljum við meta hvaðokkurerfært, velja úr þau svið sem við getum náð árangri á og vinna að því að nýta möguleika okkar út í æsar? Við skulum vcra hófsöm, en þó setja markið hátt. Á erfiðum tímum gerum við það hvert öðru best að standa saman. Treysta hvert öðru, leggjast á eitt til samcigin- legar farsældar. Viö viljum svo margt, og við höfum svo mikið að gefa hvert öðru að tímabundnir erfiðleikar breyta cngu um hvc gott það er að búa í þessu landi. Meðan við eigum okkur þann metnað að gera okkar besta þá mun vel farnast. Sé markið sett svo hátt að við verðum að neyta allra okkar krafta þá erum við á réttri leið. Þá er andinn í þjóðinni glaðvakandi í bjartsýnni önn daganna. Því skal ekki gleymt að í tímanna rás höfum við nokkurt vald yfir hvernig minningarnar um okkur verða. Gleðilegt ár! á Skálpastöðumn hlutgengur rithöf- undur. Ég veit ekki hvort ásstæða er til að fjölyrða um einstaka þætti. Riddarinn á hvíta hestinum sómir sér vel sem smásaga, - góð smásaga. Gunnar og Kola og Droplaug og dóttir hennar eru perlur sem mér þætti söknuður að. Fyrsti laxinn minn er allt annað og meira en venjuleg veiðisaga. Svo mætti halda áfram. Enda þótt þetta sé bók um hvers- dagslega atburði, er hún engin miðlungs- bók. Höfundur hefur alla ævi verið handgenginn bókmenntum, kunnað að njóta þeirra og að þeim býr hann og lætur okkur nú njóta þess. Jl.Kr. menningarmál Perlur minninganna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.