Tíminn - 23.01.1983, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983
Vinsælda-
kosningar
Nútímans
■ Svipað og í fyrra höfum við á
Nútímanum ákveðið að halda vinsælda-
kosningar, en þessum ágæta sið var
komið á að nýju eftir að þessi starfsemi
hafði legið niðri hér um árabil.
Viö hvetjum að sjálfsögðu alla lesend-
ur Nútímans að leggja þær „gráu" í
bleyti og rifja upp hvað þeim þóttu bestu
hljómsveitir ársins, innlendar og erlend-
ar, bestu plötur ársins og bestu lög ársins
og vinsamlegast reyna að finna þrjár í
hverjum flokki.
Við munurn birta þennan atkvæðaseð-
il þrjár vikur í röð eða frant að 7. febrúar
en vonumst síðan til að geta birt úrslitin
þann 14. febrúar.
Dregið ntun úr innsendum atkvæða-
seðlum og fá fjórir hcppnir þátttakendur
senda plötu frá Hljómplötudeild Karna-
bæjar.
Og þá et ekki annað eftir en dýl'a
pennanum í blekbyttuna og senda
seðilinn til: Nútíminn/Dagblaðið
Tíminn, Síðumúla 15, 105 Reykjavík.
Hér gala
Gaukar
— tónleikar á
Borginni með
Gaukum, DRON
og Centaur
■ Benni pís stakk höfðinu inn á
ritstjórnarskiif'stofu Nutímans um dag-
inn með „heita“ frétt úr poppinu,
nefnilega að Gaukarnir ætluðu að Italda
tónleika á Borginni næstkomandi
flmmtudag ásamt hljómsveitunum
DRON og Centaur.
Gaukarnir. eða mussupoppararnir
eins og Benni kallar þá, gerðu garðinn
frægan hér um árið í Óðali og hefur
svitinn og hitinn sjaldan verið í betra lagi
en þá er DRON og Centaur koma
kraftmiklar út úr Músíktilraunum SATT
í Tónabæ. Raunar vann DRON þá
keppni en Centaur var að mati ESE
fyrrum poppskríbents á þessum síðum
ein besta hljómsveitin á þessum „tilraun-
um“ enda mun hún nú vera ein af
sárafáum þungarokkssveitum sem til eru
á landinu.
-FRI
r -i 1 \lllBfisK L. i 8HB 1
•r m. Æá WkÆmm'íTh. ’
■ Gaukarnir
Punk sic’s
var réttnefni
■ Hálftómur salur Félagsstofn-
unar stúdenta blasti við er undir-
ritaður stakk þar inn toppstykk-
inu til að fylgjast með stuðnings-
tónleikum fyrir mynd Fjalakatt-
arins The great rock’n’roll
swindle. Skyndi- eða instant
hljómsveitin Punk sic’s sérstak-
lega stofnuð í tilefni þessara
tónleika hamaðist á sviðinu og
maður verður að láta þess getið
að þótt hún hafí átt að leika lög
í anda Sex Pistols sálugu þá var
nú alveg óþarfí að fara allt aftur
til „bílskúratímabils“ þeirra
mætu sveitar því eins og Luigi
fyrrum félagi minn sagði...
„þetta er bara hávaði“...
Raunar virtust þeir félagar. Pollock-
bræður, Gunnþór og Ásgeir hafa mun
meira gaman af hávaðanum sem þeir
framleiddu en áheyrendur. hættu oft í
byrjun, eða miðju lagi, hrákaslummur
flugu um loftið og inn á milli var keyrt
á gamalkunnum pönk-frösum. Mike
Pollock öskraði með og undir lokin í
síðasta laginu kom setningin Rescue me
eða bjargið mér.en enginn áheyrenda
þaut til og kippti kappanum af sviöinu
og úr þessum bömmer. Punk sic's var
réttnefni því sveitin var í einu orði sagt
(sic).
Tappi tíkarrass tróð upp næst, traust
að vanda. Tóku nokkur lög af plötu sinni
Bitið fast í vitið auk nýrra laga sem flest
voru í þyngri kanti nýbylgjurokksins.
Jakob hreint frábær á bassann að öðrum
ólöstuðum og alveg merkilegt hvað
þetta litla „kerti" Björk söngkona sveit-
arinnar náði út úr raddböndunum.
Tónlist Tappans hefur þróast mikið
frá því plata þeirra kom út. mun
keyrslumeira rokk einkennir prógramm-
ið sem hefði mátt vera mun lengra. Sá
sem skemmti sér greinilega best var
vngsti bróðir Luigi Hrafn og lét hann
þess réttilega getið við undirritaðan að
hann var eini maður sem „dansaði" í FS
þetta kvöld ef hoppið og skoppið hjá
honum getur flokkast undir dans.
Klæðaverðlaun kvöldsins falla hcil og
óskipt í hlut Ellý söngkonu 04U og
þurfti bara að líta einu sinni á „gallann"
til að sannfærast um að enginn annar í
húsinu kæmist mcð tærnar þar sem hún
hafði hælana í þessum efnum. Támjóar
hvítar diskóbomsur. ullarlegghlífar með
hvítu ogsvörtu skákborðsntunstri, svart-
ar leðurbuxur og peysa í stíl við
legghlífarnar... vopnuð hvítum sólgler-
augum þai sein menn geymdu sex-
hleypuna í villta vestrinu.
Ég og Luigi röltum svo niður á Borg,
nittum Benna pís poppskríbent á eftir-
launum og söngvara Gaukanna t röðinni.
Hann hristi hausinn yfir lýsingum okkar
á tónleikunum en sagði að Gaukarnir
væru að „pæla" í tónleikum með
yfirskriftinni „Rokk gegn glímu". Ég sel
það ekki dýrara en ég keypti.
- FRI
ATKVÆÐA-
SEÐILL
Þrjár íslenskar hljómsveitir sem að þínu viti sköruðu íram úr á árinu
1982
1. _____________________________________________
2. ______________________________________________
3. ______________________________________________
Þrjár erlendar hljómsveitir sem að þínu mati sköruðu fram úr á árínu
1982.
1. _____________________________________________
2. _____________________________________________
3. _____________________________________________
Þrjár íslenskar plötur sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1982
1. ___________________________________________
2. ___________________________________________
3. ___________________________________________
Þrjár erlendar plötur sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1982
1. ______________________________________
2. ______________________________________
3. _________________________________________
Þrjú íslensk lög sem að þínu mati sköruðu fram i'ir á árínu 1982
1. _____________________________________
2. _____________________________________
3. _____________________________________
Þrjú erlend lög sem að þínu mati sköruðu fram úr á árínu 1982
1.____________________________________
2. ____________________________________
3. ____________________________________
Nafn:________
Heimilisfangi
Atkvæöaseðillinn sendist merktur: Tíminn Co/Nútíminn, Síðumúla 15