Tíminn - 23.01.1983, Síða 25

Tíminn - 23.01.1983, Síða 25
SUNNUDAGUR 23. JÁNÚÁR 1983 99Böðvar hefur óvanalega mikla kvenvitund...” ■ Bödvar bregður á leik við kettlingana hennar Kötlu. ■ „Líklega hefði ég átt að verða nunna eins og Guðrún Osvífursdóttir." — segir Helga um eiginmann sinn þú vissir hvað mig langaði ailtaf til að læra.“ Hana hafði langað til að fara í Kvennaskólann á Blönduósi, en það þóttu víst óþarfa kröfur. Þó mér hafi oft þótt það óþægilegt þá, þegar amma var að koma og vekja mig í skólann, þegar ég vildi „sofa yfir mig“, er ég henni mjög þakklát nú. Og fyrir hönd hennar sárnar mér þegar fólk er að kvarta undan skólaskyldu eða of miklum námskröfum. Það eru forrétt- indi að fá að læra, og kannski meira að segja einn megintilgangurinn með lífinu. Ég heid líka að kvenfrelsisumræðan hafi fengið svo góðan hljómgrunn hjá mér vegna margs sem amma var að segja mér. Sumir haldá að konur úr borgara- stétt hafi ekki þurft að dýfa hendi í kalt vatn og fengið allt sem þær vildu. En það er ekki rétt." „Ég dáðist að hugrekki þeirra kvenna sem þorðu að spyrja“ „Ég var hins vegar komin um þrítugt þegar ég vaknaði fyrir alvöru til vitundar um stöðu kvenna, og það var með kvenfrelsishreyfingunni nýju. Ég tók engan þátt í stofnun Rauðsokkahreyf- ingarinnar, en ég fylgdist.vel með og var mjögspennt fyrir henni. Sumarvinkonur mínar voru í henni en ég var eitthvað svo. óörugg með sjálfa mig og fannst ég ekki hafa neitt til málanna að leggja. Það hvatti mig heldur enginn til þátttöku, og ég var of frumkvæðislaus til að drífa mig ein. Löngu seinna fór ég á fund og fannst hópurinn lokaður. Allar konurnar þekkt- ust sem voru þarna og mér fannst ég utanveltu. Ég hef heyrt konur kvarta um það sama í sambandi við Kvennafram- boðið núna. mörgum finnst að þær nái ekki sambandi vegna þess að hóparnir séu lokaðir og klíkumyndanir í hreyfing- unni. En ég leit mjög upp til þeirra kvenna sem stofnuðu Rauðsokkahreyfinguna. Ég var t.d. einu sinni á sýningu á Hvað er í blýhólknum eftir Svövu Jakobsdótt- ur og voru umræður á eftir sýningunni. Ég nran eftir því hvað ég dáðist þá að hugrekki þeirra kvenná sem þorðu að spyrja. Ég þorði aldrei að segja orð, samt var ég komin með háskólapróf og búin að eignast tvö börn." - Hvað lærðirðu í háskólanum? „Ég var í íslensku og tók kandidats- próf um leið og Böðvar vorið 1969. Eftir stúdentspróf vann ég á Iögfræðiskrifstofu í tvö ár, en mig langaði til að halda áfram að læra. Reyndar langaði mig mest í sálfræði, en ég komst ekki til útlanda vegna þess að ég var þá komin með eitt barn. Ég valdi því íslenskuna, sem þá var alltaf kölluð norræna, vegna þcss að ég hef alltaf haft gaman af bókmcnntum og líka af því að pabbi er íslenskufræð- ingur. Það hafði líka mjög mikil áhrif á mig þegar ég fór í Kefiavíkurgönguna 1960, að við Gamla-Garð kom inn í rútuna hópur norrænustúdenta. Mér fannst að þarna kæmu' Fjölnismenn endurbornir. - Hvað fannst þér svo um námiö? „Ég var í háskólanum í átta ár og skildi afskaplega lítið af því sem fram fór fyrstu fimm árin. Ég reyndi bara að læra sem mest utanbókársog það tókst - ég fékk ágætar einkunnir! Kennslan fór eingöngu fram í fyrirlestr- ■um. Maður lærði þá svo utanbókar. Umræður fóru fram meðal stúdentanna eingöngu utan kennslustunda, flestir þeirra voru strákar og þeir vildu ekkert hafa með okkur stelpurnar að gera í sínum hópum. Af einhverjum ástæðum datt okkur ekki í huga að mynda hóp sjálfar, við vorum fáar og mjögómeðvit- aðar. Þetta var áður en allt gerðist." Kynntist kvennabók- menntum í Bergen „Að loknu námi gerðist ég kennari við háskólann sem lektor í íslensku fyrir erlenda stúdenta. Ég kenndi þar í 3 ár. Mig langaði þó alltaf til útlanda og svo urðu vandamál í einkalífinu til þess að ég dreif mig sem sendikennari til Bergen, ein með tvö börn, og kcnndi íslensku í háskólanum þar. Upphaflega stóð til að vera þar í ár og ég fékk árslcyfi frá háskólanum hér, en svo ákvað ég að segja upp stöðunni við háskólann hér og var í Bergen í 6 ár alls. Ég hafði mjög góðan tíma í Bergen og fór loks að átta mig á hlutunum, sá hvernig hægt er að tengja líf sitt við fræðin. - Var það eitthvað sérstakt sem kom þér á sporið? Ég man ekki eftir neinu sérstöku. Aðalatriðið er að sjá hvernig farið er með konur. Sú hugmyndafræði sem er óljós í veruleikanum fær form í bók- menntum og birtist þar í hnotskurn svo það er hægt að benda á hana, afhjúpa hana og læra á henni. Maður byrjar á því að gera uppreisn, sýna fram á ranglætið og sigrast á því. Ut úr þessari upprctsn vex síðan uppbyggiiegra sjón- armið. í stað gagnrýni er hægt að snúa sér að því að fjalla um það verðmætamat og þau gildi sem koma fram í bók- menntum eftir konur, sýna hvernig þær hugsa og hvað þær hafa fram að færa. Þú spurðir mig hvað feminismi sé. Feminismi cr ekki það að rífa niður öll viðtekin gildi heldur það að viðurkenna ber menningu kvcnna sem er og hcfur verið öðruvísi en karla. í kvennabaráttunni hafa tvö sjónarm- ið verið ríkjandi, annars vegar það að konur eigi að afneita menningu sinni og lífi sínu og verða eins og karlmenn. Þetta jafnréttissjónarmið er beinlínis hættulegt því það leiðir til þess að karlmenn komast til valda á þcim fáu sviðum þar sem konur hafa þó haft einhver völd áður. Janfréttið er alltaf verið að sýna með því að koma körlum að á kvennasviðum, en það er alveg óþarfi því þeir hafa hvort eð er völdin. Þetta sjónarmið er nú orðið úrclt. Hins vegar er svo það sjónarmið sem skiptir máli, að reynsla kvenna fái að njóta sín og sé tekin gild þar sem málunum er ráðið.“ - Hvernig voru viðbriigðin við „fræöi- kvensku“ þinni? „Ég er ekki hrifin af orðinu „fræði- kvenska," vcgna þcss að „fræði- mennska" á jafnt við um konur og karla. Konur eru líka menn, alveg eins og „bókmenntir" eigi jafnt við um karla- bókmenntir og kvennabókmenntir. Ég byrjaði á því að rannsaka kvenlýs- ingar og athuga þær og það urðu náttúrlega ekki allir hrifnir af því, A.m.k. tveir karlrithöfundar, þeir Ind- riði G. og Jökull sneru í hefndarskyni út úr nafninu mínu í sögurn eftir sig, cins og ég væri ómerk bara vegna þess eins. Vésteinn Lúðvíksson skrifaði grein í Tímarit Máls og menningar, sem ég las aldrci alveg til enda. Allir þrír sameinast um að líta ekki á mig sem fræðimann og mæta mér á þeim vettvangi, hcldur sem brenglaða konu. Hjá einum er ég svo Ijót að enginn karlmaður vill líta við mér, hjá öðrum er ég látin vera hómósexúel og með skegg, og sá þriðji kemst að þeirri niðurstöðu að ég hljóti að hafa óheilbrigða afstöðu til kynlífs! Það er eins og karlmenn geti ekki séð konur öðruvísi en kynverur, þeir rugla saman félagslegum og líffræðilegum atriðum. Mér hefur aldrei verið svarað á málefnalcgan liátt, í rauninni hefur aldrei verið við mig rætt. Ég svara þessum dylgjum að sjálfsögðu ekki, ég er bókmenntafræðingur og skrifa á þeim forsendum og þarf ekki að gera grein fyrir öðru. Ég hef hins vegar stundum saknað þess að hafa ekki fengið meiri stuðning í kvennabókmenntafræðilegri umræðu, mig hefur oft langað til þess að einhver tæki upp fyrir mig hanskann, en fólk hefur sjálfsagt ekki talið sig nógu vcl undirbúið til þess. Undantekning frá þessu eru nemendur mínir í báskólanum núna á síðustu misserum. Áhugasamara tölk um kvennabókmenntir þekki ég ekki.“ - Hvaö eru kvennabókincnntir? „Kvennabókmcnntir eru bókmenntir eftir konur frá hvaða tíma scm cr og um hvaða cfni sem cr. Hugtakið eða orðið „kvennabókmenntir" er aðeins hægt að nota fræðilega og í andstæðri merkingu við bókmenntir karla. Það er rangt að líta á kvennabókmcnntir sem andstæðu bókmennta eins og iðulega er gert hér, t.d. í ritdómum blaðanna. Hér er oft talað um rithöfunda og kvenrithöfunda, bókmenntir og kvennabókmenntir, sem cr ekki liægt, vegna þess að bókmenntir eru bæði cftir karla og konur- karlabók- menntir eru eftir karla og kvennabók- menntir eru eftir konur. Barnabók- menntahugtakið er svo öðruvísi myndað, því að þar er um að ræða bækur eftir konur og karla fyrir börn.“ - Hvaö er verið að rannsuka í kvennu- ibóknienntum? „Við rannsóknir á kvennabók- mcnntum er það fyrst og fremst formið sem er athugað, þ.e. hvernig konur skrifa og hvort það geti verið að þærskrifi öðruvísi cn karlar og hin viðurkennda bókmenntahefð sem þeir bera uppi.“ Karlarnir leggja allan heiminn undir - konurnar halda sig innandyra „í þessum rannsóknum hefur meðal annars komið fram að það er áberandi munur á sviðssetningu í bókmenntum kvenna og karla, í bókum eftir karla er sviðsetningin meira úti og heimurinn lagður undir, en í bókum kvenna er Sjá næstu síðu

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.