Tíminn - 18.02.1983, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983
3
fréttir
Ummæli Hjörleifs um afleidingar álsamningsins fra 1975:
„VEUIR VÍSVITANDI
ÓHAGSTÆTT TÍMABIL”
— segir Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri
■ „Iðnaðarráðherra velur þarna visvil-
andi tímabil sem gcrir samanburðinn
óhagstæðan. Að auki getur hann ekki
um skattainneign, sem óneitanlega getur
verið okkur mjög í hag, þótt erfitt sé að
gera grein fyrir því að svo stöddu", sagði
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri i
samtali við Tímann í gær.
Á Alþingi í fyrradag hélt Hjörlcifur
Guttormsson, orkuráðherra, því fram
að samningarnir um stækkun álversins,
sem gerðir voru 1975 og fólu í sér
breytingar á orkuverði og skatta-
greiðslum ÍSAL. hafi lcitt til þess, að
skattalækkun fyrirtækisins hafi numið
um 30 milljónum króna umfram þaðsem
hækkun raforkuverðs gaf af sér. Miðaði
hann þá við tímabilið 1975 til 1980.
..Ef samanburðurinn er gcrður frá
árinu 1975 til 1982 kemur þetta mikið
hagstæðar út fyrir okkur. Síðustu tvö
árin hefur samningurinn verið okkur
mjög hagstæður og cf þau eru tekin með,
er útkoman hagstæð um á milli 6 og 7
milljónir dollara.
Einnig ber að taka fram, að á móti því
sem skattarnir hefðu verið hærri sam-
kvæmt gamla samningnum. hefði komið
jafnhá eða jafnvel hærri upphæð skatta,
sem ISAL á hjá ríkissjóði. Þetta hefur
Hjörleifur viðurkennt í blaðaviðtali. Þar
segir hann að vísu að ekki sé víst að ísal
muni eiga þessa skattainneign, en það er
annað mál sem að ég vil ekki fullyrða
neitt um," sagði Jóhannes Nordal.
-Sjó
Með fúllkomnustu
þyrlum nútfmans
— Frakkar kenna hér skipulagningu fullkomnustu þyrluþjónustu
sem völ er á
■ Tvær franskar þyrlur, af gerðinni
Punia 330, eru nú í flugskýli Landhelgis-
gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Þær
eru hingaö koninar fyrir tilstilli franskra
yfirvalda, sem buðu Íslendingum þær til
afnota í um mánaðartíma í tilraunaskyni.
Að sögn Péturs Einarssonar, varallug-
málastjóra, er hér um að ræða með
fullkomnustu þyrlum nútímans. Meðal
annars er hægt að búa þær ísvarnarbún-
aði og er önnur þyrlan sem hingað er
komin þannig útbúin. Venjulegur far-
flugshraði er 120 hnútar á klukkustund
og flugþol er um fjórar klukkustundir.
Um borð er venjulcga 3-4 manna áhöfn
og farþegar geta verið allt að 20. Lengd
vélarinnar er 18,15 metrar, hæð 5,14
metrar, án blaða 3,50 metrar.
„Tilgangurinn mcð dvöl frönsku þyrl-
anna hér á landi er að kanna og jafnframt
sýna hvers fullkominn þyrlufloti er
mcgnugur. Því miður hefur okkur ís-
lendingum verið ofviða að gera tilraun
af þessu tagi á eigin spýtur, til þess er
fjárhagur of knappur. Rausnarlegt boð
franskra yfirvalda gerir okkur nú klcyft
að skipuleggja þyrluþjónustu sem er til
jafns við það áreiðanlegasta sem
þekkist," sagði Pétur Einarsson, vara-
flugmálastjóri, á blaðamannafundi í
■ Eini kostnaðurinn sem íslendingar bera af komu þyrlanna hingað er eldsneytiskostnaður og laun áhafnar. Upphæðin
má ekki fara upp fyrir 300 þúsund krónur. Tímamynd Árni.
tlugskýli Landhelgisgæslunnar í gær. ekki til umræðu að Islcndingar festu þaðckkcrtskilyrðiaðFrakkannahálfu.
Ennfremur sagði Pétur að það væri kaup á þyrlu af þcssari gcrö enda væri -Sjó
UTVARP MH
HÓFST í GÆR
■ Svonefndir „Lagningardagar" hófust
í Menntaskólanum í Hamrahlíð í fyrra-
dag.
„Lagningardagar" eru starfs og
skemmtidagar nemenda og verður ekk-
ert kennt þessa daga. Meðal efnis á
þessum dögum verða t.d. ýmsar uppá-
komur, sýningar, kvikmyndir eða um-
ræður. Til nýjungar á þessum dögum
verður að telja útvarpsrekstur, og það
var þessi útvarpsrekstur sem fréttamenn
ákváðu að kynna sér nánar. Útsending
hefst klukkan tíu á morgnana og stendur
eitthvað fram eftirkvöldi. Menntaskólinn
á flest öll tækin nema sendinn, sem er
frá Pósti og síma. Ýmsir þættir verða
þarna á dagskrá, svo sem jass þáttur,
punkþáttur og aðrir tónlistarþættir og
einnig ýmis viðtöl. Það eru 6 hressir
strákar sem sjá um útsendingar en það
eru margir sem hafa lagt til efni. Þess má
geta að skólasjóður ber allan kostnað af
þessu fyrirtæki. Fréttamenn vilja ein-
dregið benda fólki á að kveikja á
útvarpstækjunum klukkan tíu fyrir há-
degi næstu morgna ogstilla á 91,5 M,Mz
á FM bylgju.
DJ og SKK
■ Þulir M.H. útvarpsins.
■ „Óneitanlega er þetta geysilega spennandi“, sagði Ingileif Örnólfsdóttir,
stjórnandi nýs útibús Samvinnubankans scm opnað var í gærmorgun við Höföabakka
9 í Reykjavík. Ennþá er jafnréttið ekki lengra komið en svo, að tíðindum þykir sæta
þegar rekstur slikrar stofnunar er eingöngu í höndum kvenna - en ásamt Ingileif
vinna þama Guðrún Yrsa Sigurðardóttir (t.v.) og Kristbjörg Sigurfinnsdóttir (t.h.)
„Þetta er bara eins og bankinn eigi fimmtugsafmæli“ sögðu þær þegar blómin voru
enn að berast rétt fvrir lokun í gær, þar á meðal mörg pottablóm sem þær voru
ánægðar yfir. Ingileif sagði þetta nýja útibú fyrst og fremst stofnaö til að bæta
bankaþjónustu hjá þeim mikla fjölda fólks sem vinnur í fyrirtækjum þama í kring.
En einnig ætti það að vera þægilegt fyrir þá sem búa þar í nágrenninu og t.d.
Mosfellinga. Kvað hún ótrúlega marga hafa notað sér þá þjónustu strax á þessum
fyrsta degi - fleiri en hún hafði búist við fyrirfram. Tímamynd Róbert/HEI
FUF félag
stofnad
■ í kvöld verður stofnfundur Fé-
lags ungra framsóknarmanna á Ak-
ureyri. Að sögn Áskels ÞórLssonar,
framkvæmdastjóra Sambands ungra
framsóknarinannu, er þetta annaö
FUF félagið sem stofnaö er eftir
árainótin.
Stoínfundurinn veröur í Strand-
götu 31, uppi, og hefst hann klukkan
20. Finnur Ingólfsson. formaðurSUF
kemur á fundinn ásamt Áskeli og
munu þeir félagar ávarpa fundar-
menn. „Aö sögn er það eitt af
markmiöum SUF aö efla Framsókn-
arflokkinn og félag eins og það sem
á að stofna á Akureyri er áfangi á
þeirri lcið", sagöi Áskell í samtali við
Tímann. Þess má geta aö aldurshá-
mark í FUF lélögunt er 35 ár en
yngstir mega féiagarnir vera 14 ára
gamlir.
Jard=
skjálfta-
kippur
■ Jarðskjálftakippur, sem mældist
4.5 stig á Richterkvaröa, fannst í
Grímsey í gær. Að sögn Stcinunnar
Sigurbjörnsdóttur. útibússtjóra í
eynni, ntunu ekki allir hafa oröið
varir við skjálítann, en upptök hans
munu hafa verið skamntt frá eynni.
Töldu menn sig Iteyra þrumur.
nokkru áöur en skjálftinn kont.
Tónleikar
Kammer-
sveitar
Reykjavíkur
á sunnudag
■ Kammcrsvsit Reykjavtkur heldur
3. tónleika sína á þessu starfsári i
Bústaðakirkju nk. sunnudag 20.
febrúar kl. 17.
Leikin veröa verk eftir Wolfgang
Amadeus Mozart, föður hans,
Leopold og nokkra samtímamenn,
Michael Haydn, K.D. von Dittcrs-
dorf og Antonio Salieri, sem Peter
Sehaffcr hcfur gert ódauðlegan í
lcikriti sínu „Amadcus", sem sýnt
var í Þjóðlcikhúsinu á síöasta ári.
Tónskáld þessi voru samferða í tíma
og rúmi, lifðu og hrærðust við ólíkt
hlutskipti cn þó sama umhverfi og
tíðaranda, sömdu tónvcrk sín við
sömu kröfur hlustcnda en hlutu ólík-
an sess í sögunni. Á tönlcikunum
verða m.a. leikin Adagio KV 410 og
Adagio KV 580a þar sem Mozart
notar bassethorn með ensku horni og
fagotti.
Ummæli
Ragnars Hall-
dórssonar
um óselda
vatnsorku:
Kommuvilla
tífaldad verd-
mæti hennar
■ Meinleg kommuviila slæddist inn
í fullyrðingu sent tekin var upp úr
setningarræðu Ragnars S. Halldórs-
sonar, formanns Verslunarráðs
íslands, og birt tneð skýringum hans
í Tímanum í gær.
Villan gerði hvorki meirané minna
en að tífalda verðmæti vatnsorku
sem Ragnar sagði að myndi renna
óseld til sjávar á næstu árum; gerði
400 milljónir dollara úr 40 milijón-
unt.
„Það var kannski fullmikið sagt að
Hrauneyjarfossvirkjun væri óþörf.
Hitt er annað mál að í kerfinu verður
á næstu árum mikil orka, sem ekki cr
scld. Samkvæint upplýsingum frá
Orkustofnun eru það um 800 gíga-
wattstundir á ári og það nokkuð
svipað því sem Hrauneyjarfossvirkj-
un getur framleitt," sagði Rag'nar í
samtali við Tímann. -Sjó.