Tíminn - 18.02.1983, Side 9

Tíminn - 18.02.1983, Side 9
9 FOSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983 Terðalög Heimsókn til Schwerin Óli S. Runólfsson, rennismiður, segir fra heimsókn til Austur-Þýskalands ■ íslenska sendinefndin í heilsugæslustöðinni í Schwerin. Schwerin ■ Seinni hluta annars dags dvalar í Berlín var haldið með lest til Schwerin borgar í samnefndu héraði. Lestarferðin tók um þrjár kl.st. Schwerin er í norðurhluta landsins. Um 120 þús. manns eru búsettir í öllu héraðinu. Þar eru um 29 borgir auk smærri bæja. í borginni Schwerin búa um 600 þús. þ.e. um 4% íbúa A-Þýska- lands. Árið 1985 verður Schwerin 925 ára. 85% kvenna eru úti á vinnumarkaðinum. Schwerin er í 4 sæti er við kemur þjónustu við aldraða. Meðalaldur íbúa er um 34 ár. 113 iðngreinar má læra í borginni. Um 2 millj. ferðamanna heimsækja borgina árlega. Mjög djúpt er á fastan jarðveg. Stór og skrautleg dómkirkja er í Schwerinhún er frá árinu 1270. Kirkjan var f byggingu um 176 ár. Hæð á turnbyggingu er um 117 m. Höll eða kastali er í borginni Schwerin sem reistur var á 15. öld. Endurbætur og viðaukar hafa verið gerðir síðan. Nú er unnið að viðgerðum á höllinni sem áætlað er að taka muni um 20 ár. Áður fyrr var Schwerin hérað frekar vanþróað. Það var á eftir öðrum hér- uðum landsins. T.d. var lítið um verk- smiðjuiðnað. Schwerin slapp því betur en mörg önnur svæði við eyðileggingu stríðsáranna þar sem ekki voru talin hernaðarleg mannvirki sem þyrfti að eyðileggja. Seinni hluti Áður var Schwerin aðallega landbún- aðarhérað er bjó við lénskipulag og atvinnuleysi var ríkjandi. Fólkið bjó mikið dreifðara. Vegir voru vangerðir. Rafmagn, holræsi ogvatnvantaði. Einn bekkur var í skóla. Verslun og heilsu- gæsla af skornum skammti sem þjónaði aðallega þeim ríku. Vöntun var á nauð- synjum og almennum þægindum. Mikil breyting varð eftir seinni heims- styrjöldina. Þá var landinu skipt milli bænda og uppbygging iðnaðar hófst. Þá voru reistar ýmsar verksmiðjur, s.s. í plast- leður- efna- og skipaiðnaði. Nú vinnur þriðji hver maður við iðnað. Fólkið er sérhæft í vinnu. 90% verka- manna eru faglærðir. í landbúnaði hefur framþróun orðið mikil. Áður ræktuðu um 27 menn hverja 100 hektara en í dag aðeins 4 menn. Áður var 1 traktor á hverja 500 hektara en nú eru þeir sex. Bætt áburðarnotkun eykur einnig af- raksturinn. 1 dag er lítill munur á lífskjörum milli dreifbýlis og þéttbýlis. Framleiðsluaukningin hefur breytt lífi fólksins. Þó dregur hervæðingin úr bættri og aukinni þróun. Enn vantar íbúðir. í áætlun jnni er gert ráð fyrir að þeirri þörf verði fullnægt á árinu 1990. Fjárframlag ríkisins til bygginga er mikið. 40 þús. íbúðir hafa verið byggðar á 10 árum. í byggingu kostar u.þ.b. 670 m' íbúð ca. 60 þús. DM. Um 25 börn eru í hverjum bekk í skóla. Einn kennari er um hverja 12 ncmendur. Áætlað er að þessi nemenda- tala á kennara haldist óbreytt til ársins 1985 vegna fjölgunar barna. Framþróun- in verði ekki meiri en að hægt verði að halda í við barnafjölgunina. Á næstu 10 árum er gert ráð fyrir að verkamönnum fækki og börnum fjölgi. Um árið 1990 muni sú þróun snúast við. Vinnutækni verði bætt svo framleiðsla minnki ekki. Af fjárlögum lýðveldisins fara um 20% til heilsugæslu. Einn læknir er fyrir hverja 500-550 manns að meðaltali. I Schwerin er einn læknir á hverja 350 íbúa. í byggingu sjúkrahúsa kostar hver rúmm. um 18 þús. DM. Eitt rúm er á hverja 100 íbúa að meðaltali. Ríkið heldur verðlagi stöðugu með niðurgreiðslum. Að meðaltali greiðir ríkið um V* af vöruverðinu. Húsaleiga er um 3-5% af tekjum. Lán eru veitt til heimilisstofnunar. Upphæð fer eftir fjöl- skyldustærð. Sumir fá styrk, t.d. fá hjón með þrjú börn um 5 þús. DM. Sumarleyfi er almennt um fjórar vikur. Vaktavinnufólk fær lengra frí. Allir eiga rétt á vinnu og verða líka að vinna. Með aukinni tölvuvæðingu er áætlað að auka frítímann með 30 kist. vinnuviku í stað 43 kl.st. eins og almennt er nú. Lengja ásumarfrí ogbæta aðstöðu fólksins til notkunar síns frítíma o.fl. Réttur til menntunar er í hávegum hafður. Skólaskylda er í þýska alþýðu- lýðveldinu. 95% barna Ijúka grunn- skóla. Tvö síðustu árin eru kennd undir- stöðuatriði í vinnu jafnhliða bóklegu námi. Tveggja ára nám til viðbótar lýkur með stúdentsprófi. Þá getur unglingur- inn valið hvort hann fer út í atvinnulífið eða heldur áfram í sérnámi. Nokkuð strangar kröfur eru gerðar til námsá- rangurs nemenda sem ætla að halda áfram námi. Heilsugæslustöð í Schwerin Á móti okkur tóku yfirlæknir og forstjóri stöðvarinnar og yfirlæknar sumra deilda, yfirhjúkrunarkona o.fl. 60 manns eru í starfsliði stofnunarinnar. Gengið var um stöðina, húsakynni og tæki skoðuð. Því næst var skipst á’ skoðunum yfir kaffi í matsal stöðvarinn- ar. Um 11 þúsund manns koma í skoðun í þessa heilsugæslustöð á ári. Allir lækn- ar starfa eftir samræmdri áætlun. Þeir taka laun hjá ríkinu. Verkafólkið kemur reglulega í skoðun á eins eða tveggja ára fresti, eftir því hvaða vinnu það stundar. Þeir sem vinna við verri skilyrði koma oftar. Ekki eru laun starfsmanna skert vegna heilsugæsluskoðunar. Talið er nauðsynlegt að læknarnir viti hvernig vinnuaðstaða fólksins er og er starfsaðstaðan skráð í heilsugæslustöð- inni. Geta þeir þá betur dæmt um hvort eða hvaða úrbætur þurfi að gera á vinnuaðstöðu, ef t.d. kemur upp at- vinnusjúkdómur eða annað. Læknarnir starfa undir eftirliti heilbrigðisyfirvalda. Algengustu atvinnusjúkdómar eru heyrn- og húðsjúkdómar. Komi fram atvinnusjúkdómur leggur læknirinn fram vissar aðstöðubreytingar telji hann það nægja. Stundum er talin þörf á að breyta um vinnu og þá er þeim aðila, er í hlut á, útveguð ný vinna og þjálfun í því starfi. Verkalýðsfélög hafa mikil áhrif á meðferð atvinnusjúkdómamála. Verði slys utan vinnustaðar, s.s. við hátíðir, íþróttir eða annað, er farið með þau mál á sama hátt og þau ættu sér stað í vinnunni. Efni til nota í iðnaði verða að hafa hlotið samþykkti, fyrr má ekki taka þau í noikun. Heilsan er höfð í algjöru fyrirrúmi. Heimsókn í leðurverksmiðju í Schwerin Þar tók hópur stjórnenda á móti okkur. Stjórnarmaður um menntun iðnaðarmanna. Stjórnarmaður í verka- lýðsfélaginu. Stjórnarmaður í einni deild verkalýðsfélagsins. Umsjónarmaður ör- yggismála. Fulltrúi frá heilbrigðiseftirlit- inu. Fulltrúi verkalýðsfélagsins í hérað- inu. Yfirlæknirheilsugæslustöðvarinnar. Verksmiðjan framleiðir alls konar töskur og er ein af mörgum í þessari grein. Hún tók til starfa á árinu 1970. Konur eru 80% af starfsliði verksmiðj- unnar, meðalaldur þeirra er 23'A ár. í byrjunarstörfum framleiðslunnar eru 90% konur. Um 2000 manns vinna í allt í verksmiðjunni, þar af 160 lærlingar. Unnið er á vöktum. Matur er framreidd- ur á staðnum. Máltíðin kostar 1 DM, niðurgreitt af fyrirtækinu. Hægt er að velja um þrjá rétti. Vinnuvikan er 40-43 stundireftirvöktum. Styttri í næturvinnu en þá hærri laun og lengra sumarfrí. Sérstök vinnudeild er fyrir unga fólkið. Efnið er stansað út í réttar stærðir eftir þar til gerðum mótum, svo eru efnishlut- arnir saumaðir og safnað í sérstaka bakka sem er tölvustýrt á færiböndum til ákveðinna vinnuborða á milli hæða þar sem töskurnar eru endanlega settar sam- an og að síðustu yfirfarnar og smærri verkefni frágengin. Fólkið fær tekjuauka fyrir framleiðslu- aukningu. Verkafólkið greiðir í sjóð sem notaður er til að skreyta vinnustað- inn og gera hann vistlegri. Þarna mátti sjá blóm í pottum. Fólkið kýs besta starfsfólkið úr sínum röðum, bæði er varðar vinnuafköst og sem samstarfsaðila. Myndir af þessu fólki hengu uppi öllum til sýnis. Ekki mátti reykja nema í hléum og þá aðeins í sértökum sal. Hiti í vinnusal er 18-20° C. Forstjóri fyrirtækisins er kjörinn af ríkinu. Hann er aðalábyrgðarmaður, en tekur þó tillit til um 15 manna ráðs úr ýmsum stéttum. Almenn ákvæði eru í reglugerð um búnað starfsfólks. Nánara fyrir hvern vinnustað í samráði við verkalýðsfélag- ið. Tíðni vinnuslysa í verksmiðjunni eru 13:1000. Tilkynna ber veikindi ef þau vara lengur en þrjá daga. Verkalýðsfélagið er mjög virkt í ör- yggismálum. Nú liggja fyrir 6 tillögur um úrbætur sem verið er að ath. 90 verka- lýðshópar eru í fyrirtækinu, sem allir mynda eitt félag. Fundir eru einu sinni í mán. með öllum hópnum. Fundir í deildum eru oftar. Um 80% félaga mæta að jafnaði á fundum. 2 menn eru á launum hjá verkalýðs- sambandinu. Þeir starfa að hluta við fyrirtækið. Aðrir vinna félagsstörf í félagi sínu með fullu starfi í verksmiðj- unni. Hver verkstjóri stjórnar vinnu 30-40 manns. Sérstök deild sér um umsjón á verk- efnavali og samræmingu á verkefnum fleiri fyrirtækja. Það vakti sérstaka athygli hversu yfir- læknir heilsugæslustöðvarinnar kunni góð skil á öllu starfi og aðstöðu í verksmiðj- unni. Mér var hugsað til þess hvenær eða hvort einhverntíma slík þekking lækna á vinnuaðstöðu íslensks verkafólks yrði. Heimsókn í fjölbýlishús Fundir eru haldnir á um 6 vikna fresti í íbúðablokkinni. Mörg húsfélög mynda eina heild í hverfasambandi.' Hverfasamböndin hafa samvinnu við vinnustaði sinna umbjóðenda til lausnar vandamála ef upp koma t.d. fjármála o.fl. Góð samvinná er milli aðila. Nágrönnum cr veitt aðstoð ef með þarf, farið er í búðir fyrir gamla fólkið og sýnd mörg önnur smá liðlegheit og aðstoð. 18 ár eru liðin frá því flutt var í þessar íbúðir sem eru í eigu ríkísins. Lcigjendur taka að sér viðhald á húseigninni og fá greitt fyrir. Það fé er notað til ýmsra sameiginlegra þarfa, s.s. að skemmtasér saman eða gera sér annan dagamun. Gerð er áætlun fyrir eitt ár í senn. Allt sem gert er er skráð í sérstaka möppu. Þar mátti sjá myndir og úrklippur úr blöðum er á einhvern hátt snertu samstarfið. í þá möppu hafa nú bæst við nöfn okkar Islendinganna. Samstarf þessa félagshóps virtist vera mjög til fyrirmyndar. Þeirra félagskapur hefur líka hlotið sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín, og bar mappan þess merki. Við fengum að líta á tvær íbúðir þessa fólks. Þær voru ekki síórar en mjög þokkalegar og eins innbúið. Heimsókn á barnaheimili Um 310 börn eru á þessu barnaheimili. Vöggustofa er starfrækt á heimilunum það er deildarskipt en hefursömu yfirstjórn. 8 barnaheimili eru í þessu íbúðahverfi, sem telur um 20 þús. íbúa. Alls er 61 barnaheimili í Schwerin héraði nú öllu. Fyrirtækin taka þátt í rekstri heimilanna. 6 barnaheimili sinna börnum vegna sér- þarfa s.s þroskaheftum, með talgalla o.fl. Börnin koma svo í venjulega skóla þcgar þau geta. Vaktavinnufólki er sköpuð aðstaða vegna sinna barna. Foreldrar hafa áhrif á gang mála með foreldrakvöldum sem haldin eru á barna- heimilinu, einnig eru foreldraráð starf- andi sem taka fyrir viss vandamál s.s. sálræn eðlis sem þá er reynt að leysa í samvinnu við lækna. Vöggustofubörnin byrja að koma kl. sex á morgnana. Ýmist mæður eða feður koma með börnin. Starfrækt eru tvö eldhús. Annað fyrir yngri börnin en hitt fyrir þau eldri. Börnunum er veittur matur scm þau neyta í vinnuherbergjunum sínum. Menntun fóstra er grunnskóli auk 3ja ára viðbótarnáms. Eitt ár bóklegt en 2. og 3ja viðbótarárið er vinnuþjálfun sem lýkur með prófi. Fyrsta vinnuárið eftir próf ræður svo úrslitum hvort viðkom- andi er hæfur til starfsins. Ef svo reynist er gefið út starfsleyfi eða vottorð. Ann- ars er þeim hjálpað í önnur störf. Fóstrur ráða ýmsu í deildum, s.s. búnaði í herbergjum, föndurmunum o.fl. sem gerð er þó grcin fyrir til stjórnvalda. Reynt er að láta öll börn læra það sama. Þau læra í leikjum að þekkja hluti og vinna er útskýrð fyrir þcim eftir myndum og eins er farið með þau í heimsóknir til nánari skýringa. Þeim er kennt að vinna saman. Hvert barn hcfur sitt merki sem það lærir að þekkja. Skápar og hengi eru merkt þcssum merkjum svo börnin geti ætíð fundið sinn stað þó ekki séu þau fær um að lesa. Hver fóstra fær einn frídag í mán. án launaskerðingar. Heimilið starfar til kl. 6.30 að kvöldi. Vinnutími er mislangur, það fer cftir því hvað viðkomandi á mörg börii. 43 kl.st. hjá barnlausum, 38 kl.st. hjá þeim sem eiga tvö börn en 35 kl.st. hjá þeim sem eiga þrjú börn. Foreldrar annast börnin heima í veikindunt þeirra, án skerðingar launa. Læknar skoða börnin vikulega. Læknanám er 6 ár og allir læra barnalækningar. Slys á börnum eru fátíð. Það telst til undantekninga cf karlmenn gegna fóstrustörfum og taldi forstöðukonan að til þess lægju félags- legar ástæður. Hún taldi að skólanám ætti aðtengjast meira starfi barnahcimil- anna svo skilningur á því starfi vaxi hjá almenningi í uppeldislegu tilliti. Menningarmiðstöð Menningarmiðstöðin sem skoðuð var er á dreifibýli Schwerin héraðsins. Hún var byggð árið 1978 og byggingarkostn- aður var 5 millj. DM. Hcimilið þjónar um 7 þús. íbúum hreppsins. Landbúnað- ureraðalatvinnuvegur. í félagsheimilinu er miðstöð áhugamanna í sporti, frjáls- um íþróttum, veiði, sundi o.fl. í anddyri er skilti með upplýsingum um alla starfsemi í húsinu sem er mjög umfangsmikil. Daglega er margt á dagskrá. Þarna er stó’r samkomusalur auk smærri sala. Matsalur er fyrir 90manns. 1 menningarmiðstöðínni eru haldnar almennar samkomur uppskcru- og al- þýðuhátíðir, kvikmyndsýningar, lista- vcrka- og vinnusýningar. Þarna var Ijósmyndaherbergi. 8 klúbbar hafa þar ýmiskonar starfsemi. í menningarmið- stöðinni var tónleikaherbergi og plötu- safn, barnabókasafn. hrepps- og héraðs- bókasafn. Þar voru þýddar bækur eftir íslenska höfunda. Fjórar eftir Halldór Laxnessog tvo eða þrjá aðra íslenska bókahöfunda. Rækt er lögð við mállýsku staðarins sem er all sérstæð, svokölluð: „Skand- araþýska". Rekstur hússins er fjármagnaður af ríkinu. 15 menn vinna að staðaldri við starfrækslu heimilisins þar af er hluti þeirra leiðbeinendur í félagastarfi. Klúbbarnir greiða ekki fyrir aðstöðu. Þegar skemmtanir eru haldnar greiðir fólkið hluta af kostnaði í aðgangseyri en fyrirtæki greiða fullt fyrir afnot hússins. Orlofsbúðir Búðirnar eru um 50 km. frá borginni Schwerin. Aðstaða er fyrir 560 manns í einu. Ibúðirnar eru sumar í fjölbýli og cru þær taldar hentugri rekstrarlega. Svo eru líka raðhúsaíbúðir. Þær eru minni og nýttar frá maí til sept. ár hvert. Orlofsgestir dvelja venjulega 13 daga í einu. Búðirnar cru nýttar allt árið. Að meðaltali dvelja um 7000 manns í búðunum á ári. í fjölbýlishúsum cr sameiginleg setu- stofa með sjónvarpi. Samciginlegar veit- ingar eru í kjallara sem tckur um 240 í sæti í einu. íþróttaaðstaða er einnig í húsinu. Gcrt er ráð fyrir að útbúa megi leikherbergi ef þarf. Úti er stórt íþróttasvæði. Einnig er íþróttaaðstaða í útihúsum s.s. keiluspil o.fl. Vciðivatn er við búðirnar með bátaleigu frá maí-mánuði. Ellilífeyrisþegar eru meðlimir í verka- lýðsfélögunum. Meðlimatala verkalýðs- félaga a-þýska ríkisins er um 9 millj. Sumarferðir barna cru skipulagðar bæði innanlands og utan. Stundum duga orlofshúsin ekki þá eru lcigð hótclherbergi fyrir dvalargesti. Þau eru dýrari en verkalýðsfélög greiöa þá hluta kostnaðarins. Ferðaþjónusta cr mikill þáttur í starfi vcrkalýðsfélaga. Sólarlandaferðir eru líka skipulagðar á vcgum ferðaskrif- stofa. Oft er um jöfn skipti að ræða milli landa. Svokölluð vinalönd, Finnland, Danmörk og Sovétríkin hafa sérstök og ódýrari ferðasamskipti. Orlofsfélagar frá vestur Evrópu dvelj- ast stundum í orlofsbúðum í A-Þýska- landi. Æskulýðsferðir A-Þjóðverja eru ódýr- ari á vegum sérstakra ferðaskrifstofa. Vcikt fólk nýtur oft ókeypis orlofs- dvalar auk dagpeninga. Willi Sehrötet sem tók á móti okkur í orlofsbúðunum óskaði að íslenskir vcrkalýðsfélagar gætu notið dvalar í a-þýskum orlofsbúðum. Endir I lok dvalar í Schwerin sátum við kvcðjuhóf. Þar voru okkur færðar gjafir og óskir um sem best not af heimsókn- inni. Við þökkuðum ogskýrðum frá því markverðasta sem okkur þótti dvöl í landi þeirra færa okkur. Frá Schwerin var haldið til Rostock. Þar komu til móts við okkur íslandsvin- irnir, prófessorarnir: Bruno Kress og Ernst Walter. Við áttum með þeim góðar stundir. I skoðunarferð um borg- ina nutum við frásagnar þeirra auk fararstjórans sem ætíð gætti að velferð okkar. Frá Rostock var haldið með lest til Kaupmannahafnar og flugvél þaðan og heint. Framanskráðir ferðaþættir eru aðeins lítið brot af ferð sem stóð í tíu daga. Allt var gert til að dvöl okkar yrði sem best. Margs er að minnast. Endurreisnar- starf þjóðarinnar er mikið. í grein minni kemur víða fram þáttur heimsstyrjaldarinnar á þýskt þjóðlíf því þar sýna verkin merkin. Enginn sem ekki hefur verið beinn þátttakandi í stríðinu getur í raun gert sér í hugarlund þvílíkar hörmungar það var, en það held ég að þýska þjóðin skilji. Heimsóknir milli þjóða auka skilning, eyða tortryggni og stuðla þar með að varðveislu friðar. Það er ósk mín og von að þessi ferð megi verða eitt skref í bættu ogskilningsríkara samfélagi milli þjóða. Óli S. Runólfsson rennisiniður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.