Tíminn - 06.03.1983, Side 2
2
Ítmitro
SUNNUDAGUR 6. MARS 1983
■ Á aöeins fimm dögum seldist upp í
allar sumarferðirnar hjá Samvinnuferð-
um/Landsýn, til Hollands í fimm stjörnu
sumarhúsabúðirnar, Eemhof, sem eru
staðsettar í nágrenni Amsterdam þó
svo að bætt hafi verið við húsum.
Enn er þó hægt að fá bókað í ferðir í
apríl, ss. stuttar fjölskylduferðir, þar
sem hægt er að sameina vikudvöl í
þessum lúxusbústöðum í Eemhof og
bílaleiguferð um Holland og jafnvel
fleiri lönd. Má í því sambandi sérstak-
lega nefna vikuferð sem hefst 15. april,
en þar inní er sumardagurinn fyrsti,
þannig að í slíka ferð þyrftu aðeins að
fara fjórir vinnudagar.
Hér á landi er nú staddur Tom Tielro-
oy, fulltrúi hollenska fyrirtækisins sem á
. þessar búðir, ásamt sjö öðrum, en fyrir-
tækið heitir 5-Stcrren Sporthuis
Centrum, og í eigu þess eru hvorki meira
né minna en 4 þúsund sumarhús, sem er
reyndar ekki réttnefni, því hér er um
heilsárshús að ræða sem eru að fullu nýtt
allt árið, og að sögn Tielrooy, þá næst á
ársgrundvelli heildarnýting húsanna sem
svarar 95%, sem hlýtur að teljast ein-
staklega gott.
„Bjóda upp á allt
sem hugurinn girnist.“
Faraldsfóturinn falaðist eftir því við
Tielrooy að hann veitti Tímalesendum
einhverjar upplýsingar um þá aðstöðu
A
faralds-
fæti
Umsjón Agnes Bragadóftir
og í öllum húsunum, (Samvinnuferðir/
Landsýn bjóða upp á tvenns konar
gistingu, annað hvort í hjónabústöðum,
þar sem geta rúmast 3, eða stórum
bústöðum sem rúma allt að 8 manns) er
litasjónvarp og vídeókerfi Eemhof, sem
sendir út vinsælt efni með ensku tali
daglega. Eldhúsin eru fullkomlega út-
búin, baðherbergin eru bæði með sturtu
og baðkari, og vel útbúnar svalir eru á
húsunum. Það er rétt að geta þess
einnig, að mikið og fallegt skóglendi er
í einungis 15 kílómetra fjarlægð frá
bústaðasvæðinu, auk þess sem stutt ertil
bæjarins Almere og borgarinnar Amers-
foort.
Nú, einu gleymdi ég, sem ég hygg að
sé mjög þýðingarmikið í augum Islend-
inga, sem ekki fá allt of mikið af sólinni,
■ Sundlaugin, innilaug, sem tcngist útilaug, með rennibraut, og öllu sem hægt er að óska sér, virðist vera hreint ævintýri.
Fimm stjörnu sumarhúsin í Hollandi
•Sannkölluð paradís’
sem Sporthuis Centrum býður gestum
sínum upp á í Eemhof, þó svo að
lesendur sem kunna að hrífast af upplýs-
ingunum, verði að bíða í a.m.k. eitt ár,
eftir að fá tækifæri til þess að heimsækja
Holland í þcim erindagjörðum að dvelj-
ast í einu húsanna í eigu fyrirtækisins,
þar sem fullbókað er í hús þau sem
Samvinnuferðir/Landsýn hefur til ráð-
stöfunar á sumri komanda, eins og áður
segir, að undanskildum apríl mánuði.
„Það eru tæpast nokkrar ýkjur, að
fullyrða að sumarhúsasvæðin sem við
bjóðum upp á, í tilviki Samvinnuferða/
Landsýnar, Eemhofsvæðið, bjóði upp á
allt það sem hugurinn getur girnst því
Eemhof er sannkölluð paradís. Þegar
fulltrúar Samvinnuferða höfðu samband
við okkur í september sl. vildu þeir
kynna sér sumardvalarhús í Hollandi,
því þeir vildu færa út kvíarnar, en eins
og þið vitið, hafa þeir boðið upp á dvöl
í sumarhúsum í Danmörku. Ég sýndi
þeim þá eitt sumardvalarsvæði okkar í
Suður-Hollandi, en þar sem Samvinnu-
ferðir vildu fá afnot af húsum nú næsta
sumar, þá kom það svæði ekki til greina,
því allt var fullbókað. Suðursvæðið hent-
aði ekki heldur, þar sem það liggur ekki
nógu nærri Amsterdam. Við völdum því
Eemhof, sem liggur miðsvæðis í Hol-
landi, en þaðan er ca. 45 mínútna akstur
til Amsterdam."
- Hvað er það helsta sem þið bjóðið
upp á, á Eemhof-sumarhúsasvæðinu?
„Ja, ég hygg að þú getir vart nefnt mér
nokkurn hlut, sem við bjóðum ekki
uppá, og ég er þá alls ekki að raupa eða
gorta, heldur að segja frá staðreyndum.
Svo ég nefni þér aðeins örfá atriði, þá er
fyrst til að nefna sundlaugina í Eemhof,
sem er engu lík. Hún eryfirbyggð, en þó>
þannig að hún tengist útilaug. Hitabelt-
isgróður eins og hávaxin pálmatré gera
höllina einstaklega aðlaðandi. Sundlaug-
in er með öldugangi, sem eykur enn á þá
tilfinningu að maður sé staddur á strönd
í sólarlandi. Þar er einnig séstök barna-
laug. Á laugarbökkunum getur þú fund-
ið hvaðeiná sem hugurinn girnist, ss.
sólbekki, sauna, nuddpotta og hitaveggi
auk ótal leiktækja fyrir börn og full-
orðna. Auðvitað getur þú fengið hvers
konar veitingar einnig í sundhöllinni,
sem er í raun sannkölluð höll.
Þá vil ég nefna þér aðstöðuna til
íþróttaiðkana og leikja. Það er hægt að
fara á sjóskíði, leigja sér brimbretti,
árabáta, seglbáta, leika tennis, reiðhjól
eða fara í útreiðatúr. Ég veit ekki hvar
ég á að stansa í þessari upptalningu, en
verð þó að nefna tennisvellina, bowling-
■ Sumarhúsin eru einkar smekkleg og búin öllum hugsanlegum þægindum
höllina, barnaleikvellina, þar sem er
barnagæsla, barnaleikskólann þar sem
menr.taðir kennarar annast börnin (3,ára
til 12 ára) mini-golf, hjólabátar og veiði-
möguleikar í síkjunum.“
„Þótt þetta sé suinardvalar-
þorp, þá eru möguleikarnir þeir
sömu og í stórborg.“
- Þetta hljómar mjög vel, en hvað
með aðföng og veitingar, - þarf að
nálgast slíkt alla leið til Amsterdam?
„Nei, síður en svo! Þó þetta sé aðeins
þorp, þá er boðið upp á hverskonar
þjónustu, sem þú heldur kannski að
finnist bara í stórborg. Sameiginleg
þjónusta í Eemhof samanstendur m.a.
af móttöku- og upplýsingamiðstöð, mat-
vöruverslunum, veitingastöðum, skyndi-
bitastöðum, áfengisverslun, bar, lyfja-
verslun, barnagæslu, diskóteki, hár-
greiðslustofu o.fl. o.fl.
Sumarhúsin sjálf eru einstaklega
falleg, enda ný. í setustofunni er arinn,
Í
y 1
■ Bistro, toppveitingastaður í Ecmhof, er mjög huggulega innréttaður og að sögn Tielrooy, er maturinn þar mjög
Ijúffengur.
■ Tom Tielrooy, fulltrúi hollenska
fyrirtækisins 5 Sterren Sporthuis
Centrum.
Tímamynd - G.E.
eða hvað? Það er sérstakt tæki sem ég
ætlaði að segja þér frá, sem við köllum
„sólarfallbyssu“ en það tæki vinnur svip-
að og sólarbekkirnir svokölluðu, það er
aðeins mörgum sinnum fljótvirkara, og
með öllu hættulaust. Það tekur ekki
lengri tíma en hálftíma í tækinu, sólar-
fallbyssunni, að verða fallega brúnn! í
alvöru talað, þá eru þetta engar ýkjur,“
segir Tielrooy, þegar hann sér vantrúar-
svipinn á umsjónarmanni Faraldsfótar.
Tielrooy bætir því að lokum við, að á
svæðinu Eemhof séu fimm mismunandi
veitingastaðir, allt frá skyndibitastöðum,
uppí toppveitingastaði, þannig að allir
ættu að finna þar eitthvað við sitt hæfi.
Hjá Samvinnuferðum/Landsýn fékk
Faraldsfótur þær upplýsingar, að um
það bil 2000 íslendingar, eða liðlega
það, munu heimsækja Eemhof í sumar,
og annað eins eða næstum því, fer í
sumarhús í Danmörku. Það verða því
um 4000 'manns sem dveljast á vegum
ferðaskrifstofunnar í sumarhúsum á
erlendri grund í sumar. Á skrifstofunni
fengust einnig þær upplýsingar að verðið
í sumarhúsin í Hollandi er sambærilegt
við verðið í Danmörku. þannig að verð
í tveggja vikna ferð til Hollands, fyrir
hjón með tvö börn gæti verið í kringum
32 þúsund krónur.
Að iokum er rétt að geta þess, því hér
er um kynningu á ferðanýjung að ræða,
að íslenskir fararstjórar verða staðsettir
í Eemhof allan tímann sem íslendingar
dveljast þar, og verða skipulagðarskoð-
unarferðir tynr þá, bæði til Amsterdam
og víðar, en Tielrooy sagðist vera þess
fullviss, að fjölskyldufólk sem dveldist á
Eemhofsvæðinu, myndi njóta þess svo í
ríkum mæli að vera þar, og notfæra sér
alla þá möguleika sem í boði væru, að
ekki yrði mikil þátttaka í slíkar ferðir.