Tíminn - 06.03.1983, Síða 18
SUNNUDAGUR 6. MARS 1983
18
Wmmm
leigupennar í útlöndum
■ Ég lýsti í síðasta Stokkhólmsbréfi
samtíð Bellmans, frelsisskeiðinu. í þann
tíma grasseraði drykkjuskapur og vændi,
brask, frímúrerí, valdarán og styrjaldir;
Svíar skriðu fyrir öllu sem var franskt,
en skáldskapurinn var reyrður í spenni-
treyju fornbókmenntastælingarinnar.
Kóngur, aðalsmenn og borgarastétt tog-
uðust á um völdin í Svíþjóð, alltaf
auðvitað á kostnað bænda og öreigalýðs.
í þessari grein segi ég dálítið nánar frá
Bellman og höfuðverki hans, Pistlum
eða Postulabréfum Fredmans.
Ævi
Skáldið Carl Michael Bellman fæddist í
febrúar árið 1740 í Maria Brunnsgránd
númer 24 á Söder. Bellmansnafnið er'
komið frá þýskum skraddara frá
Bremen, sem var langafi skáldsins. Móð-
urfólk hans var ættað úr Dölunum og
móðurafinn prestur í Maríukirkju á
Söder. Bellman ólst upp í því hverfi og
var Sokkhólmsbúi fram í fingurgóma.
Faðir hans var embættismaður, og stóð
til að koma Carli Michael einnig á þá
braut, enda var hann elstur margra
systkina. Honum var fenginn ágætur
einkakennari, sem var vei að sér í
bókmenntum, og kenndi hann honum
m.a. latínu og frönsku. Tæplega átján
ára gamall fékk strákur vinnu í Seðla-
bankanum, sem hét þá Riksens stánders
bank og var, að ég held, til húsa við
Járntorgið í Gamla stan. Petta var
reynsluráðning, nánast í greiðaskyni, og
kaupið lágt eftir því. Bellman hélst ekki
lengi þarna, heldur lagði hann leið sína
til Uppsala haustið 1758 þar sem hann
hugðist stunda háskólanám. En það
varð endasleppur skólaferill, og hefur
UM POSTULABREF
fræðimönnum ekki tekist að sýna fram á
að skáldið hafi mætt í einn einasta tíma.
Aftur á móti eru til skjöl sent sanna
botnlausa vankunnáttu hans í reikningi.
Bellman hætti í Uppsölum fyrir jól.
Prófessorar þarna studdu Húfuflokkinn,
en Bellman hneigðist snemma að stefnu
Hattaflokksins og var að því skapi hallur
undir Frakka.
Þetta voru umrótstímar og starfsmenn
með fast kaup áttu ekki sjö dagana sæla.
Stjórnvöld hringluðu með verð gjald-
miðilsins og ýmist voru mánaðalaunþeg-
ar vel efnaðir eða sárfátækir. Foreldrar
Bellmans, sem dóu 1765, fóru illa út úr
kreppunni eins og margir fleiri. Sjálfur
lifði hann hátt eins og siður var ungra
skrifstofumanna í Stokkhólmi á þessunt
tíma, og ekki var hann smeykur við að
taka lán. Að því rak að Bellman varð svo
hundeltur af „björnum", eins og rukkar-
ar voru kallaðir þá, að hann varð að flýja
til Noregs árið 1763, lýsa yfir gjaldþroti
og sækja um sérsakt leyfisbréf til að fá
að koma aftur. Hann fékk leyfið. Það
var ekki sjaldgæft að menn flýðu til
Noregs í líkum erindum. En það var víst
greinilegt alla tíð að fjármál voru ekki
sterk hlið hjá skáldinu.
Árið 1764 fékk Bellman vinnu (aftur
gegnum klíku auðvitað) hjá Handiðnað-
arskrifstofunni. Húfumenn náðu völdum
í landinu ári síðar og var skrifstofan lögð
niður fyrir atbeina þeirra. Árið 1768
fékk Bellman vinnu á aðaltollskrifstof-
unni, varð ritari þar og hafði föst laun,
þótt lág væru. Þarna vann skáldið í
fjögur ár, en þá var þessi skrifstofa
einnig lögð niður.
Bellman var ungur þegar hann skrifaði
fyrstu verk sín. Hann gerði m.a. þýðing-
ar og smákvæði fyrir og um tvítugt.
Biblíuskopstælingar hans vöktu athygli,
t.d. Gamli Nói, sem allir íslendingar
kannast við (í vondri þýðingu reyndar).
Árið 1768 hafði hann byrjað að semja
Postulabréf Fredmans, sem gerðu nafn
hans fljótlega frægt á krám bæjarins.
Gústav 3. tók sér einveldi árið 1772,
en hann var sérstakur vinur skálda og
listamanna. Sjálfur hélt hann uppi leik-
listarstarfsemi við hirð sína, leikstýrði
og lék, og á seinni hluta valdaskeiðsins
skrifaði hann leikrit, - með aðstoð
ágætra rithöfunda, reyndar. Gústav
kóngupveitti Bellman persónulega dálít-
inn styrk, og kom hann því til leiðar að
Bellman fengi stöðu við Konunglega
happdrættið. Sú staða var bitlingur (eins
og svo margar stöður virðast hafa verið
á þessum tíma!), og sást skáldið ekki í
vinnunni nema dálítið í janúar árið
1777, að því er heimildir herma. Síðustu
æviárin var Bellman fátækur, enda var
verndari hans Gústav 3. myrtur árið
1793. í rauninni hefur ein aðal tekjulind
skáldsins verið alls konar smágjafir frá
efnamönnum, sem hann greiddi oft fyrir
með kveðskap og söng. Bellman var
sjálfur veitull, drakk mikið og át, auk
þess sem hann sá fyrir konu og þrem
börnum. En á síðari hluta ævinnar mun
drykkja skáldsins hafa farið nokkuð úr
hömlu, og hefur það átt nokkra sök á
fátækt hans. Hann lést aðeins fimmtíu
og fimm ára gamall.
Verk
Bellman skrifaði mikið um dagana.
Það voru til dæmis sálmar (sbr. sálma-
kver hans Zions Högtid), fjöldamörg
tækifæriskvæði til vina og kunningja og
nokkur smáleikrit, sem ekki þykja mjög
merkileg. Postulabréf Fredmans er safn
82ja kvæða, sem kom út árið 1790; ári
síðar komu út Söngvar Fredmans. Um
þetta leyti fékk skáldið loks nokkra
viðurkenningu, eftir að bæjarbúar höfðu
sungið og lært kvæði hans árum saman,
en hástéttin hafði haft hann fyrir einka-
trúð í partíum. Árið 1786 hafði Gústav
3. stofnað Sænsku akademíuna. Postul-
abréfin voru valin besta skáldverk ársins
1790 af Akademíunni, og fékk höfund-
urinn viðurkenningu fyrir það (sem hann
ku reyndar ekki hafa kippt sér mikið upp
við). En vissir meðlimir þessarar lærðu
samkundu voru mjög andvígir veiting-
unni því Bellman þótti ófínt skáld.
Honum var lagt til lasts að yrkja um
óvirðulegt fólk, þ.e.a.s. hórur ogdrykkju-
ræfla.
Árið 1772, rétt áður en Gústav tók sér
einveldi, birti Bellman lofkvæði um
hann. Sama dag og valdaránið var framið
söng skáldið þessa konungsskál sína á
götum úti, og almenningur lærði það
eftir honum og söng fyrir einvaldinn,
sem frétti svo um nafn höfundarins.
Fullkomin óreiða hafði ríkt í efnahag og
stjórnmálum landsins, svo að margir
voru fegnir röggsemi konungs, þótt ófáir
yrðu líka aftur til þess að snúa við
honum baki, sérstaklega eftir tilgangslít-
inn hernað hans á hendur Rússum, sem
endaði með sneypulegum friðarsamningi
í Anjala. En Bellman og nokkrir fleiri,
t.d. myndlistarmaðurinn Sergel og
skáldin Leopold og Kellgren, vorudygg-
ir stuðningsmenn einvaldsins alveg fram
á þann dag er hann féll fyrir hendi
Ancarströms eftir 20 ára einvaldstíð.
Annað kvæði Bellmans, Fjáriln vingad
syns i Haga, er einnig konungslof, en
það var ort undir lok gústavíanska
tímans, þegar kóngur átti undir högg að
sækja. Listamennirnir áttu þessum sér-
kennilega þjóðhöfðingja margan greiða
að gjalda. Konungurinn reyndi eins og
kollegar hans að hrifsa völd frá aðlinum.
En honum tókst ekki að gera það
bandalag við borgarastéttina, sem var
nauðsynlegt til að slíkt mundi takast.
Segja má að Bellman hafi heyrt til stétt
lægri embættismanna. Konungstryggð
hans má eflaust skýra út frá því, auk hinsf
hve Gústav var vilhallur bókmenntum,
- jafnvel af nýstárlegra taginu.
Þekktastir þættir í kvæðum Bellmans
eru bakkusardýrkun hans og freyjublót.
í Postulabréfunum er grunnhugmyndin
eins konar frímúrararegla Bakkusar,
þar sem Fredman, hirðúrmakari, sem
endaði í göturæsinu vegna drykkju-
hneigðar og misheppnaðs hjónabands,
er æðstiprestur og reglumeistari. Fred-
man þessi var reyndar til, og hann
andaðist rétt um það leyti sem Bellman
■fór að yrkja um Reglu Bakkusar. Fleiri
af persónum Postulabréfa Fredmans
eiga sér raunverulegar fyrirmyndir, en
þær eru auðvitað lagðar til eftir þörfum
kveðskaparins, eins og gengur.
Annað mikilvægt einkenni þessara
kvæða er að þau ganga út frá postula-
bréfum Nýja testamentisins, - bréfum
Páls postula til Galateumanna, Kórintu-
manna o.s.frv. Þannig heldur Bellman
hér áfram skopstælingum sínum á skáld-
skaparefnum Biblíunnar, en slíkar stæl-
ingar voru algengar á þessari öld upplýs-
ingarinnar, ýmist vegna þess að trúleysi
var algengt eða vegna þess að menn
fundi að hin helga bók hafði bókmennta-
legt gildi. En þessi rammi, Regla Bakk-
usar og boðskapur heilags Fredmans í
postulagervinu, kemur mismikið fram í
kvæðunum, stundum hverfur hann næst-
um því alveg, svo að þau kvæði geta
staðið ein án tilvísunar til launhelga
Bakkusarbræðra.
Önnur áberandi einkenni þessa kveð-
skapar eru t.d. tilvísanir til klassískra
bókmennta og grískrar goðafræði. Hór-
urnar og gengilbeinurnar eru nefndar
nýmfur, gyðjur, Klóris og þar fram eftir
götunum. Nú skyldi maður ætla að þetta
hafi gert kveðskap Bellmans bóklegan
og óaðgengilegan. En 18. aldarmenn
þekktu þessa hluti (og Biblíuna) betur
en við gerum nú. Bellman og sumir aðrir
höfundar upplýsingarinnar tóku þessar
guðlegu verur ekki allar eins hátíðlega
og áður hafði verið. Nói var frá fornu
fari verndari vínviðarins, eins og Bell-
man gengur út frá í Gamla Nóa. Hinum
íhaldssamari þótti að sjálfsögðu hneyksl-
anlegt að gól sauðdrukkinna danshljóm-
sveita og fiðlusarg föður Bergs væri
bendlað við hörpu Appóllós, svo dæmi
sé tekið. Slíkt var ekki við hæfi. Með því
að blanda saman goðafræði, rónum,
biblíuminnum og vændiskonum í einn
graut vísaði Bellman raunsæisskáldum
19. aldarinnar veginn.
Rætt hefur verið um raunsæi hjá
Bellman. Þetta raunsæi kemur fram í
þjóðlífslýsingum hans. Samtímamenn
Ámi Sigurjóitsson C*!
skrifar frá Stokkhólmi É>\