Tíminn - 27.03.1983, Side 12
12
SUNNUDAGUR 27. MARS 1983
■ Al' ug til birtast í fjölmiilluni licr á lundi fréttir
(>t> I'rasagnir af svukölluðum „fljúgandi f'uröu-
hlutuin“ eöa „fljúgandi diskum“, þ.e. einkenni-
lcgum hlutuin eöa ljúsfyrirbri}>öum á hinminum.
Marjjir álíta aö þessi l'yrirhri|>öi séu farartæki
vitsmunavera frá uörum hnuttum sent hcintsæki
juröina meö leynd uöru hverju. Hér kemur fram
að þessi skoðun er á niisskilningi byggö, ug aö
aðrar einfaldari ug cölilegri skýringar séu fyrir
hendi.
Heimsækja
vitsmunaverar
frá öðrum
hnöttum
jörðina með
leynd?
■ Sérkennilegar skýjamyndanir eru oft uppspretta frásagna um fljúgandi furðuhluti eins og í þessu dæmi
Hvað eru fljúgandi furðuhlutir?
Saga hinna tljúgandi furöuhluta er ckki ýkja
löng. Fyrirbrigði þessi munu fyrst hafa komið í
heimsfrcttirnar árið 1946 þegar fólk í Svíþjóð sá
hluti á himinhvolfinu sem þaö bar ckki kennsl á.
Um „fljúgandi diska" var fyrst fjallað í bandarísk-
um fjölmiðlum í júní 1947 cftir aö flugmaður
einkavclar, Kenneth Arnold að nafni, lýsti undar-
legum hlut á fleygiferð sem hann hafði orðið var
við yfir Washingtonfylki. Fáum vikum síðar höfðu
borist frásagnir af ókennilcgum hlutum að sama
tagi frá öllum fylkjum Bandaríkjanna, og líka frá
Kanada, Ástralíu, Bretlandi og íran. Sýn Kenneth
Arnolds, sem að líkindum var bandarísk hcrþota,
varð upphafið að því sem nefnt hefur veriö
„UFO-business" þar vestra, en við liggur að
útgáfa bóka og tímarita. gerð kvikmynda og
starfræksla rannsóknarstöðva er sinna fljúgandi
furðuhlutum sc orðin að sérstakri atvinnugrein í
Bandaríkjunum sem þúsundir manna hafa fram-
færi sitt af.
í gagnabanka Stofnunar til rannsúknar á fljúg-
andi l'uröuhlutum (Centcr for UFO Studies) í
Evanston í Illinois í Bandaríkjunum, sem J. Allen
Hynek veitir forstöðu, cr að finna fleiri en 60
þúsund frásagnir fólks af fljúgandi furðuhlutum í
140 löndum. Sumar frásagnirnar eru að vísu
teknar úr gömlunt ritum, s.s. Heilagri ritningu, en
túlkaðar í ljósi nútímans. í 2000 tilvikum eiga
furðuhlutir að Itafa skilið eftir sig efnislegar lcifar;
í 1500 tilvikum kveðst fólk hafa haft náin kynni af
geimverum; 400 dæmi eru um að furðuhlutir hafi
stöðvað bifreiðar með einhvers konar orkugeisl-
um, og þannig mætti áfram telja. Annars eru
frásagnirnar ekki flokkaðar eftir áreiðanleika;
rannsóknarstofnunin skráir niður allar frásagnir
sem henni berast. Aftur á ntóti viröast vitnin mörg
hver vera hiö árciðanlegasta fólk: vísindamenn,
þ.á.m. stjörnufræðingar, hermenn, flugmena,
flugumferðarstjórar o.s.frv.
Hvað sá
stjörnufræðingurinn?
Við skulum kynna okkur forvitnilegt dæmi um
loftsýn áreiðanlegs vitnis. 5. október 1973 var
þrautþjálfaður stjörnufræðingur að rannsaka næt-
urhimininn nálægt Tucson í Arizona í Bandaríkj-
unum. Þá sá hann fyrirbrigði á himninum sem var
„sláandi og óvcnjulegt" og hann skrifaði því niður
á blað það sem fyrir augun bar meðan minnið var
fcrskt til þess að gcta leitað skýringar á sýninni
síðar.
Eftirgrennslan stjörnufræðingsins leiddi í Ijós
aö „furðuhluturinn" sem hann hafði séð var
partur af eldflaug sent flugherinn hafði skotið á
loft frá Vandenberg-hervellinum í Kaliforníú,
meira en 800 kílómctra í burtu. Talsmaður hersins
skýrði honum frá því að frásagnir um fljúgandi
furöuhluti kæmu iðulega í kjölfar þess að þeir
skytu slíkum flaugum á loft. meira að segja frá
jafn fjarlægum stöðum og Oregon og Nýja
Mexikó.
Eftir að stjörnufræðingurinn hafði fengið full-
nægjandi „skýringu á loftsýn sinni skoðaði hann
minnismiða sína til að ganga úr skugga um hvernig
athyglisgáía sín væri í stakk búin til að nema svo
óvæntan og hraðfleygan atburð sem loftsýnin var.
í Ijós kom að minnispunktar hans voru um margt
mjög ónákvæmir og ósamkvæmir. Þeir eru til
marks um það liver skilningarvit manna og minni
eru brigðul, og að jafnvel þaulreyndum rannsókn-
armönnúm geta orðið.á skyssur sem skekkja mat
þcirra á reynslu sinni.
Ekkcrt bendir til
heimsókna frá öörum
hnöttum
Enda þótt mörgurn dæmum um fljúgandi furðu
hluti hafi verið safnað saman af áhugafólki og
opinberum rannsóknarncfndum á undanförnum
þremur áratugum hefur ekkert verið leitt í ljós
sem bendir til heimsókna frá öðrum hnöttum eða
að einhvers konar yfirnáttúrlegra skýringa sé þörf
á loftsýnum manna. Þegar farið er ofan í saumana
á þeim frásögnunt fólks á fljúgandi furðuhlutum
sem unnt er að rannsaka kemur í Ijós að það hefur
séð náttúrufyrirbrigði af cinhverju tagi: fasta-
stjörnur eða reikistjörnur. loftsteina. skýjamynd-
ir; eða hluti sem menn hafa smíðað: flugvélar,
loftbelgi, veðurtungl eða eldflaugar, Edward U.
Condon sem stjórnaði rannsókn bandaríska flug-
hersins á fljúgandi furðuhlutum á árunum 1966-
1969 greinir frá mörgum slíkum dæmum í loka-
skýrslu sinni Final Repurt uf the Scientiflc Study
uf Unidentifíed Flying Objects. Að sömu niður-
stöðu hníga rannsóknir sem þeir Philip J. Klassog
Robcrt Scheaffer hafa framkvæmt og skýrt er frá
í bókunum UFO's Explained (1976) og The UFO
Verdict (1981).
Biekkingar hafðar
í frammi
Margar frásagnir af fljúgandi furðuhlutum reyn-
ast við athugun blckkingar einar. Margvíslegar
ástæður geta legið til þess að fólk kýs að hafa í
frammi syik og pretti um þcssi efni: til að skemmta
sér, til að beina athygli að sér, til að komast í
fjölmiðla cða græða peninga. Vísindarithöfundur-
inn Philip J. Klass hefur rakið fjöldamörg dænti
um slík svik í fyrrncfndri bók sinni. M.a. hefur
hann sýnt frani á að atvik sem áhangendur þeirrar
skoðunar að fljúgandi furðuhlutir séu geimskip
vitsmunavera frá öðrum hnöttum hafa talið mark-
verðustu sannanir fyrir heimsókn utan úr geimn-
um eru blekkingar einar. Eins hefur Klass greint
frá sögu Ijósmynda af fljúgandi furðuhlutum og
sýnt hvernig farið ltefur verið að því að falsa þær.
Skynjunarvillur
Loftsýnir fólks geta líka verið skynjunarvillur.
Þegar augað verður fyrir sjónáreiti túlkar heilinn
það ágrundvejli reynslunnar. fyrri þckkingar. Það
er auðvclt að skjátlast um stærð hluta,
fjarlægð. hraða og lögun. Alkunna er og að
ofskynjanir einkennast af því að menn telja sig sjá
sterk ljós. Skynjunarvillúr þurfa ekki að vera
bundnar við einn cinstakling, t.a.m. er oft um
sameiginlegar skynvillur að ræða við ntúgsefjun.
Öll höfum við lesið um galdrafár fyrri alda þegar
hópar fólks töldu sig sjá nornir og púka. Frægt er
líka dæmið frá New York árið 1938 þegar
útvarpsleikrit H.G. Wclls í búningi Orsons Welles
leiddi til ringulreiðar í borginni og fjöldamargir
voru sannfærðir um að þeir hefðu séð Marsbúa
spígspora um götur.
Minni manna er brigðult
Þá ber að hafa í huga starfsemi minnis manna
er flókin, og við þekkjum lítt þann búnað sem þar
er að verki. Við vitum hins vegar að minni okkar
er brigðult. Frank Drake, prófessor í stjörnufræði
við Cornellháskóla í New York. bendir á að nærri
helmingur fólks sem segist hafa séð loftsteina falla
til jarðar greinir ónákvæmlega frá sýninni þegar
degi síðar, frásögnin verður síðan æ ónákvæmari
næstu daga og á fimmta degi er svo komið að í
frásögnini er „meiri ímyndun en sannleikur".
Einnig bcr að minnast þess að hörmulega
fjölmennur hópur fólks á við ýmis konar sálsýki
að stríða og sumu þessu fólki er ekki sjálfrátt. Það
verður fyrir margvíslegri reynslu í hugarheimi
sínum og ruglar henni óafvitandi saman við
veruleikann. Alltaf eru þeir einhverjir sem taka
mark á uppspuna slíks fólks, oftast vegna þess að
ekki er vitað um veikindi þess.
Vitsmunaverur á öðrum
hnöttum?
Sú hugmynd að óskýrð ljósfyrirbrigði á himnin-
um séu farartæki vitsmunavera frá öðurm hnöttum
er að sjálfsögðu sprottin af geimferðarannsóknum
og geimferðum. Ef við getum ferðast með geim-
flaugum til tunglsins og annarra reikistjarna hví
skyldu þá vitsmunaverur á öðrum hnöttum sem ef
til vill búa að miklu þroskaðri tækni ekki geta
heimsótt jörðina?
Fýrst er þess að geta að við vitum ekki einu sinni
hvort lif er á öðrum hnöttum, þótt nokkrar líkur
bendi til þess að skilyrði til þess að líf geti kviknað
séu á þekktum plánetum í sólkerfi okkar. Og ef
líf hefur í rauninni kviknað einhvers staðar í
óravíddunt geimsins þá er álls ekki víst að það sé
vitsmunalíf.
Tilgátan um að vitsmunaverur frá öðrum
hnöttum heimsæki jörðina með leynd fær ekki
stuðning af neinum marktækum gögnum, og
skynsamlegast virðist að vísa henni á bug sem
hverri og annarri hégilju. Ef einhver í hópi
lesenda telur sig aftur á móti geta leitt rök að
gagnstæðri skoðun er Helgar-Tíminn reiðubúinn
til að hafa milligöngu um að koma honum í
samband við fyrrnefndan Philip J. Klass. Hann
hefur nefnilega heitið því að greiða hverjum þeim
scm fært getur óyggjandi sannanir fyrir heimsókn
vitsmunavera frá öðrum hnöttum til jarðarinnar
10 þúsund Bandaríkjadali í verðlaun. Þetta boð
hans hefur staðið frá árinu 1966 og margsinnis
verið ítrekað í víðlesnum blöðum. Enn hefur
enginn gefið sig fram og hreppt verðlaunin. Hvað
veldur? Við látum lesendum eftir að ráða þá gátu.
GM.