Tíminn - 27.03.1983, Page 24

Tíminn - 27.03.1983, Page 24
SUNNUDAGUR 27. MARS 1983 24 nútíminn ■ í Samvinnuskólanum í Bifröst í Borgarfirði er árlega haldin sönglaga- keppnin Bifrovision. ÁBifrovision 1983, sem fór fram laugardaginn 19. mars sungu 22 nemendur 14 lög við undirleik skólahljómsveitarinnar. Keppnin fór þannig fram að þátttak- endur fengu sér umboðsmenn sem auglýstu þá undir dulnefni fyrir keppn- ina. Umboðsmennirnir beittu ýmsum ráðum til að vekja athygli á umbjóðend- um sínum. Þeir hengdu upp auglýsingar- skilti, gáfu poppkorn og appelsínur, héldu uppi áróðri t' lokaðri útvarpsrás skólans og gerðu auglýsingar í sjónvarps- stúdíóinu. Sköpuðu þeir góða stemningu fyrir keppnina svo og kátínu. Keppnin sjálf hófst með því að skot- hríð kvað við og hljómsveitarmeðlimir hlupu hálfbognir, klæddir hermanna- göllum, upp á senuna sem útbúin var ■ Hreppsnefndin á sparifötunum kyrjaði lagið Jón var kræfur karl og hraustur. Hálfdán Örlygsson, Helgi Haraldsson og Hreinn Stcfánsson. ■ Fnmann F.F. Flycring, Sigurður Kristinn Björnsson úr Hrísey söng smjörgreiddur. Ijósmyndir: Hrafn M. Heimisson. BIFROVISIOW 1 SAM- VINNUSKÓLANUM — Wibe Westlund (Guðmundur B. Steinþórsson) sigraði sem vígvöllur. Síðan sungu keppendur lögin sín hver á fætur öðrum. Ðómarar í keppninni voru áhorfendur, en þeir höfðu komið víðs vegar að af landinu. Dulnefni keppenda voru hin ótrúleg- ustu: Úrgangarfafulli, Lúthersku línurn- ar, Hallgerður langbrók, Frímann F.F. Flyering, Gabríel, Casanova, Bestfrend, Dropar, Wibe Westlund sem sigraði, Sara Maradonna, Kalli kynóði, Rochdale-flokkurinn og Lady Chatter- ley. Að keppni iokinni lék skólahljóm- sveitin fyrir dansi fram eftir nóttu. Allir skemmtu sér konunglega án áfengis, en slíkt er ekki notað í Bifröst. Þ.A-J ■ Kalli kynóði, réttu nafni Þórarínn Pálmi Jónsson, söng lagið „Gednó“. 1 ■ Umboðsmaður Casanova, Friðgeir Guðjónsson, kemur í salinn. Hann hreppti öll verðlaunin sem veitt voru fyrir bestu auglýsingabrellurnar. ■ Sigurvegarínn, Wibe Westlund, réttu nafni Guðmundur Björn Steinþórsson. Hann söng lagið Rocabilly Rebel af innlifun, með brillíantín í hárínu. ■ Hersveitin, • skólahljómsveit Samvinnuskólans. T.f.v. Pálmi B. Almarsson, bassaleikari, Halldór Bachmann, á strengjavél, Sigurjón Sigurðsson, trommuleikari, Ragnar Þ. Guðgeirsson, gítarleikari og Guðný Traustadóttir, hljómborðsleikarí. ■ Bestfrend-tríóið varð í öðru sæti. T.f.v. Þórður Bachmann, Þórir Aðalsteinsson og Óskar Sigmundsson. Þeir piltar sungu lagið um Vinnuskólann. ■ Dropar urðu í 3ja sæti. Það voru þær Hildur Árnadóttir og Krístjana J. Þor- láksdóttir sem sungu lagið Can’t go back. ■ Casanova, Vilhelm Guðbjartsson, syngur lagið sitt.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.