Tíminn - 01.07.1983, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1983
3
fréttir
íbúasamtök Vesturbæjarálykta:
f r Áþreif anlegar’ ’
hraöatakmarkanir
■ Aðalfundur íbúasamtaka Vestur-
bæjar var haldinn að Hallveigarstööum
þann 13. júní s.l.
Auk hefðbundinna aðalfundastarfa
var umræðuefni fundarins að þessu
sinni lækkun hámarkshraðá niöur í 30
km hraða innan Vesturbæjarins, en
hún var samþykkt í borgarstjórn fyrir
skömmu og kemur væntanlega til fram-
kvæmda nú í sumar.
Katrín Fjeldsted, borgarfulltrúi og
varaformaður Umferðarnefndar, var
gestur fundarins og rakti ástæður og
aðdraganda þcssarar tilraunar. Kvað
hún nauðsynlegt að vcsturbæingar
sameinuðust um þessi mál til að hraða-
takmörkin yrðu virt.
Fundurinn tók undir það sjónarmið
cri' jafnframt var það skoðun manna,
að „áþreifanlegar“ hraðatakmarkanir
í fornii þrcnginga, upphækkana, lok-
ana o.fl. væru nauðsynlegar hliðarráð-
stafanir til að trvggja öryggi gangandi.
- ÞB
Stjómin láti
kanna kjör og
fjölda
láglaunafólks
■ Á fundi í Verkakvennafélaginu
Framsókn, sem haldinn var 28. júní s.l.
var samþykkt að skora á ríkisstjórnina
að láta kanna hversu margir launþegar
taki laun samkvæmt lágmarkstekju-
tryggingu, eða því sem næst og í hvaða
starfsgreinum þetta fólk vinni. Fundur-
inn skoraði á ríkisstjórnina að hlutast til
unt að húsnæðisvandi aldraðra, ungs
fólks og láglaunafólks verði leystur á
viðráðanlegan h'att fyrir þessa hópa.
Fundurinn samþykkti einnig mótmæli
gegn þeim hækkunum sem dunið hafa
yíir undanfarið og tók undir ályktun
formannaráðstefnu A.S.Í. frá 6. júlí. Þá
var einnig samþykkt að segja upp gild-
andi kjarasamningum félagsins.
hefði verið góð en hins vegar hefði
aðbúnaður keppenda verið slæmur. Er-
lendu kcppendurnir bjuggu allir á gisti-
hcirnili sem var það langt frá spilastað að
það tók um 15 mínútur að aka á milli í
bíl. Sigurður sagði þó að þetta hcfði
bitnað jafnt á öllum keppendunum svo
það væri varla hægt að kenna þessu
eingöngu um.
í sigurliðinu spiluðu Sylvan, Wrang,
Peterson og Peterson en danska liðinu
spiluðu Denis Kock, Knut Blakset, Lars
Blakset og Jon Jonsson.
_______________________GSH
Esjan seld
til Græn-
höfðaeyja
fyrir
17 millj.
■ Esjan, skip Skipaútgerðar ríkisins,
hcfur verið seld til Grænhöfðaeyja fyrir
rúmlega 17 milljónir íslenskra króna.
Samningar um söluna voru undirritaðir
á miðvikudag og eru þeir án fyrirvara af
bcggja hálfu, nema að fslensk stjórnvöld
þurfa að samþykkja söluna. Skipiðverð-
ur afhent nýjum eigendum t lok júlf, en
þá er væntanleg til landsins ný Esja sem
smíðuð var í Englandi.
„Miðaö viö allar aðstæður verður að
telja vcrðið sem fékkst fyrir skipið
viðunandi, en það er mjög erfitt um
þessar myndir að selja notuð skip,"
sagði Guðmundur Einarsson, forstjóri
Skipaútgerðarinnar í samtali viðTímann
í gær. Heklan, systurskip Esjunnar, hefur
vcrið á sölulista í á þriðja ár og sagðist
Guðmundur vongóður um að hún seldist
áður en langt um liði. Nú væru í gangi
viðræður um nokkra aðila um sölu á
hcnni og allar líkur væru ú að þær
skiluðu árangri. -Sjó.
Verkakvenna-
félagið
Framsókn segir
upp
samningum:
■ Páll Pétursson, alþingismaður, og
Andrés Kristjánsson, bóndi á Kvíabekk,
eru meðal gesta á Melgcröismclum.
Búist er við að mótsgestum fjölgi mjög í
dag. Tímamynd ESE/Akureyri
■ Árekstur varð í gær við JL-húsið. Þrír voru fluttir á slysadeild. Eins og sjá má af
myndinni var árcksturinn töluvert harður. Tímamynd: Sverrir
■ Hér sjást nokkrir keppenda á Fjórðungs-
móti norðlenskrahestamanna í gær.
Yfir 600
gestir á IVIel-
gerdismelum
■ Rúmlega 600 gestir voru komnir á
Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna
á Melgerðismelum í Eyjafirði um kvöld-
matarleytið í gær, en mótið var sett í
gærmorgun.
Eftir mótsetninguna fóru fram dómar
í B-flokki gæðinga á aðalvellinum og
hryssudómar á efri vellinum. Einnig
voru dæmdir hestar úr eldri flokki ung-
hesta. í dag verða stóðhestar dæmdir
ásamt gæðingum úr A-flokki og unghest-
um úr yngri flokki. Klukkan 18 hefjast
undanrásir kappreiða: 250 metra stökk,
300 metra brokk, 350 metra stökk og 800
mctra stökk. í kvöld verður svo kvöld-
vaka með fjölbreyttri dagskrá.
- Sjó.
■ ísland lcnti í sjöunda sæti á Norður-
landamóti yngri spilara í bridgc scm
lauk í Þrándheimi í gær. Sigurvegari
varð A-sveit Svía sem hlaut 125 stig en
A-sveit Dana varð í öðru sæti, einnig
með 125 stig en innbyrðisleikur réöi
röðinni. íslenska sveitin fékk 57 stig, en
alls tóku 9 sveitir þátt í mótinu.
Úrslit fjögurra fyrstu leikja íslensku
sveitarinnar hafa áður birst í blaðinu en
í sjöttu umferð vann ísland B-svcit
Dana, 14-6; tapaði í sjöundu umferð
fyrir A-liði Svía, 0-20; í áttundu umferð
vann Island A-lið Finna, 11-9, en tapaði
fyrir B-liði Noregs í síðustu umferðinni,
1-19.
Tíminn hafði samband við Sigurð
Sverrisson fyrirliða íslenska liðsins í gær
og hann sagði að liðið hefði spilað
misjafnlega. Aðalsteinn Jörgensen og
Stefán Pálsson spiluðu langtnest og Sig-
urður taldi að þeir hefðu spilað best í
heildina. Hróðmar Sigurbjörnsson og
Karl Logason áttu mjög góða leiki en
einnig mjög slæma en Bragi Hauksson
og Sigríður Sóley voru einna jöfnust.
Sigurður sagði að aðstaða á spilastað
Norðurlandamót yngri spilara í bridge:
ÍSLAND HAFNAÐI
I SJÖUNDA SÆTI
ttspilið sem
ALLIR TAPA”
— var afhent Albert Guðmunds-
syniT fjármálaráðherra, í gær
■ Verslunarráð íslands hefur gefið út
veggspjald undir heitinu: Spilið sem allir
tapa. Ragnar S. Halldórsson, formaður
ráðsins, afhenti Albert Guðmyndssyni,
fjármálaráðherra, veggspjaldið form-
lega á skrifstofu ráðherrans í stjórnar-
ráðinu síðdegis í gær.
„Á veggspjaldinu er það sýnt með
einföldum skýringarmyndum hvað gerist
og hefur raunar verið að gerast, þegar
stjórnvöld og hagsmunahópar neita að
horfast í augu við viðurkenndar stað-
reyndir í efnahagslífinu. Það er spilið
sem allir tapa," segir í frétt frá Verslun-
arráðinu.
í fréttinni segir, að tilgangurinn með
útgáfunni sé að vekja fólk tií uinræðna
um nauðsyn þess að snúa blaðinu við og
leita nýrra leiða við stjórn efnahagsmála
til hagsbóta fyrir alla.
Við afhendingu spjaldsins í fjarmála-
ráðuneytinu óskaði RagnarS. Halldórs-
son þess, að það yrði í framtíðinni ekki
notað við stjórn efnahagsmála.
Veggspjaldinu verður dreift á næstu
dögum í verslanir og fyrirtæki. -Sjó.
JGK