Tíminn - 10.07.1983, Side 2

Tíminn - 10.07.1983, Side 2
SUNNUÖAGUR 10. JÚLÍ1983 ■ Þessi þrjú farartæki eru einkar táknrxn fyrir Svía - Saab, Scania, og SAS-flugvél - það vantar bara Volvoinn í safnið. A faralds- fæti Eurocard stærst í Ameríku U Hafa ekki hátt í heilmargir haldið því fram að Islendingar væru allra þjóða montnastir? Það er eins og mig minni það. Eftir að hafa gluggað örlítið í blaðið Sweden Now, nýjasta eintak, sem ég geri stundum, er ég eins og svo oft áður sannfærð um að þetta með montið okkar sé reginfirra, því frændur okkar elsku- legir, Svíar, standa okkur svo langtum framar, hvað mont snertir, að við getum bókstaflega talist lítillát í samanburði við þá. Ég fletti upp á síðu 30 í nýjasta tölublaði Sweden Now, þar sem talað er um „87 áhugaverðar staðreyndir um Svíþjóð". Það sem kemur mér spánskt, eða á ég að segja sænskt fyrir sjónir, þegar ég renni í gegnum „staðreyndalist- ann“ þeirra, er að hér er ekki um staðreyndir að ræða, heldur í mörgum tilvikum grófar ýkjur og mont, þar sem Svíar eigna sér heimsmetið á hinum ýmsu sviðum, sem þeir yfir höfuð eiga ekki. Skal ég nú nefna nokkur dæmi máli mínu til sönnunar, en upplýsi um leið að þetta er meira til gamans gert, en í fullri alvöru: Sweden Now segir Svía lifa lengur en nokkra aðra þjóð í heiminum, karla þar hafi meðalaldurinn 72.10 ár og konur 77.75 ár. Hið rétta er að sjálfsögðu að við íslendingar lifum allra þjóða lengst, meðalaldur karla hér á landi er 73,7 ár og konurnar, sterka kynið, lifa 79,7 ár. Það verður að segjast eins og er, að það er hálfþreytandi að vita til þess að Svíar skuli yfir höfuð ekki reikna okkur með, þegar þeir gera þessar tölfræðilegu út- tektir sínar. ■ Þrátt fyrir montið, þá eiga Svíar einkar failega höfuðborg, Stokkhólm, en eyjaklasinn í kringnm Stokkhóbn telur hvorki meira né minna en liðlega 25 þúsund eyjar. ■ Með samvinnu sinni við Master Card er Euroeard orðið stærsta krc- ditkortafyrirtækið í Bandaríkjunum, að því er segir í skandinavíska ferða- blaðinu Stand By. Það segir aö American-Expresskort- in í Bandaríkjunum séu gjaldgeng á einum 350 þúsund stöðum og þar á eftir komi kortin í Diners Club, scm gangi á um 285 þúsund stöðum. Út- breiðsla Eurocard sé hinsvegar slík, að þau megi nota til greiðslu á liðlega tveimur milljönum staða! Það þýði með öðrum orðum það að Eurocard hafi fimmfalda útbreiðslu á við amer- ísku kortin sem nefnd voru hér að ofan. Sweden Now segir Svía vera númer þrjú á listanum yfir þær þjóðir sem hvað flesta bíla eigi. Segir blaðið að Bandarík- in séu þar efst á blaði með 628 bíla á hverja þúsund íbúa, númer tvö sé nýja Sjáland, með 447 bíla á hverja þúsund íbúa og síðan segir blaðið Svía vera í þriðja sæti með 368 bíla á hverja 1000 jbúa, en hið rétta er að sjálfsögðu að við íslendingar erum í þriðja sæti með 420 bíla á hverja þúsund íbúa. Sem sagt - þessi örfáu dæmi sýna og sanna að ekki er allt satt sem á prenti birtist. ■ Skandinavíska flugfélagið SAS opnaði nýlega á Kastrupflugvelli sér- staka þjónustumiðstöð fyrir sjómenn frá Norðurlöndunum. Þar er sjó- mönnum veitt fyrirgreiðsla varðandi flug, hótelbókanir og fleira. Verður þessi þjónustumiðstöð opin alla daga vikunnar, árið um kring, frá kl. 7 á morgnana til kl. 21 á kvöldin. SAS er að eigin sögn eina flugfélagið í hciminum sem býður upp á slika sérhæfða þjónustu fyrir sjómenn sér- staklega, sem iðulega þurfa á flugi og hóteli að halda með litlum sem engum fyrirvara. SAS með sérstaka sjómanna- þjónustu í Kaupmanna- höfn ■ Víða hafa flugfélög þurfl að leigja Júmbóþotur sínar. Þessi mynd er af einni Júmbóþotunni i eigu Cargolux. Harðnandi samkeppni í flugbransanum víða um heim: SAS leigir þrjár oeing 747 út a í sífellt harðnandi sumkeppni í slíkt, því félagið hefur nýlega leigt tvær 80 milljónir sænskra króna. Verða suðurameríska flugfélaginu Avianca. ferðabransanum, verða flugfélög að júmbó-þotúrsínar,Boeing-747 tilNig- .xélamy Jffiijeðar með flugmönnum, Þar að auki á SAS þrjár aðrar leigja út flugvélar sínar i7.storÍjmj0L.éria Airwavs. yóLjeigusamninEurinn sem cru 40 taísírisi Þríðjá'júmbo-þota júmbó-þotur sero félagid notartil flugs eða jafnvel selja. SAS ercitt dæmi um gildi-l.júiu sl. og er Itann að upphæð SAS er a langtimaleigusainnmgi hjá til Bandaríkpinruíog S'uðaustur-Asíu... Svíar montn- ir í meira "tof' ' '■ < '

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.