Tíminn - 03.05.1983, Page 4

Tíminn - 03.05.1983, Page 4
4 íbúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn er laus til afnota tímabilið 1. september 1983 til 31. ágúst 1984. Listamenn eða vísindamenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúðinni. í íbúðinni eru fimm herbergi og fylgir þeim allur nauðsynlegasti heimilisbún- aður. Hún er látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúðinni skal eigi vera skemmri en 3 mánuðir en lengstur 12 mánuðir, en venjulega hefur henni verið ráðstafað til þriggja mánaða í senn. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist stjórn húss Jóns Sigurðssonar, Islands Ambassade, Dantes Plads 3, 1556 Köbenhavn V, eigi síðar en 1. júní n.k. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Þáskal tekiðfram hvenærog hve lengi eróskað eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð umsækjanda. Sérstök umsóknareyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og á sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar. Bfaleiga Carrental •#■ Dugguvogi 23. Sími82770 Opið 10.00 -22.00. Sunnud. 10.00 - 20.00 Sími eftir lokun: 84274 - 53628 Leigjum út ýmsar Þvoið, bónið og gerðir fólksbíla. gerið við bílana Sækjum og sendum ykkar í björtu og rúmgóðu húsnæði. OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN #AÞJ\ ísacp * Auglýsing um styrki Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) á sviði heilbrigðisþjónustu árin 1984 og 1985. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur til ráðstöfunar nokkuð fé til styrktar starfsfólki á sviði heilbrigðismála. Lögð er áhersla á að styrkir komi að sem bestum notum við eflingu frumheilsugæslu. Umsóknareyðublöð fást í heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu og á skrifstofu landlæknis. Umsóknirsendistráðuneytinueigisíðaren 15. júní n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 2. maí 1983 Laus staða forstöðumanns við dagvistunarheimili í Keflavík. Starf forstöðumanns við dagheimilið og leikskól- ann Garðasel er laust til umsóknar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi fóstru- menntun. Upplýsingar um starfið eru veittar hjá Félagsmála- fulltrúa Keflavíkurbæjar að Hafnargötu 32, sími 1555. Skriflegar umsóknir þurfa að berast félagsmála- fulltrúa fyrir 5. maí n.k. Félagsmálaráð Keflavíkur Hafnarfjörður matjurtagarðar Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er bent á að síðustu forvöð að greiða leiguna er þriðjudag- inn 10. maí n.k. Eftir þann dag verða garðarnir leigðir öðrum. Bæjarverkfræðingur ÞRIÐJUDAGUR 3. MÁÍ 1983. fréttir Fimmfaldur mun- ur á olíunotkun — í 18 húsum í sama byggðarlagi VESTFIRÐIR: Méira en fimmfaldur munur á olíunotkun, eða allt frá 10,8 lítrum af olíu á rúmmetra og upp í 53,6 olíulítra á rúmmetra á ári, kom fram í athugun sem gerð var á raunverulegri olíunotkun í 18 húsum á Hólmavík árið 1981, sem fyrr hefur verið greint frá í Tímanum. En könnun þessi mun hafa náð til um fjórðungs íbúðarhúsa á Hólmavík. Hlutfallslega dýrust var kyndingin í 116 rúmmetra timburhúsi byggðu árið 1904. Olíunotkunin þar var 6.220 lítrar yfir árið 1981, sem kosta myndi 45.406 krónur miðað við olíuverð þann 8. apríl s.l., en 36.446, að frádregnum olíustyrk eins og hann var fyrir 4 íbúa á síðasta ársfjórðungi 1982, umreiknað til heils árs. Sá sem kynnti hús sitt hlutfallslega ódýrast býr í 538 rúmmetra húsi byggðu árið 1964 og brenndi aðeins 5.813 lítrum af olíu árið 1981. Hjá honum væru samsvarandi kostnaðar- tölur og að ofan greinir 42.435 krónur brúttó og 31.235 kr. að frádregnum olíustyrk fyrir 8 íbúa hússins. Með raforku hefði kynding framan- greindra húsa kostað 27.004 kr. og 25.237 kr. miðað við olíuverð í apríl, og kynnt með heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur 5.095 kr. og 4.761 kr. Þótt olíufrekasta húsið sé gamalt timb- urhús og það hagkvæmasta miklu nýrra steinhús skýrir það ekki þennan mun. Sé litið á þau fimm hús sem hagkvæm- ast voru kynnt utan þess framan- greinda (12,3-13,7 1. rúmm.) kemur í ljós að þrjú þeirra eru timburhús frá árunum 1915, 1925 og 1940 frá 274- 462 rúmmetra að stærð, og tvö steinhús frá árunum 1930 og 1940, 445-540 rúmmetrar að stærð. Meðal olíunotkun allra 18 húsanna reyndist 16,7 lítrar af olíu á rúmmetra, eða alls 97,2 tonn á samtals 5.815 rúmmetra íbúðarhúsnæðis. Kynding- arkostnaður þeirra brúttó væri tæpar 710 þús. kr. á ári, miðað við olíuverð í apríl s.l., en olíustyrkur vegna 87 íbúa 165.760 krónur. - HEI á '1 -'tl —■■i !, --.-4 m < i í . «««* I Fyrsta rakarastofan opnuð á Hvolsvelli HVOLSVÖLLUR: Rakarastofa var nýlega opnuð á Hvolsvelli, sem mun vera sú fyrsta sem þar er stofnsett. Rangæingar þurfa því ekki lengur að fara alla leið til Selfoss eða Reykjavík- ur til að láta klippa sig, eins og þeir hafa þurft hingað til nema einhver lagtækur með skærin hafi leynst innan fjölskyldunar. Nýi rakarinn þeirra Hvolsvellinga heitir Hermann Österby. Hann kveðst hafa lært iðnina hjá föður sínum á Selfossi og lokið námi í febrúarmánuði s.L Skömmu seinna opnaði hann rakarastofu sína að Hvolsvegi 32. - Og þú hefur þá heldur valið að flytjast austur en að halda suður, eins og leið margra liggur? - Ég kann betur við mig svona á rólegri stöðum heldur en í borginni. - Hvernig gengur - eru Rangæingar farnir að átta sig á breytingunni? - Viðskiptin aukast svona smám sam- an - fólk er nú aðeins farið að átta sig á þessu. En þetta tekur auðvitað sinn tíma, þegar þetta er svona nýtilkomið, sagði Hermann. Eiga viðskiptin von- andi enn eftir að aukast svo Hvolsvell- ingar missi ekki þessa nauðsynlegu þjónustu úr bænum aftur. - HEI ■ Skipakomur eru ekki daglegur viðburður í Borgarnesi. Þetta skip lagðist þó þar við bryggju nýlega og iandaði fóður- vörum til bænda í Borgar- firði. Tímamynd Ragnheiður. Bókasafns vikan Velta Kaupfélags Vest- mannaeyja 33,9 milljónir VESTMANNAEYJAR: Heildarvelta Kaupfélags Vestmannaeyja varð tæpar 33,9 milljónir króna á sl. ári, sem er 45,6% aukning frá árinu á undan. Bókfærður hagnaður varð 273 þúsund kr. Kaupfélagið greiddi samtals 3.863 þús. krónur í laun á árinu, en fastráðið starfsfólk var 22 um síðustu áramót miðað við heilsdagstörf, að því er fram kom á aðalfundi félagsins nýlega. Afsláttur af vörum til félagsmanna nam 160 þús. krónum á s.l. ári. Var hann veittur í formi afsláttarkorta sem giltu í nóvember og desember. Einnig var veittur afsláttur í gegnum tilboðin sem voru í gangi af og til allt árið. Úr stjórn Kaupfélagsins áttu að ganga Jón S. Traustason og Þorkell Sigur- jónsson og voru þeir báðir endurkjörn- ir. Aðrir í stjórn eru Sigurgeir Krist- jánsson, Jóhann Björnsson og Garðar Arason. Kaupfélagsstjóri er Guð- mundur Búason. -HEI ir á bók- um felld- ar niður AKRANES: Kynningarvika bóka- safna - Bókasafnsvikan 1983 - er dagana 2. til 6. maí. Þessa viku verða felldar niður dagsektir á bókum. Einn- ig verða sýndar bækur frá vinabæjum Akraness á Norðurlöndum. Þá mun liggja frammi greinargerð fyrir aðal- skipulagi Akraness árin 1980-2000 ásamt uppdrætti. - G.B./Akranesi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.