Tíminn - 03.05.1983, Side 8

Tíminn - 03.05.1983, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983. Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjórar: Kristinn Hallgrímsson og Atli Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Guðmundur Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86392. Verð í lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 210.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Pörf á róttækum breyt- ingum á mörgum sviðum ■ Halldór Ásgrímsson, alþingismaður, fjallaði m.a. um ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar á ársfundi Seðla bankans í gær, og um þær leiðir, sem færar væru út úr þeim vanda sem við er að etja. Hann sagði að síðustu árin hefði verið reynt að bjarga því sem bjargað varð í efnahags- og atvinnumálunum, en hins vegar hafi ekki tekist að sækja fram, og hafi það að mestu verið samstöðuleysi um að kenna. „Pað er ekki auðvelt að finna færa leið til þess að komast út úr þeim vanda, sem við nú erum í“, sagði Halldór Ásgrímsson. „En hinn kosturinn er þó mun erfiðari, að láta sem ekkert sé og verðbólgan haldi áfram í svipuðum mæli og á undanförnum árum. Við erum í reynd orðin þrælar verðbólgukerfis, sem við höfum því miður ekki náð samstöðu um að brjótast út úr. í slíkri ánauð getur engin þjóð lifað til lengdar með farsælum hætti og öll skynsemi krefst þess að út sé brotist. Það verður hins vegar ekkert gert nema með ákveðinni forystu frá stjórnvöldum. Það gerist ekki að sjálfu sér, að við náum tökum á efnahagslífinu. Það gerist heldur ekki með þeim hætti að menn kasti ábyrgðinni hver á annan. Eað gerist ekki með því að hagsmunaöflin í þjóðfélaginu ásaki stjórnmálaöflin, eða stjórnmálaöflin ásaki hvert annað. Ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að slíðra sverðin um stund og nota kraftana til að brjótast úr þeim verðbólgufjötrum, sem við erum í, þá er það nú. Ekki vegna þess að það sé áhættulaust eða vegna þess að engar fórnir þurfi að færa, heldur vegna þess að framtíð okkar er í reynd ógnað. Undirstöðurnar þola ekki það álag sem hefur myndast. Pað má endalaust um það deila með hvaða hætti skuli tekið á málum. En hins vegar er ljóst, að það er engin önnur leið til en að þau stjórnmálaöfl, sem kosin eru lýðræðislegri kosningu í landinu, leiði baráttuna og hagsmunaöflin í þjóðfélaginu veiti þeim fullt svigrúm og aðhaldssama aðstoð til að framkvæma það sem gera þarf. “ gferiffl________ skrifad og skrafað Upp á vatn og brauð ■ „Já, við eigum lítið barn og ég geri mér það fulljóst að það er ekki uppörvandi að framfleyta fjölskyldu til lang- frama á þeim launum sem bjóðast fyrir vinnuna hérna í Slippnum enda hef ég ákveð- ið að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í námi.“ - Ertu fjölskyldumaður? „Það ert kannski skammt í að ég verði það og ég hef gert mér grein fyrir því að það verður ekki hægt að fram- fleyta fjölskyldu á laununum sem hér bjóðast- hún yrði að lifa á brauði og vatni. Enda er líklegt að ég fari í skóla strax næsta haust.“ Hér er vitnað í viðtöl við tvo unga verkamenn sem birtust hér í blaðinu 1. maí. Eins og sjá má hefur annar fyrir fjölskyldu að sjá og stutt virðist í fjölskyldustofnun hjá hinum. Báðir eru þeir sammála um að launin sem verkamönnum er boðið upp á duga ekki til framfærslu fjölskyldu, og hvað er þá til ráða. Jú, að fara í skóla. Nú skyldi maður ætla að það sé ekki björgulegt fyrir unga heimilisfeður að standa straum af námskostnaði og framfíeyta fjölskyldu sam- tímis. En báðir reikna þeir dæmið eins. Að Ijúka námi í von um að betri kjör bjóðist að námi loknu, en á hverju þeir sjálfir og fjölskyldur þeirra eiga að lifa á meðan á námi stendur tilgreina þeir ekki. Kannski á námslánum? Varla verður um að ræða að eiginkonur þessara ungu verkamanna stundi einnig nám. Þær verða þá að puða, koma börnum á dagheimili og njóta frelsisins á hinum eftirsótta vinnumarkaði og framfleyta körlum sínum á meðan þeira ávinna sér rétt- indi til að komast í þá launa- flokka sem ætla má að dugi til að brauðfæða fjölskylduna og búa henni samastað. Það er helvíti hart að þjóð- félag sem kennir sig við vel- ferð geti ekki boðið erfiðis- mönnum þau laun að þeir geti lifað af þeim og að ungir menn sem vinna í Slippnum eða við höfnina verði að ' a „Gengur saemllega að llfa af laununum” soglr Blrglr Buldursson, hafnurverkn- maöur , Verkalýðshreyf Ingln eins konar klúbbur” „Algjör vltleysa að flytja hátfðahöldln” Mglr Hulda Danlelsdóttlr, verkakonaf „Yrði að lifa á brauði og vatnl” Rabbað við Jón Gunnar Óla&on, 18 óra hafnar- verkamann setjast á skólabekk og láta aðra vinna fyrir sér á meðan þeir feta sig upp á launastig hvítflibbamanna. Hverjir eru það sem við ætlumst til að vinni í Slippn- um og við höfnina, í fiskvinn- unni og á sjónum? Á maður að trúa því, að máttarstólpar íslensks þjóð- félags vinni skipulega að því að halda launum þeirra sem vinna erfiðustu störfin og oft þau þjóðnýtustu á því hung- urstigi að það sé algjört neyð- arbrauð að stunda erfið- isvinnu og framleiðsustörf? Fyrir hverju er barist? ■ Á sömu síðunum og til- greind viðtöl birtast er rætt við hafnarverkamann sem upplýsir að hann geti lifað af sínum launum af því hann er einhleypur. Þá er rætt við verkakonu sem unnið hefur við framleiðslustörf í 30 ár. Ertu sátt við þín kjör? „Nei, langt í frá. Ég er einhleyp, en þó gengur mér iila að lifa af laununum. Þau hafa eiginlega ekkert batnað frá því að ég byrjaði að vinna á Iðjutaxta fyrir einum 30 árum, eru verri ef eitthvað er.“ - Hvernig verður bætt úr þessu? „Ég er nú ekki rétta mann- eskjan til að svara því. Mér skilst á atvinnurekendum að þeir geti ekki borgað meira en nú er gert og meðan svo er veit ég ekki hvað er til ráða. En ef við erum órétti beitt, eins og margir telja, þá held ég að það sé ekki síst verka- lýðshreyfingin sjálf sem á sök á því. Ég hef borgað mín gjöld í Iðju í 30 ár og ég þarf að verða mjög langlíf til að fá þau einhvern tíma endur- greidd. Þegar ég kemst á eftirlaun verða mér skammt- aðar örfáar krónur á mánuði og ef ég dey áður en ég er búin að ná öllu út næ ég því aldrei - félagið hirðir allt saman - það sér ekki einu sinni um útförina manns.“ Laun en ekki ölmusu Það er mikið talað um eyðslu og bruðl og rétt er það að miklu er eytt og víða bruðlað, bæði af einstakl- ingum og opinberum aðilum. En eitt er víst að það er ekki erfiðisfólkið sem fer illa með fé. Það vinnur einfaldlega ekki fyrir þeim launum að neitt sé til að bruðla með. Það er bersýnilegt að almenn laun rétt hrökkva fyrir nauð- þurftum, ef þau þá gera það. Verkalýðshreyfingin er mikið bákn og áhrifamikil á mörgum sviðum. Forystu- menn hennar guma í tíma og ótíma um baráttu sína fyrir bættum kjörum og alla sigr- ana sem þeir hafa unnið á vondum arðræningjum. En þegar upp er staðið er árang- urinn sá að fullorðin verka- kona sem búin er að starfa í þrjá áratugi lýsir því yfir að hún rétt skrimti af laununum og séu jafnvel lakari í dag en þegar hún gekk í Iðju. Hér er ekki verkalýðs- hreyfingunni einni um að kenna, það er öll þjóðfélags- byggingin sem rekur þessa konu til að halda áfram fram- leiðslustörfum fram á eilliár. Það er eftirtektarvert hvað hún hefur að segja um fram- tíð sína. Á hógværan hátt sýnir hún fram á að þegar starfsdegi lýkureru eftirlaun- in skorin svo við nögl að hún geti aldrei gert meiri kröfur en til þessa - að skrimta. Verkafólk skammtar sér hvorki laun né fríðindi. Um það semja „aðilar vinnu- markaðarins". Þeir semja m.a. um þær klyfjar sem lífeyrissjóðirnir eru á al- mennum launþegum. Fróð- legt væri að fá yfirlit frá þeim sem ráðskast með þá sjóði á hvaða aldri fólk í siðmennt- uðum löndum fær réttindi til eftirlauna og hvaða mögu- leika aðrir en opinberir starfsmenn á íslandi hafa til að njóta alls þess framlags sem þeir leggja þessum sjóð- um til á langri vinnuævi. Vinnandi fólk þarf ekki ölmusur í formi félagsmála- pakka og annars þess sem skrifstofuliði ráðuneyta og stofnana þóknast að reikna út og rétta því af rtiikilli náð. Það á rétt á þeim launum sem því ber og að þau dugi til að lifa því lífi sem talið er mannsæmandi í vesturálfu. En kerfið allt með skóla- báknin í fararbroddi miðar að því að útrýma vinnandi höndum. OÓ starkadur skrifar Halldór Ásgrímsson sagði ennfremur: „En það sem erfiðast er í efnahagsmálum, er að koma á takmörkunum, þannig að eyðslan verði ekki .meiri en aflaféð. Skoðanir eru skiptar um, hverjar þessar takmark- anir eigi að vera og með hvaða hætti þær skuli settar á. Sumir vilja takmarka eyðsluna, með því að koma í veg fyrir að vörur séu á boðstólum, aðrir vilja takmarka hana með því að ná stjórn á ráðstöfunarfé fólks. Enn aðrir vilja gera það með því að byggja upp sterka sparnaðarhvöt, sem fái unnið gegn eyðsluseminni. En hvernig sem menn líta á málið, verður niðurstaðan alltaf sú, að stjórnun og opinber stýring er nauðsynleg. Reynslan sýnir okkur, að ekki verður komist hjá því.“ Um nauðsynlegar aðgerðir sagði Halldór síðan m.a.: „Aðalatriðið er að rjúfa verður þá sjálfvirkni, sem ríkir á flestum sviðum. Ekki aðeins á sviði verðlags og kaupgjalds. Sjálfvirkni virðist oft ríkja í útþenslu opin- berra stofnana, banka og annarra, sem búa við þau skilyrði að geta hækkað tekjurnar á móti auknum útgjöldum. Það þarf róttækar breytingar á flestum sviðum, því vandinn er djúpstæðari en margur hyggur. Það þarf ákveðinn vilja, nauðsynlega breidd og samstöðu, ef vel á að takast til.“ í þeim stjórnarmyndunarviðræðum, sem nú standa yfir, mun það koma í ljós, hvort sá vilji er raunverulega fyrir hendi á Alþingi íslendinga. -ESJ F ramsóknarf lokkurinn og kosningaúrslitin ■ UMRÆÐUR um stöðu Framsóknarflokksins að loknum kosningunum eru miklar manna á meðal, og framsóknarfólk er farið að láta skoðun sína í Ijósi hér í blaðinu. Dagbjört Höskuldsdóttir reið á vaðið í laugardagsblaðinu, og fjallaði þar um þá lærdóma, sem draga ætti af kosningarúrslitunum. Vafalaust munu fleiri taka til máls, enda er lifandi umræða um orsakir og afleiðingar kosningaúrslitanna nauðsynleg, ef læra á af reynslunni og byggja upp stefnu og starf flokksins til sigurs á komandi árum. Það er alveg Ijóst, að flokkurínn mun ekki ná sér út úr þeirri lxgð, sem hann er nú í fylgislega séð, nema með markvissu átaki. Það áfall, sem Framsóknarflokkurinn varð fyrir í kosning- unum nú, var vissulega mikið, þótt það hafi dregið nokkuð úr högginu, að flokksmenn voru almennt búnir undir fylgistap. Sömuleiðis hafa menn tapið 1978 til samanburðar, en þá fór heildarfylgi flokksins á landsvísu niður í 16.9%. Núna fékk flokkurinn hins vegar 19.5%. Það sem ýmsir hafa hins vegar ekki áttað sig á sem skyldi er, hvað svona lítill. hluti af atkvæðafjöldanum í landinu er nýtt í sögu Framsóknarflokks- ins. Staðrcyndin er nefninlega sú, að hluti Framsóknarflokks- ins í heildarfylginu í landinu hefur yfirleitt veríð á bilinu 24-28%. Ef litið er framhjá ósigrinum 1978 er fylgið núna - 19.5% - lægra en flokkurinn hefur nokkru sinni fengið í þingkosningun síðan áríð 1919. Þá er hræðslubandalagskjörið 1956 að vísu undanskilið, enda ekki sambærilegt. Þetta gefur auðvitað til kynna, að hér er á ferðinni mjög alvarlegur hlutur, sem flokksmenn verða að ræða og bregðast við með réttum hætti. STJÓRNMÁLAFLOKKAR eru að sjálfsögðu tæki þeirra, sem þá styðja, til þess að hafa áhrif á stjórn landsins. Það cr því markmið stjórnmálaflokka að vera í ríkisstjórn ef þeir geta með þeim hætti náð fram stefnumálum sínum. Ef stjórnmála- flokkar geta hins vegar ekki framkvæmt stefnu sína með setu í ríkisstjóm þá eiga þeir að sjálfsögðu ekki að taka þátt í stjóm. Stundum getur verið mikið matsatriði, hvoram megin þessarar línu árangur af stjómarsamstarfínu liggur. Seta í núverandi rikisstjórn á síðasta ári og nú í vetur var t.d. shkt matsatriði, og munu víst flcstir nú á einu máli um, að Framsóknarflokkur- inn hefði átt að knýja fram kosningar á síðastliðnu ári. Nú ero stjómarmyndunarviðræður hafnar, í það minnsta að nafninu til, en fátt mun hafa komið frá Sjálfstxðisflokknum, sem leiðir þessar viðræður, um stefnu í efnahagsmálum eða öðrom málum. Framsóknarflokkurin hlýtur að sjálfsögðu að meta það af raunsæi þegar þar að kcmur, hvort kostur er á ríkisstjórn þar sem stefna Framsóknarflokksins fær notið sin sem skyldi. Ljóst ætti að vera, að ef ekki tekst að ná fram í stjórnarmyndunarviðrxðum stefnu, sem fellur vel að sjón- armiðum Framsóknarflokksins, þá hljóta framsóknarmenn að taka að sér forystuhlutverk í stjóroarandstöðu og leita síðan tU kjósenda á nýjan leik í von um aukið fylgi við stefnu sína og frambjóðendur. En það er mikUvægt að gera sér grein fyrir því, að sltk fylgisaukning í framtíðinni kemur ekki af sjálfu sér. Hún getur aðeins orðið árangur af starfí' og stefnumótun; ræðst af mönnum og málefnum. Framsóknarmenn þurfa þegar að huga að því að leggja grundvöU að þeirri sókn, sem flokkurinn verður að hefja sem fyrst. Það er ekki eftir neinu að bíða. Starkaður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.