Tíminn - 03.05.1983, Page 9

Tíminn - 03.05.1983, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983. 9 menningarmál| Jón Þ. Þór skrif- arumbókmennt- ir Haraldur Ólafsson, dósent: Að loknum kosningum Halldór SJöunda bindi hagsögunnar frá Cambridge ■ Þá er lokið einhverju lengsta stjórn- arkrepputímabili í sögu lýðveldisins. í rúmt ár hefur ríkisstjórnin ekki tekist á við nokkurn pólitískan vanda, heldur aðeins látið nægja að sinna þeim málum, sem afgreiða þarf á degi hverjum. Á miðju sumri í fyrra var ljóst, að hún hafði ekki einu sinni tryggan meirihluta í báðum deildum þings, og átti þá auðvitað að segja af sér. Bráðabirgða- lögin í ágúst voru kák eitt, og jafnhliða þeim var svo gert samkomulag þar sem m.a. var ákveðið að greiða láglaunabæt- ur, lengja orlof og gera breytingar á vísitölukerfinu. Fyrri atriðunum tveimur var hrundið í framkvæmd en þegar á átti að herða var Alþýðubandalagið ekki tilbúið að standa við orð sín. Láglauna- bæturnar urðu aðhlátursefni þjóðarinnar um skeið, en lenging orlofs varóraunhæf aðgerð eins og á stóð. Þeir, sem stóðu í kosningabaráttunni núna vita ákaflega vel hvað það var, sem olli fylgistapi Alþýðubandalags ogFram- sóknarflokksins. (Ég gef lítið fyrir þá blekkingarherferð, sem Alþýðubanda- lagsforystan heldur uppi og gengur út á, að flokkurinn hafi í raun unnið sigur, líklega af því, að hann fékk fleiri atkvæði en skoðanakannanir gáfu til kynna. Stjómmálaskýrendur gripu þessa sögu- fölsun fegins hendi af einhverjum óskiljanlegum ástæðum). Það var fyrst og síðast verðbólgan og uppgjöf stjórn- arflokkanna gagnvart henni, sem úr- slitum réði. Það er ekki hægt að koma til kjósenda með verðbólgu, sem nemur um 80 af hundraði og segja: kjósið okkur, við höfum ráð undir rifi hverju. Við framsóknarmenn reyndum hvað við gátum, lögðum meira að segja fram efnahagsstefnu, sem enginn annar flokk- ur gerði. En það kom fyrir ekki. Stað- reyndir verðbólgunnar urðu fræðikenn- ingunni yfirsterkari. Það er ekki hægt að koma fram fyrir fólk og segja, að nú sé komið að því að kveða verðbólguna niður, eftir að hafa staðið aðgerðarlaus í eitt ár. Meðan ríkisstjórnin stritaðist við að sitja hélt verðlag áfram að hækka ög launin dugðu æ skemur. Braskið blómstraði og launa- mismunur jókst við hverja einustu verð- bótahækkun. Neðanjarðarhagkerfið efldist, og fjárplógsstarfsemin tók við þar, sem bankarnir gáfust upp við að leysa skammtímavanda einstaklinganna. Of seint, og lítið, - þessi verða eftirmæli fráfarandi ríkisstjórnar, sem þrátt fyrir allt vann margt gott í atvinnu- málum. Þjóðin sættir sig ekki heldur við það óþingræðislega og fáránlega ástand, sem ríkti á þingi í allan vetur. Bráða- birgðalög voru gefin út 21. ágúst. Þing kem saman fyrir miðjan október. Lögin komu til atkvæðagreiðslu í þinginu hálfu ári síðar! Ekki veit ég hvort nokkru máli skipti hvort þessi lög væru samþykkt eða ekki. Hitt er augljóst, að hér hafði verið höggvið nærri þingræðinu í landinu. Ég endurtek, að það var verðbólgan og aðgerðarleysi og hik þingsins í vetur, sem ollu mestu um tap Alþýðubandalags og Framsóknarflokksins í kosningunum 23. apríl sl. Alþýðubandalagið fór þó örlítið skár út úr þessu en Framsókn. Ástæðan er sú, að álmálið varð þeim til framdráttar. Þegar Svavar Gestsson hrópaði út í salinn: við krefjumst þess, að herinn fari, á framboðsfundinum í Háskólabíói 18. apríl, þá var hlegið. Góðviljaðir menn fyllast vorkunsemi þegar leiðtogar „þjóðfrelsis og sósíal- isma“ minnast á herstöðina, - svo ræki- lega hefur þeim tekist að greypa inn í hugi landsmanna uppgjöf sína í því máli. ■ Haraldur Ólafsson En álverið og Alusuisse snertir þjóðern- isstrenginn í brjósti íslendinga. Við framsóknarmenn urðum áþreifanlega varir við það, þegar við vorum spurðir um ástæðurnar fyrir hikandi afstöðu ýmissa flokksmanna í því máli. Hér hafa verið rakin nokkur atriði, sem ég tel, að hafi ráðið miklu um úrslit kosninganna. Við sem stóðum að síðustu ríkisstjórn megum sjálfum okkur um kenna. Við stóðum ekki við stóru orðin, og við gripum of hikandi inn í allt það, sem stuðlað hefði að hjöðnun verðbólg- unnar. Og við gleymdum því, að þjóðin ætlast til hreinskilni, ekki langra skylm- inga um formsatriði. Framsóknarflokk- urinn átti að krefjast þess, að bráða- birgðalögin frá í ágúst væru þegar í stað tekin til afgreiðslu í þinginu og taka afleiðingum, af því að þau yrðu felld. Hefðu þau verið samþykkt, þá hefði staða ríkisstjórnarinnar styrkst og hún fengið kjark til að hefjast handa um sl. áramót við að gera eitthvað af því, sem hún hafði sagst ætla að gera. Framsóknarmenn verða nú að huga vel að stöðu sinni. Flokkurinn hlaut áfall í kosningunum. Hann tapaði tveimur x mönnum á þéttbýlissvæði landsins, þar sem um 60 af hundraði þjóðarinnar búa, enda þótt hann fengi þar rúmlega 34 af hundraði af heildaratkvæðamagni flokksins. Hin fyrirhugaða breyting á kosningalögum mun ekki í sjálfu sér breyta neinu fyrir flokkinn hvað þetta varðar. Hann mun halda áfram að greiða með frambjóðendum flokksins út um land. Nema flokksforystan taki að sinna Reykjavík og þeim miklu mögu- leikum, sem frjálslyndurmiðflokkur hef- ur til að afla sér trausts í þéttbýlinu. Þegar þetta er ritað hefur forsetinn falið Geir Hallgrímssyni stjórnarmynd- un. Það er ekkert við það að athuga að formanni stærsta stjórnmálaflokksins sé veitt umboð til að kanna málin. Það er á hinn bóginn dálítið undarleg staða, að semja við mann, sem ekki hefur náð kjöri til þings. Maður skyldi ætla, að staða hans innan flokksins væri með þeim hætti, að erfitt væri að taka hann alvarlega sem viðmælanda. Ég óttast að þessar stjórnarmyndunarviðræður drag- ist úr hömlu, og endi með óeðlilegum hætti eins og í febrúar 1980. Takist ekki að mynda starfhæfa stjórn til næstu ára nú, helst innan tveggja vikna, erekki um annað að ræða en utanþingsstjórn, sem yrði að taka afstöðu til þess m.a. hvort efna skuli til nýrra kosninga á árinu. Ef til vill er það leið út úr því öngþveiti á stjórnmálasviðinu, sem við blasir. ■ Það eru sextíu ár síðan kona tók fyrst sæti á Alþingi og síðan hafa konur lengstum setið þar. A.m.k. 12 konur hafa setið á þingi sem aðalmenn og flestar verið fyllilega hlutgengar og vel þolað samanburð við karla á þingi eins og þeir gerast, enda þótt engin þessara kvenna hafi náð að verða í fremstu röð þingskörunga. Sé nú „reynsluheimur“ kvenna allt annar en karla, hafi þær önnur og sérstök áhugamál, ætti þess einhversstaðar að gæta í þingsögunni. Ég leyfi mér að fullyrða að engin þessara kvenna hafi beitt sér eða barist fyrir máli sem karlmenn hafa ekki stutt á ýmsan hátt. Ingibjörg H. Bjarnason sem var fyrst þessara þingkvenna vann vasklega fyrir Landspítalann enda hafði hann verið baráttumál kvennasamtaka um allt land. Guðrún Lárusdóttir varð fyrst þing- manna til að flytja tillögu um drykkju- mannahæli. En karlmenn studdu mál þessi líka. Og svo má lengi telja. Getur nokkur nefnt þess dæmi að einhver þessara kvenna hafi hreyft máli sem karlmenn studdu ekki? Ég á þess ekki von að svo sé. Lífsskóðun og lífsstefna okkar ís- lenskra manna fer ekki eftir því hvort við erum karlmenn eða kvenmenn. Það er eitthvað annað sem skilur þar á milli. Lítum á þingmál sem skiptar skoðanir eru um. Það er löggjöf um fóstureyðing- ar. Heyrst hafa þær raddir frá konum að frumvarp um að þrengja rétt til fóstur- eyðinga væri hinn hróplegasti ójöfnuður gagnvart kvenþjóðinni á landi hér. Þar með ætti að svipta konur rétti til að ráða yfir líkama sínum o.s.frv. Þegar betur er að gáð blasir við að annar flutningsmað- ur þessa fromvarps er kona. Svo víðs- fjarri fer því að kynferðið tryggi mál- efnalega samstöðu. Hvar er það mál sem allar konur styðja en allir karlmenn eru á móti? Félagsmálastörf eru margþætt og Stöðugt fer fram þjóðmála umræða í landinu. Konur taka vaxandi þátt í þessu og margar með ágætum. Mér finnst eðlilegt að frambjóðendur til þings séu valdir eftir því hvernig þeir sýna sig í félagsmálunum, - hvað þeir hafa þar til mála að leggja o.s.frv. Þegar konur standa þar jafnfætis körlum mun þeirra hlutur ekki síðri. Þetta er að breytast. Mér er ljúft að minnast fundar þar sem fólkið sem þátt tók í prófkjöri til undirbúnings framboði framsóknarmanna til borgarstjómar kom fram og flutti stuttar ræður. Það er fyrsti pólitíski fundur sem ég hef verið á þar sem mér fannst kvenþjóðin fyllilega haida sínum hlut í umræðum og jafnvel taka karlmönnunum fram. Konur eru óðum að ryðja sér til rúms við trúnaðarstörf innan stjórnmálaflokk- anna sem annars staðar. Það gera þær sem menn, - hlutgengir þegnar í mann- félagi íslendinga. Það er rétta leiðin. The Cambridge Economic History of Europe. Volume VII. The Industrial Economies: Capital, Labour and Enter- prise. Part I. Britain, France, Germany and Scandinavia. Part 2. The United States, Japan and Russia. Edited by Peter Mathias and M.M. Postan. Cambridge 1978. XX - 832 bls., XII - 639 bls. ■ Flestir þeir, sem eitthvað hafa fengist við almenna sögu munu kannast við hinar miklu Cambridgesögur, sagnfræði- rit, sem háskólaútgáfan í Cambridge gefur út. Sögur þessar ná yfir flest svið sagnfræðinnar og ein hinna þekktustu er hagsaga Evrópu, sem oft hefur verið gefin út og er í sífelldri endurskoðun. Sjöunda bindi hagsögunnar kom út endurskoðað árið 1978 og síðan í fyrra í kiljuútgáfu. Þetta eru miklar bækur að vöxtum og fleytifullar af þekkingu og fróðleik um viðfangsefnið. Hver þáttur er tekinn út af fyrir sig og um hann rita færustu fræðimenn, hver á sínu sviði. Viðfangsefni þessa bindis er hagsaga iðnaðarlandanna svonefndu frá því um iðnbyltingu. f upphafi fyrri hluta VII bindis rita þeir R.M. Solow og P. Temin, sem báðir eru prófessorar í hagfræði í Massachusetts um orsakir hagvaxtar á þessu tímabili, og erþað inngangsþáttur. Síðan rita þeirC.H. Feinstein, S. Pollard og P.L. Payne um breska hagsögu frá því um iðnbyltingu. í næsta þætti rita M. Lévy-Leboyer, Y. Lequin og C. Fohlen um hagsögu Frakklands og síðan R.H. Tilly, J.J. Lee og J. Kocka um þýska hagsögu. K.-G. Hildebrand prófessor í Uppsölum skrifar um hagsögu Norður- landa og þar með lýkur fyrri hluta VII. bindis. í síðari hlutanum er fjallað ýtarlega um hagsögu Bandaríkjanna, Japans og Rússlands, fram að byltingunni 1917. Eins og áður sagði er gífurlegan fróðleik að finna í þessum ritum. Höf- undamir em allir þekktir sérfræðingar hver a sínu sviði og fara þeir ýtarlega í saumana á viðfangsefnum sínum, skýra þau frá y'msum hliðum, ræða nýjustu kenningar o.s.frv. Eins og gefur að skilja eru þessi rit fyrst og fremst ætiuð fræði- mönnum og stúdentum í viðkomandi greinum oe hætt við að mörgum þeim, sem stundum eru kallaðir almennir lesendur muni þykja þau ærið hörð undir tönn. pcnn sem vilja kynna sér hagsögu skal þó ráðlagt að hika hvergi við að ráðast til atlögu við þessa doðranta, uppskeran verður alltaf í samræmi við erfiðið og þegar menn hafa komist upp á lagið með að nota bækumar munu þær koma í góðar þarfir sem handbækur. í lok hvors bindis em ýtarlegar tilvitn- anir og heimildaskrár sem og nafna- og atriðisorðaskrár. Jón Þ. Þór. Konur og þingsæti

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.