Tíminn - 03.05.1983, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
15
á vettvangi dagsins
Sterka
ríkisstjórn
— hjöðnun verðbólgu og mótun efnahags-
stefnu, sem byggir á frelsi og félagshyggju
■ Á ársfundi Seðlabanka ísland í gær
flutti Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, ræðu.
Þar sagði viðskiptaráðhera m.a.:
“Hin mikla verðbólga undanfarinna
ára hefir leikið íslenskt efnahagslíf
grátt. Sér í lagi hefir sparnaður þjóðar-
innar dregist saman. Kemur þetta gleggst
fram í því að væri ráðstöfunarfé banka-
kerfisins af innlendum uppruna nú sama
hlutfall af þjóðarframleiðslu og það var
að jafnaði áratugina tvo 1960-1980,
hefðu bankarnir nú um þrem milljörðum
króna meira úr að spila. Væri hlutfallið
hins vegar það sama og var áratuginn
1961-1970, væri þessi fjárhæð tvöfalt
hærri.
í 80% verðbólgu og við minnkandi
þjóðartekjur er atvinnuöryggi og af-
koma einstaklinga, fyrirtækja og alls
þjóðarbúsins hætta búin. Allir þeir, sem
taka ákvarðanir, sem varða framvindu
efnahags- og atvinnumála verða að sýna
þegnskap og agaða framkomu. Raunar
þarf einskonar neyðarráðstafanir þegar
svo er ástatt, neyðarráðstafanir sem
byggja á réttlæti.
Afkoma íslendinga hefir verið mjög
góð, betri en flestra annarra þjóða í allri
veröldinni. Er þar með mikið sagt.
Á undanförnum áratugum hefir hin
fámenna íslenska þjóð byggt upp á ótrú-
lega sterkt framleiðsluþjóðfélag, en það
er hin mikla framleiðsla ásamt skynsam-
legri stefnu í utanríkis- og viðskiptamál-
Tómas Árnason, viðskiptaráðherra.
um sem hefir verið undirstaða hinnar
miklu velmegunar. En uppbyggingin
hefir kostað mikið fjármagn og það hefir
sætt deilum að gripið hefir verið inn í þá
óheilla þróun að láta fjármagnið rása
algjörlega eftir farvegum verðbólgunn-
ar. í stað þess hefir verulegum hluta
fjármagnsins verið beint í uppbyggingu
til þess að búa í haginn fyrir framtíðina.
íslendingar njótá þess, að hafa átt
greiðan aðgang að hinuni alþjóðlegu
fjármagnsmörkuðum m.a. vegna mikill-
ar framleiðslu og verðmæta, sem þjóðin
skapar.
Samkvæmt skýrslu Seðlabankans um
erlend lán miðað við gengi í árslok 1982
námu erlendar skuldir alls 19.830 millj-
ónum króna.
Um helmingi þessara erlendu lána
hefir verið varið til orkumála. Um 11%
til fiskiskipa. Önnur 11% til ríkissjóðs
og ríkisstofnana utan orkumála. Til
lánastofnana um 10%. Og til atvinnu-
rekstrar einstakra aðila um 18%.
Skuldastaða þjóðarinnar út á við er
varhugaverð, sérstaklega ef þjóðarfram-
leiðslan dregst saman. íslendingar hafa
ætíð staðið í skilum og njóta því trausts.
Þótt íslendingar skuldi mikið óttast ég
ekki framtíðina, ef framleiðslan heldur
áfram og menn vinna bug á verðbólg-
unni. Hins vegar mætti þjóðin fara betur
með peninga en verið hefur. Að lifa um
efni fram lofar aldrei góðu, en efnin eru
vissulega mikil. Með hjöðnun verðbólgu
mun innlendur sparnaður vaxa og þörfin
fyrir erlendar lántökur fara minnkandi.
Til þess að mæta þeim vanda, sem við
blasir þarf að mínu mati fyrst að vinna
markvisst að hjöðnun verðbólgu og
síðan að mótun samræmdrar efnahags-
stefnu til lengri tíma, sem byggir á frelsi
félagshyggju". Til þess þarf sterka ríkis-
stjórn sagði viðskiptaráðherra í viðtali
við Tímann.
menningarmál
SALÍBUNA
—„Neðanjarðarlest“ Alþýðuleikhússins
■Alþýðuleikhúsið sýnir
Neðanjarðarlestina
eftir LeRoy Jones
Leikstjóri Lárus Ýmir Óskarsson
■ Nú veit ég ekki hvert framhald
verður á sýningum Alþýðuleikhússins á
Neðanjarðarlestinni; Hótel Borg hýsti
tvær fyrstu sýningarnar en er víst ekki til
reiðu lengur. Hvort sýningar verða ekki
fleiri eða hvort lestin rúllar inn í annað
hús verður bara að koma í Ijós.
Form þessa stutta leikrits er einfalt og
gott. Karl og kona lenda saman í
neðanjarðarlest; hann er svartur og hún
er hvít. Þetta er í Ameríku árið 1964.
Samskipti þeirra eru nokkuð svo ofsa-
fengin. Hún er kjaftfor og frökk, hæðist
að honum, ögrar honum, duflar við
hann. Hann er í dökkum jakkafötum,
með bindi, les Baudelaire og vill gjarnan
verða partur af veröld hvíta mannsins.
Það er víst ekki hægt. Að lokum ofbýður
honum, verður reiður og heldur ræðu
um svarta manninn; það er eins konar
öfugur rasismi ef svo má að orði komast.
En konan reynist ekki öll þar sem hún
er séð.
Þarna fáum við í hnotskurn nokkra
þætti af vandamálinu sem sambúð svarta
og hvítra hefur valdið í Bandaríkjunum.
Svo má auðvitað spyrja hvaða erindi það
eigi við okkur. Svo sem ekkert, svo sem
allt. Hitt þykist ég vita að einhverju af
snerpu sinni og áleitni hafi leikritið
tapað síðan það var frumsýnt fyrir
nærfellt tuttugu árum; viðvitum líkastil
flest meira nú en þá um svarta manninn
í Ameríku og annars staðar. Til dæmis
það að aukin sjálfsvitund LeRoy Jones
sem svertingja rak hann útí að skipta um
nafn og taka upp múhameðstrú en slíkt
var vinsælt meðal amerískra svertingja á
sjöunda áratugnum og er kannski enn.
Þetta er hlutur sem ég hef aldrei skilið -
vitandi að engir fóru verr með svertingja
í Afríku en arabískir, múhameðskir
þrælasalar - satt að segja er ég engu nær
eftir að hafa séð Neðanjarðarlestina. Ég
reyndist vera einn af farþegunum í
lestinni!
En hvað um það; leikritið rann ljúflega
niður með portvíninu á Hótel Borg og
djassleik Tískuljónanna, eða Quartetto
di Jazz. Þeir léku í röskan hálftíma áður
en sýning hófst; tóku við þegar Neðan-
jarðarlestin nam staðar. Leikendur voru
tveir; Guðrún Gísladóttir var hvíti kven-
maðurinn, og Sigurður Skúlason var
orðinn negri. Að vísu gekk mér alveg
bölvanlega að trúa því, en það var ekki
sök Sigurðar; hann getur víst lítið gert
að því þó hann hafi fæðst hvítur. Ég trúi
að hann hafi gert þessu hlutverki ágætis
skil; óöruggur og asnalegur í byrjun, svo
mannlegur og loks æstur. Guðrún var,
að því er ég best fékk séð, alveg óaðfinn-
anleg í hlutverki hvítu konunnar og
samleikur þeirra tveggja prýðilegur.
Lárus Ýmir Óskarsson, leikstjóri, hefur
unnið snyrtilegt verk, en það er bara að
leikritið virkaði næsta huggulegt og
meinlaust. Sennilegast er það aldurinn.
Lýsing og leikmynd þjónaði hvort
tveggja ágætlega tilganglsínum. Þýðing
Þorgeirs Þorgeirssonar mjög liðugur
texti. Verði sýningum haldið áfram -
sem telja má líklegt því Alþýðuleikhúsið
virðist hafa níu líf eins og kötturinn, þótt
þeim fari nú sjálfsagt fækkandi - er
margt vitlausara hægt að gera en skreppa
eina salíbunu með Neðanjarðarlest-
lllugi Jökulsson
skrifar um leikhús
Yfirverkstjóri -
Reykjavíkurhöfn
Reykjavíkurhöfn óskar að ráða yfirverkstjóra.
Verksvið: Verkstjórn við verklegar framkvæmdir
við hafnarmannvirki og aðra mannvirkjagerð á
vegum Reykjavíkurhafnar.
Æskileg iðnaðarmenntun með framhaldsnámi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Nánar upplýsingar gefur yfirverkfræðingur.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu hafa borist undirrituðum eigi síðar en
13. maí n.k.
Hafnarstjórinn í Reykjavík, 28.apríl 1983
Gunnar B. Guðmundsson.
Opið allan sólarhringinn
Sendum bílinn - Sækjum bílinn
VÍK BÍLALEIGA HF.
Grensásvegi 11, Reykjavík
Sími 91-37688
Nesvegi 5, Súðavík
Sími 94-6972.
Afgreiðsla á ísafjarðarflugvelli.
KVERNELAND
Gnýblósarar
T. KVÍRNEIAND R SflNNER AS
Áratuga reynsla Gnýblásaranna hér á landi
hefur sýnt og sannað ágæti þessara tækja,
sem ollu byltingu við heyskapinn.
Til afgreiðslu strax
Verð ca. kr. 26.000.-
Greiðslukjör.
G/obus?
LÁGMÚLI 5. SlMI 81555