Tíminn - 03.05.1983, Blaðsíða 20
V-,v
fmhm
■ Frá og með 1. maí hækkar
áskriftarvcrð Tímans í 210
krónur á mánuði. Vcrð blaðs-
ins í lausasölu verður 18
dropar
Hafnfirskur
blóðhiti
■ Það er stundum ekki öf-
undsvert hlutskipti að vera
knattspyrnudómari, hvorki hér
heima né erlendis. I Róm-
önsku Ameríku eru þess dxmi
að dómarar hafi verið skotnir
á færi í miðjum leik af trylltum
áhorfanda, sem finnst gert á
hlut sinna manna. Einnig hafa
þeir stundum átt fótum Ijör að
launa þegar froðufellandi leik-
menn hafa elt þá með það eitt
fyrir augum að koma þeim
fyrir kattarnef.
Sem betur fer eru hvorki
íslenskir áhorfendur né leik-
menn jafn skapmiklir og þeir í
Rómönsku Ameríku. Þó getur
leikurinn xststsvo, að menn
missi stjóm á skapi sínu og láti
það bitna á dómaranum, á það
jafnt við um leikmenn og
áhorfendur.
Dxmi um slíkt átti sér stað á
Vallargerðisvellinum í Kópa-
vogi á laugardaginn þegar
Haukar úr Hafnarfirði og
Breiðablik leiddu saman hesta
sína í Litlu bikarkeppninni.
Mikill hiti var í leiknum og
voru Haukamenn sýnu heitari.
Undir lok leiksins varð dómar-
inn að vísa tveimur Haukum af
leikvangi. Varð annar þeirra
algerlcga æfur, réðst á dómar-
ann, reif flautuna úr munni
hans og kastaði henni eins
langt og hann gat og lenti hún
í nærliggjandi götu. Dómarinn
brást að vonum hinn versti við
og tókst leikmanninum rétt að
flýja út af vellinum áður en til
alvarlegra handalögmála kom.
Geir ekki
maður ein-
samall...
■ Geir Hallgrímsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
hefur sem kunnugt er talið sig
færan í flestan sjó og skal ekki
lagður dómur á það sjálfsmat
hér. Gekk Geir enda rösklega
fram er hann hafði fengið um-
boð til sljórnarmyndunar af
forseta og afgreiddi þreifingar-
viðræðurnar við formenn
hinna flokkanna vel og sköru-
lega upp á eigin spýtur á
tveimur dögum. En þá kom að
þriðja deginum, sunnudegin-
um, er hann ræddi við formann
Kvennalistans. Þá virðist hafa
komið hik á kempuna og lagði
hann ekki í að fara einsamail tii
viðræðnanna. Tók hann þann
kost að háfa með sér þær
Salóme Þorkelsdóttur og
Ragnhildi Helgadóttur. Mun ■
hann hafa óttast að tilboðum
hans yrði svarað eitthvað í !
líkingu við þær viðtökur sem
Börkur digri hlaut hjá Auði
konu Gísla Súrssonar, og því
xtlað að vera tilbúinn að skjóta
sér á bak við pilsin tvö, - eða
hvað?
Krummi
...heyrði það af vörum eins
þingmanna Sjálfstæðisflokks-
ins í gær að Geir væri nú á kafi
við að mynda útlagastjórn!
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Hesthús
brann
.■ Gamalt hesthús við Norð-
lingabraut hjá Elliðavatni
brann til kaldra kola í gær-
morgun. Þegar slökkviliðið
kom á staðinn rétt fyrir kl. 7
var húsið að mcstu brunnið.
Eldsupptök eru ókunn. Húsið
var tómt. - FRI
krónur. nema Helgar-Tímans
sem kostar 20 krónur. Grunn-
verð auglýsinga verður 126
krónur á dálksentimetra.
■ Áhöfnin á M/S ísbergi við komuna til Keflavíkur í fyrrinótt. Frá vinstri: Ásgeir Jónasson stýrimaður, Bjami Einarsson 1. vélstjóri, Guðmundur Einarsson 2. vélstjóri, Jón
Steinar Árnason skipstjóri og Hallgrímur Einarsson háseti og kokkur. Guðmundur og Hallgrímur eru bræður. (Tímamyndir Árni Sæberg)
ísberg ÍS lenti í árekstri og sökk undan strönd Englands
„SKIPW KOM ÆfiANH ÚT ÚR ÞOKUNNI
sagði lón Steinar Árnason skipstjóri á MS ísbergi við komuna til landsins í fyrrinótt
Myndavélum
stolið
■ Nokkur innbrot urðu í
Reykjavík um helgina. Rúða
var brotin í verslun Mats Wibe
Lund aðfaranótt laugardags-
ins og þaðan stolið úr glugg-
anum 4 myndavélum. Leigu-
bílstjóri sá til þjófsins og
tilkynnti lögreglunni en þjófur-
inn náðist ekki.
Þá var brotist’ inn í öldu-
túnsskóla og þar brotnar 11
rúður en litlu stolið, brotist var
inn hjá bifreiðaverkstæði
Svane og bíl stolið cn hann
fannst seinna í Trönuhólum.
-FRI
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
t?Q>varahlutir SSS"
■ „Við vorum lengi búnir að hafa skipið í ratsjánni auk þess sem
við sendum stöðug Ijós- og hljóðmerki, en allt kom fyrir ekki,“ sagði
Jón Steinar Árnason skipstjóri á M/S ísbergi frá ísafirði við komuna
til Keflavíkur í fyrrinótt.
„Skipið kom æðandi á okkur
út úr þokunni og lenti af miklu
afli á okkur á bakborðshlið. Við
áreksturinn myndaðist stórt gat
og sjórinn flóði inn, þannig að
strax var Ijóst að skipið myndi
sökkva. Það var því ekki um
annað að ræða en að koma sér í
björgunarbátana og tókst okk-
ur það að mestu slysalaust. Skip-
ið sökk síðan mjög fljótlega og
tel ég að það hafi ekki liðið fimm
mínútur frá því áreksturinn varð
og þar til skipið sökk“, sagði
Jór. enn fremur.
Atburður þessi átti sér stað
um 70 sjómílur austur af
Grimsby um kl. 4 síðdegis á
laugardag, og bjargaðist áhöfnin
síðan um borð í skipið scm
árekstrinum olli cn það heitir
Tilla og er frá Vestur-Þýska-
landi. Farið var mcð skipbrots-
mennina til Grimsby aftur, en
þaðan fóru þeir til London og
heim.
Að sögn Jóns var mikil þoka á
þessum slóðum um þetta leyti og
skyggni aðeins um 300 metrar.
„Við vorum búnir að reyna allt
til þess að forða árekstri, meðal
annars hafði ég reynt að kalla til
þeirra á örbylgjustöð en því var
ekki svarað. Við megum þakka
fyrir að hafa allir sloppið því
þetta gerðist allt svo fljótt og það
er alveg ljóst að þetta hefði
getað farið mun verr“, sagði
skipstjórinn enn fremur.
ísberg var 360 tonna frystiskip
og var aðeins 11 ára gamalt,
smíðað í Noregi árið 1972, en
það kom til landsins fyrir 10
dögum. Þetta var fyrsta ferð
skipsins frá íslandi frá því það
var keypt, en þegar áreksturinn
átti sér stað var það á leið frá
Grimsby til Cuxhaven í Þýska-
landi með um 200 lestir af fryst-
um fiski. Tilla er hins vegar 1500
lesta skip og var á leiðinni til
Grimsby. Eigendur ísbergsins
voru OK h/f á ísafirði.
- ÞB
■ Tekið á móti skipbrotsmönnum við komuna til Keflavíkur.