Tíminn - 30.11.1983, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1983
ÍO
fþróttir
15
umsjón: Samúel Öm Erlingsson
THIS young man Is Sigurdur Jonsson. He was 17 on
September 27, and Is the hottest property In lcelandic
lootball.
Jonsson plays for AKranes, havlng made hís (írst
divlsion debut when |ust 15 years 298 days In the summer
ol 1982 He Is the youngest player to appear in the
lcelandlc lcaguc and one o( the youngest debutants In
the world
The same season he became the youngest player to
appear In a cup llnal when Akranes beat Kellavlk 2-1.
This year Jonsson and Akranes have proved unstop-
pable. winning the league and cup double. and giving
Aberdeen a shock in the Cup-winnert. Cup. Akranes lost
2-1 at home and then torced a 1-1 draw In Scotland.
As lor Jonsson. he played In all lceland s lour Euro-
pean championship games. settlng an lcelandic interna-
tional age record when he appeared as a substitute
against Malta at the age ol 18 years 251 days
The previous record holder was Asgelr Sigurvinsson.
now with Stuggart m West Germany
News o( Jonsson s potential is spreading Liverpool.
Aberdeen. Rangcrs. Celtic. Lokercn. A|ax, Feyenoord and
Anderlecht are all in the chase.
Siggi Jóns í
sviðsljósinu
- Skrifað um hann
í Worid Soccer
■ Myndin hér að ofan ásaml texlanum
birtist í hinu fræga enska knattspymu-
tímariti, World Soccer, nóvemberhefti
1983. Þama er.eins og sjá má , mynd af
Sigurði Jónssyni knattspyrnuinanni frá
Akranesi og umfjöllun um hann. Sigurð-
ur hefur undanfarið verið í sviðsljósinu,
bæði þarna, í enska vikuritinu Match og
víðar, og talað um hann sem „heitustu
cignina“ í íslenskri knattspyrnu.
í textanum hér að ofan, í World
Soccer segir meðal annars að Sigurður
sé nýorðinn 17 ára, sé „heitasta eign“
(hottest property) í íslenskri knatt-
spyrnu, leiki með Akranesi og sé yngsti
leikmaður sem leikið hafi í bikarúrslita-
leik á íslandi. Þásé hann yngsti leikmað-
ur scm leikið hafi með íslenska landslið-
inu, en fyrra metið hafi Ásgcir Sigurvins-
son í Stuttgart átt.
Að lokum segir í greininni að Liver-
pool, Aberdeen, Rangers, Celtic, Lok-
eren, Ajax, Feyenoord og Anderlecht
séu öll í kapphlaupi um að fá Sigurð til
sín.
- SÖE
Ingi Þór setti
íslandsmet
- í 50 metra skriðsundi
■ Ingi Þór Jónsson ÍA setti í fyrradug
nýtt Íslandsmet í 50 metra skriðsundi á
innanfélagsmóti í Sundhöllinni. Ingi
synti á 24,8 sekúndum, en gamla metið
álti Finnur Garðarsson.sem einnig erfrá
Akranesi, og var það 25,1 sek, sett 1975.
Á sama móti setti Bolvíkingurinn
ungi, Hannes Þ. Sigurðsson,tvö sveina-
met:. Hann synti 200 metra skriðsund á
2:23,5 mín (gamla metið átti Ólafur
Einarsson Ægi, 2:25,0 mín) og í 400
metra fjórsundi, synti á 5:48,3 mín
(gamla metið átti Ragnar Guðmundsson
Ægi 6:00,4 mín). Þetta er mjög góður
árangur hjá þessum cfnilega strák.
- SÖE
BJARNI FÉKK BRONS
á opna skandinaviska meistaramótinu í júdó
- Gísli Wiium stóð sig vel
'■ Bjarni Friðriksson var sterkur
Helsinki. og haut bronsverðlaun.
■ Bjarni Friðriksson, júdómaðurinn
sterki úr Ármanni, hlaut bronsverðlaun í
opna skandinavíska meistaramótinu í
júdó, sem haldið var um helgina í
Helskinki. Bjarni lenti gegn Þjóðverja
er Miiller heitir og Japananum Kakas-
awa í riðlakeppni. Bjarni lagði Þjóðverj-
ann á Ippon (fullnaðarsigri, 10 stigum),
en tapaði fyrir Japananum á youko (5
stigum). Bjarni lenti þvf í svokölluðum
uppreisnarflokki, og þar lagði hann alla
sína andstæðinga, síðast Svíann Lopez á
Ippon. Árangur Bjarna er góður, því
mótið er talið mjög sterkt.
Fimm aðrir Islendingar kepptu á mót-
inu. Halldór Guðbjörnsson keppti í
undir 71 kg flokki ásamt Karli Erlings-
syni, Gísli Wiium og Níels Hermannsson
kepptu í undir 78 kg flokki og Kolbeinn
Gíslason keppti í yfir 95 kg flokki. Best
þessara stóð sig Gísli Wiium, sem glímdi
af mikilli atorku í mótinu. Gísli sigraði
tvo fyrstu mótherjana en tapaði svo og
lenti í uppreisnarflokki. Þar sigraði Gísli
þrjá andstæðina en tapaði svo í glímu
um þriðja sætið, en fjórir keppendur
kepptu um það.
CRAINIE TÓK KIPP
— þegar Nicholas hrósadi honum
I Danny Crainie skoraði tvö á
laugardag.
■ í síðasta tölublaði enska vikuritsins
Kicker skrifar Charlie Nicholas, marka-
skorarin skoski , svo sem vani hans er
þetta keppnistímabil. f grein sinni í
þessu blaði, sem kom út laugardaginn
26. nóv. skrifaði Nicholas um hið valta
gengi I knattspyrnunni, og talar það
aðllega um tvo kappa, annars vegar
núverandi félaga sinn hjá Arsenal, Tony
Woodcock sem skorar og skorar í ensku
deildinni núna, og hins vegar um fyrrum
félaga sinn hjá Glasgow Celtic í Skot-
landi, Danny Crainie.
Auk margra hrósyrða um Woodcock
segir Nicholas meðal annars að Crainie
sé að sínu viti mjög sterkur leikmaður,
sem hafi meðal annars leikið stórkost-
lega fyrir tveimur árum fyrir Celtic
meðan hann sjálfur var fótbrotinn. Nic-
holas vísar til þess að Crainie hafi átt
erfitt I vetur, ekki fengið tækifæri með
Celtic og væri í láni hjá botnliði Úlfanna.
Segir Nicholas að Crainie væri flestum
enskum liðum fengur fyrir hæfileika
sakir.
Skemmtileg tilviljun við þetta, og
kveikja þessara skrifa, er þó sú, að sama
daginn og blaðið kom út, skoraði Danny
Crainie tvö glæsimörk fyrir Wolves gegn
WBA, og var maðurinn bak við öruggan
3-1 sigur. Þettá var fyrsti sigur Wolves á
keppnistímabilinu. Skyldi Crainie hafa
lesið skrif Nicholas fyrir eða eftir leik?
- SÖE.
— verða þeir Evrópumeistarar? - sagt frá
atvinnumönnum Dana f Evrópu
■ Frændur vorir Danir hafa nú á tiltölulega skömmum tíma haslað sér völl sem
stórþjóð á knattspyrnusviðinu. Það má segja að þetta hafi byrjað allt saman fyrir
alvöru fyrir rúmu ári, þegar Danir gerðu jafntefli við Englendinga heima í
Kaupmannahöfn, 2-2. Síðan þá hefur liðið sigrað Grikki, Ungverja (reyndar líka
tapað fyrir þeim), Frakka í vináttuleik, og sjálfa Englendinga á Wembley. Danir hafa
nú unnið sér rétt til að leika í úrslitum Evrópukeppni landsliða í Frakklandi í vor, og
margir hafa látið út úr sér að þeir verði að líkindum Evrópumeistarar. Þar verður þó
við ramman reip að draga, heimamenn, Frakkar, urðu í fjórða sæti í síðustu HM
keppni, þar sem Danir komust ekki í úrslit, og Evrópumeistararnir sjálfir,
-Þjóðverjar, eru komnir í úrslit, en þeir urðu sem kunnugt er silfurhafar í síðustu
HM. Hins vegar komust heimsmeistararnir, ítalir, ekki í úrslit. Auk þessara hafa
Belgar tryggt sér rétt til að leika í úrslitum og Portúgalir einnig.
Landsliðsþjálfari Dana, Sepp Piont-
ek, tók við liðinu 1. júlí árið 1979. Hann
hefur nú gert lengri samning við danska
knattspyrnusambandið, og verður þar
við stjórn a.m.k. næstu tvö árin. Mikið
af tíma Pionteks fer í að ferðast vítt og
breitt um Evrópu og fylgjast með
leikjum, þar sem venjulega eru aðeins
3-4 leikmenn í landsliðinu sem leika í
Danmörku sjálfri. Hinir leika um alla
Evrópu, í Belgíu, Hollandi, V-Þýska-
landi, á Spáni,' í Portúgal og á Ítalíu.
Piontek er röggsamur, ekki hræddur við
að gefa yfirlýsingar í fjölmiðlum, og eftir
■ Anderlecht-kvartettinn utan um Sepp Piontek landsliðsþjálfara Dana. Frá vinstri
Kenneth Brylle, Morten Olsen, Sepp Piontek, Per Frimann og Frank Amesen. Þessir
eru aUir fastamenn í liði Anderlecht.
hinn góða árangur hans með danska
landsliðið útnefndi enska knattspymu-
tímaritið World Soccer hann fram-
kvæmdastjóra ársins 1983.
Leikmennirnir sem standa í fremstu
víglínu danska liðsins eru flestir atvinnu-
menn. Að vísu leikur fyrirliðinn, fræg-
asti leikmaður sem Danir hafa eignast í
knattspymu, Allan Simonsen, í Dan-
mörku. Hann þiggur þar laun, en var
orðinn svo sterkefnaður á ferli sínum að
hann getur nú leyft sér að blása á
samingstilboð sem fela í sér milljónir
króna, vegna þess að hann hefur fengið
nóg af lífi atvinnumannsins, og vill
mennta dóttur sína heima í Danmörku
þar sem honum sjálfum þykir best að
vera.
Þeir sem sjá Simonsen leika nú, segja
þó að hann hafi líklega aldrei leikið
betur.
í stórliðinu Anderlecht í Belgíu er
stór hópur góðra leikmanna frá Dan-
mörku. Þar eru Frank Arnesen, Per
Frimann, Kenneth Brylke og varnar-
maðurinn Morten Olsen, sem hefur oft
verið fyrirliði danska landsliðsins. Þessir
allir gera góða hluti hjá Anderlecht,
Frank Amesen að vísu nýstiginn al-
mennilega upp úr langvarandi meiðsl-
um og Per Frimann nú meiddur, en allir
spila þeir stórt hlutverk í þessu hálfnorr-
æna liði. Með liðinu leikur íslendingur-
inn Amór Guðjohnsen eins og Islending-
um.er líklega flestum kunnugt, og féll
hann vel saman við danska kvartettinn
áður en hann meiddist í landsleiknum
við íra.
Fyrirliði Lokeren í Belgíu er Preben
STAÐAN
■ í blaðinu í gær féll út staðan í fyrstu
deild karla í handknattleik. Hún er
svona:
FH .....
Víkingur
KR ..
Valur
Stjarnan
Þróttur ,
Haukar .
KA ..
0 218-138 14
2 163-147 10
3 142-133 9
2 151-146 9
3 132-157 7
4 150-170 5
5 136-156 3
7 139-184 1
STAÐAN
■ Ólafur H. Ólafsson, forstjóri Vangs h.f., afhendir Sveini Sigurbergssyni viðurkenn-
ingaskjal frá Johnnie Walker fyrirtækinu.
Einherjar fá vidur-
kenningu hér eftir
Vangur hf. mun heiðra þá sem fara holu í höggi
■ Jesper Olsen, skærasta stjama Dana um þessar mundir. Manchester
United er að kaupa hann fyrir 750 þúsund pund frá Ajax. Olsen er lítill og
snöggur leikmaður, sem leikið hefur Englendinga upp úr skónum í tveimur
leikjum.
Elkjær, sem skoraði annað mark Dana
gegn Grikkjum. og Sören Busk leikur
með AA Gent.
í Hollandi leikur Ivan Nielsen með
Feyenoord, og aðalstjarna Dana í leikj-
unum við England, Jesper Olsen, með
Ajax. Olsen hefur nú gert samning við
Manchester United, og fer að líkindum
þangað í vor. Þá verður unnt fyrir okkur
íslendinga að sjá almennilega hvað það
er við þennan litla og leikna leikmann
sem Englendingar hafa fallið gersamlega
fyrir. Olsen býr að þeirri dýrmætu
reynslu að hafa leikið með kónginum
Jóhan Cryuff í tvö keppnistímabili. Hjá
Ajax er einnig Daninn Jan Mölby.
Á Ítalíu eru tveir hjá Pisser, baráttu-
jaxlinn Klaus Berggreen, sem aldrei
gefst upp, og ungi efnilegi knattspyrnu-
kappinn Michael Laudrup, sem skorað
hefur fleiri mörk í landsleikjum en hann
hefur leikið landsleiki, þó aðeins 18 ára
sé. Hann var keyptur til Ítalíu af stórlið-
inu Juventus, sem ætlar að geyma sér
hann og leigði því fyrstu deildarliðinu
• Lazio hann í vetur.
■ Fyrirtækið Vangur h.f. sem er um-
boðsaðili fyrir Johnnie Walker á íslandi
hefur ákveðið að verðlauna alla þá sem
fara eftirleiðis „holu í höggi“ á golfvöU-
um hér á landi. Mun það verða gert í
samráði við Einherjaklúbbinn, sem er
félagsskapur þeirra íslenskra kylfinga,
sem farið hafa „holu í höggi“.
Víða erlendis veita fyrirtæki þeim sem
ná þessu draumahöggi allra kylfinga,
sérstök verðlaun eða viðurkenningu.
Þar á meðal er Johnnie Walker fyrirtæk-
John Lauridsen leikur á Spáni, með
Espanol, og í Portúgal leikur enn eitt
efni þeirra Dana, Michael Manniche.
|Hann var keyptur þangað í haust, til
stórliðsins Benfica Lissabon, og hefur
þegar gert þar góða hluti undir stjórn
sænska þjálfarans Eriksson. Þar leikur
Manniche við hlið
sænska miðjuleik-
mannsins Glenn Strömberg.
En ónefndur er sá
Dani sem mest er
að koma í sviðsljósið
á meginlandi
Evrópu núna. Það er
Sören Lerby, sem
nú ertalinneinn
besti miðvallarleikmað-
% ur og stjómandi í
Evrópu. Hann leikur
* ílP með stórliðinu
#
Bayem Munchen í V-
Þýskalandi, kom þangað frá Ajax í
Hollandi. Lerby á nú hvern stórleikinn
á fætur öðmm í Búndeslígunni. í Búnd-
eslígunni er annar Dani samningsbund-
inn, Allan Hansen hjá HSV, en hann
eyðir mestu af tíma sínum á bekknum.
Þá leikur einn í annarri deild í V-Þýska-
landi, Ole Rasmussen hjá Hertha Berlin.
Markvörður danska landsliðsins heitir
Ole Kjær og leikur með Esbjerg. Vara-
markvörðurinn leikur líka í Danmörku,
heitir Ole Quist. Danir eiga þó einn
markvörð sem er atvinnumaður í knatt-
spyrnu. Birger Jensen sem leikur með
Club Brugge í Belgíu.
Af þeirri upptalningu sem hér er að
framan er sýnt að Danir eiga mikinn
fjölda leikmanna um alla Evrópu, og
það ekki aðeins atvinnumanna, heldur
atvinnumanna sem eru í fremstu röð í
þeim löndum sem þeir leika, t.d. Jesper
Olsen í Hollandi, Sören Lerby í V-
Þýskalandi, Preben Elkjær og Frank
Arnesen í Belgíu, auk Allan Simonsen.
Síðan fjöldi efnilegra leikmanna á leið
upp, svo sem Laudrup, Frimann ofl. Það
virðist bjart framundan hjá Dönum
næstu árin í knattspyrnunni, og það er
athyglisvert hvernig þeir byggja upp
starf landsliðsþjálfarans Piontek.
- SÖE
ið, en það veitir slíkar viðurkenningar í
mörgum löndum. Meðal þeirra er Sviss,
en þar fór einn íslendingur, Sveinn
Sigurbergsson úr GK í Hafnarfirði „hölu
í höggi" á heimsmeistaramóti áhuga-
mannalandsliða í fyrra.
Upp frá því hófust viðræður um að
íslenskir einherjar bættust í hópinn, og
hefur það nú orðið úr. Mun Vangur h.f.
bjóða í hóf á hverju hausti að lokinni
golfvertíð, þar sem viðurkenningar fyrir
afrek sumarsins verða afhent.
Þeir sem fóru „holu í höggi" nú í
sumar fá þessa viðurkenningu nú á
næstunni. Eru þeir sem það gerðu beðnir
um að láta stjórnarmeðlimi Einherja-
klúbbsins vita um stað og stund nú sem
állra fyrst svo þeir fái sín verðlaun.
Eftirleiðis þurfa líka allir sem ná þessum
árangri - hvort sem það er í fyrsta sinn
eða sjöunda - að láta viðkomandi aðila
vita. Það eru þeir Kjartan L. Pálsson s.
19754/86611, Björgvin Þorsteinsson
33399/82622 og Hannes Eyvindsson
40623/27700.
■ Allan Simonsen, frægasti leikmað-
’ ur Dana í knattspymu. Hann leikur
nú í fyrstu deildinni dönsku með
Vejle, sínu fyrsta liði.
■ Sören Lerby hefur tekið við hlut-
verki Paul Breitners hjá Bayera
Múnchen og skilar. því með sóma.
ÍS vann ÍR
naumlega
- í fýrstu deild
kvenna í körfuknattleik
■ ÍS vann ÍR naumlega í hörkuleik í
kvennakörfuboltanum í fyrrakvöld í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Úrslitin
urðu 40-38 ÍS í hag, eftir að ÍR hafði leitt
19-18 í hálfleik.
Þórunn Rafnar var stigahæst Stúdín-
anna í leiknum með 12 stig, en Kolbrún
Leifsdóttir skoraði 10. Þóra Steffensen
skoraði mest ÍR-stúlknanna, 12 stig, en
Emilía Sigurðardóttir skoraði 9 stíg.
- SÖE.
HK-IR
■ Michael Laudrup í leik með
Lazio gegn Juventus, það er Michel
Platini sem sækir að honum.
■ Preben Elkjær Larsen fyrirliði
Lokeren í Belgíu
í kvöld í annarrí deild karía
■ í kvöld leika HK og ÍR í annarri
deild karla á íslandsmótinu í handknatt-
leik. Leikurinn er í nýja íþróttahúsinu
við Skálaheiði í Kópavogi og hefst
klukkan 21.15.
- SÖE.
Frazier lá
í fyrstu lotu
■ Larry Holmes, af mörgum en þó
ekki öllum talinn heimsmeistari í hnefa-
lcikum.sigraði Marvin Frazier, son Joe
Frazier, hins aldna hnafaleikakappa, í
einvígi þcirra á sunnudag. Frazier lá í
fyrstu lotu tvívegis, og eftir að Holmes
hafði lamið Frazier sundur og saman
stöðvaði dómarinn leikinn og dæmdi
Holmes sigur. Holmcs hcfur nú tjáð
alheimi að hann sé að hætta keppni.
-SÖE.
Sundsambandið
útskrifar
16 dómara
■ Sundsamband (slands er mjög virkt
þessa dagana. Nýlega útskrifaði sam-
bandið 16 sunddómara á námskeiði, og
hefur þá alls alls útskrifað 30 sunddóm-
ara á tveimur árum.
- SÖE.
Árni með ÍK
■ Árni Njálsson hefur verið ráðinn
þjálfari þriðju deildarliðs ÍK í knatt-
spyrnu. Árni er vel kunnur fyrir þjálfun-
arstörf sín. Síðast þjálfaði Árni Þór í
Þorlákshöfn í fjórðu deild í tvö keppnis-
tímabil, og þjálfaði áður Þór á Akureyri.
- SÖE.
Pele boðnar
fimm millj-
ónir dollara
- ef hann tekur
skóna fram á ný
■ Knattspyrnusnillingurinn Pele, sem
nú er orðinn fertugur að aidri, er enn
eftirsóttur í knattspymuheiminum. Nýj-
asta tilboðið sem Pele hefur fengið
hljóðar upp á 5 milljónir dollara, ef hann
leikur með New York Cosmos næsta
keppnistímabil í Bandaríkjunum. Pele,
sem tilkynnt hefur að hann sé endanlega
hættur, þykir slæmt að ganga á bak orða
sinna með það, en hefur ekki tekið
ákvörðun í málinú.
- SÖE.