Tíminn - 05.01.1984, Blaðsíða 1
ítarleg úttekt um óveðrsð á landinu bls. 3, 8, 9 og 16
FJÖLBREYTTAI OG BETRA BU RA m
Fimmtudagur 5. janúar 1< 4. tölublað 68. árgangur 384
Sidumula 15 -Postholf 370Reykjavik- Ritstiorn86300-Augtysingar 18300- Atgreiösla og asKrrtt 86300 - Kvoldsrmar 86387 og 86306
Neyðarástand á höfuðborgarsvæðinu þegar óveðrið skall á:
MESTA OFÆRÐ SEM KOMD HEFUR
í REYNAVÍK í MARGA ÁRAIUGI
— Kostnaður við snjómokstur í höfuðborginni losaði hálfa milljón
■ „Mér er nær að
halda að þetta sé
mesta ófærð sem orð-
ið hefur í Reykjavík í
áratugi. Þetta skall
svo snöggt á og stóð
það lengi yfir að þó
margir bflanna sem
stóðu fastir væru vel
útbúnir var þetta
meiri ófærð en góður
búnaður þolir“ sagði
Páll Eiríksson
aðstoðaryfírlögreglu-
þjónn í samtali við
Tímann um óveðrið
sem gekk yfír landið í
gær og ófærð sem
fylgdi í kjölfar þess.
Veðrið skall á um 11 leytið í
gærmorgun og frameftir degi var
ástandið verst á vestan og suð-
vestanverðu landinu. Víða um
iandið voru truflanir á rafmagni
■ Fólk hjálpaðist mikið að við að losa bílana úr snjónum og ökumenn sem sumir hverjir höfðu setið þar fastir í fimm tíma
er myndin tekin í Öskjuhlíðinni þar sem lið manna aðstoðaði eða meir. Timamynd Árni Sæberg
■ Aðstæður til hjálpar og björgunarstarfa voru oft og tíðum mjög erfiðar eins og sést af þessari mynd sem tekin var í Kópavogi en þar lokuðust allar
götur er veðurofsinn skall á. Tímamynd Árni Sæberg
og símasambandi og allstaðar
átti lögregla annríkt við að
hjálpa bílstjórum sem höfðu fest
bíla sína f-snjó.
í Reykjavík var ástandið mjög
slæmt: bílar stóðu fastir á götum
um alla borgina og víða þurfti
fólk að bíða í bílum sínum í
rharga klukkutíma þar til aðstoð
barst. Aflýsa þurfti skólum og
ýmsum viðburðum sem fyrirhug-
aðir voru, strætisvagnar hættu
fljótlega að ganga.
Þegar leið á daginn gekk veðr-
ið niður og var þá hafist handa
við að ryðja helstu götur borgar-
innar til að strætisvagnarnir gætu
aftur farið af stað. Það reyndist
þó tímafrekt verk því víða stóðu
bílar fastir á götum og eins
reyndu margir að nota tækifærið
þegar veðrið lægði til að komast
heim úr vinnu, og ruku af stað á
bílum áður en götur voru orðnar
færar.
Fjöldi fólks leitaði í lögreglu-
stöðvar borgarinnar og reyndi
lögreglan ásamt félögum í björg-
unarsveitum og hjálparsveitum
að aðstoða það til að komast
heim til sín. Úm kvöldmatarleyt-
ið hafði síðan tekist að greiða úr
umferðarflækjunni og var
ástandið þá orðið viðunandi.
Starfsmenn umferðardeildar
borgarinnar unnu þó við að
moka götur til kl. 9 í gær-
kvöldi en þá var tekið hlé. í nótt
var síðan haldið áfram mokstri
og átti að reyna að opna allar
götur.
í gærkvöldi var því spáð að
hvessa færi á ný í nótt en ekki var
búist við að því fylgdi eins mikil
úrkoma og skafrenningur og
veðrinu í gær. Þó liafa skólayfir-
völd í Reykjavík ákveðið að
fresta skólastarfi að minnsta
kosti til hádegis í dag til vonar og
vara.
Það vekur eftirtekt að fyrir
nákvæmlega 1 ári, 4. janúar
1982, gerði einnig óveður og
ófærð í Reykjavík og víðar á
landinu og var ástandið þá svipað
og í gær. GSH
Spottinn milli Akra-
ness og Borgarness:
Sex bílar f uku!
■ Sex bílar fuku út af veginum
milli Akraness og Borgarness í
gær að sögn lögreglunnar í Borg-
arnesi, en engin slys urðu á fólki.
Umferðin var mjög erfið fram
eftir degi í Borgarnesi og ná-
grenni og þurfti lögreglan að
aðstoða marga við að komast
leiðar sinnar. GSH