Tíminn - 05.01.1984, Side 7
FIMMTUDAGUR S. JANÚAR 1984
íþróttir
1 umsjón: Samúel Öm Erlingsson
..Tómatsósa”
í öll mál
segir Magnea H. Magnúsdóttir
landslidskona í knattspyrnu
■ „Ætli það verði ekki bara tómat-
sósa í öll mál, og súrmjólk og Cheerios
þess á milli, við höfum hvorug mikla
reynslu í eldamennsku, höfum eytt
mestum okkar tíma næst matartímum
Sigurður
hættur!
■ Sigurður Dagsson hefur hætt störf-
um sem þjálfari fyrstudeildar liðs Vals
í knattspyrnu. Sigurður hefur haft
starfiö með höndum frá því Claus
Peter var sparkað í sumar. Sagt er að
Sigurður hafi hætt af pcrsúnulegum
ástæðum. -SOE
á æfingum síðan við komumst til vits
og ára", sagði Magnea Magnúsdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu úr Breiða-
bliki í samtali við Tímann í gær. í gær
hélt Magnea ásamt Brynju Guðjóns-
dóttur landsliðskonu úr Víkingi til
Svíþjóðar, þar sem stúlkurnar ætla að
æfa og keppa með sænska fyrstudeild-
arliðinu Öxnabáck. Við fáum íbúð
saman, og munum byrja á að vera í
skóla fyrstu þrjá mánuðina, með knatt-
spyrnuæfingunum“, sagði Magnea
ennfremur.
Magnea sagði, að sænska ríkið
greiddi útlendingum sem læra sænsku
við upphaf Svíþjóðardvalar sinnar laun
meðan námið stæðij í þrjá mánuði.
„Síðan verður okkur útveguð vinna,
þó slíkt sé nú fremur erfitt í Svíþjóð í
Islenskir siglingamenn:
Nádu gódum
árangri
í stórri keppni á Spáni
■ Tveir ungir siglingamenn,
Gunnlaugur Jónasson og Jón
Ólafur Pétursson náðu mjög góð-
um árangri nú í vikunni á miklu
siglingamóti sem haldið var í ná-
grenni Barcelona á Spáni. Þeir
Gunnlaugur og Jón Ólafur náðu
19. sæti í keppni á „470“ báti, en
54 keppendur voru í þeim flokki,
flestir fremstu siglingamenn í þess-
um flokki í heiminum.
„470“ báturinn er einn staðlaðra
báta, sem keppt er á á Ólympíu-
leikum. Þetta mót á Spáni var sótt
af flestum þeim sem þar munu
keppa, hið fyrsta í röð margra
móta, sem koma til með að ráða
úrslitum um hverjir keppa frá
hverju landi. Siglt var 6 sinnum,
og gilti meðaltalsárangur úr 5
bestu keppnunum. Bestur árangur
VALÞÓR,
TIL LIÐS
VIÐ KEFL-
VÍKINGA
■ Valþór Sigþórsson, mið-
vörðurinn sterki úr Vestmanna-
eyjaliðinu, hefur ákveðið að
ganga til liðs við Keflvíkinga og
er ekki að efa að hann á eftir að
verða ÍBK mikill styrkur, þar
sem hann er í hópi bestu mið-
varða landsins. Einnig hefur
Helgi Bentsson, sem lék með
Þór sl. sumar en var áður með
Breiðabliki skrifað undir fé-
lagaskipti til Keflavíkur. Hins
vegar er óvíst enn hvort Kári
Þorleifsson úr Vestmanna-
eyjum skrifar undir félagaskipti
til Keflavíkur eins og talað
hefur verið um.
-SÖE
í einstökum keppnum hjá piltun-
um var 10. sæti.
„Þetta er mjög góður árangur
hjá piltunum, við Islendingar
erum ekki vanir að keppa í svo
stórum keppnum, og er þetta því
mjög athyglisverð frammistaða
hjá strákunum, sögðu þeir Ari
Bergmann Einarsson og Jóhann
Gunnarsson hjá Siglingasamband-
inu í samtali við Tímann í gær.
„Ég vil taka fram, að það eru
engar áætlanir hjá okkur uppi um
að senda einn eða neinn á Ólymp-
íuleikana, eða krefjast þess af
Ólympíunefndinni. Við viljum
einungis styðja við bakið á okkar
mönnum, og þeir vilja skiljanlega
sjá hvar þeir standa miðað við þá
sem koma til með að keppa þar,“
sagði Ari. -SÖE
I
dag, þar sem mikið atvinnuleysi ríkir
þar. En það tekst vonandi. Þá munum
við einnig verða búnar að sjá möguleika
okkar á að komast í lið þarna. Öxna-
báck er eitt besta lið Svíþjóðar, og auk
okkar bætast nú við fimm nýir leik-
menn sænskir", sagði Magnea. .
Magnea tjáði okkur að þær stöllur
yrðu að líkindum hjá liðinu fram í
október, ef allt gengi að óskum. Þær
mundu hefja æfingar strax, og nú 6.,
7., og 8. janúar mundu þær fylgjst með
innanhússmeistaramóti Svíþjóðar í
kvennaknattspyrnu, sem haldið yrði í
Gautaborg, og Öxnabáck tæki þátt í.
-SÖE
■ Magnea H. Magnúsdóttir skorar hér þríðja mark Breiðabliks í úrslitaleik
Bikarkeppni kvenna í knattspyrnu síðastliðið sumar. Magnea heldur nú til
Svíþjóðar ásamt Brynju Guðjónsdóttur úr Víkingi, og þar munu stúlkurnar
æfa, og vonandi leika með Öxnabáck.
ALLRA VERSTUR
víða er deilt á 12-1 sigur Spánverja á Möltubúum
■ Eins og kunnugt varð á dögunum
og Tíminn skýrði frá, komust Spán-
verjar heldur sögulega áfram í úrslit
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu.
Ekki eru allir sáttir við þann máta sem
þeir komust áfram á, það er stórsigur
12-1 á Möltubúum, og telja að maðkur
hafi verið í mysunni. Það varð enda
allt vitlaust á Spáni, þegar eitt blað-
anna þar gerði að jólagabbi að leika
yrði leikinn aftur, þar eð Möltubúum
hefði verið mútað, eins og Þjóðviljinn
skýrði frá í gær. - En víða er deilt um
þetta, þó ekki hafi Tíminn spurnir af
blaðaskrifum eða umfjöllunum Hol-
lendinga, sem töpuðu nær öruggu
úrslitasæti fyrir vikið.
Ekstrablaðið danska fjallaði um
málið nýlega, og þar var vitnað mjög í
ummæli Danans Johns Lauridsen, sem
leikur með Espanol á Spáni, en Laur-
idsen sá leikinn. „Spánverjar hafa
sjálfir bent á hve sigurinn sé ótrúlega
stór, þó ekkert dagblað hafi notað
orðið „svindl“ þar um“, segir Laur-
idsen, og bendir á að margt varðandi
leikinn, leikurinn sjálfur, dómgæslan
og undirbúningur Möltuliðsins væri
vægast sagt furðulegt. „Dómarinn var
verstur, að mínu viti,“ sagði Laur-
idsen, „hann dæmdi vítaspyrnu á
Möltu strax eftir tvær mínútur, og það
vegna brots sem átti sér stað utan
vítateigs. Það kom reyndar ekki að
gagni, þar eð Spánverjarnir misnotuðu
þessa jólagjöf. En það var fleira hjá
dómaranum (sá var Tyrki, og hét
Ercan Göksels), þegar Spánverjar
skoruðu tólfta markið hlupu ærðir
áhangendur liðsins inn á, og töfðu
leikinn um 5-6 mínútur. Á meðan
gekk klukka dómarans, svo að leiknum
lauk fljótlega eftir að óskamarkatöl-
unni var náð.“
Mest hissa á Möttubúum
„En ég var samt mest hissa á
Möltubúunum", sagði Lauridsen.
„Þeir voru svekktir og kvaldir á allan
hátt eftir að þeir komu til Spánar, og
fram að leiknum. Þannig fengu þeir
ekki að æfa á vellinum sjálfum fyrir
leikinn, og var vísað til æfingavallar
þar sem þeir þurftu að bíða í klukku-
tíma eftir að komast inn á. Ekki nóg
mcð það, þegar æfingunni var lokið
var rútubílstjórinn sem þeim var látinn
í té, farinn í aðra ferð, og þeir máttu
bíða heillcngi eftir því að hann kæmi
aftur, og sitja undir ókvæðisorðakór
brjálaðra áhangenda spánska lands-
liðsins á meðan. Þetta allt hefði nú átt
að hafa þau áhrif að þeir létu Spánverj-
ana finna fyrir sér, en það varð ekki,
og á því varð ég hissa.“
Að lokum segir Lauridsen í viðtalinu
við Extrabladet, að honum væri per-
sónulega sama, hvort Spánverjar eða
Hollendingar kæmust í úrslit Evrópu-
keppni landsliða, - „að mörgu leyti er
betra fyrir okkur Dani að fá Spánverj-
ana í úrslit, því þeir eru svo miklu
lélegri á útivelli, þar er ekki þessi
endalausi skari kolbrjálaðra áhang-
enda“, sagði John Lauridsen.
- SÖE
Margir þeir frægustu
leika með ítölskum liðum
■ Eftir heimsmeistarakeppnina á
Spáni 1982, þar sem ítalir urðu heims-
meistarar í knattspyrnu, lá leið margra
góðra knattspyrnumanna til Italíu. Þá
um haustið var talað um að þar léku
allir bestu knattspyrnumenn heims, en
þegar frá leið var talað minna um
þetta, þó enn beri það á góma. Að
öllum líkindum hefur slakt gengi ítal-
ska landsliðsins í knattspymu síðan,
haft mikið að segja þar um, en þeirri
staðreynd verður samt ekki haggað að
líklega em hvað mestir pcningar í
ítalskri knattspyrnu í heiminum, þó
einn og einn heimsfrægur knattspyrnu-
maður annars staðar í heiminum slái
flesta ítalska knattspymusamninga út,
má nefna þar nöfn eins og Maradona
(á Spáni), Rummenigge (í V-Þýska-
landi) Keegan (íFinnlandi). Þvíverður
þó ekki á móti mælt, að enn í dag, em
mjög margir af bestu knattspyrnu-
mönnum heims á fullri ferð á Ítalíu.
ftalirnir Paolo Rossi, Bruno Conti,
Gentile og fleiri teljast til frægustu
knattspyrnumanna heims, og svo flest-
ir erlendu atvinnumennirnir í ítalskri
knattspyrnu. Þar ber fyrst að nefna,
knattspyrnumann ársins í heiminum
1983, Brasilíumanninn Zico sem hefur
gert garðinn frægan á Italíu, þá landa
hans Falcao hjá Roma, Frakkann
snjalla, knattspyrnumann ársins 1983 í
Evrópu og fyrirliða franska landsliðs-
ins, Michel Platini hjá Juventus. Þar
leikur einnig frægasti knattspyrnumað-
ur Pólverja um þessar mundir, Zbign-
iew Boniek. Argentínumennirnir
Bertoni og Passarella leika með
Fiorentina, V-Þjóðverjinn Hansi
Múller er á Ítalíu, Belgarnir Coeck og
Danirnir Berggreen og Laudrup.
En lítum á liðin, og útlendingana
hjá þeim:
Ascoli:
Alexander Trifunovic, Júgóslavíu,
Juary dos Santos, Brasilíu.
Avellino:
Riccardo Ferretti, Mexíkó,
Jorge Barbadillo, Perú.
Fiorentina:
Daníel Bertoni, Argentínu,
Daníel Passarella, Argentínu.
Genoa 93:
Jan Peters, Hollandi,
Eloi, Brasilíu.
Inter Mílanó:
Hansi Múller, V-Þýskalandi,
Ludo Coeck, Belgíu.
Juventus Torínó:
Michel Platini, Frakklandi,
Zbigniew Boniek, Póllandi,
Lazio:
Joao Batista, Brasilíu,
Michael Laudrup, Danmörku.
A.C. Mílanó:
Luther Blissett, Englandi,
Eric Gerets, Belgíu.
SSC Napoli:
Ruud Krol, Hollandi,
Jósé Dirceau, Brasilíu.
SC Pisa:
Klaus Berggreen, Danmörku,
Wim Kieft, Hollandi
AS Roma:
Paolo Roberto Falcao, Brasilíu,
Toninho Cerezo, Brasilíu
HC Sainpdoria:
Liam Brady, frlandi,
Trevor Francis, Englandi.
Torino:
José Hernandes, Argentínu,
Walter Schacher, Austurríki
Undinese:
Zico, Brasilíu,
Edinho, Brasilíu,
Verona:
Joe Jordan, Skotlandi,
Wladislaw Zmuda, Póllandi.
-SOE