Tíminn - 05.01.1984, Page 14
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
Dauðinn á
skrúfublöðum
Stjörnubíó
Blue Thunder/Bláa þruman
Leikstjóri John Badham
Aðalhlutverk Roy Scheider, VVarren
Oates, Candy Clark, Daniel Stem.
Kvikmynd þar sem þyrla leikur eitt
aðalhlutverkið virðist nokkuð létt-
geggjuð hugmynd en í öruggum hönd-
um leikstjórans John Badham verður
úr þessum efnivið nettur og spennandi
þriller þar sem saman fara hröð og
óvænt atburðarás og góð tæknivinna.
Roy Scheider leikur þyrluflugmann-
inn Frank Murphy, harðasta naglann í
loftferðadeild lögreglunnar í Los
Angeles. Hann er gamall þyrluflug-
maður úr Víet Nam stríðinu og þjáist
af óhugnalegum minningum úr þeim
hildarleik.
Frank og félagi hans Lymangood
(Stern) fá ákúrur hjá boðara sínum
kvöld eitt og eru teknir af flugskrá þar
sem þeir eru að horfa á beran kven-
mann í þyrlu sinni meðan fulltrúi
borgarstjóra verður fyrir skotárás fyrir
utan hús sitt skammt frá en þessi
fulltrúi hafði verið að rannsaka síend-
urtekin uppþot í hverfum spánverja í
borginni. Frank finnst þetta morð
grunsamlegt og ákveður að kanna það
nánar og kemur þá margt óvænt í ljós.
Á meðan á þessu stendur fær hann
það verkefni að reynslufljúga nýrri
þyrlu, Bláu þrumunni, yfir Los Ange-
les en hún er tæknilegt afrek og útbúin
öllum hugsanlegum og óhugsanlegum
tækjum, geturm.a. skotið4000skotum
á mínútu og er Frank sagt að henni sé
einkum ætlað að verjast hryðjuverka-
mönnum og sem slíkri er henni ætlað
hlutverk við Olýmpíuleikana í Los
Angeles. Flugmaður þyrlunnar,
Cochran (leikinn af Malcolm
McDowell, er kunningi Franks úr Víet
Nam stríðinu og litlir kærleikar með
þeim en Cochran þessi er fremur
slímugur náungi.
Frank kemst í raun um það að
Cochran þessi og nokkrir háttsettir
embættismenn eru flæktir í morðið á
fulltrúa borgarstjóra og að Bláu þrum-
unni er ætlað fremur skuggalegt
■ Roy Scheider í hlutverki sínu í myndinni
hlutverk. Þeir komast að því að Frank
veit þetta og reyna allt hvað þeir geta
til að koma honum fyrir kattarnef en
það er ekki auðvelt því honum tekst að
ræna Bláu þrumunni. Mikill hasar
fylgir í kjölfarið.
Hröð atburðarás og óvæntur sögu-
þráður halda áhorfandanum vel við
efnið t þessari mynd, nær hvergi að
finna í henni dauðan punkt og Roy
Scheider mjög traustur sem Murphy.
Þessi mynd fellur í hóp fjölda mynda
sem gerðar hafa verið með svipúðum
efnivið, það er um eitthvert háþróað
drápstól og sem slík er henni ekki
ætlað neitt annað en sýna hvað tækni-
geggjaðir kanar geta í raun gert og
skemmta áhorfandanum í leiðinni í
svona ca. einn oghálfan tíma. Það sem
lyftir henni upp úr meðalmennskunni
á þessu sviði er gott handrit þeirra Dan
O’Bannon og Don Jacoby og góð
stjórn Badham á öllu húllumhæinu.
-FRI
Friðrík
Indriðason
skrifar
um kvikmyndir
—MFA“------------------------------------------------
NÁM í ERLENDUM
VERKALÝÐSSKÓLUM
Genfarskóllnn
Árlegt námskeið norræna verkalýðsskólans í Genf verður næsta
sumar á tímabilinu 26. maí - 7. júií.
þátttakendur eru frá Norðurlöndum. Skólinn starfar í tengslum við
þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), sem haldið er á sama
tfma. Nemendur dvelja fyrstu viku skólatímans í Svíþjóð, þá í Genf
í Sviss og síðústu vikuna ( Frakklandi.
MFA greiðir þátttökugjald og ferðastyrk. MFA á rétt á tveimur
námsplássum. Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi gott vald á
dönsku, sænsku eða norsku. Enskukunnátta er æskileg.
Ætlast er til að þátttakendur séu virkir félagsmenn í samtökum
launafólks með reynslu í félagsmálastörfum og hafi áhuga á norrænni
og alþjóðlegri samvinnu.
Manchesterskólinn
Árlegt námskeið Manchesterháskóla fyrir félagsmenn verkalýðssam-
takanna á Norðurlöndum verður haldið 29. apríl - 20. júlí n.k.
Námskeið Manchesterskólans er ætlað að kynna félagsmönnum
verkalýðssamtakanna í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Islandi og
Svíþjóð, breska verkalýðshreyfingu, breskt samfélag, félagsmál og
stjórnmál, auk þess sem þátttakendum gefst kostur á enskunámi.
Enskukunnátta er nauðsynleg.
MFA á kost á einu til tveimur námsplássum.
Umsóknum um skólavist á Genfarskólann og Manchesterskólann
ber að skila til skrifstof u MFA, Grensásvegi 16,108 Reykjavík, á
þar til gerð eyðublöð, sem þar fást, fyrir 10. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar um þessa skóla eru veittar á skrifstofu MFA, sími
84233.
MENNINGAR- OG FRÆÐSLUSAMBAND ALÞÝÐU
IJ* Útboð
Tilboð óskast í jarðstrengi fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 9. febr. 1984. kl. 11.
f.h.
INNKAUPASTOrNUN! PEYKJAVÍKURBOR^AR
FríkirLjuvegi 3 — Sími 25800
★ IÐNSKOLINN
í REYKJAVÍK
Stundaskrár vorannar verða afhentar í skólanum
föstudaginn 6. janúar kl. 13.00-16.00, gegn
greiðslu skólagjalda, hafi þau ekki verið greidd
áður.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudag-
inn 9. janúar.
Kennarafundur verður haldinn í matstofu kennara
kl. 16.00, föstudaginn 6. janúar.
Iðnskólinn í Reykjavík.
TILKYNNING
um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðum til fatlaðra
Ráðuneytið tilkynnir hér með, að frestur til aö sækja um eftirgjöf
aðflutningsgjalda af bifreið til fatlaðra skv. 27. tl. 3. gr. tollskrárlaga
ertil 15. febrúar 1984.
Sérstök athygli er vakin á því að sækja skal um eftigjöf á sérstökum
umsóknareyðublöðum og skulu umsóknir ásamt venjulegum fylgi -
gögnumsendast skrifstofu Öryrkjabandalags íslands, Hátúni 10,
Reykjavík á tímabilinu 15. janúar til 15. febrúar 1984.
Fjármálaráðuneytið, 3. janúar 1984
Snjómokstur
Vélaleiga Magnúsar Jósefssonar
'S' 66900
Traktorsgrafa
til leigu í alla jarðvinnu
Vanur maður
tryggir afköstin
Sími 66900
Maður og kona
óska eftir vinnu við sveitastörf
Reynsla af bústörfum og tamningum fyrir hendi
Upplýsingar í síma 41866
Kvikmyndir
Sfmi 78900
SALUR 1
Jólamyndin 1983
Nýjasta James Bond
myndin
Segðu aldrei
aftur aldrei
SEAN CONNERY
JAME5 BOND<Hj»
Í.V»W
'* tít'ámtfí ''
__________ ......
Hinn raunvemlegi James Bond
er mættur aftur til leiks í hinni
splunkunýju mynd Never say nev-
er again. Spenna og grin í há-
marki. Spectra með erkióvininn
Blofek) verður að stöðva, og hver
getur paðnema James Bond. Eng-
in Bond mynd hefur slegið eins
rækilega i gegn við opnun í Banda-
rikjunum eins og Never say never
again.
Aðalhlutverk: Sean Connery,
Klaus Marla Brandauer, Barbara
Carrera, Max Von Sydow, Klm
Baslnger, Edward Fox sem „M“.
Byggð ð sögu: Kevln McClory,
lan Flemlng. Framleiðandi: Jack
Schwartzman. Leikstjóri: Irvin
Kershner. Myndin er tekin I
Dolby Sterio.
Sýnd kl.3,5.30,9 og 11.25
Hækkað verð.
SALUR2
Skógarlíf
og jólasyrpa af
Mikka mús
Einhver sú alfrægasta grinmynd*
sem gerð hefur verið. Jungle Book
hefur ailstaðar slegið aðsóknar-
met, enda mynd tyrir alla aldurs-
hópa. Saga eftir Rudyard Kipling
um hið óvenjulega lif Mowglis.
Aðalhlutverk: King Louie,
Mowgli, Baloo, Bagheera,
Shere-Khan, Col-Hathi Kaa.
Sýnd kl. 3,5 og 7.
Sá sigarar sem þorir
(Who dares wins)
Frábær og jafnframt hörkuspenn-
andi stðrmynd. Aðalhlutverk:
Lewls Collins og Judy Davls.
Sýnd kl. 9 og 11.25
SALUR3
LaTraviata
Sýndkl. 7
Seven
Sýndkl. 5,9.05 og 11.
Dvergarnir
Hin Irábæra Walt Disney mynd
Sýnd kl. 3.
SALUR4
Zorroog hýrasverðið
Sýnd kl.3,5 og11.
Herra mamma
Sýnd kl. 7 og 9.