Tíminn - 08.01.1984, Qupperneq 8

Tíminn - 08.01.1984, Qupperneq 8
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 a Utgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánédóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Simi: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Viðvörun sem var að engu höfð ■ Tími mikillar upplýsingar gengur nú yfir og er fjölmiðlunin orðin svo mikil að fyrirferð, að margir eru farnir að efast um eiginlegt gildi hennar og hvort ekki er orðið um slíka ofmötun að ræða að menn séu hættir að taka við. Síðast liðinn miðvikudag skall yfir foráttuveður á landinu, fyrst um vestanvert landið og gekk síðan yfir það. Snemma á fimmtudagsmorgni var stórstraumsflóð samfara nokkuð langvinnri vcstanátt og haugabrim við strendur sem liggja á móti áttinni. Þegar veðrið skall á stöðvaðist öll umferð um tíma vegna mikillar ofankomu og ofsa. Margir lentu í hrakningum eða tepptust um lengri eða skemmri tíma. Börn urðu innlyksa í skólum og á dagheimilum og yfirleitt komst fólk ekki ferða sinna, samá á hvaða aldri það er. Um fótaferðartíma um morguninn var veður allsæmilegt og ungir sem gamlir létu sér ekki detta annað í hug en fara í sína dagvistun, hvort sem hún er í skólum, í vinnu eða í öldrunarþjón- ustu. En það furðulega við allt þetta er, að búið var að spá nákvæmlega því veðri sem á brast. Veðurfræðingar voru marg, margoft búnir að segja nákvæmlega til um hvernig veðrið myndi verða miðvikudaginn 4. janúar. Hver tyggur eftir öðrum að sjónvarpið sé öflugasti fjölmiðillinn og nái best sjónum og heyrn landsmanna, og margir hafa orðið til að dást að greinargóðum veðurfregnum sem þar eru fluttar nær daglega. Veðurfræðingurinn sem skýrði veðurkortið á þriðjudags- kvöld útlistaði veðurhorfur næsta dag með eins skýrum hætti og frekast var kostur. Veðurlagið gekk nákvæmlega eftir spá hans. Veðurfræðingurinn sem spáði næsta kvöld gat ekki að sér gert, að sýna aftur hverju spáð hafði verið og allt kom það heim og saman. í hljóðvarpinu voru náttúrlega sömu veðurfréttir og var mjög varað við áhlaupinu fram eftir morgni á miðvikudag. En allt bar þetta að sama brunni. Hvergi var skólahaldi aflýst og ungir og aldnir fóru á sín barnaheimili og öldrunarþjónustu. Hinir „öflugu“ fjölmiðlar höfðu lítil sem engin áhrif. Hins vegar voru þeir yfirfullir af fréttum af ófærð og hrakningum eftir að báiviðrið var skollið á. Þá sátu menn jafnfastir í umferðinni við bæjardyrnar hjá sér eða í hundruðatali bókstaflega um allt landið, því jafnt var lagt af stað í langferðalög og skottúra milli húsa hvað sem veðurstofan sagði. Smábílakraðakið í umferðinni í þéttbýli eftir að allt var orðið ófært er svo kapituli út af fyrir sig. Það þurfti enga veðurspámenn til að segja bílstjórum að allt væri kolófært þegar vart sá út úr augum í kófinu og vaða þurfti snjóinn í klof til að komast að bílunum. Þótt útvarpað væri stanslaust að allar leiðir væru lokaðar átti það ekki að þurfa til, þar sem hverjum heilvita manni mátti vera ljóst að færð var verri en slæm. Að sama leytinu varaði veðurstofan eindregið við flóðahættu á fimmtudagsmorgun. Samt kom hún sumum hverjum að minnsta kosti á óvart. Hafnarstjóri á Suðurnesjum lét hafa eftir sér í blaði, að það væru ávallt sömu mennirnir sem sýndu árvekni ár eftir ár og að skip þeirra væru aldrei í hættu þegar stórstraumsflóð og brim fara saman en aðra verður að vara við þegar allt er komið í óefni. Veðrahamurinn og flóðin um miðja vikuna voru óvenjuleg. Við slíkum náttúruhamförum má ávallt búast á íslandi en með árvekni og fyrirhyggju má minnka tjón og koma í veg fyrir hrakninga. Ekki urðu teljandi slys á fólki í þessu áhlaupi, og er það guðsþakkarvert. Þeir sem réttast brugðust við voru íbúar byggðar- laga sem snjóflóðahætta vofir yfir. Með góðri samvinnu veður- stofunnar og íbúa þeirra svæða sem búa við slíka vá var skipulega unnið að því aö flytja fólk á brott frá mestu hættusvæðunum. Þarna er beint samband á milli en ekki treyst á að fólk taki eftir viðvörunum í fjölmiðlum. Það virðast orð að sönnu, sem starfsmaður rásar 2 lét hafa eftir sér þegar fyrirtækið fór í gang, að útvarpsefnið þaðan er til að heyra, en ekki til að hlusta á. En þetta virðist eiga við um fleira en poppið. -O.Ó. Wmmm______ horft í strauminn ■ Sum blöð hafa tekið upp þann sið að kjósa mann liðins árs við áramót. Þetta er oftast einhver frægðarpersóna sem unnið hefur afrek öðrum til góðs á árinu. Nú brá nýrra við. Dagblaðið fór ekki troðnar slóðir að þessu sinni, þegar það valdi mann ársins um áramótin. Það varð hvorki Steingrímur eða Geir, Jóhannes Nordal né eitthvert stórmenni lista eða bókmennta. Blaðið kvaðst hafa valið hinn almenna launamann í landinu mann ársins 1983. Þetta var bæði rökrétt og réttlátt val. Við eigum fórnum hans að þakka mikilvægasta árangur í þjóðarbúskap liðins árs - hjöðnun verðbólgunnar - eða að minnsta kosti samþrýsting hennar. Hins vegar er ekki enn komið í Ijós, hvort okkur tekst að eyða þessum tímabundna samþrýstingi og gera hann að ládeyðu, eða hann sprengir af sér allar hömlur og æðir sem fellibylur yfir að nýju - eða eins og brimið á Akranesi og í Sandgerði á dögunum. Þetta er spurning ársins sem haldið hefur innreið sína. Fjandinn í sauðarleggnum Það eru vafalaust ánægjulegustu tíðindi við þessi áramót, að augsýnilega hefur tekist að stöðva verðbólguna í bili og jafnvel þjarma töluvert að henni. Þann árangur skulum við skila, einkum til manns ársins 1983 —hins almenna launamanns á lægstu þrepum. ' Ýmsir mcnn svinnir hafa sagt að lækkun verðbólgu sé kjarabót, og landsfeður tekið undir það. Verðbólgulækkun er það líka, meðan kaupgjaldsvísitala er í fullu gildi, jafnvel án teljandi réttlætisþjónustu stjórnarherra. En þegar valdið varpar þessari vísitölu fyrir róða, eins og gert hefur verið, þá ieggst réttlætisskyldan um skil þessara kjarabóta með fullum þunga á mannlegar herðar ráðherranna. Þetta er fyrsti réttlætisbagginn, sem nú er beðið eftir að sjá hvort þeir rísa undir. Og þeir ntunu verða fleiri á árinu. Maður gamla ársins, láglaunamaðurinn, er nú satt að segja kominn að niðurlotum. Á Itann verður varla meira lagt. Nú er komið að mönnum nýja ársins - réttlætisársins - að rétta honum hjálparhönd. Einhvervitlausasta og viðurstyggilegasta ráðstöfun herforingjastjórnarinnar á síðasta ári var að borga mönnum því hærri dýrtíðaruppbót sem menn höfðu hærri laun fyrir. Slíkum viðhorfum verður nú að linna. En hvernig á að bæta hlut láglaunafólks? Það er vafalaust engin þráðbein réttlætisleið til í því efni. Leið fyrrverandi ríkisstjórnar gafst illa og varð nánast að athlægi í öfugmæli sínu. Skattaleiðin nær mjög takmörkuðum árangri fyrir þá sem verst eru settir. Lögbinding lágmarkstímakaups væri spor í rétta átt en varla SAUÐARLEGGNUM EN LÆTUR ENN ÓFRIÐLEGA ekki vanmeta. En verðbólgustríðið á liðna árinu minnir mjög á gömlu þjóðsöguna um skollann í sauðarleggnum. Fjandinn var laus þá eins og stundum áður og síðar, en stjórnlistar- mönnum tókst að lokka hann ofan í opinn sauðarlegg eða þráðarlcgg og stinga tappa í. En stríðið var ekki unnið með því bragði, því að skolli lá ekki kyrr í leggnum, heldur braust fast um, og sá ótti vofði sífellt yfir, að hann sprengdi legginn eða spýtti tappanum úr. Sá var vandinn að hemja hann í leggnum, raunar öllu meiri en koma honum í hann. Svo er enn, og það verður á þessu ári sem mest reynir á stjórnmála- mennina - ríkisstjórnina - en verði skolli enn í leggnum um næstu áramót, hvað þá ef farið verður að draga af honum svo að um munar. verður lítill vandi að velja menn ársins 1984 - ríkisstjórnina okkar. Við skulum santcinast í einlægri ósk um að henni takist þetta, því að hamingjan Itjálpi okkur ef verðbólgan steypist yfir að nýju - eins og skollinn úr sauðarleggnum. Réttlætið og valdið En hvernig á ríkisstjórnin að heyja sér styrk til þess að halda tappanum í sauðarlcggnum?. Skolla var troðið í legginn með fórn launafólksins og valdbeitingu ríkisstjórnar. í hugann koma spekiorð Pascals. „Þegar ekki er unnt að gera réttlætið voldugt, bregða stjórnendur á það ráð að kalla valdið réttlátt". Þctta var boðorð liðins árs. Og þetta er einmitt rökfræði fjandans sjálfs. Þótt koma megi honum í lcgg með hans eigin bragði, verður honum ekki haldið þar né dreginn úr honum bakfiskurinn með þeim ráðum, heldur mun hann sprengja af sér öll bönd með þeirri næringu. Nú þarf annarra ráða við. Nú er að því komið í verðbólgustríði ríkisstjórnarinnar að hætta að segja: Valdbeit- ingin er Téttlát. Nú er að því komið á ferli hennar að gera réttlætið voldugt. Með því einu nást einhver varanleg tök á skolla. Ganga ríkisstjórnarinnar á s.l. ári á vegi réttlætisins í garð þegnanna var satt að segja hörmulegt ferðalag. En það var líklega varla nema von, meðan hún taldi sig verða að kljást við skolla undir því herópi, að valdið sé réttlæti. Og jafnvel má fallast á, að varla hafi verið annars kostur eins og komið var. Svo illa getur horft, að.herforingjastjórn sé afsakanlegum stundarsakir, og það eru heldur ekki slíkar neyðartiltektir, sem dæma þær til óhelgi, heldur framhaldið, sem oftast verður það að þær láta undir höfuð leggjast að gera réttlætið voldugt á eftir - og svo springur allt þegar frant líða stundir. Ríkisstjórnin okkar hefur haft nokkurn svip herforingja- stjórnar á síðasta ári. Hún verður þó ekki sakfelld á degi dómsins fyrir það, heldur dæmd eftir hinu, hvort hún kappkostar á þessu nýbyrjaða ári að gera réttlætið voldugt, eða heldur áfram að segja að valdið sé réttlæti. Að láta verðbólguhjöðnun verða kjarabot Það sem helst virðist kalla að næstu mánuði til viðreisnar réttlætinu er að koma kjarabótum af verðbólguhjöðnun til alhlítt eða nógu hraðvirkt núna. En einhver ráð verður að finna - og þau ættu að finnast ef réttlætisviljinn er einlægur. Að láta verðlækkanir skila sér Þá má nefna það sem mikilvægan áfanga.til þess að gera réttlætið voldugra.að vinna vel að því að lækkun verðbólgunn- ar skili sér í vöruverði til almennings. Albert ráðherra segir þessa dagana, að vöruverð eigi að lækka í búðum, því að fjármagnskostnaður verslunarinnar m.a. af vaxtalækkun, hafi minnkað. En vöruverðið lækkar samt alls ekki sjálfkrafa svo nokkru nemi. Albert segist vilja, að þetta gerist af frjálsum vilja og án allra afskipta stjórnvalda. En það gerist bara ekki þannig ncma mjög treglega. Þarna ber stjórnvöldum að koma til með nokkru atfylgi. Það er kannski ekki æskilegasta leiðin þegar sjór er lygn, cn meðan skolli brýst um í leggnum er það nauðsynlegt. Réttlætið í eigin barmi Þótt mest sé um vert að gera réttlætið voldugt utan stjórnarráðsins og arma þess, er forsenda árangurs þar að stjórnendur líti í eigin barm. Ég held að ráðherrum.væri hollt í upphafi þessa árs að líta í bók Ingólfs á Hellu, sem út kom fyrir jólin, og lesa það sem hann hefur að segja um ráðherradóm. T.a.m. ættu þeir að festa sér þessa málsgrein hans í minni: „Eitt verður ráðherra að forðast sérstaklega, og það er að nota þá aðstöðu sem embættið býður upp á til að skara eld að sinni köku“. Og taki þeir síðan sneið sem eiga. Ráðherrar verða líka að hætta að hossa vinum sínum og ofeldiskálfum. Eitt er t.d. að hætta þeirri ósvinnu að taka sér flokkssugur sem hjálparkokka við störfin í þágu alþjóðar. Annað að hætta að hygla verslun og bisnismönnum með því að létta af þeim sköttum í almannaþágu. Og svo eru nú utanlandsferðirnar og Seðlabankinn. Af nógu er að taka. Ráðherrar kváðu stundum allfast að orði um það á árinu sem leið, að nú mundi verða stjórnað. Þau hreystiyri áttu sæmilega við, meðan herforingjastjórn sat undir því kjörorði að valdið væri réttlæti, en þeirra er einnig þörf þegar ríkisstjórnin snýr sér að því að gera réttlætið voldugt. Það gerist nefnilega ekki af sjálfu sér, þó að Albert vilji það. Því þarf ekki síður að stjórna - jafnvel miklu betur en hinu. A.K. Andrés o Kristjánsson í'á skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.