Tíminn - 08.01.1984, Síða 10

Tíminn - 08.01.1984, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 erlend hringekja ^ Ottast atvinnu- leysi af völdnm vélmenna ■ Japanir tóku vélmennum eins og kunnugt er opnum örmum, ef svo má segja, þegar þeir fóru að leysa verkamenn af í leiðinlegum störfum t.d. í bílaverksmiðj um á sínum tíma í Nissan ogToyota. Eitthvaðmun samt hafa slest upp á vinskapinn milli mannshandarinnar og hinnar vélrænu, því verkalýðsfélög og fyrirtæki í Japan eru nú í óða önn að endurskoða samninga sína í þessu efni. Verkalýðsfélög hafa vaxandi áhyggjur af atvinnuleysi í kjölfar vélmenningarinnar, en það fyrirbæri var óþckkt í Japan, þegar vélmenni komu til sögunnar. Einnig hafa verkalýðsforkólfar þungar áhyggjur af atvinnuþróun í framtíðinni, ef svo heldur fram sem horfir. Verkalýðsfélögin sem unnu með fyrirtækjunum er vélmenni voru innleidd í japanskan iðnað, hafa sem sé vent kvæði sínu í kross- upprunaleg aðdáun á þessu tækniundri er svo gott sem úr sögunni, þó að viðurkennd sé hagrænn ávinningur af vélmennum. Fleira er í húfi en peningar. Petta kemur vel í Ijós í samningi, sem verkalýðsfélög hafa gert við Nissan samsteypuna nýlega. Samningurinn gerir ráð fyrir því, að störf verkafólks í verksmiðjunum verði að hluta „vernduð" gegn óhóflegri notkun vélmenna. Sérstaklega hafa menn í huga að koma í veg fyrir óheppileg áhrif af vélmennum á vinnustað. Margir forystumenn launþegasamtaka í Japan naga sig nú í handarbökin yfir því að hafa ekki sýnt þessari þróun nægilega vakandi auga þegar í upphafi. Nú er rætt um að koma jafnvel í samninga ákvæði um að ekki megi undir neinum kringumstæðum setja vélmenni í störf án samráðs við þau verkalýðsfélög sem í hlut eiga. Ekki er það þó svo, að vélmenni séu farin að hafa afgerandi áhrif á starfsemi bílaverksmiðja. Hins vegar tóku sérfræðingar verksmiðjanna t.d. eftir því, að starfsaldur verkamanna hækkaði mjög vegna þess að nýir menn voru ekki ráðnir til starfa. Þetta hafði það m.a. í för með sér að verkafólk átti erfiðara með að aðlaga sig nýrri tækni og nýjum aðstæðum á vinnustað. News from Japan Bretland: Thatcher vill láta kasta kjarnaúrgangi í hafið ■ Grindahlauparar, sem aðrir íþróttamenn á Ólympiuleikunum munu vart setja stór met, ef iðnaðarmistur sest yfir Los Angeles meðan á leikunum stendur. Það dregur mjög úr árangri íþróttamanna ef slíkt gerist, en „The show must go on“, því ABC-sjónvarpsstöðin er ekki tryggð gegn mengun á Ólympiuleikunum. Engin trjgging gegn mengun á Olympíuleikum í Los Angeles ■ „Yndisleg borg undir bláum himni og í fallegu landslagi" skrifaði vikuritið „TIME“ um Ólympíuleikana í Los Angeles árið 1932. t>á var líka Los Angeles yndisleg borg undir bláum himni og landslagið sást langt að. Engar líkur eru þó á, að borgin fái sömu einkunn hjá blaðamönnum og fréttamönnum í sumar - árið 1984 - þegar Ólympíuleikar verða haldnir þar að nýju. Aðstandendur keppninnar hafa meira að segja nokkrar áhyggjur af keppninni, sem fram á að fara í júlí/ágúst' í ár, en þá kann hin svokallaða „Los Angeles þoka“ að sýna á sér hina-verstu lilið. Sérstakar áhyggjur hafa menn af keppendum í þeim íþróttum þar sem mest reynir á þol og þrautseigju keppenda svo sem í langhlaupum. Svo kvíðnir eru sporgöngumenn Ólympíuleikanna í Los Angeles orðnir, að þær raddir hafa komið upp á síðustu vikum, að nauðsynlegt sé að færa leikana til San Fransisco. Sérstaklega nefna menn maraþonhlaupið í því sambandi. En engin samstaða hefur náðst um þetta, enda hefur ABC-sjónvarpsstöðin lýst því yfir, að þeir muni einungis „kaupa“ maraþonhlaupið, ef þvíverður „startað" frá hinum gamla Ólympíuleikvangi, Colliseum. Það hefur oft gerst á undanförnum árum, að íþróttamótum og æfingum hafi verið frestað eða jafnvel aflýst í Los Angeles vegna mengunar í lofti. Það verður hins vegar erfitt að fresta ieikunum í sumar og ógerlegt er að aflýsa þeim. ABC-sjónvarpsstöðin hefur nefnilega tryggt sig gegn ýmsum hamförum bæði af náttúru- og mannavöldum. Þannig er sjónvarpsstöðin tryggð gegn stríði, jarðskjálfta og verkföllum, já meira að segja tryggja þeir sig gegn hermdan'erkamönnum, sem hlýtur að kosta skildinginn. En enginn getur tryggt sig gegn óþverralofti frá iðnfyrirtækjum í nágrannafylkjum. Tryggingafyrirtækin bjóða bara ekki upp á slíkt! Not Man Apart árið 2100 ■ Ekki gera allir fráiðingar ráð fyrir því að maðurinn tortími sér og sínum einhvern tímann næstu áratugina. Svo er að minnsta kosti um þá sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna, sem síðustu mánuði hafa setið við og skoðað líklega mannfjöldaþróun fram í tímann. Allir vita að mannkyni fjölgar með ógnarhraða. Mest er fjölgunin þar sem minnstur er maturinn og fæstir kostir eru til að koma börnum á legg og til nokkurs þroska. Nú sem stendurerum við jarðarbúar um 4.5 milljarðar. Um næstu aldamót er ráð fyrir því gert að | við verðum búin að íjölga okkur talsvert og jarðarbúar nálgist þá 6 milljarða. Enn mun þó jarðarbúum fjölga á næstu öld og er búist við að 10 milljarðar búi á jörðinni um árið 2100 eða meira en tvöfaldur fjöldi þess, sem er á jarðkringlunni í dag. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna eru yfirleitt sammála um að alla næstu öld haldi fólki á jörðinni áfram að fjölga, en um næstu aldamót verði hins vegar umskipti í þessu efni. Ástæða er til að taka nokkurt mark á þessum fullyrðingum með hliðsjón af mannfjöldaþróun síðustu áratuga. Langmest fjölgar mannkyninu í þróunarríkjunum. En frá árinu 1965 hafa nienn tekið eftir því að vöxturinn minnkar smám saman. Á fimmtán ára tímabili frá 1965 til 1970 var árlegur vöxtur um 2.4% en frá 1970-1980 fór þessi tala niður í 2%. Það er talið að þessi þróun muni halda hægt og sígandi áfram á næsta áratug og sérfræðingarnir meta það svo að jafnvegi verði komið á mannfjölda í heiminum í kring um áramótin 2100 eins og áður segir. - Aftenposten ■ Atomurgangi kastað í sjó við Spánarstrendur, en þar eru víða Atlants- hafsmegin mikil fiskimið. Tíu milljarðar manna á jarðkringhinni ■ Mikill úlfaþytur varð í bresku ríkisstjórninni í haust sem leið. þegar í Ijós kom, að opinber starfsmaður hafði „lekið“ leynilegum áætlunum til varnarmálaráðuneytisins breska um að fyrir dyrum stæði að kasta miklum atómúrgangi í Atlantshafið. Úr varnarmálaráðuneytinu fóru upplýsingarnar beina leið til umhverfisverndarmanna, sem gerðu harða hrtð að ríkisstjórninni. Eftir þeim heimildum, scm út láku, áttu fulltrúar þriggja ráðuneyta í Bretlandi með sér fund um þetta mál ásamt fulltrúum atómrannsóknarstöðvar í Bretlandi og Rolls Royce bílaverksmiðjanna, sem einnig framleiða vélar í kjarnorkukafbáta. Á fundinum kom fram sú hugmynd og fékk góðar undirtcktir, að láta byggja sérhannaða stóra geyma til að varpa síðan í Atlantshafið með geislavirkum úrgangi innanborðs. Leynifundur þessi var haldinn á útmánuðum í vor, aðeins nokkrum vikum eftir að haldin var ráðstcfna um þessi mál í London. Á ráðstefnunni var samþykkt að banna þetta form á losun úrgangsefna í sjó í tvö ár. Stóra-Brctland greiddi atkvæði gegn samþykktinni. En hingað til hefur. engum atómúrgangi verið hent í sjóinn við Bretlandsstrendur þ.e.a.s. eftir ráðstefnuna vegna mótmæla sjómanna og annarra samtaka í Bretlandi, þar sem menn óttast mjög áhrif geislavirkra éfna í sjónum ef tunnur og geymar fara að leka. Guardian Gleðitíðindi fyrir eiturlyfjaframleiðendur í Kaliforníu: Maríhuana notað sem lyf ■ Loks hafa lyfjabændur í Kaliforníu fundið löglegan farveg fyrir framleiðsluvörur sínar. sem ekki hafa verið vel séðar fram að þessu í Bandaríkjunum. Marihuana, sem m.a. er framleitt í Californíu, hefur ekki verið á vinsældalistanum hjá yfirvöldum fyrir margra hluta sakir. Nú hefur komið í Ijós, að nota má þetta eiturlvf á áður óþekktan máta. Nýleg rannsókn sýnir nefnilega, að nota má marihuana til lyfjagjafar til sjúkiinga á geislameðferð vegna krabbameins. Hefur þetta glatt mjög þá, sem lofað hafa og vegsamað marihuana í amerísku þjóðlíft undanfarin ár. Rannsókn þessi sýnir. að 900 sjúklingar, sem leið mjög illa af ógleði' og uppköstum eftir geislameðferð við " krabbameini, tóku miklum framförum við marihuananeyslu, en hún fór fram bæði með töflum og rcykingum eftir óskum sjúklinganna. Mcira en helmingur sjúklinganna sagði að ógleði og uppköst hyrfu alvcg við notkun „lyfsins" eða um 60%. Rannsóknin leiddi einnig í Ijós, að andlegur sljóleiki og önnur einkenni sem fylgja marihuananeyslu hafa ckki í för með sér neina hættu varðandi notkun cfnisins í læknisfræðilegum tilgangi. Og þá höfurn við það! New Scientist

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.