Tíminn - 11.01.1984, Page 3
Ríkisstjórnin samþykkir að unnið verði að sérstakri:
FRAMTfÐARSPA FYRIR ÍS-
LAND FRAM TIL ALDAMÓTA
■ Á ríki.sstjórnarfundi í gærmorgun
var samþykkt tillaga Steingríms Her-
mannssonar forsætisráöherra, þess efnis
að ráðist verði í að gera framtíðarspá og
könnun fyrir land og þjóð, og var
samþykkt að til þess verkefnis yrði
ráðinn verkefnisstjóri, sem síðan hefði
aðgang að starfskröftum og gögnum
Þjóðhagsstofnunar, og er ráðgert að
verkefni þetta verði í vinnslu næstu tvö
árin eða svo.
„Ég er að undirbúa þetta mál nánar,"
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra. þegarTíminn spurði hann
í gær nánar um þetta verkefni. Hann
sagði að miðað yrði við ,að reyna að spá
til um 25 til 30 næstu ár, um þróun mála,
á sem flestum sviðum.
„Það er ráðgert að skipuð verði verk-
efnisstjórn," sagði forsætisráðherra, „og
verkefnisstjóri yrði ráðinn, sem yrði
staðsettur hjá Þjóðhagsstofnun. en verk-
efnið sem slíkt yrði samt sem áður
sjálfstætt. Verkefnisstjórinn mun njóta
þeirrar aðstoðar Þjóðhagsstofnunar sem
hann þarf á að halda. Þarna er ekki síst
um það að ræða að draga saman heilmik-
ið af upplýsingum sem til eru. á sem
flestum sviðum, bæði um m'annlíf og
efnahagslíf. í framhaldi af því á að reyna
að steypa þessum upplýsingum saman í
heilsteypta mynd, af Itklegri framtíðar-
þróun þessa lands, svo sem hvaðá af-
rakstri af þeim auðlindum sem við
höfum. megi búast við, hvað annað sé
tiltækt, svo sem auðlindirnar í okkur
sjálfum, og flcira til þess að hægt verði
að stuðla að eölilegum hagvexti hér á
næstu árum og jafnframt sem bestu
mannlífi."
Steingrímur sagði að jafnframt þyrfti
að taka tillit til þeirrar þróunar sem spáð
væri í kringum okkur, en þær spár væru
ekkert sérstaklega fallegar. Hér væri því
um geysilega víðtækt verkefni að ræða á
talsvert hreiðari grunni en áður heföi
verið ráðist í. þó að ýmsar kannanir
varðandi framtíðina hefðu farið fram að
undanförnu. Forsætisráöherra sagðist
ráðgera að þctta verkefni yröi tvö ár í
vinnslu.
- AB
Bankamálanefnd að
Ijúka störfum:
„Margskonar
breytingar
á borðinu“
— segir Þorsteinn
Pálsson, formaður
nefndarinnar
■ „Starfi nefndarinnar niiðar hara
nokkuö vel, og það er á lokastigi,"
sagði Þorsteinn Pálsson, alþingismaö-
ur, sem er formaður nefndar þeirrar
scm hefur endurskoöun bankamála
meu hönduin, er Tíminn spurði hann í
gær hvernig störfum nefndarinnar mið-
aði.
Þorstcinn sagðist búast við ;ið ncfnd-
in scndi ráðherra tillögur sínar innan
. mjög skamms tíma. og aðspurður utn
hvort mikiö af róttækum brcytingatil-
lögum kæntu frá ncfndinni, svaraöi
Þorsteinn: „Þaöeru margskonar breyt-
ingar á borðinu." Þorsteinn sagði að
cfnislega væri ekkcrt hægt að upplýsa
um innihald tillagnanna fyrr en ráð-
herra heföi fengið þær í hendur.
- All
í.:
„Fólk er afskaplega fastheldið og vill fá sína ýsu eða ekki neitt“ sagði Björgvin Konráðsson í fiskbúðinni Hafrúnu.
Tímamynd Ámi Sæberg.
Höfuðborgarsvæðið:
^AIItaf að verða erfið-
ara að fá nýjan fisk”
— segir Björgvin Konráðsson, fisksali
■ „Það er alltaf að verða erfiðara og
erfiðara að fá nýjan fisk hérna á Reykja-
víkursvæðinu oghrcint dj...ástandsíðan
um miðjan desember. Það sem þeir fá á
línubátunum hcr suður með sjó fer allt í
gáma og er flutt út. Þeir scgjast fá svo
mikið fyrir gámafiskinn og eins það sem
flutt er út af nýjum flökum með flugi á
Bandaríkjamarkað, að ekki þýðir fyrir
okkur að reyna að keppa við það. Eg
held að fisksalar séu farnar að bjóða
þeim 7 til 8 og jafnvel upp í 10 krónur á
kíló umfram Landssambandsverð sem
gefið er upp, og allt greitt á bryggjunni,
en þeir fá hann samt ekki“, sagði
Björgvin Konráðsson, i fiskbúðinni
Hafrúnu m.a. þcgur við leituðum að
nýrri ýsu hjá honum í gær.
Ýsu hafði Björgvin ekki nema í fryst-
um flökum. Þcir hjá Hafrúnu sóttu ýsu
vestur á Snæfellsnes í haust - sem þýðir
um 500 kílómetra akstur - og ætluðu
þangað nú um síðustu helgi, en þá var
allt ófært. Hins vegar gátu þeir í gær
boðið upp á nýjan karfa, þorsk, steinbít
og fleiri tegundir. „Nei þessar tegundir
seljast ekki mikið. Fólk er óskaplega
fastheldið, vill fá sína ýsu eða ekki neitt.
Margir kaupa auðvitað saltfisk og nokkr-
ir þorskflök, en allt of fáum lýst á hinar
tegundirnar.
Ég get þó með góðri samvisku mælt
með karfa, sem er alveg rosalega góður
grillaður í flökum og aðeins kryddaður
með aromati. Blálanga er líka mjöggóð.
bæði stcikt og frábær hökkuð í bollur.
En fólk er of trekt til að prófa. Það er
eins og það hafi einhvern einkennilegan
ímugust á þessum fiski,“ sagði Björgvin
Skipa á atvinnumálanefnd er fjalli
um atvinnuhorfur í sjávarútvegi:
Nefndin á að leita
úrræða í kjölfar
aflasamdráttarins
,,Viljum með öllum tiltækum
ráðum sporna gegn því að um
atvinnuleysi verði að ræða”,
segir forsætisráðherra
■ Steingrímur Hermannsson forsætls-
ráðherra lagði á ríkisstjórnarfundi í gær
fram tillögu þess efnis að sett verði á
laggirnar atvinnumálanefnd, er fjalli um
atvinnuhorfur í sjávarútvegi og úrræði
sem finna megi, í kjölfar þess aflasam-
dráttar sem verður að likinduin á þessu
ári. Sagðist forsætisráðherra í samtali
við Tímann í gær reikna meö því aö
tillaga þessi yrði afgreidd í ríkisstjórn
síðar í vikunni.
„Við Þorstcinn Pálsson höfum sér-
staklcga fjallað um þcssi mál á okkar
fundum, og í framhaldi af því scm okkur
hefur farið í milli, lagði ég fram þessa
tillögu á fundinum í morgun," sagöi
forsætisráðherra.
„Forsætisráðþerra sagöi að þetta hcfði
vcrið rætt á milli st jórnarflokkanna, en
eins og fram kæmi i stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar, þá va;ri atvinnuöryggi
þar ofarlega á lista.
„Við höfum áhyggjur af þeim crfiö-
leikum, sem augljósir eru í sjávarútveg-
inum, sem munu óhjákvæmilega draga
úr atvinnu," sagði forsætisráðherra, „en
við viljum með öllum tiltækum ráðum
sporna gcgn því að um atvinnuleysi
vcrði að ræða. Þess vegna tcljum við
æskilegt að um það mál verði fjallað,
svipað og gert var 1968, með fulltrúum
frá ríkisvaldi, atvinnurekendum ög laun-
þegum, það er að segja þeirn launþcgum
sem sérstaklega kunna að verða fyrir
barðinu á slíku."
-AB
Sjötuga
mannsins sem
saknad er:
Víðtæk
leit án
árangurs
■ Leit stcndur enn’yfir aö 70 ára
göm'um manni. Kristjáni Jenssyni,
scm sást síðast við hcimili sitt að
Álftamýri III kl. 02.00 aðfaranótt s.l.
miðvikudags. Lýst var eftir manninum
á föstudag og hefur víðtæk leit staöið
yfir síðan áti árangurs.
Ý V: i Framl' verður haldinr Framhaldsstofnfundur
íaldsstofnfundur útgáfufélagsins Nútíminn h.f. , á Hótel Sögu fimmtudaginn 12. janúar kl. 20.30. ■ Gengið verður frá stofnun félagsins.
Undirbúningsnefnd