Tíminn - 14.01.1984, Blaðsíða 1

Tíminn - 14.01.1984, Blaðsíða 1
KR-ingar eiga enn möguleika — sjá iþróttir í opnu Blað 1 Tvö blöð í dag Helgin 14.-15. janúar 1984 12. tölublað - 68. árgangur Sídumúla 15—Pósthólf370Reykjavík—Ritstjóm86300—Auglýsingar 18300— Afgreidsla og áskrift 86300 — Kvöldsimar 86387 og 86306 íslenskir ullarvöruframleiðendur sem selja til Danmerkur og USA: EYÐILEGGJA MARKAÐ- INN MEÐ UNDIRBODUM Bandaríkjamenn í vandræðum með Fokker-vél á Grænlandi: ÓSKUÐU AÐSTOÐAR FRÁ ÍSLENSKUM FLUGVIRKJUM „Annad hvort sjálfseydingarhvöt eða heimska”, segir formaður iðnrekenda ■ „Það er dapurlegt að hevra að fjórða árið í röð skuli þurfa að ræða um undirboð á ullar- vöruni á erlendum markaði“, sagði Víglundur Þorsteinsson, form. Félags ísl. iðnrekenda m.a. á fundi framámanna í ullaríðnaði sem haldinn var i gær. Á fundinum hafði komið fram að búið sé að stórskemma íslenska ullarvörumarkaðinn í Danmörku með undirboðum nokkurra útflytjenda og svip- aðir hlutir virðast nú eiga sér stað á Bandaríkjamarkaðin- um. Fyrir slíkum undirboðum sagði Víglundur engar afsakan- ;'3OT5S NYJAR UPP- LÝSINGAR í LAGARFOSS- MÁLINU — eftir að krafa kom fram um 60 daga framleng- ingu gæsluvarð- halds ■ Nýjar upplýsingar í Lagar- fossmálinu komu fram við yfir- heyrslur í gær yfir manninum sem losna átti úr gæsluvarð- haldi í gær. Fíkniefnalögreglan hafði gert kröfu um að gæslu- varðhald hans yrði framlengt um 60 daga en búist er við að þessar upplýsingar stytti gæslu- varðhaldsvistina. Dómari tók sér sólarhrmg frest til að úr- skurða um gæsluvarðhalds- kröfuna og verður úrskurður- inn kveðinn upp í dag. Að sögn Gísla Björnssonar deildarstjóra fíkniefnadeildar- innar er þetta mál mjög flókið en í gær kom skriður á það. Gísli vildi ekki segja um hvort þessar nýju upplýsingar leiddu til frekari handtakna í sam- bandi við þetta mál. Annar maður hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna Lagar- fossmálsins í 75 daga en á að losna á morgun. Verið var að íhuga kröfu um framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir honum í gærkvöldi en Gísli sagði að í Ijósi þessara upþlýsinga gæti svo farið að krafan yrði ekki lögð fram. - GSH. ir gildar - um þau gildi aðeins tvö orð, það sé annaðhvort sjálfseyðingarhvöt eða heimska ef menn ætli að eyöi- leggja þann góða markað sem búið sé að byggja upp í Banda- ríkjunum. Það var Jens Pétur Hjalte- sted sem áður hafði rætt um hvernig undirboðin á markað- inum í Danmörku hafi leitt til þess að íslensku vörurnar hafi nú haslað sér þar völl sem útsöluvara. eins og hver og einn gæti séð sem þar á lcið um Strikið. Sagði Jens útflutning þangað hafa hrapað niður um 6 tonn á árinu 1983 úr 30 tonnuni árið 1982. sem verið háfi metár frá upphafi. Ástæð- an sé fyrst og frernst undirboð, sem átt hafi sér stað er nokkrir útflytjendur hafi seit þangað umframlagera, er þeir áttu.á allt of lágu verði. Því til stað- festingar nefndi Jens, að af 15 útflytjendum hafi 12 fengið 396 Dkr. meðalverð á kíló fyrir 23.5 tonna útflutning, en hinir þrír aðeins 269 Dkr. á kíló fyrir 6,5 tonna útflutning. Miklar kvartanir hafi borist vegna þessa bæði hórlendis og frá kaupendum í Danmörku. Jens tók fram, að þótt útílutn- ingur til Danmerkur hafi dreg- ist sarnan 1983 hafi fengist þar betra meðalverð en árið áður. Jens sagði þegar viss teikn á lofti sem bendi til sömu þróun- ar á Bandaríkjamarkaði. Þrátt fyrir mikla uppgangstíma í verslun þar í landi hafi hlutur íslensku ullarvaránna ekki ver- ið sem skyldi. Af 21 útflytjanda þangað hafi löfengiðum 1.400 króna meðalvcrð á kíló en hinir 11 aðeins 770 króna með- alvcrð. -HEI ■ I gærmorgun barst Flug- leiðum beiðni frá bandarísku flugfélagi um að íslenskir flug- virkjar yrðu sendir áleiðis til Grænlands til þess að veita aðstoð. Sæmundur Guðvinsson frétta- fulltrúi sagði þegar Tíntinn spurði hann um þetta mál að Bandaríkjamennirnir væru staddir í Syðra Straumsfirði, á Fokker scm væri svipaðrar gerð- ar og Fokkerarnir í eigu Flug- leiða. Hefði bandarískt flugfélag sem á vélina sent Flugleiðum beiðni í gærmorgun um að þrír flugvirkjar yrðu sendir áleiðis til Grænlands til þess að veita aðstoð. „Þeir eru á leiðinni þang- að núna“, sagði Sæmundur, „og ég reikna með að þeir hefji viðgerð um leið og þeir eru kontnir til Grænlands. Banda- ríska vélin var á leið frá Evrópu til Bandaríkjanna en bilaði í Grænlandi. Mér skilst að það sé nú 40 stiga frost í Syðra Straums- ■ Mikil ófærð hefur verið á Vestfjörðum að undanförnu, en þó hefur' verið reynt að halda helstu fjallvegum opnum. Myndin er af snjóruðningi í Óshlíðinni. Tímamynd Finnbogi Kristjánsson. firði þannig að það næðir að líkindum um þá". Sæmundur sagði að flugvirkj- arnir þrír hefðu farið með leigu- flugvél frá Elís og myndi vélin bíða eftir þeim, á meðan þeir lykju viðgerðinni. Eða öllu held- ur eftir tveimur þeirra, þar sem Bandartkjamennirnir hefðu ósk- að eftir því að einn flugvirkin myndi fylgja þeim alla leið til Bandaríkjanna. Sæmundur sagði að ekki væri algengt að slík beiðni bærist til Flugleiða. - AB. HUGMYNDIR UM AÐ LÖG- VERNDA NAFNIÐ „ICE- 1ANDIC LOOK” ■ „Iceíandic look“ er á leiðinni að verða tegundar- lieiti á fatnaði með ákveðnu útliti í Norður-Ameríku. Sífellt er að verða algengara að verslanir auglýsi peysur, jakka, kápur og fleira sem „Icelandic look“, þótt fatn- aðurinn sé alls ekki frá íslandi og ekki einu sinni framleiddur úr ull. Að sögn Guðmundar Þorsteinssonar hjá Hildu h.f. hefur komið fram í samtölum hans við lögfræðinga þar vestra að íslendingar ættu að 'geta fengið lögvernd á nafnið „Icelandic look“, þannig að eingöngu væri leyfilegt að merkja eða auglýsa svo vörur frá íslandi. Það verði hins vegar að gerast sem allra fyrst - ella sé hætta á að það yrði of seint. Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins hef- ur nú verið beðin um að vinna að framgangi málsins. -HEI Fáir karlmenn taka fædingarorlof: 170 FEÐUR TOKU ORLOF A SIÐASTA ARI m ■ Tiltölulega fáir karlmenn notfæra sér heimildir í lögum um fæðingarorlof, sem þeir stendur til boða. Samkvæmt núgildandi löggjöf eiga feður rétt á að taka síðasta mánuð fæðingarorlofs, þ.e. þriðja hluta orlofsins ef móðir samþykkir. Ekki virðist þó mikið sótt eftir þessum sam- þykki kvenna. Af alls 4.258 manns, sem fengu greitt fæð- ingarorlof á árinu 1983 hér á landi, voru aðeins 170 feður. Af heildarfjölda orlofsþega voru giftir samtals 2.245, í sambúð 928 og einhleypir alls 1.085. Feður voru rétt rúmlega 4% þeirra, sem tóku fæðingarorlof á síðasta ári. Þessar upplýsingar koma fram í Helgar-Tímanum í dag, en þar eru fjallað um fæð- ingarorlof í fjórtán ríkjum heims og rætt við deildarhagfræðing í Heilbrigðis og Tryggingaráðu- neytinu um reynsluna af löggjöf um fæðingarorlof og framkvæmd hennar hér. Svipuð þróun er varðandi fæðingarorlof karla hér á landi og í öðrum löndum, þar sem slíkt orlof heldur verið tekið upp. Mjög fáir nýta sér þessa heimild fyrst í stað, en smárn sama fjölgar feðrum. Þeim sér- fræðingum, sem Tíminn ræddi' við um þessi mál,bar saman um, að þeim karlmönnum færi jafnt og þétt fjölgandi, sem tækju fæðingarorlof þó' ekki séu til tölur því til staðfestingar. _ Þ.H.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.