Tíminn - 14.01.1984, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 14. JANUAR 1984
f spegli tímans
SANNKOmjÐ JARNFRU!
■ Það er nú ekki mikill vandi
að lyfta 105 kílóa þunga, þó að
maður sé ekki nema 9 ára...
■ Breska forsætisráðherr-
anum, Margaret Thatcher,
hefur sem kunnugt er verið
gefið viðurnefnið „járnfrúin“,
sökum þess, hvað hún þykir
hörð í horn að taka og óvægin.
Sagt er að ráðherrann sé
ekkert yfir sig hrifinn af nafn-
giftinni. Hins vegar er ein ung
stúlka, sem okkur er kunnugt
um, sem gjarna vildi hreppa
þetta viðurnefni og þætti bara
sómi að!
Unga stúlkan er reyndar
ekki nema 9 ára gömul. Hún
er áströlsk og er ósköp hrifin
af kraftlyftingum. Að vísu
hefur hún ekki sjálf þá krafta
í kögglum ennþá, sem með
þarf til að ganga með sigur af
hólmi í mótum, þar sem keppt
er í þessari íþróttagrein. En
þá bara grípur hún til annarra
ráða.
Ekki alls fyrir löngu fór
fram í Brisbane í Astralíu
íþróttakeppni samveldisland-
anna, og til að vekja athygli á
mótinu var gripið til saklausr-
ar blekkingar. Mynd var tekin
af Vanessu, þar sem hún lyftir
með hægu móti 105 kílóa
þungum lóðum án þess að
blása úr nös! Myndin var hins
vegar Iöguð þannig til, að
aðstoðarmenn Vanessu tveir,
Nígeríumennirnir Oliver
Orok og Ironbar Bassey, sem
lyftu aðeins undir með henni,
sáust ekki. Þeir Oliver og
Ironbar eru engir aukvisar á
þessu sviði, enda alvanir að
fást við kraftlyftingar og voru
reyndar keppendur á fyrr-
nefndu íþróttamóti samveldis-
landanna.
... sérstaklega ef maður hefur góða hjálp!
viðtal dagsins |
„TRÚI ÞVÍ AÐ ÞYRL-
UR DGIFRAMTTD FYRIR
SÉR Á ÍSLANDI“
— segir Sergei Sikorsky, sonur Igor
Sikorsky sem var einn af frumkvöðl-
um í þróun þyrlna og flugs almennt
■ Hcr á landi eru nú staddir
l'ulltniar Sikorskyvcrksmiðjanna
og hafa þcir ált viðræður við
Landhclgisgæsluna um hugsanlcg
þyrlukaup. Einn iulltnianna er
Sergei Sikorsky, sonur Igor Sikor-
sky sem var einn af frumkvöðlum í
þróun þyrlna og þróun flugs
almennt. Tíminn hitti Sikorskv að
máli og spurði hann fyrst um
viðræður hans við Landhelgisgæsl-
una.
■ Sergei Sikorsky.
Tímamynd Róbert