Tíminn - 14.01.1984, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 14. JANUAR 191U
B.St. og K.L.
■ Þó að 55 ár séu liðin frá því kvikmyndin Blái engillinn var gerð,
er hún þó ekki öllum gleyind. Nú vill bjórfyrirtæki eitt endurtaka
atriðið, þar sem Marlene Dietrich sat svo tælandi á tunnunni.
SEST MARLENE
NÚAFTURÁ
BJÓRIUNNUNA?
P
■ Marlene Dietrich er orðin 82
ára gömul og hefur sig ekki
mikið í frammi lengur á al-
mannafæri. Hún eyðir mestum
tíma sínum innan dyra á heimili
sínu í París. En því fer þó fjarri,
að hún sé öllum gleymd.
Sú kvikmynd, sem aflaði Mar-
lene Dietrich heimsfrægðar,
Blái engillinn, telst nú til sígildra
listaverka. Þar fór þýski leikar-
inn Emil Jannings með hlutverk
prófessors, sem fór í hundana
sökum ástar sinnar á ómerkilegri
dansmey og léttúðardrós, en
Marlene túlkaði hana á eftir-
minnilegan hátt. M.a. tók hún
sér sæti á bjórtunnu á mjög svo
tælandi hátt, og það er einmitt
þessi ódauðlega bjórtunnuseta,
sem varð til þess, að nú eru allar
líkur á því, að Marlene rjúfl þá
einangrun, sem hún hefur búið
um sig í á undanförnum árum.
Bjórfyrirtæki eitt hefur nefni-
lega fullan hug á því að endur-
vekja þetta fræga atriði, og þá að ’
sjálfsögðu að merkja sér ræki-
lega bjórtunnuna í bak og fyrir.
Mariene er sögð hafa léð máls á
því að koma sér fyrir í sínum
gamalkunnu stellingum á tunn-
unni, enda munu góð laun í
boði. Að vísu fæst nákvæm upp-
hæð ekki gefin upp, en sagt er að
töluna megi skrifa með 7 tölu-
stöfum, og þar að auki í dollur-
um.
„Við höfum undanfama daga
rætt þyrlur og þyrlumál á íslandi og
höfum boðið fram nokkrar tegund-
ir af þyrlum, þó við höfum lagt
mesta áherslu á þyrlur sömu gerðar
og TF-Rán.“
- íslendingar eru famir að efast
um kosti þyrlna hérlendis í ljósi
þess að flestar þyrlur sem komið
hafa hingað til lands orðið fyrir
óhöppum. Hvað viltu segja um
það?
„Að mínum dómi er ísland
mjög erfítt land, ekki aðeins fyrir
þyrlur heldur einnig skip. Mér
skilst að vikuna áður en TF-Rán
fórst hafi þrjú skip farist við strend-
ur landsins og fjölmargir látið lífíð.
Þetta land er erfitt fyrir allar vélar.
Það er nálægt heimskautsbaug og
hér geisa óveður í langan tíma.
Þyrlur og flugvélar em starfræktar
um helming starfstíma þeirra að
nóttu til og í slæmu veðri. Ég trúi
því samt að þyrlur eigi framtíð fyrir
sér á íslandi vegna staðhátta lands-
ins og þyrlur em sífellt að bjarga
mannslífum.
Það er tiltölulega stutt síðan
þyrlur vom teknar í notkun á
íslandi. Ég man að skömmu eftir
seinni heimsstyrjöldina kom upp
svipuð staða á Alaska. Þar vom
þyrlur þá nýlunda og menn vom
mjög tortryggnir í garð þeirra.
Alaskabúar hafa viðurkennt þyrlur
nú og veðurskilyrði em þar mjög
svipuð og á íslandi. Ég trúi því að
þegar íslendingar öðlast meiri
reynslu í meðferð þyrla sjái þeir að
þær hafa mikilvægu hlutverki að
gegna. Þetta em vélar sem koma til
með að sanna notagildi sitt og ég
væri ekki staddur hér ef þetta væri
ekki mín bjargfasta skoðun.“
- Nú stendur yfir rannsókn á
orsökum þess að TF-Rán fórst.
Taka Sikorskyverksmiðjumar þátt
í þeirri rannsókn?
„Rannsókninni er stjómað af
hlutlausum aðilum, þ.e. íslensku
ríkisstjóminni og ríkistjóm Ame-
ríku í sameiningu. Þær hafa beðið
okkur um upplýsingar og við
höfum aðstoðað við rannsóknina
eins og okkur er unnt. En niður-
stöður liggja ekki enn fyrir og ég
býst við að þær liggi ekki fyrir á
nastu vikum.
Það var okkur mikið áfall þegar
TF-Rán fórst og ég vil nota tækifær-
ið og votta aðstandendum flug-
mannanna sem fómst með þyrl-
unni, og einnig ríkisstjóm fslands
og íslensku þjóðinni, okkar dýpstu
samúð.“ - GSH
erlent yfirlit
■ Zhao að heilsa bandarísku forsetahjónunum á tröppum Hvita hússins síðastliðinn þriðjudag,
m.a. þakkað því að uppskera
gekk betur á síðastliðnu ári en
hin árin.
Þá hefði fjölbreytni ýmissa
iðnaðarvara aukizt og verð lækk-
að á þeim sem væru ófullkomn-
astar.
Svipað ætti sér stað annars
staðar í Sovétríkjunum og mælt-
ist vel fyrir hjá almenningi, þótt
hann vænti meiri og skjótari
lausnar á fleiri sviðum neyzl-
uvara.
Hins vegar' skyggði það á
ánægju fólks yfir þessu, að stríðs-
óttinn hefði aukjzt, einkum eftir
að hafin var uppsetning banda-
rísku eldflauganna í Evrópu og
sovézk stjórnarvöld hefðu svar-
að með hótunum um að fjölga
eldflaugum sínum megin.
Þá ykju Bandaríkin vígbúnað-
inn og leiðtogar Sovétríkjanna
hefðu lýstyfirþví.að þeirmyndu
ekki láta Bandaríkin ná yfirburð-
um. Þctta yki byrðar Sovét-
þegna, og það yrði svo að taka
með í reikninginn, að þjóðar-
tekjur Rússa væru aðeins 70% af
þjóðartekjum Bandaríkja-
manna.
Greinsinnilýkurfréttaritarinn
með því að lýsa því, að rússneska
Reagan vill gera heimsókn
Zhaos að stórum atburði
Hann þarf á því að halda vegna Líbanons og El Salvadors
UM þessar mundir er minna rætt
í Washington um Líbanon, E1
.Salvador og Nicaragua en um
langt skeið. Þessi áhyggjumál
Bandaríkjamanna hafa þokað
um set vegna heimsóknar forsæt-
isráðherra Kína, Zhao Ziang.
Athygli bandarískra fjölmiðla
mun beinast mest að honum
meðan hann dvelst í Bandaríkj-
unum.
Af hálfu bandarískra stjórnar-
valda er reynt að gera þessa
heimsókn að mikilvægum at-
burði. Reagan forseti hyggst
bersýnilega rétta hlut sinn, eftir
ófarirnar í Líbanon og E1 Salva-
dör. með því að geta auglýst
batnandi sambúð Bandaríkj-
anna og Kína. Hann telur, að
það muni styrkja stöðu hans
heima fyrir og þá ekki síður í
viðureigninni við rússneska risa-
veldið.
Það þykir fullvíst, að meðan
Zhao dvelst í Bandaríkjunum
muni þeir Reagan undirrita fleiri
samninga um aukna samvinnu
og viðskipti ríkjanna.
Samkvæmt þeim verður sam-
vinna aukin á sviði tæknimála og
Kínverjum veittur aðgangur að
ýmsum tækninýjungum, sem far-
ið hefur verið með sem leyndar-
mál.
Samið verður um stóraukna
verzlun og reynt að ryðja úr
veginum ýmsum hömlum, sem
ríkin hafa beitt hvort um sig til
að vernda heimamarkaðinn.
Ymisleg menningarskipti
verða aukin, t.d. aukinn að-
gangur kínverskra námsmanna
aðbandarískum skólum. Banda-
ríkjamönnum verður gert auð-
veldara að heimsækja Kína.
Þannig mætti rekja þetta
áfram. Allt mun þetta auka trú á
bætta sambúð ríkjanna.
Helzta stórmálið, sem á milli
ber, mun þó vart verða leyst.
Það er krafa Kína um að Banda-
ríkin hætti að selja vopn til
Taiwan og rjúfi öll sérstök tengsl
við Taiwan.
Þó kynni Zhao að slaka á
þessari kröfu, ef Bandaríkin
lýstu yfir því, að þau viður-
kenndu að Taiwan væri hluti
Kína og höguðu samskiptum sín-
um við Kína í samræmi við það.
Kínversk stjórnarvöld hafa
látið í það skína, að þau gætu
veitt Taiwan og Hong Kong
■ Zhao að kveðja við brottförina frá Peking til Bandaríkjanna.
vissa sérstöðu, eftir innlimun
þeirra í Kína.
Fyrir Reagan er það næsta
erfitt og raunar ógerlegt að fall-
ast á að viðurkenna Taiwan sem
hluta Kínaveldis. Það yrði
stefnubreyting, sem gæti kostað
hann þúsundir atkvæða, ef hann
fer aftur í framboö.
LÍKLEGT þykir að Reagan
vilji láta viðræðurnar við Zhao
fá þann blæ, að Kína sé að
fjarlægjast Sovétríkin og taki
framyfir samvinnuna við Banda-
ríkin.
Zhao mun hins vegar vart fús
til að fallast á þetta. Hann mun
vilja halda sig áfram við þá
túlkun, að bæði risaveldin svo-
nefndu, þ.e. Bandaríkin og
Sovétríkin, fylgi yfirdrottnunar-
stefnu. Kínaeigi ekki samleið
með öðru þeirra frekar en
hinu, en geti samt átt við þau
friðsamleg skipti.
í samræmi við það hefur verið
viss bati í sambúð Kína og So-
vétríkjanna að undanförnu.
Stjórn Kína hefur látið ótvrírætt
í það skína, að þessi bati gæti
haldið áfram, ef Sovétríkin
drægju heim her sinn frá Afgan-
istan og Víetnam kallaði heim
herinn, sem dvelst í Kampútseu.
Það hefur vakið nokkra at-
hygli,aðíBeijingReview,viku -
riti.sem gefið er út á ensku af
ríkisforlagi í Peking (Beijing),
birtist 19. desember síðastliðinn
grein eftir fréttaritara blaðsins í
Moskvu, þar sem greint var frá
því, að ýms batamerki væru
sjáanleg þar, en slíkar frásagnir
eru óvenjulegar í kínverskum
blöðum.
Þannig hafði fréttaritarinn það
eftir húsmæðrum, sem stóðu í
biðröðum, að meira framboð
væri nú á kjöti, mjólkurvörum
og grænmeti en áður, og yfirleitt
væri hér um betri vörur að ræða
en tvö undanfarin ár. Þetta er
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
þjóðin sé andvíg styrjöld og æski
friðar og henni sé Ijóst, að víg-
búnaðurinn leiði ekki til góðs.
Þessi grein í Beijing Review
þykir merki þess, að stjórnendur
Kíria vilji frekar draga úr gagn-
rýni á rússneska stjórnarhætti en
hið gagnstæða. Það sé táknrænt
að þetta sé látið koma í Ijós um
það leyti, sem Zhao var að
undirbúa ferðina til Bandaríkj-
anna.
í BANDARÍSKUM fjölmiðl-
um er því haldið á loft, að Zhao
sé æðstur að völdum þeirra Kín-
verja, sem hafa sótt Bandaríkin
heim, og felist í því viss viður-
kcnning á bættri sambúð ríkj-
anna.
Að formi til er þetta rétt, en
efnislega ekki. Árið 1979 heim-
sótti DengXiaopingBandaríkin,
en Deng hefur í reynd verið
valdamesti leiðtogi Kína síðustu
árin. Hann hefur að verulegu
leyti dregið sig í hlé, enda að
verða áttræður. Samt er talið, að
hann ráði enn mestu á bak við
tjöldin.
Zhao á upphefð sína Deng að
þakka. Þeir áttu það sameigin-
legt að vera úti í kuldanum
meðan á menningarbyltingunni
svonefndu stóð. Deng hafði
komið auga á góða skipulags-
hæfileika Zhaos og lét það verða
eitt fyrsta verk sitt eftir að hann
kom til valda að fela honum
stjórnina í Sihuan-fylki, fjöl-
mennasta fylki Kína. Zhao tók
þar upp verulega breytt skipulag,
sem fólst í því að draga úr
miðstjórnarvaldi og auka sjálf-
stæði og samkeppni fyrirtækja.
Sumir telja hann hafa haft í huga
vissa reynslu frá Hong Kong, en
hann starfaði í héraðinu, sem
liggur að Hong Kong, fyrir
menningarbyltinguna.
Zhao náði svo góðum árangri
í Sihuan, að Deng fluiti hann til
Peking og fól honum hvert trún-
aðarstarfið á fætur öðru, unz
hann varð forsætisráðherra í
apríl 1980.
Margt þykir nú benda til, að
Zhao muni erfa sæti Dengs sem
voldugasti maður Kínaveldis.
Zhao hefur þótt koma vel fyrir í
heimsóknum sínum til Japans og
fleiri landa og vafalítið mun það
styrkja stöðu hans, ef hann fær
góð erindislok í Bandaríkjaferð-
inni.