Tíminn - 14.01.1984, Blaðsíða 2
„Kjör okkar
verri en við
verður unaðá<
— segja starfs-
menn útvarps
og sjónvarps
■ „Kjör okkar eru verri en svo að
við verði unað. Launamenn hafa sýnt
langlundargeð gagnvart þeim efna-
hagsráðstöfunum sem gripið hefur ver-
ið til þessar ráðstafanir hafa nær allar
verið á kostnað þeirra einna. Ríkis-
valdið boðar áframhaldandi kjara-
skerðinu," scgir m.a. í ályktu fjöl-
menns fundar starfsmannatelags út-
varps og sjónvarps sem haldinn var í
fyrrakvöld um launamál.
Þar segir jafnframt: „I Ijósi þess,
hvetjum við félagsmenn BSRB og
aðra launamcnn að snúast til varnar á
kröftugan hátt en gert er í kröfugerð
BSRB. Fylgist vel með viðbrögðum
ríkisvaldsins í komandi viðræðum um
kjaramál. Sláið ckki striki yfir kjara-
skerðinguna. Hyggið að baráttu-
leiðum".
’ - AB.
Norræna husiö:
Sýning á
verkum
C.F. Raut-
erswárd
■ ÁmorgunverðuropnuðtNorræna
húsinu sýning á verkum þessts sænsks
myndlistarmanns, Carls Fredriks
Reutcrswárd. Þar verða sýnd 27 verk
unnin á árunum 1955-65, cn listamað-
urinn telur það mjög mikilvægt tímabil
á ferl sínum. Sýningin er farandsýning
og kentur hingað frá Listasafninu í
Malmö.
Aðasteinn Ingólfsson listfræðingur
fjallar um Rcuterswárt í sýningarskrá
og segir þar meðal annars:
„Eins og Erró okkar er CFR heims-
borgari, býr innan um þotuferðalanga í
Svisslandi og er sjálfur á þeytingi milli
landa. Þar aðauki virtist CFR skipta um
vinnubrögð og stíi eins og aðrir skipta
um sokka, líkt og sá landi hans sem
honum er skyidastur í andanum, Öy-
vind Fahlström. í ofanálag er CFR
fjölfróði, vel lesinn í hugvísindum jafnt
sem raunvísindum, vitnar í James
Joyce og leikur sér mcð lasergeisla
jöfnum höndum. Og flækir þannigalla
skynjun hins venjulega áhorfanda.
CFR er í scnn afar flinkur handverks-
maður og myndbrjótur, sannfærður
fulltrúi hins klassíska Parísarskóla í
myndlist og Dadaisti. Hvorttveggja cr
honum jafn eiginlegt. Af því leiðir að
allur pósitífismi er scm eitur í hans
beinum: á hverju máli hljóta að vera
a.m.k. tvcir fletir jafngildir".
Sýningin í Norræníi húsinu verður
opindagl. kl. 14—19til 29janúarn.k.
■ Nappapels-sútaður herrajakki, mjúkur, hlýr og fallegur. Jakkinn er ófóðraður,
því loðnan á skinninu snýr inn, en ytra byrðið er með glansandi leðuráferð.
Rekstur Iðnaðardeildar Sambandsins:
Réttu megin
við strikið í
fyrsta
síðan
■ Iðnaðardeild Sambandsins kynnti
fyrir fréttamönnum ullar- og skinna-
vörur fyrirtækisins á Hótel Sögu sl.
Fimmtudag. Þar var haldin hin glæsileg-
asta tískusýning og var Bryndís Schram
kynnir.
Sérstaka athygli fólks vöktu íslenskir
Iambskinnspelsar og nappapels-jakkar
og kápur. Nappapels-vinnsla á skinnum
cr það nýjasta hjá verksntiðjunni, en
það er mokkaskinn, sem hefur verið
vatnsvarið sérstaklega og síðan með-
höndlað þannig, að á leðurhlið skinnsins
er ekki mokkaáferð, heldur leðuráferð.
Hjörtur Eiríksson, framkvæmda-
stjóri, bauð gesti velkomna og ræddi
síðan nokkuð um útflutningsmál og
rekstur Iðnaðardeildar. í viðtali við
blaðamenn sagði Hjörtur- er hann var
spurður um afkomu fyrirtækisins, - að
hún væri réttu megin við strikið, en það
hefði hún ekki verið síðan 1979. Meira
skipti
’79
jafnvægi væri nú í viðskiptum með
hjöðnun verðbólgu, og horfur í framtíð-
inni lofuðu góðu.
Forsvarsmenn ullar- og skinnaiðnað-
ardeilda Sambandsins sögðu að eftir-
spurn eftir framleiðslunni ykist stöðugt,
og markaðurinn stækkaði jafnt og þétt,
bæði í Austur- og Vestur-Evrópu, og
einnig vestan hafs. Nýlega hefur Iðnað-
ardeildin byrjað viðskipti við Japan og
Sovétríkin eru alltaf stór viðskiptavinur,
t.d. voru nýlega keyptar 10.000 mokka-
kápur til Sovétríkjanna.
Stór þemi Iðnaðardeildar Sambands-
ins varð 60 ára á sl. ári.
Um 1000 manns er á launaskrá alls
hjá Iðnaðardeild Sambandsins, og því
má eflaust telja hana fjölmennasta
vinnustað landsins.
Myndir frá tískusýningunni munu birt-
ast á síðu Heimilistímans nk. þriðjudag.
-BSt
Kynningarfundur SUF
um húsnæðismál:
,,Tel þennan fund
gott innlegg í
húsnædisumræduna’ ’
— segir Finnur Ingólfsson,
formaður SUF
■ „Ég tel þessi fundur sé gott innlegg
í umræðuna um húsnæðismálin“, sagði
Finnur Ingólfsson, formaður SUF, um
fræðslu- og kynningarfund SUF um
húsnæðismál, en fundurinn hefst í dag
kl. 13.30 í Hótel Hofi við Rauðarárstíg.
„Þegar við völdum frummælendur
höfðum við það að markmiði að sem
flest sjónarmið kæmust á framfæri. Þessi
fundur ætti því að vera gagnlegur þeim
sem vilja koma yfir sig þaki, en hafa t.d.
ekki kynnt sér upp á hvað er boðið, eða
hvað hugmyndir eru í gangi".
Finnur sagði að Alexander Stefáns-
son, félagsmálaráðherra, væri fyrstur á
dagskrá á fundinum, en hinir frummæl-
endurnireru: PéturH. Blöndal, formað-
ur Húseigendafélags Reykjavíkur, Jón
Rúnar Sveinsson, formaður Húsnæðis-
samvinnufélagsins Búseta, og Bjami Axels-
son, stjórnarformaður Byggingasam-
vinnufélagsins Aðalból. „Helgi Péturs-
son, fréttamaður, og Inga Þ. Kjartans-
dóttir, skrifstofumaður, munu stjórna
pallborðsumræðum, sem hefjast strax
eftir að framsöguerindum líkur. Áheyr-
endur geta komið fram með spurningar
að einnig geta frummælendurnir spurt
hvorn annan ef þeir hafa áhuga á. Þetta
fundaform hefur gefist vel og gerir fundi
mun líflegri en gerist og gengur", sagði
Finnur að lokum.
■ Úr Forsetaheimsókninni, f.v. Soffia Jakobsdóttir, Guðmundur Pálsson, Guðrún
Ásmundsdóttir, Kjartan Ragnarsson og Sigríður Hagalín.
Leikfélag Reykjavíkur:
Aftur miö-
nætursýningar
■ Miðnætursýningar LR á For-
setaheimsókninni sem hafa legið
niðri yfir hátíðarnar hefjast nú
aftur um helgina. Fyrsta sýningin
á þessu ári verður anað kvöld í
Austurbæjarbíói kl. 23.30. Mið-
nætursýningar LR haf notið
mikilla vinsælda og síðustu 10 árin
hafa séð þær 203.838 manns að því
er segir í frétt frá félaginu.
í kvöld og sunnudagskvöld verð-
ur bandaríska verðlaunajeikritið
Guð gaf mér eyra sýnt Iðnó og
annað kvöld Hart í bak eftir Jökul
Jakobsson. -JGK.
Gúmmí-Tarzan
í Kópavogi
■ Nú eru aftur að hefjast sýningar á
söngleiknum Gúmmí-Tarzan eftir Ole
Lund Kirkegaard, sem Leikfélag Kópa-
vogs hefur sýnt í vctur við miklar
vinsældir. Sýningar eru á iaugardögum
og sunnudögum í Félagsheimili Kópa-
vogs kl. 15 báða dagana. Símanúmer
miðasölu er 41985.
Stjórn Félags íslenskra sérkennara:
„Mótmælir harðlega þeirri mis
munun sem við gengist hefur„
—Athugasemd vegna viðtals við félagsmálaráðherra í Tímanum 4. janúar
■ í dagblaðinu Tímanum miðvikudag-
inn 4. jan. s.l. er rætt við Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra um Lög
um málefni fatlaðra sem tóku gildi 1.
jan. 1984. í þeim lögum eru sem kunnugt
er ákvæði um Framkvæmdasjóð fatlaðra
sem ætlað er að fjármagna nýbyggingar
skóla og annarra sérstofnana fyrir fatl-
aða.
í lögunum er skýrt tekið fram að þar
til kjörin stjórnarnefnd deili árlega út
ráðstöfunarfé sjóðsins.
Þrátt fyrir þessi skýru fyrirmæli lag-
anna verður ékki annað skilið af ummæl-
um ráðherra en að hann sé búinn að
ráðstafa fé sjóðsins árt þess að stjórnar-
nefndin hafi þar komið við sögu. Þetta
vekur furðu, ekki síst með tilliti til þess
að sjóðurinn hefur á þessu ári verið
mikið skertur - og þó nokkuð mikið
umfram aðra sjóði. Annað sem vekur
athygli eru þt^t ummæli ráðherra að fénu
verði í ár eingöngu varið til framkvæmda
sem falla rekstrarlega undir félagsmála-
ráðuneytið. Með öðrum orðum: Engu
fé skal í ár varið til framkvæmda á sviði
sérkennslumála. Ráðherra segir í viðtal-
inu að þegar hafnar framkvæmdir við
Öskj uhlíðarskóla muni verða stöðvaðar.
Stjórn Félags íslenskra sérkennara vill
benda á að allmörg undanfarin ár hafa
Öskjuhlíðarskóli og þjálfunarskólarnir
fyrir alvarlega þroskahhefta og fjölfatl-
aða nemendur haft á að sklpa kennara-
Iiði samkvæmt reglugerðum þar um.
Hér eru því stofnanir sem ekki síður er
tryggður rekstrargrundvöllur en þeim
nýju stofnunum sem ráðherra áformar
að taki til starfa á árinu. Það er þó vitað
mál, að nefndir skólar hafa búið við
allsendis ófullnægjandi húsnæðisaðstæð-
ur þau nær 10 ár sem grunnskólalögin
hafa verið í gildi. Fróðlegt væri að heyra
rökin fyrir því að nemendum og starfsliði
Öskjuhlíðarskóla og þjálfunarskól-
anna, er enn ætlað að sitja á hakanum,
á sama tíma og gert er ráð fyrir að
umsvifalaust séu byggð ný hús yfir
stofnanir sem félagsmálaráðuneytinu er
skylt að koma á fót. Hvers vegna í
ósköpunum er ekki unnt að hefja rekstur
nýrra og nauðsynlegra stofnanna á veg-
um félagsmálaráðuneytisins f leiguhús-
næði eins og venjan hefur verið með
skólana fyrir fatláða? Stjórn Félags ís-
lenskra sérkennara mótmælir harðlega
þeirri mismunun sem viðgengist hefur í
þessum efnum og skorar á þá stjórnar-
nefnd, sem lög gera ráð fyrir að fjalli um
málið, að íhuga vandlega hvernig verja
skuli því takmarkaða fé sem til ráð-
stöfunar er úr Framkvæmdasjjóði fatl-
aðra.
Stjórn Félags íslenskra sérkennara