Tíminn - 14.01.1984, Síða 3
* • <
I •
sandi
■ Ótíðin að undanförnu hefur valdið
miklum truflunum víða um land á
símaþjónustu, póstferðum og öðrum
samgöngum.
Þannig voru bæir á Rauðasandi án
símasambands í 10 daga umáramótin.
Áramótablöin bárust þangað fyrst í gær.
Oft hafa samgöngur við Patreksfjörð
stöðvast og því m.a. orðið að hella niður
mjólk.
Frakkar og
Bandarfkja-
menn bjóda
stjórnvöldum
þyrlur
■ Fulltrúar bandarísku flugvélaverk-
smiðjanna Síkowsky gengu á fund Stein-
gríms Hermannssonar forsætisráðherra
í því sjónarmiði að kynna honum þyrlur,
sem þeir vilja selja íslenskum stjórnvöld-
um, sem arftaka þyrlunnar sem fórst.
„Frakkarnir komu hérna um daginn,
og kynntu sínar þyrlur. Ég held að báðir
aðilar hafi áhuga á að selja okkur
þyrlur,“ sagði forsætisráðherra í samtali
við Tímann í gær, „þeir ætla báðir að
gera tilboð í endurnýjun á þessari þyrlu
sem fórst en ég þori á þessu stigi ekkert
um það að segja hvor aðilinn býður
betur. Hins vegar held ég að þessir tveir
aðilar séu þeir sem öflugastir eru á þessu
sviði, og líklegastir til þess að bjóða vel.“
- AB.
Norræna húsið
á sunnudag:
Sænskur bassi í
heimsókn
■ Sven-Anders Benktsson, sænskur
bassasöngvari, heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu ásunnudaginn kl. 15.00. Þar
syngur hann m.a. aríur eftir Tchaikow-
sky, Verdi, og Rossini og sönglög eftir
Mozart, Beethoven og Schubert. Með-
leikari hans á píanó verður Carl-Otto
Erasmie.
Sven-Anders Benktsson hefur það
sem kallað er á fagmál basso-profundo
rödd, eða mjög djúpa bassarödd og
hefur lagt áherslu á að flytja verk sem
samin eru fyrir þá raddgerð en þau eru
sjaldheyrð. Benktsson mun einnig koma
fram með Sinfóníuhljómsveit íslands
fimmtudaginn 19. þ.m. í verki pólska
tónskáldsins Krysztof Pendereckis, Dies
irae.
— um að beita sér fyrir að
Ótíð á
Rauða
- JGK.
útburðinum á Akureyri
verði frestað
■ Jóni Helgasyni dómsmálaráðherra
voru afhentir í gær tæplega 600 undir
skriftir undir áskorun um að hann beiti sér
fyrir að útburði hjónanna á Þingvalla-
stræti 22 á Akureyri, yrði frestað þar til
Mannréttindanefnd Evrópuráðsins hefði
fjallað um málið. Einnig var skorað á
dómsmálaráðherra að hann beitti sér
fyrir að lög sem útburðardómurinn
byggist á verð endurskoðuð.
Samkvæmt kröfu dómhafa verður út-
burðurinn framkvæmdur næsta þriðju-
dag. Að sögn Ólafs Rafns Jónssonar á
Þingvallastræti 22 verður útburðarmálið
væntanlega tekið fyrirhjá Mannréttinda-
nefndinni fyrri hluta febrúarmánaðar,
en þar verður tekin ákvörðun um hvort
því verður vísað áfram til Mannréttinda-
dómstóls Evrópuráðsins.
- GSH.
Kolbeinn Sigurbjörnsson afhendir Jóni Heigasyni dómsmálaráðherra undirskriftalistana.
Tímamynd GE.
FORMLEGA
GENGIÐ FRÁ
STOFNUN Á
NÚTÍMANUM
■ Framhaldsstofnfundur Nútímans
hf. félagsins sem tekur við rekstri
Tímans þann 1. apríl nk. var haldinn í
fyrrakvöld, og fór stjórnarkjör þannig
að aðalmenn í stjórn voru kjörnir þeir
Þorsteinn Ólafsson, Hákon Sigur-
grímsson og Haukur Ingibergsson, allir
tilnefndir af Steingrími Hermannssyni
formanni Framsóknarflokksins sem
fór á fundinum með atkvæðisrétt
flokksins, 40%. Auk þeirra voru
kjörnir þeir Hallgrímur Sigurðsson og
Einar Birnir, tilnefndir af Yilhjálmi
Jónssyni. Fulltrúar ritstjórnar Tímans,
í hópi hluthafa buðu fram mann úr
sínum röðum, Skafta Jónsson, en því
fór fjarri að hann næði kjöri.
■ Ritstjórn Tímans fjölmennti að sjálfsögðu á fundinn, og studdi framboðskand-
ídat sinn í stjómarkjörinu, hváð lítið stoðaði.
■ Menn skipuðu séð í röð og sóttu atkvæðisseðla í hendur Eiríks Tómassonar
og fleirí, áður en stjórnarkjör fór fram. Fyrir miðri mynd era þeir Guðmundur
Bjarnason alþingismaður og Ólafur Jónsson tollvörður. Tímamyndir - Róbert.
Atkvæði félllu á þann veg að Hákon
og Þorsteinn hlutu 6740 atkvæði Hauk-
ur hlaut 6725 atkvæði Einar Birnir
hlaut 800atkvæði, HallgrímurSigurðs- .
son hlaut 780 atkvæði og Skafti hlaut
205 atkvæði. Formaður flokksins beitti
aðeins atkvæðum flokksins í atkvæða-
greiðslu um þá sem voru tilnefndir. í
öðrum tilvikum sat hann hjá. Áður en
til stjórnarkjörs kom var stofnsamn-
ingur fyrir Nútímann kynntur og sam-
þykktur, svo og samþykktir fyrir félag-
ið.
í stofnsamningnum er m.a. kveðið á
um að hlutafé félagsins sé ákveðið 15
milljónir króna og að hlutabréf skiptist
í 1000, 5000, 10.000 og 100.000 króna .
var fundarstjóri.
hlut. Eitt atkvæði fylgir hverjum 1000
króna hlut.
Fimmta grein samningsins er svo
hljóðandi: „Framsóknarflokkurinn
lætur félaginu í té nafnið „Tíminn",
ásamt áskriftum að samnefndu dag-
blaði, ljósmyndasafni, og viðskipta-
samböndum þess hinn 1. apríl 1984.
Viðskiptavild þessi er metin á 6 mill-
jónir króna og skuldbindur Framsókn-
arflokkurinn sig til þess að taka við
hlutabréfum í félaginu fyrir sömu upp-
■ Þessi mynd gæti heitið samsærið, en hún er tekin þegar formaður flokksins,
Steingrímur Hermannsson og þrír þeirra sem voru kosnir í stjórn Nútímans stinga
saman nefjum, áður en stjórnarkjör fór fram. Sitjandi er Haukur Ingibergsson;
Steingrímur stendur á milli þeirra Hákons Ingibergssonar og Einars Birnis.
hæð enda skoðist það sem full og
endanleg greiðsla fyrir umrædda við-
skiptavild.“
Tíminn ræddi stuttlega í gær við
Hákon Sigurgrímsson, annan þeirra
sem hlaut flest atkvæði í stjórnarkjör-
inu. Hann var spurður hvenær fyrsti
stjórnarfundurinn yrði haldinn í nýju
stjórninni. „Við reiknum með að halda
fyrsta stjórnarfund nú á þriðjudaginn.
Það er ekki mögulegt fyrr, þar sem
einn stjórnarmanna er ekki á landinu.
Á þessum fyrsta fundi munum við
skipta með okkur verkum."
- Verður eitthvað annað gert á
þessum fyrsta fundi nýju stjórnarinn-
ar?
„Stjórnin mun taka til óspilltra mál-
anna við verkefni sín, og númer eitt er
að ganga frá ráðningu starfsmanna.“
- Hafið þið einhver tímamörk í
huga í því sambandi? „.Við munum
flýta því eins og mögulegt er.“
Rétt er að geta þess hér, að í
stofnsamningi félagsins segir í 9. grein
að að félagið taki við útgáfu Tímans og
öllum eignum þeim, er tilheyra blaðinu
frá 1. apríl 1984. Um leið taki félagið
að sér greiðslu á ákveðnum skuldum
sem nemi samtals jafnhárri upphæð og
bókfært verð eignanna miðað við 1.
janúar 1984. Aðrarskuldirdagblaðsins
Tímans sé félaginu óviðkomandi.
- AB
Dómsmála-
ráðherra fær
600áskoranir