Tíminn - 14.01.1984, Blaðsíða 9
8
bridge
10 heimsmeistarar
á Bridgehátíð ’84
■ Bridgehátíð 1984 verður ekki síður
skipuð spilurum en undanfarnar bridgehátíð-
ir, einsog áður hefur komið fram hér í
blaðinu. A.m.k. fjórir heimsmeistarar hafa
staðfest þátttöku sína og afgangurinn af
gestunum er ekki af verri endanum. Stærsti
viðburðurinn er auðvitað koma Belladonna
og Garozzo. Belladonna hefur oftast allra
orðið heimsmeistari í bridge eða 13 sinnum
og hann.er einnig stigahæsti spilari heims
Garozzo hefur að vísu ekki jafn marga titla
til að státa sig af en hann hefur alla jafna
verið talinn einna fremstur meðal jafningja í
hópi bestu spilamanna heimsins.
Frá Ítalíu kemur einnig Dano DeFalco
sem einu sinni hefur orðið heimsmeistari, en
hann á marga Evrópumeistaratitla f safni
sínu. Hann mun spila við fsraelsmann,
Tapeia. Þessir fjórir spilarar munu, eftir þvf
sem ég hef hlerað, spila saman reglulega í
sveit á ftalíu.
Alan Sontag hefur þegar komið á tvær
Bridgehátíðir og hann er væntanlegur á þá
þriðju. Síðan hann heimsótti okkur á síðasta
ári hefur hann unnið heimsmeistaramótið í
bridge eins og mönnum er sjálfsagt í fersku
minni. Sveitarfélagar Sontag að þessu sinni
eru ekki jafn frægir og þeir sem áður hafa
komið hingað með honum, og reyndar er
ekki fullljóst hverjir koma. Þó er víst að
Mark Molson, sem spilaði hér á síðustu
Bridgehátíð, kemur aftur. Stjarna Molson
fer sífellt hækkandi í Ameríkunni og þó hann
hafi ekki unnið til stórverðlauna er hann að
verða fastagestur í undanúrslitum og úrslitum
helstu móta í Ameríku.
Þriðji maður í sveit Sontag verður Steve
Sion. Sionþótti veraefnilegasti ungispilarinn
sem kom upp á árunum fyrir 1980, og á
tímabili vann hann nokkur helstu mót í
Ameríku. En slíkir spilarar eignast alltaf
öfundarmenn og Sion var skyndilega ákærð-
ur, ásamt félaga sínum Kokin, fyrir svindl.
Allur málareksturinn var óljós en endinn
varð sá að Sion og Kokin voru reknir úr
ameríska bridgesambandinu. Þeir höföuðu
skaðabótamál gegn bridgesambandinu og
það mál var að velkjast í dómskerfinu þar til
í sumar að málinu lauk skyndilega mcð
dómssátt: Sion og Kokin féllu frá kröfum
sínum á hendur bridgesambandinu, og voru
teknir aftur í bridgesambandiö með því
skilyrði að þeir spiluðu ekki saman?!
Fjórði maður í sveit Sontag er ekki ákveð-
inn. Til stóð að fyrrnefndur Kokin kæmi en
af því mun líklega ekki verða og heíur nafn
Erik Kokish verið nefnt í staöinn. Það væri
fengur af að fá Kokish til landsins því hann
er, auk þess að vera spilari á hcimsmæli-
kvarða, eipn afkastamesti bridgeblaðamaður
heims og skrifar greinar í ótrúlegan fjölda
blaða. Sjálfsagt myndi Bridgehátíð fáalþjóð-
lega umfjöllun ef Kokish liti hér við.
Tony Sowter og Steve Lodge frá Bretlandi
munu einnig koma á Bridgehátíð einsog í
fyrra og þeir þurfa ekki frekari kynningar
við. Möller og Blakset var einnig boðið en
þeir sáu sér ekki fært að koma og cr nú unniö
að því að fá hingað sænskt par í staðinn.
Sjálfsagt munu fleiri koma hingað á eigin
vegum.
Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni
Að loknum 4 umferðum í undunkcppni
mótsins er staða efstu sveita þessi:
Úrval 62
Samvinnuferðir 60
Runólfur Pálsson 58
Þorfinnur Karlsson 56
Guðbrandur Sigurbergsson 50
Ólafur Lárusson 49
Gestur Jónsson 46
Bridgedeild Breidfírðinga
42 pör taka þátt í aðaltvimenning félagsins.
Eftir eitt kvöld af sjö er staða efstu para þessi:
Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson 114
Björn Theodórsson - Erna Hrólfsdóttir 107
Erla Eyjólfsdóttir - Gunnar Þorkelsson 105
Jón G. Jónsson - Magnús Oddsson 88
Ása Jóhannesdóttir - Sigríður Pálsdóttir 87
Halldór Helgason - Sveinn Helgason 83
Albert Þorsteinsson - Jón Stefánsson 79
Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 77
Aðalsveitakeppni félagsins lauk með sigri
sveitar Ingibjargar Halldórsdóttur sem hlaut
276 stig. Næst varð sveit Sigurðar Ámunda-
sonar með 263 stig, en í 3.-4. sæti voru sveitir
Helga Nielsen og Hans Nielsen með 250 stig.
Sveit Helga hreppti 3. sætið á innbyrðisleik.
„TBK“
Stjórnarfundur TBK var haldinn í lok
desembermánaðar. M.a. var ákveðið að
félagsgjöld yrðu tekin upp að nýju. Einstakl-
ingar greiði kr. 150 fyrir árið en hjón skráð í
TBK kr. 200 sameiginlega. Fyrirhugað er að
aðalsveitakeppni félagsins verði spiluð cftir
Monrad-kerfi sem óneitanlega getur gert
keppnina jafna og spennandi, hún yrði 7-9
kvöld með heilum leikjum. Nú einhverja
helgina (óákveðið) verður reynt að fara með
6. sveitir til Keflavíkur, við skuldum þeim
semsé heimboð, allt í lagi með það.
Nú síðastliðinn fimmtudag 12. janúar var
háður eins kvölds tvímenningur, spilað var í
1.14. para riðli og urðu úrslit sem hér segir:
I. Júlíus Guðmundsson -
Bernharð Guðmundsson 210
2. Bragi Jónsson -
Ingólfur Böðvarsson 188
3. Anton R. Gunnarsson -
Friðjón ÞórhaHsson 182
meðalskor 156
Næstkomandi fimmtudag 19. jan. verður
aftur spilaður eins kvölds tvímenningur.
Ekki verður spilað hjá TBK 26. jan en þá er
Reykjavíkurmótið í fullum gangi í Domus,
þannig að aðalsveitakeppnin hefst eigi fyrr
cn 2. febrúar. Við hjáTBK vonumst eftir því
að sjá ykkur öll og jafnvel þótt þið séuð ekki
í eða með sveit, þá er óhætt að láta sjá sig,
það er aldrei að vita nema sé hægt að mynda
eina til tvær sveitir ykkur staka fólkinu til
ánægju. Spilaðer í Domus Medica. Keppnis-
stjóri er Ágnar Jörgensen.
Bridgefélag Akureyrar
Nú er lokið sveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar, Akureyrarmóti. Alls spiluðu 20
sveitir og voru spilaðir tveir 16 spila leikir
hvert spilakvöld. Akureyrarmeistari að þessu
sinni varð' sveit Stefáns Ragnarssonar sem
sigraði með yfirburðum. Sigraði sveitin í
öllum sínum leikjum og sýnir það að þeir
félagar eru vel að þessum sigri komnir. Auk
Stefáns eru í sveitinni Pétur Guðjónsson,
Þórarinn B. Jónsson, Páll Jónsson og Þor-
móður Einarsson.
Röð efstu sveita varð þessi: stig
1. Sveit Stefáris Ragnarss. 337
2. Sveit Harðar Steinbergss. 293
3. Sveit Páls Pálssonar 279
4. Sveit Jóns Stefánssonar 265
5. Sveit Júlíusar Thorarensen 260
6. Sveit Arnar Einarssonar 252
7. Sveit Antons Haraldssonar 231
8. Sveit Stefáns Vilhjálmss. 225
Keppnisstjóri B.A. er Albert Sigurðsson.
Tvímenningur, Akureyrarmót hefst þriðju-
daginn 10. janúar í Félagsborg stundvíslega
kl, 19.30.
Bridgefélag Breiðholts
Þriðjudaginn 10. jan. var spilaður eins
kvölds tvímenningur í tveimur 10 para
riðlum. Úrslit urðu þessi:
A-riðill
1. Guðjón Jónsson -
Gunnar Guðmundsson 128
2. Guðmundur Grétarsson -
Stefán Jónsson 121
3. Anton Gunnarsson -
Árni Alexandersson 118
B-riðill
1. Sveinn Sigurgeirsson -
Baldur Árnason 124
2. Dagbjartur Grímsson -
Tómas Sigurjónsson 120
3. Guðmundur Sigursteinsson -
Steingrímur Þórisson 116
Meðalskor 108
Næsta þriðjudag hefst sveitakeppni félags-
ins. Hægt er að skrá sveitir hjá Baldri í síma
78055. Spilamennska hefst að venju kl.
19.30. Spilað er í Gerðubergi. Keppnisstjóri
er Hermann Lárusson.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Síðasta mánudag var spilaður eins kvöld
tvímenningur með þátttöku 22 para. Þar með
telst upphitun spilara lokið og alvaran hefst
með 4 kvölda barómeter næsta mánudag.
Spilin verða tölvugefin og fá spilarar að vita
skorina jafnóðum og spilað er. Fjöldi spila
fer að nokkru leyti eftir þátttöku en stefnt er
að því að ekki færri en 5 spil verði á milli
para. Spilað er í Iþróttahúsinu við Strandgötu
og hefst spilamennskan kl. 7.30.
Úrslit síðasta kvölds:
A-riðill
I. Einar Sigurðsson -
Sigurður Sigurjónsson 133
2. Eysteinn Einarsson - Ragnar Halldórsson 125
3. Guðbrandur Sigurbergsson - Þórarinn Sófusson 119
B-riðill 1. Árni M. Björnsson - Hermann Lárusson 120
2. Björn Eysteinsson - Kristófer Magnússon 119
3. Björn Svavarson - Ólafur Torfason 118
Allir nýir spilarar eru velkomnir.
Frá Bridgesambandi íslands
Meistarastigaskráin verður gefin út í ca.
2000 eintökum og er stefnt að því að allir
félagsmenn sambandsins fái hana. Öll gögn í
skrána þurfa að berast skrifstofunni í síðasta
lagi mánudaginn 16. janúar, en þá verður
skrifstofan opin til klukkan 21. Ef þið eruð á
leiðinni með stig eða upplýsingar um félögin
sem þið viljið koma í skrána, þá getið þið
hringt á skrifstofuna á mánudaginn 16.
janúar og látið okkur vita að þau séu á
leiðinni, er þá hægt að gefa smá frest.
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1984
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1984
íþróttir
umsjón: Samúel Öm Erlingsson
IÞR0TT1R
HELGARINNAR:
HANBOLTI:
■ Þetta er sannkölluð handboitahelgi. Evr-
ópuleikur í gær, Evrópuleikur í dag, Evrópu-
leikur á morgun. í dag er það Tatabanya sem
lendir í að reyna að verja heiður sinn í
Hafnarfirði gegn FH, og er það ckki öfundsven
hlutskipti, viðureignin hefst klukkan 14.30. Á
morgun er síðari viðureign KR og Maccaby Le
Zion, og hefst klukkan 20.00 ( Höllinni.
- En handboltinn skoppar víðar. Einn leikur
er í fyrstu deild karla t dag. Valur og Stjarnan
keppa t Laugardalshöll klukkan 14.00. í
kvennadeildinni er nóg að gerast, FH og KR í
dag klukkan 16.00 í Hafnarfirði, og á morgun:
Valur-Fram klukkan 13.00, ÍR-Akranes kl.
14.15, og Fvlkir-Víkingur kl. 15.30, alll í
Höllinni. - I annarri deild karla: HK-Fram
klukkan 14.(K) í Digranesi.
KÖRFUB0LTI:
■ Úrvaldsdeildin á fullu, t gær, dag og á
morgun. KR og Njarðvík, toppliðin, mætast í
dag klukkan 14.00 í Hagaskóla, og á morgun
keppa {R og Valúr í Seljaskóla klukkan 20.00.
Þar er fyrsti leikur Péturs Guðmundssonar með
ÍR.
{1. deild kvenna keppa í dag KR og Njarðvík
í Hagaskóla kl. 15.30, og Snæfell-Haukar í
Borgarnesi kl. 14.00. - í 1. deild karla keppa
Grindavík og ÍS í Njarðvík í dag kl. 14.00, og
á morgun Laugdælir og Skallagrímur á Selfossi
kl. 14.00.
í Bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins
er í dag leikur, Keflvíkingar fara norður á
Akureyri og eiga við Þór, klukkan 14.00. Nóg
að gera hjá Kefivíkingum, þeir léku við Hauka
í gærkvöld. Annar leikurer í Bikarkeppninni á
morgun, Breiðablik og Haukar klukkan 14.00
í Kópavogi.
BLAK:
■ Bikarkeppni BÍaksambandsins er í fullum
gangi um helgina. Þar ber hæst leik tveggja
efstu liða í 1. deild karla, setn drógust saman í
1. umferð, blakunnendum til mikillar hrelling-
ar. HK fær Þrótt í heimsókn. á morgun, og
lcika liðin klukkan 15.30 í Digrancsi. Aðrirþrít
leikir eru í Bikarkeppninni á morgun, allir í
Hagaskóla. Fram-Breiðablik kl. 14.00 í karla-
flokki, og í kvennaflokki ÍS-Breiðablik kl.
15.20, og Þróttur-Víkingur kl. 16.40.
JÚDÓ:
■ Sveitakeppni Júdósambands íslands er í
dag. Hún hefst klukkan 15.00 í íþróttahúsi
Kennaraháskólans, og verður glímt til þrautar
í dag. Þarna verða að líkindum allir sterkustu
júdókappar landsins, og áreiðanlega gaman
fyrir júdóunnendur.
HLAUP:
■ Annað Stjörnuhlaup FH er í dag, og hefst
við Lækjarskóla kl. 14.00, ágætt fyrir þá sem
ekki komast að sjá handboitann. Karlar hlaupa
5 km, konur og drengir 3 km og piltar og telpur
1,5 km. Umsjón hefur Sigurður Haraldsson í
stma 52403.
Bikarkeppni KKÍ
■ Eftirtaldir leikir hafa verið settir á í Bikarkeppni
Körfuknattleikssambands (slands:
Mcistaraflokkur karla:
14. janúar:
Þór-Keflavík.............Akureyri
15. janúar:
Breiðablik-Haukar........Digranes
20. janúar:
Akranes-Grindavík .......Akranes
Aðrir flokkar:
14. janúar:
3.fl.ka: Grindavik-Akranes
(Grindavík leikur heimaleiki í Njarðvík)
15. janúar:
2.0. ka: Njarðvík-KR ..............kl. 16.00
3. fl. ka: Njarðvík-KR .............kl. 14.30
4. fl.ka: Njarðvík-Haukar...........kl. 13.00
20. janúar:
2. fl. ka: Keflavík-Fram...........kl. 21.30
2. fl.kv: Keflavík-Haukar...........kl. 20.00
-SÖE
14.00
20.00
kl. 15.30
Besti kafli KR-inga kemur loks eftir
þessi mörk og minnka KR-ingar muninn
niður í tvö mörk. Aðeins lifnaði yfir
áhorfendum á þessum kafla sem lítið
létu til sín heyra og virtust þeir vera álíka
daufir og leikmenn KR. Staðan var
orðin 14-12 Maccabi í vil en næstu fjögur
mörk komu frá Maccabi og öruggur
sigur var í höfn hjá þessu liði sem hefur
komið langan veg til að spila Evrópuleik-
ina við KR. KR-ingum tókst þó að
minnka þennan mun og endaði leikurinn
með þriggja marka sigri Maccabi.
Leikmenn KR höfðu litla vitneskju
um lið þetta að undanskildu því að þeir
fengu myndbandspólu frá Dalheim í
Svíþjóð en lið Maccabi lagði sænska
liðið í 16 liða úrslitum. KR-ingar ættu
því að vita betur að hverju þeir ganga í
seinni leiknum. Lið þetta er mun sterk-
ara en liðið sem FH-ingar léku við fyrir
áramót í IHF keppninni. Sóknarleikur
KR-inga var mjög lélegur í leik þessum
og verða þeir að vera mun beittari í
honum í síðari leiknum og eru þá góðir
möguleikar fyrir KR-inga að komast
áfram og ckki síst ef áhorfendur fjöl-
menna á síðar leikinn og hvetja KR-inga
til sigurs.
Atkvæðamestur í liði Maccabi Rashon
Le Zion var Oslander Yosef og var hann
markahæstur sinna félaga, skoraði sex
mörk. Lið þetta þætti lélegt hér á landi
þó að þeir hafi unnið sigur í gærkvöldi.
Björn Pétursson, leikmaður KR, sagði
eftir leikinn að sóknarleikur KR-inga
segir Atli Hilmarsson leikmaður FK-Tatabanya í dag
■ Hér hefur Jakob Jónsson komist framhjá Chaim og er á góðri leið með að skora.
— sigrudu 19:16 f fyrri leiknum
■ „Við tökum þetta eins og hvem
annan leik, við leggjum okkur alla fram,
við vitum hvað þeir geta, og líka hvað
við getum, og emm klárir á að við getum
unnið leikin", sagði Atli Hiimarsson,
leikmaður FH í Hafnarfirði í samtali við
Tímann í gær, en í dag leika FH-ingar
síðari leik sinn gegn Tatabanya frá
Ungverjalandi. Ungverjarnir sigmðu í
fyrri leiknum 35-27, og verða því FH-ing-
ar að vinna þá minnst með 8 marka mun,
8 mörk duga ef um lægri tölur verður að
ræða en í en í Ungverjalandi, en annars
verður munurinn að verða 9 mörk eða
fleiri. „Við emm vissir um að geta unnið
leikinn, hvort við náum að vinna með
nógu miklum mun er annað mál, við
verðum þá að leggja okkur alla fram og
vel það“, bætti Atli við.
„Þetta lið, Tatabanya, er dálítið svip-
að okkur, hugsar mikið um sóknarleik-
inn. Þetta er aðallega spurning um
varnarleikinn hjá okkur. Hjá þeim er
einn leikmaður, sem við vissum mjög
lítið urn fyrir leikinn úti, 21 árs landsliðs-
maður, Marazi að nafni. Hann skoraði
12 mörk, flest fyrir utan og á ýmsan
máta. Hann er mjög erfitt að stöðva. Svo
er hornamaðurinn Kontra, hann er mjög
góður, sá besti sem maður hefur séð.
Svo hafa þeir þriðja landsliðsmarkvörð
að vísu þekktir fyrir að tapa á útivöllum,
en vinna allt heima. Honved er t.d. búið
að tapa einum leik í ungversku deildinni
í ár, og það var í Tatabanya, en allt getur
gerst. - En við erum ákveðnir í að vinna,
það er mikið mál fyrir okkur.“
- Eruð þið með eiphverjar sérstakar
leyniuppskriftir í bígerð fyrir leikinn?
„Ég veit varla hvað skal segja, um
það, við förum einfaldlega út í þennan
leik miðað við það sem var úti, og við
verðum að stöðva þennan 12 marka
mann, svo og Kontra, og ætlum okkur
sérstakar aðferðir við það, við verðum
að halda þeim niðri, það er númer eitt“,
sagði Atli Hilmarsson. -SÖE
„Það er nóg
af miðum”
— ekki víst ad hægt verði
að sjónvarpa
■ Það er nóg til af miðum á leikinn,
og alger misskilningur að það sé löngu
uppselt á leik FH og Tatabanya. Ég vil
bara hvetja fólk til að koma og styðja
okkur, okkur er lítill stuðningur að
þeim sem sitja heima í stofu", sagði
Egill Bjarnason formaður Handknatt-
leiksdeildar FH í samtali við Tímann í
gær.
Það á að reyna að sjónvarpa leiknum
beint, en að því er mér skilst getur
slæmt veður komið í veg fyrir að það
takist, vegna tæknilegra erfiðleika á að
koma sendingunni", sagði Egili.
FH-ingar ætla að byrja að selja miða
i dag klukkan 12 í íþróttahúsinu. Allar
líkur eru á að fólk fái því miða, ef það
flýtir sér, og enginn ætti að vera
svikinn af leiknum, tvö sóknarlið og
nóg af mörkum. -SÖE
■ Maccabi Rishon Le Zion,
bikarmeistarar ísraels í hand-
knattleik sigruðu fulltrúa
íslands, KR í Evrópukeppni
bikarhafa í gærkvöldi þegar
liðin léku fyrri leik sinn í 8 liða
úrslitum. Leikurinn sem var
slakur, endaði með sigri Macc-
abi 19 mörkum gegn 16. KR-
ingar náðu sér aldrei á strik á
meðan lið Maccabi lék agað
og þar að auki nógu vel til að
leggja slaka KR-inga.
Fyrri hálfleikur var sá slakasti sem
undirritaður hefur orðið vitni að milli
liðs frá íslandi og erlends liðs. Bashan
Dror náði strax forystu fyrir lið sitt en
KR-ingar náðu að jafna og var það
gamla kempan Björn Pétursson sem þar
var á ferð. Þrjú næstu mörk voru frá
gestunum en Guðmundur Albertsson
minnkar muninn niður um eitt mark, úr
víti. Aftur fylgja þrjú mörk frá ísraels-
mönnum og staðan orðin 7-2 Maccabi í
vil. Guðmundur Albertsson skorar nú úr
víti og Gísli Felix ver víti. Þetta var
skammgóður vermir því Guðmundur
skýtur framhjá úr víti strax á eftir.
Staðan í hálfleik var 9-4 og ættu tölurnar
að tala sínu máli um gang fyrir hálfleiks.
Druker Yoac eykur strax forystu sinna
manna um eitt mark í upphafi síðari
hálfleiks. Jakob minnkar aftur muninn
en Chaim skorar ellefta mark Maccabi.
■ Atli Hilmarsson
— segir Björn Pétursson
Ungverja, hann varði ekki mikið á móti
okkur um daginn, að vísu, en hann á að
vera nokkuð góður.“
- Spilar þetta lið vörnina illa?
„Já, maður varð hreinlega hissa á
þeim færum sem maður fékk. Maðurfór
inn í vörnina, og þá var allt í einu allt
frítt. - En það getur allt gerst, þeir eru
ppVið vitum að við
jgetum unnið pú"
■ „Við vitum að hverju við
göngum“, saðgi Björn Pétursson
leikmaður KR þegar hann var
spurður um möguleika KR í
síðari leik sínum við lið Maccabi
Rashon LE Zion frá ísrael eftir
fyrri leikinn í gærkvöldi.
„Við ættum að geta unnið upp
þennan mun“ sagði Björn enn-
fremur og ætti að vera hægt að
taka undir orð hans. KR-ingar
munu örugglega standa sig betur
í leiknum sem leikinn verður í
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöldkl. 20.00. Þaðsem aðallega
vantaði í leiknum í gærkvöldi
■ Við eigum góða möguleika segir
Björn KR-ingur Pétursson.
fyrir utan betri'sóknarleik voru
fleiri áhorfendur og meiri hvatn-
ing frá þeim áhorfendum sem
mættu.
Þetta er einungis fyrri hálf-
leikur og ætti það ekki að vera
neitt mikið að vinna upp þrjú
mörk. Annað eins hafa íslenskir
handknattleiksmenn gert og ekki
síst vegna hvatningar frá áhorf-
endum.
Þorvarður Höskuldsson fram-
kvæmdastjóri handknattleiks-
deildar KR sagði eftir leikinn í
gærkvöldi. „Þaðeru möguleikar.
Við þurfum að spila eins og
menn og það getum við.“ Undir
þessi orð tökum við og mætum í
Höllina á sunnudagskvöld klukk-
an 20.00 til að hvetja KR-inga í
undanúrslitin.
-BH
PÁLMAR FÚR AF STAD
OG HAUKAR UNNU ÍBK
— Pálmar gerði 30 stig í leiknum
■ Pálmar reyndist félögum sínum í
Haukum betri en enginn er liðið mætti
Keflvíkingum í Úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Keflavík í gærkveldi. Keflvík-
ingar leiddu 45-39 þegar skammt var
eftir af síðari hálfleiknum, en þá tók
Pálmar Sigurðsson, eins og hann heitir
fullu nafni á sig mikið rögg og kom liði
sínu yfir, 51-47. Lokatölur urðu síðan
59-55 fyrir gestina hafnflrsku.
Leikur þessi var mjög skemmtilegur á
að horfa, baráttan mikil svo og kappið
og varnirnar firnasterkar eins og sést á
lokatölunum, stigaskorun í algjöru lág-
marki.
Leikurinn var jafn upp í 16-16 en þá
sigu Keflvíkingar fram úr og komust í
23-17, og síðan 27-23. Staðan í hálfleik
var svo 31-30 fyrir hina gulklæddu Kefl-
víkinga.
Haukarnir voru hálflélegir í upphafi
síðari hálfleiks, allavega það lélegir að
Keflvíkingar bættu við forskotið og kom-
ust í 41-32 og síðan var staðan 45-39. Þá
tók hinn geðþekki og greindi körfuknatt-
leiksmaður frá ullarborginni Hafnarfirði
sig til, Pálmar nokkur Sigurðsson, og
setti hverja körfuna á fætur annarri.
Gerði pilturinn eigi færri en 17 stig í
síðari hálfleiknum og hélt liði sínu
algjörlega á floti þegar reið á. Haukarnir
komust sem sagt yfir 51-47 en Keflvík-
ingar gáfust ekki upp baráttulaust enda
þekktir fyrir allt annað, strákarnir af
Suðurnesjunum. Minnkuðuþeirmuninn
í 53-51 en Pálmar var ekki á þeim
buxunum að tapa leiknum og skoraði
nokkrar körfur í vibót, bara svona upp
á grín og leiknum lauk sem fyrr sagði
59-55 fyrir Hafnfirðingana.
Pálmar og Sveinn Sigurbergs voru
yfirburðarmenn í Haukaliðinu, sérstak-
lega Pálmar sem bar höfuð og herðar yfir
alla leikmenn á vellinum.
Stig Hauka: Pálmar 30, Sveinn 12,
Hálfdán 4, Reynir 4, Jón 4, Óli 3 og
Kristinn 2. Óskar, Sigurður og Guðjón
báru af hjá Keflvíkingum.
Stig ÍBK: Óskar 10, Siggi 10, Jón Kr.
9, Þorsteinn 8, Guðjón 8, Pétur 8 og
Björn Vignir gerði eina körfu.
TÓP/Jól
væri höfuðverkur og þar að auki væru -
þeir ekki nógu agaðir í leik sínum. Léku .:
allt of stuttar sóknir á meðan mótherj-
arnir hefðu spilað langar sóknir og
skorað úr færum sínum. Ennfremur
sagði Björn að liðið væri teknískt og
spilaði léttan bolta.
Mörk KR skoruðu í gærkvöldi:
Guðmundur Albertsson 7, Jakob Jóns-
son 4, Björn Pétursson 2 (lv), Haukur
Geirmundsson 1, Friðrik Þorbjörnsson
1 og Jóhannes Stefánsson 1.
Mörk Maccabi skoruðu: Oslander
Yosef 6, Druker Yoav 4 og Mowshovitz
Chaim 3.
Dómarar voru norskir Ekra og
Schjenven og stóðu þeir sig ágætlega.
- BH
UNNIÐ ÞETTfl LH)”
„GETUM
ÞRIGGJA MARKA SIGUR
MACCABIGEGN KR-INGUM