Tíminn - 05.02.1984, Page 4
4
SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
■ Nú eru fjögur og hálft ár liðin frá því er Barbara Hutton lá á en hertogahjónin af Windsor og Ciano greifi, utanríkisráðherra
banabeði suður í Kaliforníu og var sífellt að reyna að komast ítala og tengdasonur Mussolinis. Ciano brosti kurteislega.
fram úr rúminu. Hún settist upp, kom berum fótunum niður á Windsor-hjónin höfðu oft heyrt þetta og vissu vel að í
gólfið og vildi ganga. En það voru margir mánuðir frá því er hún skóherbergi Barböru Hutton í „Winfield House“ í London átti
síðast gat gengið. En hún hélt áfram að reyna. „Afi var alltaf hún þrjú hundruð pör af skóm.
berfættur. Hann eignaðist ekki sína fyrstu skó, fyrr en hann var Afi hafði arfleitt eftirlætið sitt, Barböru, sem hann kallaði
orðinn tólf ára,“ sagði hún í sífellu. Hún talaði eins og óþægur jafnan„prinsessuna sina“að 28 milljónum dollara. Það var árið
krakki og hjúkrunarkonurnar voru í sífellu að leggja hana upp í 1919, en þá var Barbara sex ára. Nú næmi þessi upphæð 560
rúmið aftur. Þær þekktu söguna vel. Afi Woolworth var fátækur milljónum dollara, - þ.e. ríflegir 16 milljarðar ísl. króna!! En
maður, rétt eins og ég og þú. þegar Barbara lést, 66 ára gömul, voru aðeins 3500 dollarar á
Mörgum árum áður hafði hún sagt þessa sögu, t.d. þá er hún einkareikningi hennar í Kaliforníu. Meiru fékk hún ekki umráð
sat í Lido í Feneyjum og lét tærnar leika við sandinn á yfir, þegar þar var komið sögu, þar sem hún hafði ekki fjárráð
baðströndinni. Já, afi fékk fyrstu skóna sína tólf ára, ímyndið lengur, vegna andlegs og líkamlegs ástands síns. Þó gleymdi
ykkur bara.“ Þeir sem áttu að ímynda sér þetta voru engir aðrir hún aldrei sögunni um afa sinn og skóna.
BARBARA
HUTTON
■ Franklyn Hutton, faðir Barböru,
leiðir hana til fyrsta brúðkaupsins.
■ Afi Woolworth eignaðist fyrstu
skóna 12 ára
■ Skýjakljúfur Woolworth er 70 hæðir. Hann var lengi hæsta hús heims.
Hún erfði auð Woolworth-vöruhúsanna, á 17. milljarð ísl. króna.
Hún giftist hverjum manninum á fætur öðrum og leysti þá út með
svimandi fjárhæðum. En einkasyni sínum glataði hún og gæfan var
henni oft hverful
Afi og Amma
i.ii ui-i ni:nn,.r lcit hún ætíð á scirt
ævintýri. Þcsst fátæki bóndasonur frá
Rodman við Ontariovatn. skammt frá
kanadisku landamærunum. fór til þorps-
ins í nýju skónum sínum og gerðist
mikill sölusnillingur í krambúðinni þar.
Hann þénaði tíu dollara á viku og giftist
senn ungri saumastúlku frá Kanada,
Jcnnie Creighton. Hann tók 300 dollara
að láni og hóf sinn eigin rekstur. Árið
1879 opnaði hann fyrstu Woolworth
verslunina í Lancasterí Pennsylvantuog
varð það undirrótin að ævintýralegum
auði fjölskyldunnar. Þá var afi 27 ára.
32ja ára hafði hann eignast 25 verslanir
í fimm ríkjum Bandaríkjanna. Hann var
43ja ára, þegar hann opnaði aðalskrif-
stofurnar í New York.
Jennie amma komst nú að því að hún
var flugrík, því beint gegn henni við
Fimmta stræti bjuggu Vanderbilt hjónin
í stærsta tbúðarhúsi í.New York. Þar
voru 137 herbcrgi og 37 starfsmcnn auk
16 einkennisbúinna þjóna. Oma Jenny
og bóndi hennar höföu aðeins 36 her-
bcrgi, eða einu færra cn Vanderbilt
fjölskyldan hafði til afnota fyrir þjón-
ustulið sitt.
Því byggði afi stærsta skýjakljúfinn í
New York, á Park Place horninu á
Broadway. Hann var 60 hæðir og 242
metrar á hæð. Það var sjálfur forsetinn,
Woodrow Wilson, sem húsið vígði. Á
árunum 1913-1930 var þetta hæsta bygg-
ing New York. Síöar komu stærri bygg-
ingar, - Crysler Building, Empire State
og loks World Trade Center. En um
daga gamla Woolworth átti enginn hærra
hús.
Jennie amma ók nú í leirljósum Ren-
ault með bilstjóra klæddan í föt af sama
lit og veifaði til grámyglulegs almúgans.
Saumakonunni sem eitt sinn var og hafði
eignast þrjár dætur þótti nú sem hún
væri Kleopatra að aka um bakka Nílar
og væri hún að veifa til hinna fornu
Egypta.
Mamma
Móðir Barböru Hutton var næstelsta
dóttir Jenny og margt dreif á daga
þeirrar konu. Hún gerðist um hríð
ástmær Bud Bovier, glaumgosans, sem
var faðir Jackie Kennedy. Hún var þá
33ja ára og dóttirin Barbara aðeins sex
ára hnokki, sem lék sér að brúðum er
báru mynd helstu kónga og hertoga í
Evrópu.
Móðirin, Edna, var óhamingjusöm í
hjónabandi sínu með föður Barböru,
Franklyn Hutton, sem var mikill gleði-
maður. Hann var kauphallarbraskari og
slyngur sem slíkur, en mjög gefinn fyrir
konur og vín. Edna hafi litla stoð af
móður sinni í Kleopötruhlutverkinu og
tók því að halla sér að flöskunni að dæmi
manns síns. Barbara sagði síðar um
móður sína: „Hún hékk við barinn á
Plaza-hótelinu og spurði þjóninn með
full hárri röddu hvort hann grunaði hve
langt væri um liðið, frá því er maður
hennar hefði síðast sængað með sér."
Bud Bouvier var staddur á barnum við
eitt slíkt tækifæri og hann greip bráðina.
Edna var ástkona hans, uns hann gerðist
þreyttur á uppátækjum hennar og lét
hana róa. Herra Hutton vissi ekki hve
illa konu hans leið, enda hafði hann
öðrum hnöppum að hneppa. Hann hafði
þá nýlega komist í tygi við sænska
leikkonu, Monica von Fursten að nafni.
Edna Hutton tók sér herbergi á leigu á
Plaza, fór í nýjasta kvöldkjólinn sinn,
setti á sig alla skartgripi sína og gleypti
stryknin. „New York Times" sagði þann
3ja júní 1917: „Hún hafði verið látin í
margar stundir. þegar stofustúlka fann
hana. Hr. Franklyn Hutton bar áð
skömmu síðar. Hann kom frá sumarhúsi
sínu í Bay Shore á Long Island. Frú
Hutton á eitt bam. Barböru..."
Faðirinn hafði verið úti á Long Island
um nóttina ásamt Monicu von Fúrsten
og nú fór Barbara líka út á Long Island.
en ekki þó til föður síns, heldur afa síns.
í höll hans þar, „Winfield Hall" voru 60
herbergi, 13 svefnherbergi, ballsalur,
sundlaug og tennisvöllur, að ógleymdum
18 bílum í bílskúrnum. Á dyrnar á
hverju svefnherbergi var skráð með
gullstöfum í hvaða stíl það væri innrétt-
að: Lúðvík 14 . Lúðvík 15., Marie
Antoinetta. Á dyrum svefnherbergis afa
sjálfs stóð „Napoleon Bonaparte," enda
svaf hann í rúmi keisarans gamla.
Þegar borðað var stóð þjónn á bak við
stól afa. en hjúkrunarkona á bak við stól
ömmu. Á bak við stól Barböru stóð
barnfóstran. Barbara var ljóshærður
telpuhnokki með stór og björt augu,
heiðblá. „Þjónustufólkið sagði að ég
hefði haft postulínshúð," sagði hún
síðar.
Afi var orðinn mesta skar, þótt hann
væri aðeins 65 ára, og leið af þunglyndi,
sem stundum braust fram í reiðiköstum.
Hann fór stundum í bíltúr með Barböru
og var þá ekið þegjandi að Woolworth
turninum. Þegar þangað kom ýtti hann