Tíminn - 12.02.1984, Page 7
SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
nám við fjölbraut í Garðaskóia og
Brynja er í Menntaskólanum í Kópa-
vogi. Er ekki erfitt að hætta námi svona
í miðjum klíðum og halda út í heim?
Komist þið inn í skólann aftur? „Nei mér
finnst ekki erfitt að hætta", segir Þrándur
brosandi, „ég á að geta gengið inn í MR.
þegar ég kem aftur. Þó að hugsanlega
verði einhver töf á náminu þá er svo
margt annað, sem vegur upp á móti því.
Auk þess býðst manni svona tækifæri
e.t.v. ekki nema einu sinni á ævinni“.
Brynja bætir því hér við að ætlunin sé að
þau fari í skóla á þeim stað sem þau búa
á. Þannig er eflaust nafnið „skiptinemi"
til komið.
Eiga fjölskyldur ykkar svo að taka við
krökkum frá Suður-Ameríku?
„Nei það er enginn skyldugur að taka
við nemum en það er spurt eftir því
hvort áhugi sé fyrir því,“ segir Þrándur.
„Hjá okkur var t.d. sumarnemi frá
Bandaríkjunum í fyrrasumar", bætir
Þór við.
Hvernig datt ykkur þetta í hug? Er
þetta e.t.v. aðeins sniðug aðferð tii að
íosna að heiman og geta skemmt ykkur
ærlega?
Það er Þorvaldur, sem verður fyrir
svörum. „Nei þetta er nú ekki alveg
svona.“ (Það gætir þolinmæði í rödd-
inni). „Tilgangurinn er ekki heldur að
verða brúnn. Eg sá auglýsingu í Tíman-
um sl. haust þar sem verið var að auglýsa
eftir fólki, sem hefði áhuga á því að
gerast skiptinemar. Mig grunaði að þetta
gæti verið skemmtilegt að prófa þetta -
mikil lífsreynsla. Ég sótti því um að fara
og þá helst til Evrópu. Ég sótti reyndar
um Suður-Ameríku númer tvö en svo
kom þetta upp og ég tek því fegins
hendi. Móður minni leist nú ekki á
blikuna til að byrja með. Það hefur
gengið svo mikið á í fréttum frá Suður-
Ameríku, stríð, skæruhernaður o.s.frv.
Það er þó þannig að ef einhver hætta er
á ferðum í þeim löndum, sem við
dveljumst í, þá er allt sett á fullt til að
flytja skiptinema til annarra landa, þar
sem ekki er eins heitt í kolunum. Ég
skrifaði ritgerð um sjálfan mig, sem látin
var fylgja umsókninni og síðan kom í
ljós að ég kæmist í þann hóp, sem fengi
að leggja inn framhaldsumsókn, og svo
bara gekk þetta. Ég fer reyndar ekki fyrr
en í mars en mun nota þann tíma til að
undirbúa mig. Ég var ekki einu sinni
alveg viss á því hvar Ecuador væri þegár
ég frétti að ég ætti að fara þangað en fór
svo beint í kortið og ekki minnkaði
spenningurinn við það. Ég hef ferðast
mjög lítið áður, að vísu einu sinni til
Danmerkur en þurfti þá lítið að bjarga
mér upp á eigin spýtur," segir Þorvaldur
að lokum.
Hinir forfrömuðu
Það var ekki síður frísklegur hópur af
krökkum, sem þarna voru mætt og
dvalist hafa í mismunandi ríkjum Suður-
Ameríku sl. ár.
Þau voru að sjálfsögðu komin til að
fræða hin um hvað þeirra biði, á hverju
þau ættu von o.s.frv. Sum þeirra eru
reyndar nýkomin og svolítið indíánaleg
á litinn og öll greinilega alsæl með þetta
tímabil í lífi sínu. Þau heita: Edda Huld
Sigurðardóttir, sem var í Ecuador,
Benjamín Sigursteinsson, sem dvaldist í
Dóminikanska Lýðveldinu í Vestur-
Indíum, Sigfríður Gunnlaugsdóttir, sem
var í Brazilíu og Hörður Ragnarsson,
sem var í Argentínu.
Hvernig var?
Krakkarnir hlæja. Þessari spurningu
eru þau búin að vera að svara, meira og
minna, síðan þau komu heim. Spurning-
in var líka óþörf að því leyti að það var
nægilegt að horfa á þau 'til að komast að
raun um að auðvitað hafði þetta verið
frábært. Við gerum aðra tilraun.
Hvað Finnst ykkur þið helst hafa lært
af þessari reynslu ykkar?
Það er Sigfríður, sem þessari spurn-
ingu svarar. Ja eitt af því, sem maður
lærir af svona ferðalagi er það að hætta
að vera feimin, það er beinlínis ekki
hægt að vera feimin því það er alltaf
verið að tala við mann og það er
greinilega mikið tekið eftir manni." Hin
tóku undir þetta. Þau sýndu það raunar
í verki líka því að þau þurftu öll að
standa upp á þessu móti og segja frá því,
sem á daga þeirra hafði drifið og það
gerðu þau með mikilli prýði og tókst það
ekki síður en úm vSfri að ræða vana
stjórnmálaskörunga.
Hörður: „Eitt af því, sem þessi reynsla
hefur gefið mér er það að ég hef farið að
velta fyrir mér ýmsum_spurningum um
sjálfan mig, hver ég væri o.á.frv. Svona
dvöl breytir einnig hugmyndum manns
og opnar ýmislegt fyrir manni. T.d. hélt
ég með Bretum í Falklandseyjastríðinu
áður en ég fór til Argentínu. Nú skil ég
miklu betur sjónarmið Argentínu í
málinu.
Hvernig fannst ykkur skólarnir sem
þið lentuð í?
Sigfríður: „Sá skóli, sem ég var í var
ekki nærri því eins frjáls og fjölbrautin,
sem ég er í hér heima. Úti varð maður
að sitja við sitt púlt og ekki um neitt að
velja."
Benjamín sagði farir sínar ekki sléttar
í þessu efni. Skólinn minn var þannig að
eftir þjóðsönginn á morgnana urðum við
að sitja og læra í 3 klst., þá var gefin
korters pása og síðan hélt skólinn áfram
næstu þrjá tímana.
Hvernig tóku jafnaldrar ykkar á móti
ykkur?
Edda Huld: „Undantekningalaust
mjög vel. Fólkið í Ecuador er mjög opið
og hlýlegt, allir vildu fá að tala við mann
og það var auðvitað gaman alla vegana
upp að vissu marki.
Sigfríður: „Ég var í skóla með tveimur
krökkum frá Bandaríkjunum og við
höfðum stuðning hvort af öðru til að
byrja með en svo þurfti maður þess ekki.
Það var mjög mikið spurt um ísland og
svoleiðis.
Edda Huld: „í þeim skóla, sem ég var
í urðu allir að vera í skólabúningum og
það segir svolítið um andann í skólanum.
Það vildi þannig til að ég hafði brett
niður sokkana, sem ég var í fyrsta
daginn í skólanum. Ég var reyndar
ekkert sérstaklega mikið í því að vera í
sportsokkum. Svo fór ég að taka eftir
því að stelpurnar í kringum mig voru
farnar að gera þetta líka. Þetta var orðin
meiriháttar tíska.
Edda bjó hjá mjög ríkri fjölskyldu í
Ecuador, rétt utan við höfuðborgina
Quito. Hún fékk tækifæri til að ferðast
töluvert eins og reyndar allir hinir Ame-
ríkufararnir. Hún kom m.a. til hinna
frægu Galapagos eyja sem eru í Kyrra-
hafinu, langt undan ströndum Suður-
Ameríku. Það var þar,sem Darwin gerði
hinar miklu uppgötvanir sínar. Eyjarnar
eru nú þjóðgarður og þar er að finna
dýralíf, engu öðru líkt á jörðinni. „Ég
fékk líka tækifæri á því að ferðast mikið
um“ segir Benjamín. „Ég fór um alla
eyjuna þar sem ég bjó en þar eru bæði
Dóminikanska lýðveldið og Haiti. Ég
lenti líka í því að vera túlkur í nokkra
daga fyrir amerísk hjón, sem voru að
ættleiða barn og varð því að ferðast
svolítið með þeim.“
Hvernig gekk að læra málið?
Hörður: „Eftir 3 mánuði skildi ég allt
en talið var auðvitað bjagað. „Pabbi"
þ.e. heimilisfaðirinn á heimilinu þar sem
ég bjó, var alltaf að kenna mér. í hvert
skipti, sem við borðuðum benti hann á
hina ýmsu hluti og ég átti að segja hvað
þeir hétu. Þetta var eins konar leikur."
Hin í hópnum höfðu svipaða sögu að
segja. Tungumálið virtist koma tiltölu-
lega fljótt. „Spænskan er auðveld ef
maður gleymir því að maður kann
ensku“, bætti Edda Huld við.
Skiptinemum er uppálagt að fylgja
ákveðnum reglum s.s. að ferðast ekki á
puttanum, aka ekki farartækjum sjálf
eða neyta eiturlyfja. Hvernig gekk ykkur
að halda þessar reglur? „Það var nokkuð
erfitt að halda sumar reglurnar“, sagði
Sigfríður brosandi. „T.d. að geta ekki
ferðast á puttanum. Maður átti ekki
mikið af peningum og svo var oft verið
að stoppa fyrir manni og bjóða far.
Maður þáði það stundum en aldrei ein.“
Hvernig var maturinn? Þetta reyndist
vera mismunandi eftir því í hvaða
löndum krakkarnir höfðu búið. Hörður
sagði frá því að nautakjötið hefði verið
algengasti maturinn þar sem hann bjó í
Argentínu. „Ég fékk aldrei fisk og
saknaði þess líka að fá ekki almennilega
mjólk, aðallega þó til að byrja með.
Maturinn líktist ítölskum mat, mikið
spaghettí o.s.fr. Benjamín benti á að
þar, sem hann dvaldist var mjólk tiltölu-
lega sjaldgæfur drykkur. „Mjólk var
helst drukkin út í kaffi. Það er drukkið
meira romm en mjólk í Dóminikanska
lýðveldinu", bætti hann við glottandi.
Við gefum Herði síðasta orðið. „Ann-
ars gekk þetta allt dálítið hratt fyrir sig,
eitt ár er jú ekki lengi að líða. Ýmislegt
af því, sem maður lenti í, er að rifjast
upp þessa dagana nú þegar maður er
kominn heim. Ég held að ég vildi bara
helst fara strax út aftur." J Á Þ
50% AFSLATTUR
- ALLT UPPSELT
H|
■S4
*
*
H!
H
%
m,
m
0\
m
m
m
m
m
m
• Off/Vol OBand
push Bnl
MW
* ./
' Taoe 00 .... • ....•• . .•...
..i | i | 0SAIMYO S2 Auto Reverso
Uíiíi o.%n« : I AÁ'bntnafirua
* Bass OTretite
push Clock
r '
m m roSmiis'i; irm
iDD. /5
SSa«?4íör®
raunvirði kr, 28. tyjgir MONo - 'anð
Í|| Endamagn |||gjj|þS’SS.'S*'*"
x áttír
I Endamagnari 2 >: 33 wött WIV*
BJögun mlnnl en 1% 'nnby8ð A^»Alr ««n CRO2
jfl Segulband nt» tónst""r
S xsz~tgz~'~"*
* ínnbV flflöWuKk8
Við bjóðum öllum sem grípa. tækifærið sérstakan afslátt
á Jensen og Sanyo hátölurum.
P.s. Ef að þetta tæki er of „fínt“ fyrir þinn smekk þá erum
við með tvö önnur á samskonar tilboði.
*
*
*
*
*
té
*
*
té
*
fá
*
*
*
*
*
*
*
45
45
45
45
45
45
<2\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200
Bíla- og
véla-
viðgerðir
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
DVERGUR SF.
Smiðjuvegi E 38, Kóp.
Simi 74488,
,Jakiö efjtir!
VERKTAIýAR
SVEITARFELÖG
Eigum fyrirliggjandi:
SNJÓTENNUR
á dráttarvélar
BRUNAHANA
M HAMAR HE
Borgartúni 26, Reykjavík. Sími 91-22123