Tíminn - 12.02.1984, Side 10

Tíminn - 12.02.1984, Side 10
ÍO SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984 £"imana os ef # ©nc/a< hfyjað mörzum shk át hfí" eS heyrdi u ** e'«a •s'áSftsar '• Í^^/SS'S Par Se “ nersve/(a / /=„!," ^oí Wðar.- S0,,n a/dre/ Sn,,M Sengur | ohnsen Hann var fyrsti íslenski óperusöngvarinn, en margt virðist á huldu um æviferil hans Hver er hann maðurinn sem fær svo fögur eftirmæli ókunnrar stúlku að sér látnum, stúlku sem hann hefur eflaust enga eftirtekt veitt á tónleikunum sem hún vísar til í setningunum hér að framan? Jú, hann var enginn annar en fyrsti íslenski óperusöngvarinn, Ari Johnsen. Því miður er það svo um Ara Johnsen að um hann virðist ekki margt vitað. Kannskc þessi stutta upprifjun á því sem okkur hefur tekist að öngla saman um hann verði til þess að einhverjir láti til sín heyra og bæti um betur. Það væri fagnaðarefni. Eftir því sem næst verður komist þá fæddist Ari (Márus) Johnsen árið 1860 og lést hinn 17. júní árið 1927. Um foreldra hans segir Jón Helga- son í bókinni „íslendingar í Dan- mörku" að þeir hafi verið Daníel (Arason) Jóhnsen og Guðrún Péturs- dóttir, fædd Ðuus. Brokkgengur faðir Faðir Ara Johnsen, Daniel, mun hafa fæðst á ísafirði, en alist upp í Hafnarfirði, en hann var sonur Ara Johnsen, faktors þar. Árið 1865 flyst Daniel til Kaup- mannahafnar, en setur árið 1872 upp verslun á Eskifirði. Hann haföi náðsér í ríkt kvonfang, þar sem var Guðrún Pétursdóttir, dóttir eins Duus-anna í Keflavík. En þótt allt virtist ganga Daniel í haginn til að byrja með, þá sannaðist hér að ekki er sama gæfa og gjörvilciki, því hann var óreglumaður og mun haía látist við lítil efni í Kaupmannahófn um ildamótin. Börn hans \uiu Ari og ein dóttir, Ásta Johnsen. Söngvari víða um lönd Ari hinn ungi Johnsen fluttí ungur til Kaupmannahafnar og tók að stunda söngnám í Þýskalandi nokkru síðar. Að loknu námi er hann sagður hafa sungið í óperum í Berlín, Hamborgog London um nokkurra ára bil, en hann var baryton. Síðar gerðist hann söng- kennari, fyrst í Hamborg, en síðar í Kaupmannahöfn, þar setn íslenskir söngvarar eru sagðir hafa notið kennslu hans. Hann var ætíð ókvænt- ur. Ari Johnsen kom í stutta heimsókn til lslands unt aldamótin oe þann 24. júlí 1901 hélt hann söngssemmtun í „Góðtemplarahúsinu". ..Þar hevrði unga stúlkan sem viö vitnuðum til hér' í byrjun söng Ara, en hún hét Guð- munda Nielsen. Skrifaði hún minning- ar sínar um tónleikana í lesbók Morg- unblaðsins árið 1927 og þar segir hún svo frá: „Liten fogel“ „Síðan jeg sá Ara Johnsen eru 26 ár liðin. Mér er fyrir löngu úr minni liðið hvernig maðurinn var í sjón, - en söngnum hansgleymi jegaldrei meðan jeg lifi. Það er þó sjerstaklega meðferð hans á einu litlu sænsku lagi, sem mjer er minnisstæðust. Jeg á þetta lag í gamalli nótnabók, og aldrei hef jeg svo, í þessi 26 ár blaðað í bókinni, að jeg hafi ekki munað eftir Ara Johnsen þegar jeg kom að laginu, sem heitir „Liten fogel" og er eftir óþektan höfund. Hann söng þetta lag á samsöng í Reykjavík, og er mér nær að halda að meðferð á lagi og texta hafi verið snildarleg. Dómgreind mín þá ef til vill óþroskuð, því jeg var aðeins 16 ára gömul og lagið mjer auk þess kunnugt og kært, því það var eitt af uppáhalds- lögum móður minnar sálugu; en jeg held samt að jeg vaði hjer engan reyk, því jeg hafði snemma vanist söng og hljóðfæraslætti og margan góðan söngmann bar að garði foreldra minna á Eyrarbakka í þá daga. Þetta mun hafa verið um Jónsmessu- leytið 1901, sem jeg heyrði Ara Johnscn syngja. Mjer fanst lengi vel fram eftir æfinni það hafa verið skemmtilcgasti dagurinn sem jeg hafði lifað, og bar margt til þess. Jeg dvaldi i Reykjavík þetta sumar, var eitthvað að gutla við að læra á hljóðfæri o.fl. - Herskipið „Heimdallur" var þá hjer við land og rjeð Kommandör Hovga- ard fyrir. Dag þennan hafði hann boð mikið um borð og komst jeg þangað, naut þar frænda og foreldra. Veður var hið yndislegasta, brennandi sólskin, himininn heiður og blár, rjómalogn og rennisljettur sjórinn. Þá var fagurt í Reykjavíkurhöfn, engin hafnarvirki, engir togarar og enginn „kolakrani". Glaðværð mikil var úti í herskipinu og ómaði úr hverjum krók og kima; góður árdegisverður etinn og dans stiginn í sólskininu á þiljum uppi; menn skemmtu sjer vel, enda þekktu flestir gestanna hvorn annan. - Við vorum, að mig minnir, fjögur saman, sem fórum beina leið í land úr „Heim- dalli" á samsöng Ara Johnsens, - átum síðan kvöldverð hjá Halberg á „Hótel ísland" og man jeg að við fengum kampavín; hafði jeg aldrei bragðað þann góða drykk fyrr en þennan dag, fyrst úti í herskipinu og svo þarna um kvöldið. - en góður þótti mjer hann, og var þó gætilega farið í sakirnar því við voruni fjögur um eina flösku. Jeg gæti trúað að sumum ungu nútíðarstúlkunum þætti þetta fátækleg iýsing á skemmtilegum degi, eða a.m.k. þeim, sem í sífellu þjóta umhugsunarlaust milli gleðifundanna, og þar sem ein stundin varla tekur annari fram; en þess ber að gæta að um síðastliðin aldamót voru svona dagar ekki á hverju strái, ekki einu sinni fyrir Reykjavíkustúlkunum, havð þá fyrir 16 ára unglingsstúlku austan úr Flóa. Boð voru að vísu stöku sinnum úti í herskipunum, - en útlendir óperusöng- varar voru þá sjaldgæfir gestir og lítið um söngvara í Reykjavík, og bæjarbú- ar lögðu þá ekki í vana sinn að snæða kvöldskattinn á gistihúsunum, nema þá við hátíðleg tækifæri. En „tímarnir breytast og mennirnir með“, eins og þar stendur, og að mjer hafi þótt dagurinn skemmtilegur og viðburða- ríkur, um það bera þessar línur ljósasta vottinn núna eftir 26 ár. En best man jeg söng Ara Johnsens, þ.e.a.s. eftir þessu eina litla lagi. Söngskráin hefir vaflaust öll verið góð og viðfangsefnin stærri. En það er nú allt gleymt. Aðeins „Liten fogel" lifir í minni mínu." Þannig segist Guðmundu Nielsen frá. En ef þið kunnið að segja okkur meira frá þessum merka söngvara, góðir lesendur, - þá væri ánægja að fá bréf frá ykkur með þeirri vitneskju hingað á Helgar-Tímann. - AM.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.