Tíminn - 15.02.1984, Blaðsíða 3
XI
REYKJAVIKUR
SKÁKMÓTIÐ\|
I. umferð:
Mikið um óvænt úrslit
■ 11. Reykjavíkurskákmótið hófst í
gær á Hótel Loftleiðum og er skemmst
frá því að segja að fyrsta umferðin var
umferð íslendinganna, en þeir stóðu
fyrir nokkrum mjög óvæntum úr-
slitum. Fyrst ber að nefna jafntefli
sovéska stórmeistarans Yuris Balashov
og Benónýs Benediktssonar, en á
engan er hallað þótt fullyrt sé að þau
hafi verið óvæntustu úrslit kvöldsins.
Benóný hafði svart og tefldi byrjunina
með sínu lagi og varð brátt Ijóst að lítt
myndi sovéska stórmeistaranum duga
heimalærdómurinn. Raunar voru víst
flestir búnir að afskrifa Benóný á
tímabili utan hann sjálfur og nokkrir
óvæntir þrumuleikir komu Balashov
algerlega í opna skjöldu enda virtist
hann einfaldlega sjá skemur en and-
stæðingur hans, og jafntefli varð niður-
staðan. Dynjandi lófatak barst út með-
al áhorfenda en hinn víðkunni stór-
meistari Balashov hélt niðurlútur til
hótelherbergis síns. •
Samlanda Balashovs, Efim Geller
vegnaði heldur ekki sem best gegn
Sævari Bjarnasyni og varð að láta
drottningu sína af hendi og í biðstöð-
unni hefur Sævar drottningu gegn hrók
Gcllers og vinningurinn er Sævars ef
hann er til í stöðunni.
Þriðji erlendi stórmeistarinn sem fór
flatt út úr viðureign sinni við íslending-
ana var Hollendingurinn Hans Ree,
sem er í hinu sterka skáklandsliði
Hollands. Hinn ungi og efnilegi skák-
maður Róbert Harðarson atti kappi
við hollenska meistarann í fyrstu um-
ferðinni oggerði sér lítið fyrir ogvann.
Flestir íslendingarnir sem fyrirfram
má búast við að verði í baráttunni um
efsta sætið. unnu skákir sínar í gær.
Friðrik Ólafsson vann Meyer, Jóhann
Hjartarson vann Harald Haraldsson.
Helgi Ólafsson vann Þröst Bergmann,
Guðmundur Sigurjónsson vann Braga
Kristjánsson og Margeir Pétursson
vann Leif Jósteinsson. Þá gerði Karl
Þorsteins jafntefli við hinn sterka stór-
meistara Larry Christiansen frá
Bandaríkjunum. Jón L. Árnason gerði
sömuleiðis jafntefli við Burger frá
Bandaríkjunum. Aldursforsetinn,
Samuel Rcshevsky vann Magnús
Sólmundarson.
Önnur umferð verður tefld í dag og
er ekki vitað hverjir tefla saman þegar
þetta cr skrifað. Einnig verða bið-
skákirnar úr fyrstu umferð tefldar í
dag og til gamans birtum við hér tvær
biðstöður, þ.e. úr skák Sævars og
Gellers og skák Braga Halldórssonar
við stórmeistarann Shamkovic, sem
okkur er að góðu kunnur úr Búnaðar-
bankamótinu.
Eflm Geller
8
7
6
5
4
3
2
abcdefgh
Sævar Bjarnason
Hvítur lék biðleik
Shamkovic
■ Yuri Balashov og Benóný Benediktsson í upphafi skákar sinnar í gær, en henni lyktaði með jafntefli.
Tímamynd Árni Sæberg.
abcdefgh
Bragi Halldórsson
Hvítur lék biðleik
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
fréttir
■ Gamli Stýrimannaskólinn er 85 ára. Síðastliðin 25 ár hefur farið fram í honum barnakennsla og á þeim tíma hefur skólinn
aðeins einu sinni verið málaður að utan.
■ Þetta er eini vaskurinn sem nemend-
ur skólans hafa aðgang að, en eins og sjá
má er hann orðinn nokkuð gamall „eig-
inlega antik“, sagði einn blaðamaður-
inn, sem skoðaði húsakynni skólans í
gær.
■ Kennarar óttast mjög eldhættuna og segja að brunavarnir í húsinu séu engan
veginn fullnægjandi. Tímamyndir Róbert
Formadur Sjálfstæðisflokksins um
afgreiðslu bankaráðs Búnaðarbankans:
„OHELBRKT
OGÓQtW
— „að herraklúbbur bankastjóra útnefni
bankastjóra án ábyrgðar“
■ „Þessi ráðning er að sjálfsögðu póli-
tísk ráðning, því það eru pólitískir full-
trúar sem taka þessa ákvörðun og þeir
taka auðvitað ekki annað en pólitískar
ákvarðanir," sagði Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar
Tíminn spurði hann í gær hvort hann
teldi ekki að faglcgt sjónarmið hefði
orðið hinu pólitíska yflrsterkara í
bankaráði Búnaðarbankans í gær, þegar
Jón Adolf, aðstoðarbankastjóri var
kjörinn bankastjóri af þrcmur banka-
ráðsmönnum, en Lárus Jónsson alþing-
ismaður hlaut aðeins tvö atkvæði.
Þorsteinn sagði jafnframt: „Ég hef
hins vegar verið þeirrar skoðunar, að
það væri viss hætta á því að áhrifavaldið
í þessu efni væri að færast yfir í
herraklúbb bankastjóra og bankaráðs-
manna, sem bæri ekki ábyrgð gagnvart
neinum. Mín skoðun ersú. að meðan að
bankarnir eru ríkisbankar, þá eigi hand-
hafar ríkisvaldsins að taka ákvarðanir
um það hverjir eru bankastjórar. Það
getur verið nauðsynlegt á stundum, að
ráða menn utan bankakerfisins - það er
hollt fyrir bankakerfið. Það er jafn
nauðsynlegt í öðrum tilvikum að taka
menn innan úr bankakerfinu - það er
líka gott fyrir kerfið. Ég held að það væri
rangt að taka menn alltaf innan úr
bankakerfinu, og jafnrangt væri að taka
þá alltaf fyrir utan. Þctta verða ntenn að
meta í hverju falli, en það er óheilbrigt
og óeðlilegt að það myndist klúbbur
bankastjóra og bankaráðsmanna sem
útnefni bankastjóra án þess að bera
nokkra ábyrgð gagnvart þeim sem fara
með eigendavaldið. Á meðan að bank
arnir eru ríkisbankar, er þetta mitt
sjónarmið.“
Aðspurður hvort hann teldi að þessi
ráðning Jóns Adolfs sem bankastjóra
ætti eftir að draga dilk á eftir sér sagði
Þorsteinn: „Það sé ég ckki. Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði þarna ákveðna afstöðu
og það var algjör samstaða milli þing-
flokksins og bankaráðsmanna um þessa
afstöðu, og það var eini þingflokkurinn
sem var samstíga í málinu. Allir hinir
þingflokkarnir voru í meiri eða minni
upplausn út af þessu máli, en það er
auðvitað þeirra vandamál, að hafa ekki
komið sér saman.“
Þorsteinn var spurður hvort þess1
afgreiðsla bankaráðsins gæti ekki komið
til með að hafa áhrif á það hvern, eða
hvcrja fulltrúan Sjálfstæðisflokksins í
bankaráðum kæntu tii með að styðja í
framtíðinni, þegar ráðið væri í stöður
bankastjóra: „Það meturn við bara i
hverju falli, við erum ekki með neinai
fyrirfram skoðanir á því.“
-AB