Tíminn - 15.02.1984, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til Islands á næstunni
sem hér segir:
Hull/Goole:
Jan . . . 20/2
Jan ... 5/3
Jan . . . 19/3
Jan . ... 2/4
Rotterdam:
Jan . . . 21/2
Jan . . . 6/3
Jan . . . 20/3
Jan .... 3/4
Antwerpen:
Jan . . . 22/2
Jari . .. 7/3
Jan .. . 21/3
Jan ... 4/4
Hamborg:
Jan . . 24/2
Jan . .. 9/3
Jan . . 23/3
Jan ... 6/4
Helsinki/Turku:
Arnarfell . . 22/2
Helgafell . . 23/3
Larvik:
Hvassafell . . 27/2
Hvassafell . . 12/3
Hvassafell . . 26/3
Hvassafell . . 13/2
Gautaborg:
Hvassafell . . 16/2
Hvassafell . . 28/2
Hvassafell . . 13/3
Hvassafell . . 27/3
Kaupmannahöfn:
Hvassafell . . 17/2
Hvassafell . . 29/2
Hvassafell . . 14/3
Hvassafell . . 28/3
Svendborg:
Hvassafell . . 18/2
Helgafell . . 25/2
Hvassafell .. 1/3
Hvassafell . . 15/3
Árhus:
Hvassafell . . 18/2
Helgafell . . 25/2
Hvassafell .. 1/3
Hvassafell . . 15/3
Falkenberg:
Mælifell . . 20/2
Dísarfell . . 22/2
Gloucester Mass.:
Skaftafell . . 23/2
Halifax, Canada:
Skaftafell . . 24/2
1 SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Caterpillar 6D og B
Til sölu varahlutir I Caterpillar
6D og B. '
Ýmislegt í mótora, grjót-j
spyrnur á 6B, o.m.fl. Einnig í
Cat. 8D.
Upplýsingar í síma 32101.
fréttir
Sjötta hvert heimili í landinu þar sem börn alast upp:
HEFUR AÐBNS EUT FOR-
EUn SEM FYHRI/MNU
■ Meira en sjötta hvert hcimili í
landinu þar sem börn eru nú að alast upp
hefur aðeins eitt foreldri sem fyrirvinnu.
Heimili einstæðra foreldra með börn 15
ára eða yngri töldust 6.254 þann 1. des.
s.l. (þar af 393 hjá einstæðum feðrum),
samkvæmt upplýsingum Hagtíðinda.
Alls voru böm á þessum aldri á 36.987
heimilum, þannig að heimili einstæðra
foreldra eru tæp 17% af öllum þeim
heimilum sem nú standa að uppeldi og
framfærslu barnanna á Islandi. Frá 16
ára aldri teljast unglingarnir sem ein-
staklingar í skýrsium Hagstofunnar.
Um 8. hvert barn sem nú er að alast
upp, eða alls 8.232 börn búa á heimilum
með einstæðum foreldrum, en 58.481
barn á heimilum hjóna og fólks í óvígðri
sambúð. Af öllum börnum 15 ára og
yngri eru þannig 12,4% á framfæri
einstæðra foreldra sinna.
Hver einstæð móðir hefur að meðaltali
1,33 börn á framfæri sínu og hver
einstæður faðir 1,31 barn að meðaltali.
Á heimilum þeirra 26.569 hjóna sem
hafa börn á framfæri sínu eru að meðal-
tali 1,98 börn. Má því líta þannig á að
hvort hjónanna um sig hafi 0,98 börn á
framfæri, eða mun léttari framfærslu-
byrði að meðaltali en einstæðir foreldr-
ar. Hjá fólki í óvígðri sambúð er fram-
færslan ennþá minni, eða 0,78 börn að
meðaltali á hvert foreldri. Samkvæmt
tölum Hagstofunnar voru heimili hjóna
alls 44.951 í landinu í des. s.l., og þar af
18.382 með ekkert barn á framfæri sínu.
Af heimilum hjónafólks eru því nær
41% barnlaus heimili.
-HEI
■ Hluti þeirra kvenna sem skipa Framkvæmdanefnd um launamál kvenna, á fundi með fréttamönnum í gær.
Tímamynd Arni Sæberg
Staðan í launamálum kvenna rædd
víðs vegar um landið næstu helgi:
„Mat á störfum kvenna
augljóslega byggt á
hefðum en ekki rökum“
■ „Mat á störfum kvenna er augljús-
lcga byggt á hcfðum en ekki rökum.
Konum er því full alvara núna að taka
þessi launamál sín fyrir núna og þess
vegna verður nú gengist fyrir þessum
fundum um allt land“, sagði Björg
Einarsdóttir m.a. á blaðamannafundi
sem Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna hélt í gær til að kynna fundi sem
nefndin mun gangast fyrir á 8 stöðum á
landinu næsta laugardag, 18. febr.
Markmið fundanna er að ræða stöð-
una í launamálum kvenna - sérstaklega
launamisrétti kynjanna - leita leiða til
úrbóta og hvetja konur til sameiginlegs
átaks. Fundirnir verða á eftirtöldum
stöðum: Reykjavík, Stykkishólmi, ísa-
firði, Akureyri, Vestmannaeyjum, Sel-
fossi, Keflavík og á Egilsstöðum. Fund-
irnir verða haldnir í samvinnu við stéttar-
félög og/eða kvennasamtök og jafnréttis-
nefndir á þessum stöðum. Fleiri slíkir
fundir eru áformaðir um allt land síðar
á árinu.
„Konurnar héldu að launajafnrétti
kvenna og karla væri í höfn með lög-
unum um launajafnrétti frá árinu 1961.
En það hafa greinilega verið fundnar
aðrar leiðir til að viðhalda því“, sagði
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingism. m.a.
á fundinum í gær. Framkvæmdanefndar-
konur sögðu ljóst að þrátt fyrir mikla
umræðu um jafnréttismál á annan áratug
hafi ekki dregið saman með konum og
körlum í launamálum. Það sýni best að
nauðsyn sé á sameiginlegu og markvissu
átaki kvenna vilji þær rétta hlut sinn.
Árangurinn komi ekki af sjálfu sér.
Á fundinum komu fram margar slá-
andi upplýsingar um ófjöfnuð þann sem
enn er til staðar í launamálum karla og
kvenna. Þegar litið er á tímakaup í
dagvinnu kemur t.d. í ljós að í verka-
mannavinnu hafa karlar 14% hærra
tímakaup en konur, í afgreiðslustörfum
26% hærra og við skrifstofustörf 33%
hærra. Einnig var bent á, að þótt meðal-
laun kvenna á ársverk séu hæst hjá
ógiftum konum 25-44 ára þá verði að
leita í flokk ellilífeyrisþega, þ.e. 70-74
ára, til að finna einhverja hliðstæðu
meðal giftra karla eða í hópa 15-19 ára
unglinga og 65-69 ára karla ógiftra. Þetta
séu þeir karlahópar sem launahæsti
kvennahópurinn á vinnumarkaðinum
eigi helst samleið með launalega
Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna, sem starfað hefur síðan í haust,
er skipuð 19 konum úr.öllum stjórnmála-
flokkum og fjölmörgum launþegasam-
tökum og kvenfélögum.
-HEI
VERD A SVINA-
KJÖTILÆKKAR
UM 5% TIL
FRAM LEIÐENDA
■ Stjórn Svínaræktarfélags íslands
hefur sent frá sér tilkynningu um að verð
á svínakjöti til framleiðenda hafi verið
iækkað um 5% frá og með 3. febrúar s.l.
með hliðsjón af markaðsástæðum.
Benda þeir á að svínakjöt hafi ekki verið
niðurgreitt af hinu opinbera. Svína-
bændur verði því að lækka verð á
afurðum sínum þegar svigrúm á markað-
inum þrengist.
Samkvæmt upplýsingum frá Afurða-
sölu Sambandsins var skráð heildsölu-
verð á heilum svínaskrokkum 144.60 kr.
kílóið fyrir þessa lækkun og verð til
framleiðenda 114.18 kr. á kíló. Síðar-
nefnda verðið lækkar nú um 5% niður í
108,47 kr. kílóið. Slátur og dreifingar-
kostnaður lækkar hins vegar ekki. Nýtt
heildsöluverð hafði ekki verið reiknað
út um miðjan dag í gær, hvorki hjá
Afurðasölunni eða Sláturfélagi Suður-
lands. Skýringu á frétt útvarpsins um
10% verðlækkun á svínakjöti var þá
ekki hægt að fá hjá afurðasölufélögun-
um, Verðlagsstofnun né þeim tveim
framleiðendum sem Tíminn hafði tal af.
-HEI
Haskolatonleikar
í dag:
Blásarakvintett
Reykjavíkur
■ Þriðju háskólatónleikarnir á síðara
misseri verða haldnir í Norræna húsinu
kl. 12.30 í dag.
Að þessu sinni stendur Blásarakvin-
tett Reykjavíkur fyrir tónlistinni og
leikur eftir enska 19. aldar tónskáldið
George Onslow og landa hans, sam-
tímamótaskáldið Poul Patterson.
í Blásarakvintett Reykjavíkur eru
Bernard Wilkinson, Daði Kolbeins-
son, Einar Jóhannesson, Hafsteinn
Guðmundsson og Joseph Ognibene.
-JGK
Edda Erlendsdóttir píanóleikari:
FERNIR TÓNLEIKAR NORDANLANDS
■ Edda Erlendsdóttir píanóleikari
heldur ferna tónleika á Norðurlandi nú
í vikunni. Fyrstu tónleikarnir verða í dag
i Sauðárkróki á vegum Tónlistarfélags-
ins og Tónlistarskólans þar, á morgun
verða tónleikar á Hvammstanga á vegum
Tónlistarskóla V-Húnavatnssýslu, á
föstúdag á Blönduósi á vegum Tónlistar-
félags A-Húnvetninga og loks verða
tónleikar á Akureyri á laugardaginn og
það er Tónlistarfélagið á Akureyri, sem
stendur fyrir þeim tónleikum.
Á efnisskránni eru verk eftir Mendels-
sohn, Schumann, Þorkel Sigurbjörns-
son, Debussy og Chopin.
-JGK