Tíminn - 15.02.1984, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRUÁR 1984
fréttir
Samvirmuferðir-Landsýn kynna sumaráætlun:
DÆMIERU UM13% VERB-
LÆKKUN FRA í FYRRA
rBókanir aldrei meiri/segir Helgi
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
■ „Ég held að mér sé óhætt að
fullyrða að þetta er í fyrsta skipti í
sögu ferðaskrifstofa hér á landi sem
verð á einstaka ferðum lækkar á milli
sumra. Undanfarin Ijögur ár að
minnsta kosti hefur verð á ferðum
hækkað um að meðaltali 80% frá ári
til árs, en nú sjáum við dæmi um allt
frá 3 til 13% lækkun á fargjöidum
hjá okkur,“ sagði Helgi Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, á blaðamannafundi þar
sem ferðaskrifstofan kynnti sumar-
áætlun sína í gær.
Á fundinum kom fram, að sumar-
ferðir Samvinnuferða-Landsýnar í ár
eru allar á lægra verði eða óbreyttu
frá því á síðast liðnu sumri. Verð á
Riminiferðum lækkar mest, eða um
13 af hundraði, sumarhúsavera í
Danmörku lækkar um 11 af hundr-
aði. Þá hefur afsláttur til aðildarfé-
iaga hækkað úr 1.200 krónum í 1.600
krónur fyrir hvern aðildarfélaga,
maka hans og börn á aldrinum 2ja til
12 ára.
í verðlista sem fylgir sumar-
bæklingnum 1984 eru tekin dæmi um
ferðakostnað fjögurra manna fjöl-
skyldu sem njóta aðildarfélagsafslátt-
ar. Kostnaður á hvern farþega til
Rimini er 16.500 krónur, til sæluhúsa
í Hollandi rétt tæpar 13.000 krónur,
sumarhúsa í Danmörku 11.900
krónur. í öllum tilfellum er miðað
við 3ja vikna ferðir.
Á blaðamannafundinum í gær, var
Helgi spurður hverju hann þakkaði
þessa þróun. Hann sagði að þar
hjálpaðist að ýmislegt, s.s. mikil
aðsókn í ferðir á vegum skrif-
stofunnar, lækkun verðbólgu hér á
landi og sú staðreynd að gjaldmiðlar
í Evrópu hefðu verið stöðugir.
Hann sagði að þrátt fyrir þá
staðreynd að samdráttur væri víða í
samfélaginu hefðu bókanir hjá skrif-
stofunni aldrei verið meiri en nú.
Hann benti á að þegar væri uppselt í
nokkrar ferðir til Hollands. „Við
þorum varla að trúa þeim vísbend-
ingum á sumarið sem þegar eru
komnar fram, en eftirspurn gefur til
kynna að þetta verði besta ár í sögu
fyrirtækisins," sagði Helgi.
-Sjó
■ Gunnar Steinn Pálsson, framkvæmdastjóri Auglýsingaþjónustunnar, og Helgi
Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýnar, kynntu sumaráætlunina
á blaðamannafundi í gær. Tímamynd GE
Samvinnuferðir
- Landsýn:
ÞEGAR UPP-
SELT í
EINSTAKA
FERÐIR
■ í nýrri ferðaáætlun Samvinnu-
ferða-Landsýnar fyrir árið 1984 eru
kynntar ijöimargar hópferðir til
fjölda áfangastaða í Eyrópu og raun-
ar fleiri heimsálfum. Á nteðal helstu
nýjunga má nefna nýjan áfangastað i
Hollandi, sæluhúsin i Kampervenn-
en. Þar er um að ræða stipuð hus og
svipaða aðstöðu og boðið var upp á í
Eemhof í fyrra, en Kempervennen-
svæðið er þó talsvert stærra og sund-
laugin þar er til dæmis talin ein
stærsta innisundlaug i Evrópu. Ferðir
til Eemhof eru einnig á dagskránni
og eru nokkrar þeirra þegar fullbók-
aðar.
í Júgóslavíu er auk Portoroz boðið
upp á nýjan áfangastað, Dubrovnik
sem gjarnan er nefndur Perla Adria-
hafsins. Þá er boðið upp á gistingu í
stórglæsilegum sumaróðölum víða í
Evrópu, meðal annars á frönsku
Rivierunni, í Portúgal, á Costa Brava
og víðar.
Síðast en ekki sist er lögð áhersla
á þjónustu við þá sem vilja aka um
Evrópu. Þeir sem kaupa „Flug og
Bíl“ hjá S-L fá margvíslegt veganesti
sem ekki hefur boðist áður, meðai
annars tvær vegahandbækur með
ótal gagnlegum upplýsingum um
akstursleiðir og fleira. -Sjó.
Ný tækni við veiðar á kúfiski:
„Gæti gert veið-
arnar arðbærar"
segir Finnur Ingólfsson, aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra
■ Sjávarútvegsráðuneytið, í samvinnu
við fleiri aðila, kannar nú möguleika á
að hefja veiðar og vinnslu á kúfiski í mun
stærri stíl en hingað til hefur verið gert.
Binda menn miklar vonir við nýja veiði-
tækni og er talað um að hefja tilrauna-
veiðar með vorinu.
„Það er margt sem bendir til að
markaðsmöguleikar fyrir kúfisk séu
nokkuð miklir núna. Það sem hins vegar
stendur þessum veiðum fyrir þrifum er,
að veiðarfærið, sem við íslendingar
höfum notað hingað til, það er að segja
plógurinn, skemmir allt of mikið af
skelinni, eða milli 70 og 80% af því sem
næst upp úr sjónum. Þess vegna verður
að fást miklu hærra verð fyrir þessa
afurð en hingað til hefur boðist. Takist
okkur hins vegar að nýta skelina betur
er alls ekki útilokað að veiðarnar verði
arðbærar," sagði Finnur Ingólfsson, að-
stoðarmaður sjávarútvegsráðherra og
formaður nefndar sem fjallar um þessi
mál, í samtali við Tímann.
Finnur sagði, að Bandaríkjamenn
hefðu um nokkurt skeið notað sjóþrýsti-
dælur til að veiða skelina. Þær hefðu
gefið mjög góða raun og skilað um eða
yfir 80% af henni heilli. Ef við tækjum
þetta tæki í okkar þjónustu, væri ljóst,
að hægt væri að ná miklu meiri verð-
mætum á hvert skip, sem veiðarnar
stundar.
Þá sagði Finnur, að síðustu ár, hefðu
bandarískir fiskimenn fyllt kúfiskkvót-
ann við strendur Bandaríkjanna. Þess
vegna væri líklegt að nú væri nokkurt
svigrúm á Bandaríkjamarkaði. -Sjó
Hross valda usla
á Suðurlandsvegi
■ Vegna fannfergisins undanfarið hafa
hross átt greiða leið yfir girðingar og
Hvað er að
gerast í
íslenskum
bókmenntum?
■ Félag bókmenntafræðinema við
Háskóla íslands stendur fyrir umræðu-
fundi um íslenskar bókmenntir, fimmtu-
daginn 16. febrúar í Félagsstofnun stú-
denta kl. 20.30.
Matthías Viðar Sæmundsson bók-
menntafræðingur, Silja Aðalsteinsdótt-
ir, bókmenntafræðingur, Einar Kárason
rithöfundur og Sigurrós Erlingsdóttir
flytja framsöguerindi á fundinum en
síðan verða frjálsar umræður.
skurði við Suðurlandsveg og valdið stór-
hættu á veginum. Töluvert hefur verið
um það undanfarið að ökumenn hafi
ekið á hesta á Suðurlandsvegi og drepið
þá og stórskemmt bifreiðar sínar.
„Þetta er meiriháttar vandamál" sagði
Valgeir Guðmundsson lögreglumaður á
Hvolsvelli í samtali við Tímann" og við
getum í rauninni ekkert gert annað en
hvatt ökumenn til að sýna varkárni og
bændur til að reyna að koma í veg fyrir
að hestar þeirra komist út á vegina, t.d.
með því að færa þá til eða breyta
gjafatíma þeirra, til að halda þeim
heima við á kvöldin en þá er hættan
mest."
Valgeir sagði að'mest hefði borið á
hrossahópunum austan við Hvolsvöll,
vestan við Hellu og í nánd við Selfoss.
GSH
Samvinnubankinn á Selfossi
mun frá og með fimmtudeginum 16. febrúar nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um kaup og sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERLEND
VŒ)S