Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 3
Rekisstjórnin ræðir þyrlumál Landheðgisgæslunnar:
LÍKLEGAST ER AÐ FRÖNSKU
ÞYRLURNAR VERÐI KEYPTAR
— verið er að kanna möguleika á
samstarf i Landhelgisgæslunnar og
Flugmálastjórnar
■ Fyrirhuguð þyrlukaup Landhelgis-
gæslunnar voru m.a. tii umræðu á
ríkisstjórnarfundi í gærmorgun, og sam-
kvæmt heimildum Tímans þá mun nefnd
sú sem vinnur að könnun á mismunandi
þyrlutegundum, verð - getu - og gæða-
samanburði vera þeirrar skoðunar að
frönsku þyrlurnar sem Gunnar Asgeirs-
son er með umboð fyrir séu hentugastar,
en í öðru sæti listans eru Síkorskíþyrl-
urnar bandarísku. Ríkisstjórnin mun
ekki hafa tekið neina endanlega afstöðu
til þess hvaða þyrlugerð verði keypt,
heldur var ákveðið að skoða betur
flugvélaþörf Landhelgisgæslunnar í
heild sinni, og þá um leið möguleika á
samstarfi Flugmálastjórnar og Land-
helgisgæslunnar, en slíkt samstarf hefur
lengi verið til umræðu án þess að nokkuð
hafi frekar orðið úr framkvæmdum á því
sviði. Nú virðist samkvæmt heimildum
Tímans vera meiri grundvöllur fyrir
slíku samstarfi, enda hefur komið á
daginn að Gunnar Bergsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar hefur lýst sig mjög
fylgjandi slíku samstarfi. Engin ákvörð-
un var tekin á fundi ríkisstjórnarinnar,
heldur var málinu frestað.
Líklegt má telja að niðurstaðan verði
sú að frönsku þyrlurnar verði keyp.tar.
þar sem þær að mati nefndarinnar eru
lægstar í verði, hafa nokkra mikilvæga
kosti, eins og þann að þær geta mjög
auðveldlega athafnað sig frá litlu varð-
skipunum okkar, það er hægt að leggja
blöðin aftur og spaðinn að aftan er
þannig gerður, að þótt hann bili, þá geta
þyrlúrnar flogið áfram. Auk þess eru
þær sagðar talsvert sparneytnari en Sík-
orskíþyrlurnar sem eru í öðru sæti hjá
nefndinni, en hún er aðeins stærri en þær
frönsku, eyðir talsvert meira, en ber
einnig talsvert meira. Telur nefndin því
að hún sé talsvert dýrari í rekstri en
franska þyrlan. -AB
■ Bláfjallanefnd fékk verðlaun
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir vel unnin
störf á sviði umhverfismála á
árinu 1983. Er þetta í fyrsta
skipti sem slík verðiaun eru veitt
en ætlunin er að veita þau árlega
héðan í frá, fyrst og fremst til að
vekja athygli fólks á mikilvægi
umhverfismála í og við þéttbýlið
á suð-vesturhorni landsins. Elín
Pálmadóttir, formaður Bláfjalla-
nefndar, veitti verðlaununum,
skúlptúr eftir Hallstein Sigurðar-
son, viðtöku fyrir hönd nefndar-
innar.
Tímamynd Árni Sæberg.
Bjargrádasjódur:
Ríkisábyrgd
upp á þrjá-
tíu milljónir
■ Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- veitt.
um í gær að veita ríkisábyrgð upp á 30 Steingrímur Hermannsson forsætis-
milljónir króna til Bjargráðasjóðs, vegna ráðherra, upplýsti Tímann í gær, í þessu
lántöku sjóðsins vegna fóðurerfiðleika sambandi að nú á næstunni yrði flutt
landbúnaðarins, en fram til þessa hefur breytingartillaga við lánsfjárlögin í sam-
talsverður ágreiningur ríkt í ríkisstjórn- ræmi við þessa ákvörðun ríkisstjórnar-
inni um þetta mál, þar sem Albert innar að veita Bjargráðasjóði ríkis-
Guðmundsson, fjármálaráðherra, hefur ábyrgð upp á 30 milljónir króna.
staðið gegn því að slík ríkisábyrgð værí -AB
Yfirvinnubannið:
„Vona að
það leys-
ist án
vandræða"
— segir for-
sætisráðherra
■ „Ég er nú að vona að samningavið-
ræðurnar í Vestmannaeyjum leysist
þannig að ekki þurfi að fylgja þeirri
lausn nein meiriháttar vandræði," sagði
Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra í samtali við Tímann í gær.
Forsætisráðherra sagði jafnframt:
„Fiskvinnslunni er það Ijóst að hún fær
ekki meiri gengisbreytingu til þess að
standa undir auknum kostnaði og það
hefur vafalaust sín áhrif á þessar við-
ræður.“ -AB
Ársþing FÍI
■ Ársþing Félags íslenskra iðnrekenda
verður haldið að Hótel Loftleiðum næst-
komandi þriðjudag. Pingið hefst klukk-
an 10:30 með ræðu Víglundar Þorsteins-
sonar formanns F.Í.I., en því næst er
ræða Sverris Hermannssonar iðnaðar-
ráðherra. Af öðrum dagskrárliðum má
nefna að Sigurgeir Jónsson aðstoðar-
bankastjóri ræðir orku og stóriðju, sér-
stökum tíma er varið til umræðna um
vöruþróun og markaðssetningu og undir
lok þingsins mún Pétur Eiríksson ræða
orkuverð til iðnaðar.
Hressir og traustir
fréttaritarar óskast
Nútíminn hf. óskar eftir hressum og traustum
fréttariturum um land allt. Þurfa að geta tekið
myndir. Greiðslur fyrir hvert verk. Umsóknir
skal senda til Nútímans h.f. Síðumúla 15,
Reykjavík, og skulu þær ekki berast seinna en
1. apríl n.k. Starfandi fréttaritarar Tímans, er
óska að halda störfum áfram sem slíkir sendi
einnig bréf þar að lútandi fyrir sama tíma.
Nútíminn h.f.