Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 8
FOSTUDAGUR 16. MARS 1984 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson: Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guðný Jónsdóttir Ritstjórn skrlfstofur og auglýsingar: Sfðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. ’ Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Skuldbreytingar hjá bændum ■ Nokkrar umræður hafa orðið á Alþingi um stjórnarfrum- varp þess efnis að heimilað verði að breyta lausaskuldum bænda í föst lán. Til skýringar á þessu máli þykir rétt að rifja hér upp efni blaðagreinar, sem Hákon Sigurgrímsson ritaði nýlega um þessi mál. Umrætt mál hefur verið í undirbúningi í rúm tvö ár og er af svipuðum toga spunnið og nýleg lausaskuldabreyting útgerðarinnar. Fyrirheit var gefið um hvort tveggja í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Stjórnskipuð nefnd undir forustu Bjarna Braga Jónssonar aðstoðarbankastjóra í Seðlabankanum, hefur fjallað um málið og á áliti hennar er frumvarpið byggt. Frumvarpið gerir ráð fyrir að veðdeild Búnaðarbanka íslands verði heimilað að breyta lausaskuldum bænda í föst skuldabréfalán, enda fallist skuldareigandi á slíka aðgerð og nægileg veð séu fyrir hendi. Stjórn veðdeildarinnar ákveður lánstíma og lánakjör. Rætt er um að lánin verði til allt að 12 ára og að fullu verðtryggð. Þarna er því ekki verið að gefa neinum neitt heldur gefa mönnum kost á að gera samninga um skuldabyrðina og dreifa henni á lengri tíma. Gert er ráð fyrir, að skuldabreytingin geti náð til lausaskulda bænda vegna fjárfestinga á jörðum þeirra árin 1979-1983, að báðum árum meðtöldum, svo og lausaskulda vegna jarðakaupa, véla- og fóðurkaupa á sama tíma. Hér er því eingöngu um að ræða skuldir vegna búrekstrar- ins sjálfs en ekki skuldir sem stofnað er til vegna einkaneyslu bóndans, svo sem vegna heimilisstofnunar, innbúskaupa o.þ.h. Um 600 bændur hafa sótt um skuldbreytingu eða 13% bænda í landinu. Alls er óvíst að öllum þessum 600 umsækjendum standi til boða að breyta skuldum sínum þegar mál þeirra hafa verið könnuð nánar eða þeir sjái sér hag í að taka skuldbreytingarlán þegar til kemur. Slíkt verður að meta í hverju einstöku tilviki. Bændur verða auk þess sjálfir að semja við skuldareigendurna um að þeir taki við skuldabréf- unum sem greiðslu á lausaskuldum og að sjálfsögðu að tryggja nægileg veð. Langflestir umsækjenda eru ungir menn sem byrjað hafa búskap á sl. 5-8 árum, menn sem hafa verið að kaupa jörð og fjárfesta í byggingum, bústofni og vélum. Hér er með öðrum orðum um að ræða hluta af vaxtarbroddi bændastéttarinnar og væri það því mikið áfall fyrir bænda- stéttina og byggð í landinu ef þessir menn neyddust til að hætta búskap. Astæðurnar fyrir fjárhagserfiðleikum þeirra sem sótt hafa um skuldbreytingar eru einkum fjórar: í fyrsta lagi of lítil lánafyrirgreiðsla við frumbýlinga. í öðru lagi kólnandi veðurfar, sem bæði hefur aukið kostnað við búreksturinn og dregið úr framleiðslunni. í þriðja lagi er verðbólgan og áhrif hennar. Fjórða megin ástæðan er svo samdráttur í búvörufram- leiðslunni. Árið 1979 var hafinn skipulegur samdráttur í nautgripa- og sauðfjárframleiðslu vegna erfiðra markaðsskil- yrða. Því til viðbótar kemur svo samdráttur af völdum kólnandi tíðarfars. Á síðustu 5 árum hefur mjólkurfram- leiðslan dregist saman um rúm 13% og kindakjötsframleiðsl- an um fast að 20%. Þessi samdráttur hefur haft í för með sér gífurlegt tekjutap fyrir bændur og þótt menn bindi vonir við að nýjar búgreinar komi smám saman í staðinn, hefur enn ekkert náð að fylla þetta skarð. Það liggur í augum uppi að slíkt tekjutap kemur verst við þá sem nýlega hafa byrjað búskap, eru skuldum vafnir og hafa e.t.v. ekki enn náð upp fullum afköstum í búrekstrinum. Þ.Þ. skrifað og skrafað Ætlar Sverrjr að standa fyrir taprekstri? Jón Kristjánsson ritstjóri Austra fjallar um furöuviðtal það sem íslendingur á Akur- eyri átti við Sverri Her- mannsson iðnaðarráðherra og birtist í blaðinu 16. febrú- ar s.l. Jón skrifar: „Ég get ekki orða bundist út af nokkrum ummælum í þessu viðtali og vil því stinga niður penna af því tilefni. Blaðamaður spyr: „Hvað á að ganga langt í því að halda uppi vinnu í Slippstöð- inni“? „Eins langt og þarT’. „Og bæta við togara“? „Já“. „Og jafnvel þótt ekki sé nægur fiskur?“ „Já.“ Síðar í viðtalinu er rætt um atvinnumál á Húsavík og blaðamaður spyr. „En hvað kemur þá til greina fyrir Húsavík?“ „Það er nú það. Ég er ekkert að velta fyrir mér Húsvíkingum fremur en Ogurvíkingum. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af þeim.“ Og enn síðar. „En ég vil meta hlutina kalt. Ef t.d. ekki stenst að reisa Kísilmálmverksmiðju ■ mínu kjördæmi, þá verður hún aldrei reist og þeir mega skera mig á háls ef þeim sýnist. Ekkert getur hróflað við mér i því efni. Ég ber enga tillögu fram nema ég sé viss um að þessi verksmiðja borgi sig.“ Ástæðan til þess að ég get ekki orða bundist vegna þess- ara ummæla er sá tvískinn- ungur sem hér kemur fram. Annars vegar er því haldið fram að halda eigi uppi at- vinnu í ákveðnu fyrirtæki án tillits til þess hvort nokkuð er við framleiðslu þess að gera eða ekki. Hins vegar er allt annað uppi á teningnum með Kísilmálmverksmiðjuna. Þessi lesning hefur verið ætl- uð Akureyringum en ekki Austfirðingum, en það eru nú takmörk fyrir því hvað hægt er að láta hafa eftir sér í öðrum sóknum. Það versta er að lesa má það milli línanna í viðtalinu við ráðherrann á ummælum hans að Austfirðingar hafi haft um það kröfu að reisa skyldi Kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði hvort sem það væri hagkvæmt og álitlegt fyrirtæki eða ekki. Það ber að undirstrika að svo er ekki. Engar slíkar kröfur hafa ver- ið hafðar uppi og allur undir- búningur þessa verkefnis hef- ur verið miðaður við það að Ijóst sé áður en ráðist er í framkvæmdir að hér verði um lífvænlegt fyrirtæki að ræða. Allar áætlanir benda til þess að svo geti orðið. Því ber að vinna að því undan- bragðalaust að hægt sé að koma málinu á framkvæmda- stig. Austfirðingar hafa ekki haft í hótunum við iðnaðar- ráðherra til þessa vegna Kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, hvorki um að skera hann eða hengja. Þeir krefjast hins vegar jafnræðis við aðra í atvinnumálum og vænta þess að stjórnvöld sýni þá framsýni að stuðla að því eftir mætti að stóriðnaður sem byggir á innlendri orku rísi utan Suðvesturlands. Slíkt mundi hafa mikil veltu- áhrif í viðkomandi lands- | hlutum og auka fjölbreytni atvinnulífsins til muna. Það segir sig sjálft að fyrirtækin verða að geta gengið og skil- að arði í eðlilegu markaðs- ástandi. Annars væri til lítils barist." Fólk vill sjá meiri árangur Hörmuleg útreið stjórnar- andstöðunnar í skoðana- könnun DV um fylgi stjórn- málaflokkanna hefur að von- um vakið athygli. Það er ljóst að heimskulegur heiftar- áróður stjórnarandstæðing- anna gegn öllu því sem vel er gert til að rétta af efnahagslíf- ið á ekki hljómgrunn meðal almennings. Magnús Bjarn- freðsson skrifar um málið og segir m.a.: „Hver er svo ástæðan fyrir þessum mikla stuðningi sem ríkisstjórnin og stuðnings- flokkar hennar virðast njóta? Ég held að það sé mjög nauðsynlegt bæði fyrir þá og andstæðingana að gera sér grein fyrir henni. Er hún góð stjórnarstefna eða mislukkuð stjórnarandstaða? Auðvitað verða aldrei allir sammála um það, en dæmi um hvort tveggja má nefna. Sjórnin nýtur þess fyrst og fremst að hafa þorað. Hafa þorað að ráðast gegn verð- bólgunni og náð henni niður, enda þótt það hafi kostað óþægindi og kallað yfir hana harðvítugar árásir stjórnar- andstöðu. Fólk er farið að sjá árangur og vill sjá meiri árangur. En ég held þó að megin- ástæðan felist í alrangri af- stöðu stjórnarandstöðunnar sem Alþýðubandalagið hefur að mestu leitt. Heift hennar hefur gengið fram af almenn- ingi. Sífelldar þulur um kjara- skerðingu, þar sem ekkert tillit er tekið til þess að verð- bólga hefur rýrnað, hafa farið í táugar á almenningi. Hann er ekki eins vitlaus og leiðtog- ar stjórnarandstöðunnar virðast álíta. Leiðtogar Al- þýðubandalagsins hafa misst jarðsamband sitt að verulegu leyti. Hávær hópur gervi- alþýðu hefur með sífelldum jáyrðum sínum leitt foringj- ana á villigötur og aðrir stjórnarandstöðuflokkar hafa asnast til að elta. Þessi heift hefur leitt til þess að menn hafa þjappað sér saman um stjórnina. Menn hafa fylkt sér saman gegn þessari heift fremur en vegna ánægju með ríkis- stjórnina. Á meðan stjórn- arandstaðan rekur sína bar- áttu á þennan hátt í stað þess að koma með úrræði sem almenningur vill styðja til þess að fá að búa í eðlilegu þjóðfélagi mun hlutfallstala stjórnarinnar halda áfram að vaxa." þingfréttir Tillaga á alþingi: Lagt til að hvalveið- um verði haldið áfram ■ Jón Sveinsson, fyrsti varamaður Framsóknarflokksins í Vesturlandskjör- dæmi hefur lagt fram þingsályktunartil- lögu um framhald hvalveiða við Island. Hún felst í því að ríkisstjórninni verði falið að sækja nú þegar um undanþágu frá samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um takmörkun hvalveiða, sem gildi á að taka árið 1986, með það fyrir augum að hvalveiðar haldi áfram við ísland undir vísindalegu eftirliti og með skynsamlegri stjórn. Tillöguna rökstyður Jón Sveinsson á eftirfarandi hátt: Með ályktun Alþingis 2. febrúar 1983 var samþykkt að mótmæla ekki af ís- lands hálfu samþykkt Alþjóðahvalveiði- ráðsins um takmörkun hvalveiða sem kunngerð hafði verið með bréfi til ríkis- stjórnarinnar dags 2. september 1982 og taka skal gildi frá og með árinu 1986. Um hvalveiðar hafa á seinni árum verið mjög skiptar skoðanir manna á meðal. Hafa náttúruverndarmenn haft sig mjög í frammi um vernd hvalastofna og algjöra stöðvun veiða. Hefur barátta þeirra í þessum efnum borið greinilegan árangur sem m.a. kemur fram í sam- þykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins. Á öðrum sviðum hefur barátta þeirra og borið árangur svo sem við vemdun og takmörkun veiða á selum. Hafa af- leiðingar þessa bitnað á þjóðum sem að mismiklum hluta hafa átt afkomu sína undir þessum veiðum. Að mati flutnings- manns hafa sjónarmið náttúruverndar- manna þó oft fremur mótast af tilfinning- um en markvissum rökum og vísinda- legum athugunum. Rannsóknir á hvölum hér við land hafa átt sér stað um langt skeið. Rann- sóknir hafa á undanförnum áratugum verið að miklu leyti í höndum samstarfs- aðila Hafrannsóknastofnunar, en á síð- ari árum nær algerlega færst í hendur íslendinga sjálfra. Gefa vísindalegar at- huganir ekki tilefni til að ætla að hvala- stofnar við ísland séu í hættu vegna ofveiði. Benda vtsindalegar rannsóknir fremur til að veiðarnar hafi á seinni árum verið stundaðar af fyrirhyggju og skynsemi. Haldi veiðar áfram ætti því ekki að vera hætta á að breyting verði hér á. Á Alþingi hefur yfirleitt verið reynt að stuðla að því að atvinnustarfsemi, sem fyrir er, eflist og styrkist en ekki að úr henni sé dregið og hún jafnvel aflögð. Er samþykkt Alþingis frá 2. febrúar 1983 sérstök að þessu leyti því að komi til algjörs hvalveiðibanns leggst niður starf- semi fyrirtækis sem rekið hefur verið með ágætum frá 1948. Fyrirtækið hefur veitt fjölda manns atvinnu, síðast liðið sumar um það bil 200 manns, en þá voru gerðir út þrír hvalbátar í stað fjögurra árið áður. Störfuðu 45 manns á hvalbát- um en um 155 manns í hvalstöðinni í Hvalfirði og fyrirtæki Hvals hf. í Hafnar- firði. Til viðbótar starfsemi Hvals hf. eru stundaðar hrefnuveiðar hér við land á nokkrum stöðum sem veita atvinnu og skapa tekjur. Loks er þess að geta að hlutur hval- afurða árið 1983 er talinn nema tæpu 1,6% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Það er illt að verða af slíkum tekjum við minnkandi sjósókn og aflamagn í sjávar- útvegi. Þar sem takmörkun eða bann Alþjóða- hvalveiðiráðsins á að taka gildi árið 1986 sem ekki er svo langt undan og Ijóst er að allar undanþágur þarf að sækja með viðræðum og fundahöldum sem óhjákvæmilega taka sinn tíma er þessi tillaga flutt nú. Er með henni vænst að tekið verði á þessum málum nú þegar enda miklir hagsmunir í húfi, ekki aðeins fyrir þá einstaklinga, sem eiga atvinnu sína undir þessum veiðum, held- ur einnig sveitarfélög þau, sem hlut eiga að máli, og síðast en ekki síst ríkisstjóð vegna útflutningstekna. -OO

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.