Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 5
840 FLUTTII TIL HÖFUÐBORG- ARSVÆÐISINS Á SÍÐASTA ÁRI — umfram þá sem fluttu burt, sem er nálægt samanlögðum fbúafjölda Þórshafnar og Raufarhafnar ■ Alls fluttu 840 manns tii höfuðborgarsvæðisins á síðasta ári frá öðrum stöðum á landinu umfram þá er fluttu af höfuðborgarsvæðinu út á landsbyggðina. Til samanburðar má geta þess að samanlagður íbúafjöldi Þórshafnar og Raufarhafnar var 887 manns um síðustu áramót. Flutningar innanlands til höfuðborgarsvæðisins voru alls 6.098 manns en þaðan út á land 5.258. Frá öllum kjördæmum landsins-utan Reykjavíkur og Suðurnesja flutti veru- lega fleira fólk á síðasta ári en þangað fluttu. Mestu munar þar hlutfallslega hjá Vestfirðingum og á Norðurlandi- Vestra þar sem nær 40% fleiri fluttu brott en þeirsem komu í staðinn. Þannig misstu Vestfirðingar 192 manns í þessum skiptum, sem jafngildir nokkurnveginn öllum íbúum Reyðarfjarðar-, Nauteyr- ar- og Snæfjallahrepps. Á Norðurl.-V. var munurinn 168 manns, eða nákvæm- lega íbúatala Svínavatnshrepps í A- Hún. Þá missti Vesturland 207 manns fleiri en þangað fluttu, Norðurland- Eystra 205 manns og Austfirðingar 148 manns. Ef við lítum á sjálfa höfuðborgina, Reykjavík, þá fluttu þangað á síðasta ári 3.134 manns, þar af 1.579 frá lands- byggðinni utan Reykjavíkur og Reykja- nesskjördæmis. Þeir sem fluttu frá Reykjavík og út á landsbyggðina voru hins vegar rúmum þriðjungi færri, eða aðeins 1.036 manns alls. Verst fór Norðurland-Vestra hlutfallslega út úr skiptunum við Reykjavík, fengu þaðan 99 manns í stað þeirra 196 sem til Reykjavíkur fluttu að norðan. Talið í mönnum var tapið þó meira hjá Vestur- landi, þaðan sem 259 fluttu til Reykja- víkur en 120 færri komu til baka. Sömuleiðis fékk Norðurland-Eystra 109 manns færra til baka í þessum skiptum við höfuðborgina, Austurland 96 manns færra og Vestfirðir 78 manns færra. Úr sveitum landsins fluttu í fyrra þriðjungi fleiri en þangað fluttu í staðinn, 1.253 fiuttu brott en 818 manns komu í staðinn, og munurinn því 435 manns. Annað strjálbýli, þ.e. staðir með 200 íbúa eða færri stóðu sig hins vegar vel í samkeppninni um fólkið. Alls voru það 11.185 íslendingar sem fluttu búferlum milli sveitarfélaga innan- lands á síðasta ári, eða nær 5% af þjóðinni, auk allra þeirra sem fluttu sig um set innan hvers sveitarfélags. -HEI H0LLANDS- HÁTÍÐ í HÁSKÓLA- BIÓI ■ Samvinnuferðir/Landsýn gangast fvrir Hnllandshátíð í Háskólabíói á sunnudaginn kl. 14.00 til 16.30. Á hátíðinni munu koma fram fjölmargir hollenskir gestir og íslenskir skemmti- kraftar. Meðal annars leikur hollenskur líru- kassaleikari í anddyrinu, tréklossa- smiður sýnir og bakarameistari bakar hollenskar pönnukökur. í salnum verða sýndar teiknimyndir, farið í ferðabingó, barnaleikhúsið Tinna sýn- ir leikritið Nátttröliið, Steini og Olli koma fram og trúðurinn Skralli leikur við krakkana. Allir eru velkomnir á hátíðina. Hollensk ferðaveisla verður síðan á sunnudagskvöldið í Súlnasal Hótel Sögu með fjölda skemmtiatriðd og hollensk- um matseðli. -GSH ■ Aðalfundur Kaupmannasamtaka íslands var haldinn á Hótel Sögu í gær. Sigurður E. Halldórsson, formaður samtakanna í ræðustól. Tímamynd GE. Adalfundur Kaupmanna- samtaka íslands / ■■ Bílasala Guðfinns VILL SERSTAKA L0G- «■ r GJ0F UM KRITARK0RT fær lóð í Öskjuhlfð ■ Skipulagsnefnd Reykjavíkur hcfur samþykkt úthlutun lóðar til Bílasölu Guðfinns í Öskjuhlíð, í krikanum á milli Bústaðavegar og aðkeyrslunnar að veðurstofunni, til þriggja ára og að Borgarskipulagi skyldi falið að gera skilmála. Fulltrúar Kvennaframboðs og Alþýðubandalags greiddu atkvæði á móti. Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar formanns skipulagsnefndar er hér Húnvetninga- mót í Domus ■ Sýslumannshjónin á Blönduósi verða heiðursgestir Húnvetninga- mótsins sem Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur laugardaginn 24. mars n.k. kl. 19.30 í Domus Medica. Húnvetningafélagið er nú að vinna að innréttingu nýs félagsheimilis í Skeifunni 17. -GSH um að ræða u.þ.b. 25000 fermetra loð og þar eð aðeins er lagt til að úthlutunin nái til þriggja ára myndi lóðarhafinn, Guð- finnur Einarsson bílasali ekki fá leyfi tU að byggja varanlegar byggingar á lóð- inni, en hann fengi hins vegar að malbika bflastæði. Borgarráð frestaði rnálinu á síðasta fundi sínum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði í samtali við blaðið í gær að erfitt hefði reynst að finna lausnir á lóðavandamál- um bílasalanna í bænum, en bílasalar sjálfir leggja höfuðáherslu á að vera með aðstöðu vestan Elliðaáa. Hins vegar sýndi reynslan að margir virtust hafa horn í síðu bílasalanna þegar þær væru komnar upp í nágrenni við þá. Staðurinn sem skipulagsnefnd hefur fyrir sitt leyti samþykkt í Öskjuhlíð fyrir Bílasölu Guðfinns væri að sínu áliti hentugur vegna þess að þar væri ekki íbúðabyggð, en hins vegar lægi hraðbraut í næsta nágrenni. Bílasala Guðfinns hefur verið á hrak- hólum að undanförnu, henni var úthlut- að lóð nálægt Reykjavíkurflugvelli en lóðarúthlutunin dregin til baka vegna þess að staðsetning hennar braut í bága við öryggisstaðla vegna flugsins. Um hríð hefur bílasalan verið á lóð eigand- ans. -JGK ■ Þann 6. apríl verður opnuð bflasýn- ing í Reykjavík. Nefnist hún AUTO ’84 og verður haldin í Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða og HG-húsinu við Tangar- höfða, auk þess sem sýnt verður á útisvæðum. Þarna verða að sjálfsögðu sýndir margir bílar og margar nýjungar kynntar, þarna verða einnig vörubílar, ■ Aðalfundur Kaupmannasamtaka íslands var haldinn að Hótel Sögu í gær. í ályktun fundarins er árangrinum í baráttunni við verðbólguna fagnað. Einnig fagnar fundurinn því, að búið sé að afnema löggjöf um fasta hlutfalls- álagningu í verslun. Hinsvegarharmar sendiferðabílar, dráttarvélar, rallýbílar, sýningar á verkfærum og fylgihlutum o.s.frv. Einnig verður veitingaaðstaða, skemmtiatriði og alls konar uppákomur, svo sem venja er á slíkum sýningum. Fornbílaklúbburinn verður þarna með sýningu í tilefni 80 ára afmælis bíla á íslandi. Þeir munu verða með 14-15 bíla á sýningunni, allt fallega og vel uppgerða bíla, þ.a.m. nýuppgerðan Ford-T í eigu fundurinn að sérstakur skattur á versl- unar og skrifstofuhúsnæði skuli ekki hafa verið lagður niður. Þá segir í ályktun fundarins, að setja beri sér- staka löggjöf um krítarkort sem tryggi að notendur slíkra korta beri kostnað- innafþcim... -Sjó. Þjóðminjasafnsins og verður það elsti bíllinn. Yngsti bíllinn verður frá ’64. Einnig verður fornbílaklúbburinn með klefa þar sem sýndur verður fornbíll sem verið er að gera upp, og þar verða gömul verkfæri í kring. Auk þess verður myndasýning með myndum af gömlum bílum. Sýningin stendur til 15. apríl. -ÁDJ AUTO ”84 OPNUÐ í BYRJUN APRIL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.