Tíminn - 16.03.1984, Page 7
FÖSTUDAGUR 16. MARS 1984
7
Fæddi barn
í þyrlu í
1000 m hæð
■ - „Hún litla dóttir mín
fæddist við himinshlið“, segir
Susan Farlow í Barstow í Flor-
ida, þegar hún er spurð um hvar
hún hafi fætt barn sitt, - hvort
hún hafi verið á spítala eða fætt
heima.
Reyndar var ætlunin hjá Susan
að fæða barnið á fæðingardeild.
Hún var komin tæpa 7 mánuði
á leið, svo ekki höfðu verið
gerðar ráðstafanir fyrir flutning
á sjúkrahúsið. Súsan átti 2 böm
fyrir, og þegar þau fæddust gekk
allt eðlilega.
Þennan dag voru þau hjón og
börnin að búa sig í grillveislu
hjá kunningjum sínum, en allt
í einu varð Susan veik og kallað
var í heimilislækninn. Næsta
skref var að komast til sjúkra-
hússins í heimabæ okkar. Þar
beið þá eftir þeim sjúkrabfll, því
að ekki þótti ráðlegt að fæða
barnið þar, því það fæddist svo
langt fyrir tímann.
„Þeir vildu flytja mig á fæð-
ingardeildina Loma Linda, en
það var um 100 km akstur,"
sagði Susan. „Farið var af stað
með vælandi sírenur, en veðrið
var mjög slæmt, svo ekki var
hægt að aka hratt. Þegar við
vorum um það bil hálfnuð, þá
fóru verkirnir að versna og
hjúkrunarkonan sem var með
mér í bflnum sá að það leið að
fæðingu. Þá var haft samband
við þyrlu, - og það næsta sem ég
vissi var að sjúkrakarfan með
mér í var í flughasti flutt inn í
þyrluna.“
Eftir eins og flmm mínútur,
rétt þegar þyrlan var komin í
loftið hrópaði Susan: „Barnið er
að koma“ og svo fæddist barnið
rétt þegar þyrlan var á ná 1000 m
hæð.
Nú varð uppi fótur og fit, því
barnið var fætt, en var svo líflít-
ið, að það grét ekki, en loks eftir
nokkrar mínútur tókst hjúkrun-
arkonunni að lífga hana við, og
allir í þyrlunni glöddust þegar
veikburða gráturinn heyrðist um
vélina. Telpan var tæpar 7 merk-
ur og var skírð Huey - eftir
þyrlunni sem hún fæddist í!
■ Susan og litla dóttir hennar, Huey, sem skírð var í höfuðið á
þyrlunni.
saumað og litað. Síðan var sam-
keppni í framhaldsdeildum
Heppuskóla og Nesjaskóla, þar
sem krakkarnir teiknuðu fyrir-
myndir að baktjöldum, þannig
að þau eiga þátt í vinnunni líka.
Það hafa eiginlega allir verið
virkjaðir“.
Það er töluverð leikhúshefð á
Höfn er það ekki?
Jú, hér er til dæmis Gísli
Arason, sem hefur mikla leik-
reynslu að baki. Hann leikur
Gottskálk gamla, og síðan er
Ingunn Jensdóttir sem leikur
Rósu dóttur hans, síðan má
nefna Hauk Þorvaldsson, margir
kannast við hljómsveit Hauks
Þorvaldssonar, hann leikurFinn,
tilvonandi elskhuga, Ingvar
Þórðarson og Þorsteinn Sigur-
bergsson leika tvo. útlendinga,
Svía og Norðmann.. það er
svolítið háð á þessa trændur
okkar. Guðni Björgúlfsson leikur
krimma, eiginmanna Rósu, hann
sleppur út úr fangelsi við og við.
Hvað með tónlistina, er hún
samin af heimamönnum?
Nei, tónlistin er stolin og stæld
en leikarnir semja hver sína
söngtexta, en Arnþór Jónsson
leikur undir á harmóniku. Elsti
leikarinn er 75 ára, Vilborg Val-
geirsdóttir, en sá yngsti er 15
ára, þannig að það er ekkert
kynslóðabil og fólkið sem sinnir
þessu er í alls konar störfum
flestir búnir að Ijúka 12 tíma
vinnudegi þegar æfingar
hefjast“.
Þið gerið auðvitað ráð fyrir
mörgum sýningum og mikilli
aðsókn?
Já, að sjálfsögðu. Við munum
m.a. vera með miðnætursýning-
ar, sem hefjast klukkan 23.00.
Þannig að fólk hefur tíma til búa
sig í leikhúsið ci'.ir að gegningum
lýkur. Það má vel vera áð við
hugsum okkur eitthvað til hreyf-
ings með sýninguna, en það er
dýrt og verður að ráðast.
- JGK.
erlent yfirlit
■ UM HELGINA hófst í
Lausanne í Sviss sáttafundur
hinna stríðandi afla í Líbanon.
Tilgangur fundarins er í fyrsta
Iagi að koma á vopnahlé í Líban-
on, en í öðru lagi að koma á nýrri
stjórnarskipun, sem sé meira í
samræmi við nútímann eða
réttara sagt skiptingu íbúa í
trúarflokka en sú, sem nú gildir.
Það er ekki talið vonlaust, að
samkomulag geti náðst um
vopnahlé, en óvarlegt þykir að
gera ráð fyrir, að það haldist
lengur en meðan ráðstefnan
stendur yfir.
■ Helzta von G emayels forseta er að Assad Sýrlandsforseti reynist honum hjálplegur, en hann hefur
veruleg áhrif á leiðtoga múhameðs- trúarmanna í Líbanon.
Sáttahorfur eru litlar
á fundinum í Lausanne
— Skipting Líbanons helzt líklega áfram
Ástæðan er sú, að lítil trú er á
því, að samkomulag náist um
nýja stórnarskipan. Þegar
Líbanon hlaut sjálfstæði 1943
eftir stutt yfirráð Frakka, náðist
samkomulag um það fyrirkomu-
lag, að forsetinn og yfirhershöfð-
inginn yrðu jafnan úr hópi krist-
inna manna, en forsætisráðherr-
ann úr hópi súnni-múhameðs-
trúarmanna og forseti þingsins
úr hópi shíta-múhameðstrúar-
manna. Þá skyldu kristnir menn
fá meirihiuta á þingi. Sú regla var
þar lögð til grundvallar, að
kristnir menn fengu 6 þingmenn
af hverjum 11.
Þetta samkomulag var byggt á
því, að samkvæmt manntali frá
1934 var talið að kristnir menn
væru fleiri en múhameðstrúar-
menn. Þetta var þó dregið í efa,
en Frakkar studdu kristna menn
og varð því skipulagið þeim í
hag, eins og að framan greinir.
Nú er viðurkennt af öllum, að
múhameðstrúarmenn séu orðnir
stórum fjölmennari en kristnir.
Yfirleitt er talið, að þeir séu
rúmlega 60% af íbúum
Líbanons.
í samræmi við þetta krefjast
þeir gerbreytingar á stjórnar-
skipulaginu og horfið verði frá
þeirri skiptingu í helztu valda-
stöðum ríkisins, sem verið hefur
í gildi síðan 1943.
ÞÓTT íbúar Líbanons skiptist
aðallega í tvo trúarflokka, eru
trúarflokkarnir eða trúarbrotin
miklu fleiri. Þannig skiptast mú-
hameðstrúarmenn í ekki færri
en fimm hópa. Shítar eru taldir
fjölmennastir eða nær 30% íbú-
anna, en þeir eru taldir rúmar 3
milljónir. Næst á eftir shítum
koma súnnítar og síðan Drúsar,
sem eru taldir um 90-100 þúsund.
Auk þess eru tvær smærri trúar-
deildir, auk lítilla sérhópa.
Kristnir menn skiptast í ekki
færri en eilefu hópa. Stærsta
hópinn mynda svokallaðir
marónítar, en a.m.k. um hálf
milljón íbúanna telst til þeirra.
Meðal þeirra hefur risið upp
öflug hreyfing, falangistar, sem
hefur vopnuðum sveitum á að
skipa. Stofnandi hreyfingar fal-
angista var Pierre Gemayel, fað-
ir Amins Gemayels, núv. for-
seta.
Næsta fjölmennastur mun
vera hópur grísk-katólskra, sem
telur um 200 þúsund manns. en
■ Drúsa-leiðtoginn Walid Jumblatt hefur undanfarið látið mikið til
sm taka.
þar næst koma rómversk kat-
ólskir, sem flestir eru af grískum
ættum. Loks eru mótmælendur
um 10 þúsund og margir aðrir
smáflokkar.
Flestir hópar kristinna manna
hafa myndað samtök, líbönsku
fylkinguna, og kemur hún fram
fyrir hönd þeirra á sáttafundin-
um í Lausanne. Aðalfulltrúar
hennar þar eru Camille Cham-
oun (85 ára), fyrrv. forseti, og
Piérre Gemayel (78ára), Cham-
oun er formaður líbönsku fylk-
ingarinnar.
Utan líbönsku fylkingarinnar
eru svo samtök kristinna manna
undir forustu Suleiman Franjieh
(73 ára), fyrrum forseta. Fylgis-
menn hans eru aðallega í
Norður-Líbanon, en fylgismenn
þeirra Chamouns og Gemayels
eru aðallega í Beirút og miðhluta
landsins.
Milli þeirra Chamouns og
Gemayels annars vegar og Fra-
njiehs hins vegar hefur lengi ríkt
eins konarstyrjaldarástand. Fyr-
ir nokkrum misserum lét Bashir,
sonur Gemayels, myrða son Fra-
njiehs, ásamt konu hans og
barni.
Ef til vill hefur það verið
hefnd fyrir þann verknað, að
Bashir Gemayel var myrtur í
september 1982, en hann var þá
nýorðinn forseti. Amin bróðir
hans varð eftirmaður hans.
Á SÁTTAFUNDINUM í Lau-
sanne hefur Franjieh myndað
bandalag með súnnítaleiðtogan-
Þórarinn
Þorarinsson,
ritstiori skrifar
um Rashid Karami fyrrv. forsæt-
isráðherra og Drúsaleiðtoganum
Wallid Jumblatt. í óbeinum
tengslum við þá er leiðtogi shíta,
Nabih Berri.
Shítar búa aðallega í suður-
hluta landsins, meðal annars á
því svæði, scm nú er hernumið
af ísrael. Drúsar búa einnig fyrir
sunnan Beirút og hafa því land-
fræðilega góða stöðu til árása á
borgina.
Hersveitir Jumblatts og Berris
ráða í dag mestum hluta Vestur-
Beirút og fjöllunum suðaustur af
borginni.
Auk þeirra, sem eru nefndir
hér að framan, eiga tveir aðrir;
leiðtogar múhameðstrúarmanna
sæti á ráðstefnunni. Það eru þeir
Saeb Alam, sem er súnníti, og
Adel Osseiran, sem er shíti.
Áhrif þeirra eru talin minni en
Jumblatts og Berris, því að þcir
hafa ekki hcr á bak við sig.
Báðir hafa þeir Jumblatt og
Berri haft náið samband við
Sýrlendinga. Auk þess leikur
grunur á, að Bei ri liafi einkum
samband við Khomeini leið-
toga írans, enda eru þcir báðir
shítar.
Þaö er kratu þeirra Jumblatts
og Berris að hætt verði að skipta
aðalembættum ríkisins milli
kristinna manna og múhameðs-
trúarmanna, eins og viðgengizt
hefur síðan 1943. Jumblatt hefur
þó hreyft þeirri hugmynd, að
forseti verði aðeins kosinn til
eins árs í senn og verði hann úr
hópi kristinna annað árið, en
hópi múhameðstrúarmanna hitt
árið.
Líbanska fylkingin, sem er
undir stjórn Chamouns og Pierr-
es Gemayel, eins og áður segir,
lýsir sig reiðubúna til að fallast á
breytta stjórnarskipun, en vill að
hún byggist á fylkjum, sem hafi
víðtæka sérstjórn, og verði trú-
arfriður tryggður með því móti.
Engar líkur þykja til þess að
sinni, að samkomulag náist um
nýja stjórnarskipun. Flestir ótt-
ast því, að ráðstefnan muni fyrr
en síðar fara út um þúfur og
hætta verði þá á að vopnuð átök
taki við, ef þau verða ekki hafin
áður.
Meðan stríðandi fylkingar í
Líbanon ná ekki samkomulagi
munu hvorki Sýrlendingar né
ísraeismenn kveðja heri sína
heim. Skipting Líbanons getur
orðið langvarandi og jafnvel var-
anleg.