Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.03.1984, Blaðsíða 10
10 •’i il I1.!U!l * FÖSTUDAGUR 16. MARS 1984 FÖSTIJDAGUR 16. MARS 1984 11 ■ Atli Hilmarsson skorar eitt 9 marka sinna gí|n!*Sovétmönuum i g*r. Alli átti frábæran leik, skoraði 6 mörk úr gullfallegunt langskotnm mcð uppstökki, -tvö al' línunni cftir scndingar frá Kristjáni Arasyni í skyndisóknum, og cinu skoti laumaði hann undir vörnina af löngu fieri. Atli cr nú í miklu og.góðu forrni, og fátt var um svör hjá Sovétinönnum cr hann rcif sig allt i einu upp og skaut. íþróttir URSLITA- KEPPNIN HEFST UM NÆSTU HELGI í 1. DEILD - hefst í 3. deild í kvöld ■ Úrslitakeppnin í 1. deild karla i handknattleik, efri og neðri hluta hefst um næstu helgi. Þá hefst einnig úrslita- keppni í efri hluta 2. deildar. Keppni í neðri hluta 2. deildar er þegar hafin, en úrslitakeppni efstu liða 3. deildar hefst í kvöld. Úrslitakeppnin í 1. deildefri ogneðri, og efri hluta 2. deildar verður á fjórurn helgum í röð, 23-25. mars, 30. mars-1. apríl, 6-8.apríl og 13-15. apríl. í efri hluta 1. deildar er 1. umferð í Seljaskóla, önnur umferð í Digranesi, 3. umferð í' Laugardalshöll og fjórða umferð í Hafn-. arfirði. í neðri hlutanum er fyrsta umferð á Akureyri, önnur umferð í Hafnarfirði, þriðja umferð í Seljaskóla og fjórða umferð í Laugardalshöll. í efri hluta 2. deildar er fyrsta umferð í Vestmannaeyjum, önnur umferð í Sel- tjarnarnesi, þriðja umferð í Digranesi og fjórða umferð í Seljaskóla. í neðri hluta 2. deildar lýkur fyrstu umferð í kvöld í Sandgerði, önnur umferð er dagana 19.-21. mars í Selja- skóla, þriðja umferö er í Digranesi 27-29. mars, og fjórða umfcrð í Selja- skóla 2-4. apríl. í efri hluta 3. deildar eru tvær umferðir leiknar. í kvöld klukkan 21.30 keppa Ármann og Þór, strax á eftir landsleik íslands og Sovétríkjanna. Klukkan 22.45 keppa í A og Týr. Keppni hefst klukkan 15.15 á Akureyri á morgun, og klukkan 13.30 á sunnudag. Síðari umferðin verð- ur leikin einhvers staðar dagana 23-25. mars, það er um næstu helgi. - SÖE. HK-ÍS í BLAKI - í kvöld í Digranesi ■ í kvöld eru fjórir leikir á íslandsmót- inu í hlaki. Völsungur leikur við Þrótt í Ydölum klukkan 20.00, en sá leikur er í 1. deild kvciina, sem og lcikur KA og Víkings í Glerárskóla í kvöld klukkan 20.30. í 1. deild karla leika HK og ÍS, og hefst sá leikur klukkan 21.50 í Digranesi í Kópavogi. Þetta er þriðja viðureign þessara fclaga í deildinni, og hefur HK tvisvar haft sigur. ÍS er komið í úrslit bikarkeppninnar, og hefur hug á að hefna taplcikjanna frá fyrr í vetur gegn HK, sem er nýverið búið að tryggja sér annað sætið í deildinni, sæti sem ÍS hefur í allmörg ár haft „einkarétt" á. - í annarri deild karla keppa í kvöld Sam- hygð og Breiðablik á Sclfossi klukkan 20.40. - SÖE. KAUPIR KÖLN SCHATZ- SCHNEIDER? - mikið um félagaskipti í þýskum blöðum ■ Frá Gísla Á Gunnlaugssyni iþrótlafrétta- manni Tímans í V-Þýskalandi: ■ Mikið er nú talað um félagaskipti hjá leikmönnum þýsku liðanna í þýskum blöðum, félagaskipti sem munu eiga sér stað í vor, svo fremi sem viðkomandi fréttir standast. Nú er talað um að 1 .FC Köln muni að líkindum kaupa markaskorarann Dieter Schatzschncider frá Hamburger Sport Verein, en HSV keypti í fyrravor þennan mesta markaskorara annarrar deildar þá. Þrátt fyrir að Schatzschneider hafi skorað grimmt fyrir HSV í vetur, er það ekki talið nóg, og hann er ekki talinn falla nógu vel að liðinu. Er hann nú fallinn út úr liðinu, var ekki í byrjunar- liðinu um síðustu helgi. Jafnframt cru orðaðir við Kölnarliðið tveir leikmenn Dortmund, þeir Klotz og Keser, sem er tyrkneskur landsliðsmað- ur. - GÁG/SÖE. Plymouth íenska bikarnum: HEHIR AIDRH KOMST IfNGRA — sigraði Derby 1-0 f fyrrakvöld ■ Plymouth Argyle, enska þriðju- deildarliðið í knattspyrnu, náði því sem það hefur lengst náð á ferlinum í fyrrakvöld, er liðið sigraði Derby County, annarrardeildarliðið, í átta liða úrslitum ensku hikarkeppninnar í knattspymu. Leikurinn fór fram á Baseball Ground, heimavelli Derby, en liðin gerðu jafntefli D'Strákarnir "! ■íéku með j !hjartanu“ ( !- sagði Bogdan landsliðsþjálfarí ■ | ■ „Strákarnir léku með hjartanu, I Iaf öllum mætti og ég er mjög ánægð- I ur með þá“, sagði Bogdan Kowal- * I czyk landsþjálfari eftir leikinn í gær | 1 gegn Sovétmönnum. „Þetta var sjö- . | undi leikur okkar á stuttum tíma, og | I það hefur verið mikið álag á drengj- | I unum undanfarið. Þeir stóðu sig með . Iprýði gegn besta landsliði heims“, | sagði Bogdan. | „Sovétmenn ero með besta lið ■ Iheims í dag, að mínu mati eru það | einungis Rúmenar sem geta sigrað I þá. - Við stöndum ekki nálægt því | " eins sterkir þegar við komum til leiks ■ I eins og þessir menn. Munurinn á I Iokkar mönnum og Sovétmönnunum I er til dæmis sá, að eftir leik fara þeir ■ | til læknis síns og nuddara, og hvíla I Isig svo vel á eftir, en okkar menn fara I nánast beint í vinnuna. Hvernig leggjast komandi leikir I í fyrstu viðureign sinni á Home Park í Plymouth á laugardaginn var. Plymouth sigraði í leiknum 1-0. Mark- ið skoraði Andy Rogers á 18. mínútu beint úr hornspymu. Skömmu síðar skallaði Tommy Tynan í stöng hjá Derby, og annan skalla í stöng Plymouth síðar í leiknum. Derby átti fá færi, ekkert gott nema í lokin þegar Archie Gemmill var einn i vítateignum, en ekkert varð úr. Derby var meira með boltann í leiknum, en Plymouth átti opnari færi, og sigurinn því verðskuldað- ur. Plymouth mætir Watford í undanúr- slitum bikarkeppninnar. Þriðjudeildar- liðið er ekki talið eiga mikla möguleika í leiknum, en Watford er nú talið sigurstranglegasta liðið í keppninni, eftir að dregið var í fjögurra liða úrslitin. Það lið sem vinnur þennan leik leikur gegn' Southampton, Shcffield Wednesday eða Everton, en hin tvö fyrrnefndu eiga, ólokið viðureign sinni í 8 liða úrslitum þegar þetta er skrifað. -SÖE ísland Sovétríkin íkvöld: AKUREVRINGAR FÁ LÍKLEGA LANDSLEIKINN — spáin er „pottþétt” umsjón: Samúd Öm Erlingssc i ■ „Það er pottþétt spá á morgun, og lítur allt mjög vel út“, sögðu „fram- kvæmdanefndarmenn“ Handknattleiks- sambands Islands, sem hafa haft veg og vanda af undirbúningi heimsóknar sov- ésku heimsmeistaranna í handknattleik. - Og hvort sem spáin er „pottþétt“ eða eitthvað annað, eru líkur allmiklar á því að Akureyringar fái sinn fyrsta landsleik í handknattleik til sín í dag og það við sjálfa heimsmeistarana, því spáin fyrir daginn í dag eins og hún hljóðaði upp á hægviðri og suðvestanátt í gær eftir því sem heimildir Tímans hermdu. Það er vonandi að Norðanmenn fái sinn landsleik, allir muna sorg þeirra vegna landsleiksins við Norðmenn á dögunum, sem ekki komust norður, STÓRKOSTLEGUR LEIKUR FRABÆRRA er heimsmeistarar Sovétmanna sigruðu íslendinga 25-21fgærkvöld í Laugardalshöll I I „Sovétmennirnir hafa tvöfaldan | kraft á við okkur, það er alveg Ijóst. | ■ Þeir hafa stóran hóp sterkra manna, I en okkar hópur er einfaldlega ekki | * nógu stór, okkur vantar fleiri leik- ■ | menn sem vilja og geta lagt það á sig I Isem þessir drengir gera.“ - Verða einhverjar breytingar' ■ gerðar á íslenska landsliðinu fyrir | ■ leikina á morgun og hinn? „Það er ekki Ijóst enn, en raunin | _ er sú að við getum varla gert nokkrar ■ | breytingar. Einu breytingarnar sem I Igætu átt sér stað eru að Jakob I Sigurðsson og Brynjar Kvaran kæmu * I inn. Ég get ekkert sagt um hvort það | 1 verður nú,“ sagði Bogdan. -SÖE ■ L. ■■ ■■■ ■ ■■■ mb mm mm ■! ■ Sovétmenn sigruðu íslendinga í gærkvöld 25-21 í frábærum leik, í Laugardalshöll. Sovétmenn sýndu frábæra takta, en það gerðu íslendingar líka, og óhætt er að segja að Bogdan landsliðsþjálfari sé á réttri leið með menn sína, á köflum höfðu íslendingar yfirburði í leiknum, en frábxrt leikskipulag, eitursnögg hraðaupphlaup og yfirvegaður leikur Sovétmanna gaf þeim sigur. Oleg Gagin aðalskytta Sovétmanna skoraði fyrsta mark leiksins, en Kristján Arason jafnaði úr víti sem Páll Ólafsson fiskaði laglega. Sovétmenn komust að nýju yfir, 2-1, en Þorgils Óttar Mathie- sen jafnaði eftir línusendingu Kristjáns Arasonar. Atli kom íslandi svo yfir eftir línusendingu Kristjáns, og eftir að Gagin hafði klúðrað víti skoraði Atli með glæsilegu langskoti 4-2. Sovétmenn náðu að jafna eftir að Steinari Birgissyni og Guðmundi Guðmundssyni var vikið af leikvelli, Guðmundi fyrir afar klaufalegt brot. Kristján skoraði með glæsilegu langskoti, og Þorbjörn Jensson skoraði 6-4 eftir línusendingu Kristjáns. Sovét- menn minnkuðu muninn í 5-6, en Atli skoraði með þrumufleyg 7-5. Síðan gerðu íslendingar tvisvar afdrifarík mistök, sem kostuðu þá fjögurra marka j forystu, fyrst lét Sigurður Gunnarsson verja vítakast sem Kristján fiskaði, og síðan lét Páll verja hjá sér eftir frábæra línusendingu Kristjáns. Sovétmenn héngu í fslendingum, Kristján skoraði 8-6, og Atli 9-7 „sirkusmark" við áköf fagnaðarlæti eftir sendingu Kristjáns. Þá misstu íslendingar Pál útaf, og Sovét- menn jöfnuðu 9-9, og komust í 11-9. Atli braust í gegn 10-11, en þrjú sovésk mörk fylgdu. Kristján skoraði 11-14, og Stein- ar 12-15, hálfleikur. Þessi lokakafli Sovétmanna réði úrslitum leiksins. í síðari hálfleik var þetta fjögurra til tveggja marka munur á liðunum. Vörn Sovétmanna varð ákafari, og sóknarað- gerðir íslendinga nokkuð bitminni. Flest mörk hálfleiksins skoruðu Atli Hilmars-; son með frábærum langskotum og Þor- gils Óttar Mathiesen eftir snilldarsending ar Kristjáns Arasonar. Sovétmenn kom- ust í 16-12, síðan 14-16, 14-18, 16-19, 19-22, 20-23 og 21-24. Sovétmenn áttU| svo síðasta orðið með „sirkusmarki." Úrslitakeppnin í körfuknattíeiknum: KR4NGAR SKRIIfiU VAL í ödrum leik liðanna, 87-71 ■ Eftir stórsigur Valsmanna á KR-ing- um á þriðjudagskvöld, áttu fáir von á að sjá KR-inga leika sama leik eftir, aðeins tveimur dögum síðar. KR-ingar voru ekki sama sinnis þegar þeir mættu í Hagaskóla í gxrkvöldi, tvíefldir með þjálfara sinn í broddi fylkingar, Jón Sigurðsson, og sigruðu Hlíðarendapilt- anna með 16 stiga mun, 87-71. Staðan í hálfleik var 38-29 Vesturbxjarliðinu í vil. KR-ingar sem voru yfir allan leikinn hafa þar með jafnað metin í undanúr- slitum Islandsmótsins. Liðin þurfa að leika þriðja leikinn sem verður úrslita- leikur um að leika úrslitaleiki um Is- landsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Leikurinn verður háður á sunnudag í Seljaskóla og hefst kl. 20.00. KR-ingar náðu strax forystu en Vals- menn jöfnuðu og var það eina skiptið í öllum Ieiknum. Forysta KR-inga var þó aldrei meiri en 1-3 stig í upphafi og fram yfir miðjan fyrri hálfleik. Úppúrmiðjum fyrri hálfleik byrja KR-ingar að auka forskot sitt, fyrst upp í 26-17 og var munurinn níu stig í hálfleik, 38-29. Flestir áttu von á Valsmönnum frísk- ari til síðari hálfleiks en þeir gátu ekki orðið við þeim óskum því KR-ingarj héldu áfram að auka forskot sitt og var1 forysta KR-inga mest 17 stig, en fórmest niður í 11 stig. Leikurinn endaði 87-71 eða með 16 stiga mun. Allt lið KR sýndi góðan leik enda stjórnaði Jón Sigurðsson liði sín eins og herforingi í gærkvöldi jafnframt því að leika mjög vel. Hjá Val voru það Jóhannes Magnússon og Torfi Magnús- son sem helst sýndu lit. Stig KR skoruðu: Jón Sigurðsson 27, Garðar Jóhannsson 17, Guðni Guðna- son 14, Kristján Rafnsson 11, Páll Kol- beinsson 8, Ágúst Líndal 6 og Birgir Guðbjörnsson 4. Stig Vals skoruðu: Jóhannes Magnús- son 17, Torfi Magnússon 16, Jón Stein- grímsson 8, Kristján Ágústsson 8, Tóm- as Holton 8, Einar Ólafsson 8, Leifur Gústafsson 4 og Björn Zöega 2. Leikinn dæmdu Gunnar Valgeirsson og Gunnar B. Guðmundsson. - BH. Langbestu menn ísienska liðsins voru þeir Atli Hilmarsson sem skoraði 9 mörk, og Kristján Arason, sem gaf átta frábærar línusendingar sem gáfu 7 mörk, auk þess að skora fjögur falleg mörk í fyrri hálfleik. Allir aðrir áttu góðan leik, markverðirnir Einar Þorvarðarson og Jens Einarsson léku af snilld, og átti Jens hreint ótrúlega kafla í síðari hálf- leiknum, en datt dálítið niður á milli. Steinar Birgisson lék vörnina af snilld, og kom vel út í sókn. Línumennirnir Þorgils Óttar og fyrirliðinn Þorbjörn Jensson voru góðir, en það sem helst gladdi augað í þessum leik var frábær samvinna þeirra Kristjáns og Óttars, og bombumörk Atla. Mörk íslands skoruðu: Atli Hilmars-. son 9, Þorgils Óttar 5, Kristján Arason 4/1, Steinar Birgisson 2, og Þorbjörn ■ Jensson 1. Auk þeirra léku Guðmundur Guðmundsson, Páll Ólafsson, Sigurður Gunnarsson og Friðrik Guðmundsson, sem kom inn í hópinn í gær, vegna veikinda Jakobs Sigurðssonar sem lá í rúminu með hita. Að auki voru mark- verðirnir Einar sem varði 8 skot og Jens, sem varði 8 skot svo og Guðmundur Albertsson, sem ekki kom inn á. Sovétmenn hafa á að skipa frábæru liði, maskínu sem alltaf virðist geta bætt við dampi. Mesta athygli í leiknum vöktu markvörðurinn Jukov sem varði alls 17 skot, þar af tvö víti, hinn eldfljóti Karshakevic sem skoraði 5 mörk, þar af fjögur úr hraðaupphlaupum, og hinn eldfljóti Kauchikas, sem skoraði 5 mörk. Þá vakti mikla athygli ungur nýliði í liðinu, Amris Kípens, hann er vel á þriðja metra á hæð og lék mest í vörninni. Vörn Sovétmanna var í heild svakaleg, og hæð miðjumannanna slík, að með ólíkindum var. -SÖE enda handknattleiksáhugi mikill norðan heiða. Handknattleikssamband íslands hefur yfir að ráða einni af Fokkervéluin flug- leiða, og munu bæði landsliðin ásamt öðrum sem þeim tengjast fara norður klukkan 16.00. Leikurinn á að hefjast klukkan 19.30 í íþróttahöllinni. Síðan verður Sovétmönnum boðið í mat nyrðra, og síðan flogið heim annað kvöld. Akureyringar ætla að hefja miða- sölu klukkan 13.00. Ekki munu Sovétmenn ætla mikið að slappa af í ferðinni. Þeir ætla að hafa æfingu hjá liðinu klukkan 10 árdegis í dag, síðan fer liðið norður klukkan 16.00 og leikur klukkan 19.30, og til Reykjavíkur í kvöld. -SÖE „Fannst maður dálrtið smár“ - sagði Þorbjöra fyrírliði ■ „Hvers vegna skyldi maður ekki vera ánægður, það er ekki slæmt að tapa með bara fjórum mörkum fyrir heimsmeisturunum“, sagði Þorbjörn Jensson, fyrirliði íslenska liðsins eftir leikinn í gær. „Ekki neita ég því, að maður fann sig dálítið smáan þaroa á línunni í fangi þessara risa, ég var nú bara í handarkrikanum á þessum Kípens“, sagði Þorbjörn sem er | stærsti línumaður á Islandi, liðlega 190 cm hár. „Nú hafa þeir kynnst okkur, og I vita að við erom verðugir andstæð- ingar, og því bxta þeir áreiðanlega við, en við getum vonandi bætt við okkur líka. - Ég er ekki viss um að við skilum betri árangri á morgun á Akureyri, því það er nýtt hús fyrir okkur, en ég á von á því að við náum góðum leik hér á laugardaginn í Höllinni, og ég vil bara hvetja fólk til að koma, þá xttum við að geta tekið á þeim“, sagði Þorbjörn Guðmunds- son fyrirliði íslenska landsliðsins. i — Úrsiitakeppnin í körfuknattleiknum: ■ Ingimar Jónsson Njarðvíkingur skorar hjá Haukum, Ólafur Rafnsson til varnar. Ingimar og félagar sigroðu í gær Haukana, og leika í úrslitum gegn annaðhvort KR eða Val, sem leika þriðja og síðasta leik sinn í undanúrslitum á sunnudagskvöld. Tímamynd Ámi Sxberg ■ Það var mikil stemmning í íþrótta- húsi Hafnarfjarðar í gærkvöldi þegar Haukar fengu Njarðvíkinga í heimsókn. Gestirnir sigruðu með eins stigs mun eftir framlengdan leik 94-93. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 85-85. Það munaði miklu fyrir Hauka að missa Pálmar Sigurðsson útaf, sem hafði verið besti maður liðsins, þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. Leikurinn var mjög jafn í byrjun og mátti sjá tölur eins og 6-4 fyrir Njarðvík og síðan 10-10. Síðan tóku Haukar. góðan sprett og náðu lyrst átta stiga forystu 24-16 og síðan 30-20. Njarðvík- ingum tókst þó að bæta sig og náðu eins stigs forystu rétt fyrir leikhlé. Haukarnir voru þó yfir í hléinu 43-42. I síðari hálfleiknum náðu Njarðvíking- ar forystu 50-47 og 63-55. Haukaroir náðu síðan aftur að jafna 65-65. Liðin skiptust síðan á að vera yfir og þegar venjulegum leiktíma lauk var staðan 85-85. Pálmar Sigurðsson þurfti að yfir- gefa leikvöllinn með fimm villur, rétt fyrir lok venjulegs leiktima. Það kom líka í Ijós í framlengingunni að Haukaro- ir réðu ekki við Suðumesjamennina án Pálmars og náðu Njarðvíkingar sjö stiga forystu 94-87. Haukarnir náðu þó að minnka muninn niður í eitt stig 94-93. Sturla Örlygsson og Isak Tómasson, NJARÐVIKI URSLIT — sigrudu Hauka eftir framlengingu, 94-93 sem hafði fyrir leikinn verið sprautaður niður vegna siæmsku í tám, sýndu bestan 1 leik í liði Njarðvíkur. Einnig voru Gunn- ar Þorvarðarson og Ingimar Jónsson góðir. Bestur hjá Haukum var Pálmar Sigurðsson. Sveinn Sigurbergsson, Ólaf- ur Rafnsson og Kristinn Kristjánsson sýndu einnig ágxtan leik fyrir Hauka. Stig Hauka skoruðu: Pálmar 28, Sveinn 21, Hálfdán 16, Ólafur 14, Krist- inn 10, Henning 2 og Reynir 2. Stig Njarðvíkinga skoruðu: Sturla 23, ísak 20, Gunnar 20, Ingimar 17, Ároi 10 og Kristinn 4. Leikinn dæmdu Davíð Sveinsson og Sigurður Valur Halldórsson og dxmdu þeir ágætlega. -TÓP/BH NILSS0N TIL BENFICA? - er þá þriðji Skandinavinn sem leikur hjá Eriksson Frá Gísla A. Gunnlaugssyni, iþróttufrétta- manni Tímans i V-Þýskalandi: ■ í þýskuni blöðum hefur því verið slegið föstu í vikunni. að Svfinn Thor- björn Nilsson. sem undanfarin tvö ár hefur leikið með Kaiserslautern, muni halda til liðs við Benfica Lissabon í 'vor. Hjá portúgalska liðinu Benfica er þjálf- ari Svíinn Svcn-Göran Eriksson, en hann þjálfaði IFK Gautaborg þegar liðið varð Evrópumeistari fyrir tveimur árum. Þá var Nilsson miðherji liðsins. Eftir Evróputign Gautaborgar var Eriksson keyptur til Benfica, og Nilsson til Kais- erslautern. Sven-Göran Eriksson hefur náð mjög góðum árangri með Benfica Lissabon. Liðið varð portúgalskur meistari á síð- asta ári, og Evrópumeistari, sigraði í UEFA-keppninni. Eriksson hefur safn- að að sér norrænum leikmönnum, keypti fljótlcga eftir að hann kom til Portúgals miðvallarleikmanninn Glenn Strömberg frá IFK Gautaborg, og síðan Danann Michael Manniche í fyrra. -SÖE ÚRSLITAKEPPNIN ÁFRAMí KVÖLD - HK er nú efst ■ HK er nú efst í úrslitakeppni neöri hluta annarrar deildar í handknattleik, en tveir þriðju hlutar fyrstu umferðar úrslitakeppn- innar hafa veriö leiknir. Síðasta umferðin er í kvöld í Sandgerði og þá leika HK og (R klukkan 20.1K), og Fylkir og Reynir klukkan 21.15. Úrslit í leikjunum i úrslitakeppninni hafa verið þau, að fyrsta kvöldið vann HK Reyni 29-19, og Fylkir vann ÍR 19-13. I fyrrakvöld sigraði svo ÍR Reyni 31-25, og Fylkir vann HK 15-12 HK hefur nú 11 stig í keppninni, Fylkir og ÍR hafa 10, og Reynir 5 stig. -SÖE Danir voru sattaðir í Amsterdam ■ Danir, „superlandsholdet", eins og þeir kalla sig sjálfir, steinlágu í vináttu- leik í knattspyrou í Amsterdam í fyrra- kvöld. Andstæðingarnir voru heima- menn, Hollendingar, og unnu þeir súp- erlandsliðið 6-0. Houtman 2, Van der Gijp 2, Kieft og Hoekstra skoroðu mörk Hollendinga. Úrslit þessi vckja mikla athygli, því Danir komust í úrslit Evrópukeppninnar í knattkspyrnu, sem leikin verða í Frakklandi í sumar, cn Hollendingar ekkí. Danir báru frækið sigurorð af Englendingum, Ungverjum og Grikkjum, í baráttunni um úrslitasætið, en Hollendingar töpuðu sínu sæti í hendur Spánvcrja á elleftu stundu. Spán- verjar komust í úrslit með því að skora 12 mörk gegn Möitubúum, og ná þannig betra markahlutfalli en Hollendingar, sem taldir voru með mun betra lið. Munaði þar Hollendinga um stigið sem íslendingar náðu af þeim á Laugardals- velli. - En margir þóttust finna ólykt af stórsigri Spánverja á Möltubúum. M.a. sagði danskur landsliðsmaður að margt hefði verið skrýtið í kringum þennan lcik, og hann ekki skilið hvernig Möltu- búar létu bjóða sér slæniar viðtökur og illa meðferð á allan hátt fyrir leikinn á Spáni. - En ég vil miklu frekar fá Spánverja sem mótherja á EM en Hol- lendinga, svo þetta kemur lítið við mig - sagði sá danski. -SÖE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.