Tíminn - 18.03.1984, Qupperneq 8
SUNNUDAGUR 18. MARS 1984
8
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason.
Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiöslustjóri: Sigurður Brynjólfsson.
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V.
Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson.
Umsjónarmaöur Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir,
Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Fríörik Indriðason, Guömundur Sv .
Hermannsson, Heiöur Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson,
Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson.
Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnssson.
Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir.
Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guöný Jónsdóttir
Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasími
18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306.
Verö í lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrlft á mánuöi kr. 250.00.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent hf.
Byggðaröskunin
komin á fulla ferð
■ Hvorki meira né minna en 5% þjóðarinnar fluttist á milli
sveitarfélaga á síðasta ári eða 11.185 manns. Hér með eru
auðvitað ekki taldir allir þeir sem fluttu búferlum innan
sveitarfélags. Miklir flutningar eiga sér því stað og greinilegt
er hvert straumurinn liggur. Höfuðborgin og það svæði sem
við hana er kennt dregur til sín fólk utan af landsbyggðinni.
Til höfuðborgarsvæðisins fluttu 840 manns umfram þá sem
fluttu þaðan út á landsbyggðina. Það eru einkum tvö
landssvæði sem verða fyrir barðinu á fólksflutningunum. Frá
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra flytja 40% fleiri á brott
en þangað flytja. Á Vestfjörðum fækkaði á árinu 1983 um
192 manns og á Norðurlandi vestra um 168 manns. Þótt
fækkað hafi um fleiri einstaklinga í öðrum landshlutum er
þessi blóðtaka hlutfallslega meiri fyrir fyrrnefnd svæði þar
sem hlutfallstala þar er mun hærri en annars staðar þar sem
íbúum fækkar. Frá Vesturlandi fluttu 207 fleiri en þar settust
að á árinu. Á Norðurlandi eystra fækkaði um 205 manns og
á Austufjörðum um 148 manns. Þeir sem fluttu frá Reykjavík
út á landsbyggðina voru um þriðjungi færri en þeir sem
þangað leituðu sér búsetu á síðasta ári.
Það eru margvísleg samverkandi áhrif sem valda búsetu
röskun. Það er viðurkennt að hún er ekki æskileg nema að
vissu marki og að auðlindir og gæði lands og sjávar verða ekki
nýtt nema með því að byggja landið allt. Áratuginn 1971-81
var tekin upp öflug byggðastefna til að rétta af hlut þeirra
byggðarlaga sem voru að veslast upp vegna lélegra atvinnu-
skilyrða og fólksfækkunar. Mörgum hefur vaxið í augum að
nokkru fé var varið til að koma á jafnvægi í byggð landsins
og skilyrði sköpuð til að reisa við atvinnuvegi og nýta auð og
mannafla.
En greinilega hefur þetta ekki verið nóg. Framleiðslugrein-
arnar eru enn öflugastar á landsbyggðinni en þjónustugrein-
arnar hafa dafnað á höfuðborgarsvæðinu og skapa þar
atvinnu og margs kyns velsæld og er ekki samræmi á milli
þessa ef litið er á landið í heild.
Þetta kemur í ljós samkvæmt upplýsingum um fjölgun
ársverka í grunn- og þjónustugreinum í landinu, annars vegar
á suðvesturhorninu og hins vegar landsbyggðinni á áratugn-
um 1971-81. Þetta er einmitt sá áratugur sem talinn er hvað
hagstæðastur landsbyggðinni. Þá var byggðastefnu framfylgt
og landsbyggðin rétti hlut sinn talsvert á þessu tímabili.
En þær upplýsingar sem nú liggja fyrir sýna að í ýmsum
veigamiklum þáttum var þessi áratugur ekki síður blómaskeið
suðvesturhornsins en landsbyggðarinnar. Það sýnir sig að
fyrir hvert eitt ársverk sem fjölgaði um í grunngreinum á
suðvesturhorninu nam fjölgunin 2.2% á landsbyggðinni.
Með grunngreinum er átt við landbúnað, fiskveiðar, fiskiðn-
að, annan iðnað, byggingastarfsemi, samgöngur og veitur. Á
sama tíma fjölgaði um 6.9% í þjónustugreinum á suðvestur-
horninu, og 2.8% á landsbyggðinni.
Ljóst er að landsbyggðin á mjög á brattan að sækja hvað
varðar atvinnutækifæri og aðgang að þjónustustofnunum
margs konar. Atvinnulífið og þjóðfélagsbyggingin breytist
óðfluga. Færri og færri hendur vinna við sjálfa verðmæta-
sköpunina, en framleiðslan eykst eigi að síður og er reyndar
orðin svo mikil að kvótar eru settir á fiskveiðar og
búvöruframleiðslu haldið talsvert undir framleiðslugetu af
vel þekktum ástæðum. En þjónustustarfsemin eykst að sama
skapi og færri aðila þarf til að draga fisk úr sjó og framleiða
mjólk og kjöt.
Vandkvæðin eru í því fólgin að aukning framleiðslu- og
þjónustugreina haldast ekki í hendur hvað varðar skiptingu
milli landshluta. Þjónustugreinarnar sem sífellt taka við meiri
og meiri mannafla aukast í þéttbýlinu langt framyfir það sem
eðlilegt má telja miðað við aukningu úti á landi.
Engar skyndilausnir eru í sjónmáli sem gætu snúið þessari
þróun á betri veg, en að vandamálinu þarf að hyggja ef
Islendingar ætla sjálfir að nýta gögn og gæði lands og sjávar
en treysta ekki á erlendan vinnukraft til framleiðslustarfa en
sitja sjálfir við hinar aðskiljanlegustu þjónustugreinar í
þéttbýlinu. OÓ
IMtm
menningarmál
■ Vladimir Ashkenazy við stjóm Fílharmóníunnar
Listahátíð í
Reykjavík 1984
Feðgarnir Vovka og Vladimir Ashke
nazy munu leika ásamt
„The Philharmonia Orchestra”
■ Enn er komið að Listahátíð í
Reykjavík og mun hátíðin, sem
stendur frá 1. til 17. júni, verða sú
áttunda í röðinni. Þó að hátíðahald
þetta eigi sér ekki langa sögu hefur
hátíðin nú þegar skipað sér fastan
sess og hefur hróður hennar farið
víða. Mikið er um það að erlendir
listamenn sækist beinlínis eftir því
að verða meðal þátttakanda og á
þeim hátiðum sem nú eru að baki
getur að líta nöfn margra heims-
frægra listamanna eins og kunnugt
er.
Hvað sem allri annarri landkynningu
við kemur er óhætt að fullyrða að
Listahátíðin er að verða einn stærsti
þátturinn í því að kynna ísland fyrir
umheiminum fyrir utan það að vera
stórkostlegur menningarviðburður og
gullvægt tækifæri fyrir okkur að kynnast
því besta í listsköpun á alþjóðlegum
mælikvarða.
í sumar er ætlunin að tileinka hátíðina
einkum þeirri listsköpun sem átt hefur
sér stað síðastliðna tvo áratugi þannig að
hún kemur til með að hafa yfir sér
nútímalegan blæ. í viðtali sem Helgartím-
inn átti við einn af skipuleggjendum
hátíðarinnar, Guðbrand Gíslason, kom
fram að þessa dagana er verið að fast-
setja dagskrána og nú þegar er ljóst að
eitt af stjörnuatriðum hátíðarinnar verð-
ur koma Philharmoniu sveitarinnar í
Lundúnum. Einleikari með hljómsveit-
inni og jafnframt stjórnandi verður Vla-
dimir Ashkenazy en hann er nú orðinn
einn af eftirsóttustu hljómsveitarstjórn-
endum heims. Með í förinni verður
sonur hans, Vovka Ashkenazy, en hann
hefur getið sér gott orð sem einleikari á
píanó og þykir búa yfir miklum hæfi-
leikum. Vovka fæddist í Moskvu árið
1961 en ólst að hluta upp á íslandi og
gekk hér í skóla. Verður það að sjálf-
sögðu mikill fengur fyrir íslenska tón-
listarunnendur að fá að hlýða á þá feðga
spila með Philharmóníu hljómsveitinni í
Lundúnum.
Vladimir Ashkenazy er e.t.v. óþarfi
að kynna fyrir íslendingum þar sem
hann hefur búið hér og starfað en á
undanförnum árum hefur hann helgað
tíma sinn hljómsveitarstjórnun í æ ríkara
rnæli. Hann hefur unnið mikið með
Philharmoniu hljómsveitinni og ferðast
með henni og haldið tónleika víða um
heim. Auk þess hefur hann unnið með
hljómsveitinni í Lundúnum við hljóm-
plötuupptökur. Ashkenazy hefur komið
víðar við hvað hljómsveitarstjórnun við-
víkur þar sem hann hefur m.a. starfað
með Concertgebouw í hljómsveitinni í
Amsterdam. Hann býr nú ásamt konu
sinni og fimm börnum í Luzern í Sviss.
„The Philharmonia Orchastra" eins
og hljómsveitin heitir fullu nafni, var
stofnuð í Lundúnum í lok seinni heims-
styrjaldarinnar. Einn af aðalhvata-
mönnum að stofnun hennar var Walter
Legge og fljótlega rættist sá draumur
hans að hljómsveitin yrði í Kópi þeirra
bestu. Stjórnendur hennar hafa heldur
ekki verið af verra taginu í gegnum árin
en þar má nefna menn eins og Furt-
wángler, Toscanini, Giulini, Richard
Strauss og Herbert von Karajan. Klemp-
erer tók við af Karajan sem aðalstjórn-
andi hljómsveitarinnar en eftir að hann
lést árið 1973 hafa stjórnendur m.a.
verið Riccardo Muti, Simon Rattle,
Andrew Davis og síðast en ekki síst
Vladimir Ashkenazy. Nú sem stendur er
aðalhljómsveitarstjóri þessarar frægu
hljómsveitar Giuseppe Sinopoli.
Vovka Ashkenazy kemur eins og áður
segir með föður sínum til að leika á
Listahátíð í Reykjavík en hann lauk
tónlistarnámi við „The Royal Northern
College of Music“ í júní á síðasta ári.
Mörg ungmenni muna örugglega eftir
Vovka frá því að hann bjó hér í
Reykjavík og gekk hér í skóla og er það
skemmtilegt að fá hann hingað til lands
og í þetta skiptið á einleikarapallinn.
J.Á.Þ.