Tíminn - 18.03.1984, Blaðsíða 18
SUNNUDAGUR 18. MARS 1984
1:
m wm
!
1
■
■:■ '■ . í ' , ■ '
.
: ■
■ Stuart
Adarnson úr
BigCountry
■Mick Jagger
Þrjú andlit
nútímadægnr-
tónlistar
■ j þessum pistli er ætlunin að
reyna að gera örlitla grein fyrir
helstu straumum í poppmúsík nú
um stundir, með öðrum orðum, að
reyna að sjá í gegnum yfirborðið.
Því má örugglega slá föstu að nú hafi
rykið eftir pönk-sprenginguna endan-
lega sest. Reyndar hefur heldur fátt
markvert gerst að undanförnu, eftir að
nýrómantíkin braust í gegn og vann sér
fastan sess. Seinni part árs 1983 og það
sem af er 1984 hafa þrír straumar verið
mest árberandi: Endurvakning og efling
eldgamalla stjarna, mjög létt popp flutt
af nýjum og áður óþekktum flytjendum,
og svo nokkrar nýjar rokkhljómsveitir.
Fyrstnefndi straumurinn, gömlu
stjörnurnar, er leiðinlegur og alls ekki
nýskapandi eins og nærri má geta. Elton
John, Paul McCartney, Yes, Genesis,
Rolling Stones, Slade og ýmis önnur
fyrirbæri frá því fyrir 1975 birtast allt í
einu á vinsældarlistunum fáum til gleði og
mörgum til leiðinda. Þetta er undarlegt
fyrirbrigði og verður ekki skilið öðru vísi
en þannig að menn séu orðnir þreyttir á
nýjungunum í bili. Við skulum bara
vona að þessu linni sem fyrst.
Síðan er það nýja poppið. Þar tróna
nöfn eins og Tracy Ullntan, Paul Young,
Howard Jones, Thompson Twins, Eur-
ythmics, Marilyn og fleiri, svo ekki sé
minnst á sjálfan stórmeistarann, Boy
George.
í þessari fylkingu eru nokur lykilorð:
Synthesizer, vídeó, léttar melódíur,
glæsileg föt, meiköpp... Það getur verið
gaman að hlusta á þetta lið í hófi, en
þegar mánuður eftir mánuð líður og
ekkert kemur nýtt nema enn einn vídeó-
syntha-meiköpp-popparinn fer manni að
leiðast þófið. Og það er enginn skortur
á frambjóðendum. Minni spámenn eins
og lcicle Works, China Crisis, Modern
English, Lotus Eaters, Fiction Factory,
o.s.frv. allir með óvinnandi vígi í glam-
orblaðinu Smash Hits bíða eftir tækifær-
inu að komast í sviðsljósið.
Þriðja gengið er nýja rokkgengið. Þar
eru nöfnin færri. Big Country, U2, The
Alarm, þetta eru helstu talsrpenn nýja
rokksins sem svo má nefna, og ekki má
gleyma The Smiths, sem nú ríða öllum
húsum í Englandi, eiga t.d. 3 af 5 efstu
smáskífum á independent listanum
breska. Þaðerhelst í þessum hljómsveit-
um sem andinn frá '11 lifir, og þó er
maður í vafa. Big Country og U2 minna
óþægilega á stórhljómsveitir frá því um
1973-4, með glæsilegum gítarhljómi sín-
um og epískum ballöðum. U2 hefur
verið nefnd hin nýja Led Zeppelin.
Og það nýjasta nýtt er kántrí-
rokk (aftur?)
■Tracy Ullman í rigningu
Þorsteinn
Magnússon gengur
í Frakkana
■ linmir ingólfsson, gitarleikari
Frakkanna er hæltur í hljómsveifinni.
I hans stað er kominn ekki minni
maður en Þorsteinn Magnússon, Þevs-
ari og Eikari, en hann hefur reyndar
ádur spilað með Frökkunum. Fyrir i
hljómsveitinni er ekki minni maður en
Björgvin Gíslason gítarleikari, þannig
að þarna eru saman komnir tveir af
færustu gitarleikurum landsins. Frakk-
arnir munu siðar í manuöinum halda
tvenna tonleika og gefst þá færi á að
heyra í samleik þeirra Þorsteins og
Björgvins. Nánari fréttir um stað og
stund koma siðar.
-ADJ