Tíminn - 15.04.1984, Qupperneq 10
ló
fðStmtm
SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984
■ Bandaríska popp-stjarnan Michacl Jackson lét gera hcimsins dýrustu videomynd, sem kostaði þrjár milljónir dollara. I>ar voru alls konar skrímsli notuð til þess að auglýsa plötuna hans,
„Thriller". Platan seldist líka í 25 milljón eintökum, sem er met í sögu poppsins.
F-iöi jwmnintiiti,
SEM GETUR NÆSTnjM ALLT
■ Benno Dovermann á úrvalskonur á lager, - fagrar álitum, ungar, sjálfstæðar,
gáfaðar og aðlaðandi. En það sem hann mest vantar eru karlmenn. Benno
Doverntann þarf að útvega þá. En hann segir: „Eg er enginn góðgerðastofnun. Ég
er enginn miðlari, heldur eru viðskiptamenn mínir sjálfir miðlarar."
Eftir að Dovermann komst að því hve mikið svindl þrífast í kring um
hjónabandsmiðlanir er hann harðorður í garð hvers kyns mútu-bralls. „í hjónabands-
auglýsingunum er vanalega lofað gulli og grænum skógum og þar sem tölvur eru
notaöar til þess að línna fólk sem á 97% saman sýnir sig oft er betur heima setið en
af stað farið."
Dovermann sest niður með viðskipta-
vinum sínum, körlum eða konum, og
la-tur þau segja frá sjálfum sér og reynslu
sinni, vonum og draumum. Að samtal-
inu er eitt vitni, sem ekki verður sakað
um að leyna neinu né ýkja. Með aðstoð
videotækis og upptökutækis er allt við-
talið filmað og spólan loks sett upp í hillu
ásanit skyndimynd úr polaroid-vél.
Svo er ekki annað sem þarf að gera en
láta viðskiptamennina skoðasafnið. Peir
rekast kannski á andlitsmynd sem þeim
líst á og þá er þeim sýnt viðtalið. Þeir sjá
nú hugsanlegan lífsförunaut sinn, sjá
andlit hans og heyra rödd hans og átta
sig í næði á hvers konar persóna þetta
er, kvíða og áreynslulaust. Fyrr en varir
er hugsanlegt að allt „smelli saman."
„Happy End“
Video-hjónamiðlunin varð strax svo
vinsæl að Dovermann hefur nú flutt
„Happy-End” hugmynd sína út urn allt
landið og rekur 20 útibú.
En bílaframleiðendurnir BMW hafa
líka komið auga á kosti videosins. „Þeg-
ar árið 1981 urðum við að þrefalda
yiðskiptaþjónustu okkar," se^ir Lothar
Weiland, forstjóri viðhaldsdeildarinnar.
„Þetta sýndist fjárhagslega ófram-
kvæmanlegt. Við urðum að kenna verk-
stæðismönnum okkar um allan heim
meðferð og viðhald dieselvéla, Eta-véla,
rafeindavökvabúnaðar. rafeindainn-
spýtingarbúnaðar o.s.frv. sem seint
verður allt upp talið. Þetta hefði verið
ómögulegt á annan hátt cn þann að
senda viðkomandi þjónustustöðvum
vidcospólur um efnið." BMW rekur
reyndar stærstu videokennsluþjónustu
heims og er kerfið tengt við sérstaka
kennslutölvu. Engin bók, myndabækl-
ingur eða leiðarvísir kæmi í staðinn fyrir
þetta.
Vöruhús á borð við Karstadt og Hort-
en hafa sömuleiðis löngu hagnýtt sér
þessa tækni. Nú er liðinn sá tími þcgar
innkaupastjórar og deildarstjórar flykkt-
ust í skörum á vörusýningar og tískusýn-
ingar, til þess að átta sig á hlutunum og
ráða ráðum sínum. Ferða og hótelkostn-
aður hefur hrapað gífurlega, þar sem
video-deildin hjá fyrirtækjunum tekur
málið að sér. Nú geta stór verslunarfyrir-
tæki fengið video-spólu með öllum
helstu nýjungum innan þriggja daga frá
því þau óska eftir því, ef svo ber undir.
Með þessu fylgja leiðbeiningar um það
hvernig á að setja upp sýningarbása fyrir
hinar ýmsu vörutegundir, - kcrti, leik-
föng eða mataráhöld. Þarna fást bg
leiðbeiningar um það hvaða stefnu tísk-
an mun taka í vor eða í haust. Það er
ekki lengur forstjórinn einn sem fær
upplýsingarnar, heldur allir sölu-
mennirnir og afgreiðslufólkið. Einhver
viðskiptamaður tekur upp á því að fara
að kvarta yfir einhverju og annar er
gripinn fyrir þjófnað.' Sá þriðji fær
sendan heim til sín nýjan skáp sem er
stærri en veggurinn sem hann á' að
standa upp við. Video-þjónusta þeirra
■ Vegfarendur drepa tímann Iraman
strætisvagni. Auglýsendur keppast um
hjá Karstadt hefur leiðbeiningar um rétt
viðbrögð í hvaða tilfelli sem vera skal.
Allt svo einfalt
Þannig hefur, næstum án þess að
nokkur hafi vitað af, komið til sögu
videomenning sem blómstrar í bönkum,
verslun, tryggingastarfsemi, læknisþjón-
ustu, lögreglu, her. dansstöðum o.s.frv.
Svo er að sjá að með tilstyrk video-kerf-
isins megi gera alla mögulega hluti.
Nýjar hljómsveitir senda spólu með leik
sínum til hljómplötuútgefenda og heims-
við video-tæki meðan beðið er eftir
að kynna vöru sína á þessum vettvangi.
þekktir íþróttamenn fullkomna eigin
tækni framan við skerminn. Svo er að
sjá sem enginn geti komist fram hjá
video-tækninni. Á hárgreiðslustofum,
við húsgagnakaup, á göngugötum, á
járnbrautarstöðvum „neyðast" menn til
þess að horfa á video, - láta það hafa
áhrif á sig, þvaðra yfir sér, fræða sig eða
skemmta.
Videoið gerir allt einfaldara en það
áður var. Það er eins og töfradrykkurinn
sem veitti Miraculix hinn gallverska
styrk sinn. En drykkurinn sem gerði
hann sterkan, gerir nútímamanninn hins
vegarósjálfbjarga. Hann tekur þyt skóg-
anna og nið hafsins heim með sér á spólu
eftir vinnutíma, meira að segja einnig
gullfiska sem lóna í kari sínu og snark-
andi eld á arni. Foreldrarnir hafa minni
tíma en nokkru sinni handa börnunum,
i sem fyrir vikið geta laumast til að horfa
á ýmislegt miður siðsamlegt efni í
leynum.
Komi fólk erlendis inn í verslun sem
selur tæki til ýmissar heimaiðju, þá
bregst ekki að í versluninni er sýnd án
afláts mynd af einhverri nýrri borvél eða
rafmagnshefli. Hver sá sent ætlar sér að
ná markaði fyrir vöru sína, auglýsir með
hjálp þessa miðils. Sumsstaðar hafa
gömul happadrætti tekið upp á því að
kynna leikreglurnar á video-spólum og
árangurinn orðið sá að sala miða hefur
aukist um 200 prósent.
Fyrirtæki nokkurt sem selur kynding-
artæki hafði löngum notað eldri sölu-
tækni. Hver sölumaður hafði að jafnaði
sinnt fimm viðskiptavinum á dag, alls
300 á hverjum ársfjórðungi. En nú tók
fyrirtækið sig til og kynnti vöru sína með
því að senda út video-spólur. Það var
eins og við manninn mælt. Hver sölu-
maður afgreiddi nú 800 viðskiptavini á
ársfjórðungi og peningarnir streymdu í
kassann.
Ekki bara fallegir litir
„Það er augljóst mál," segir
fyrirtækjarráðgjafinn Jens Martens í
Múnchen að í verslun er videoið ekkert
stundarfyrirbæri eða skemmtiáhald.
Videofilmurnar eru fjárfesting sem
stuðlar að betri og varanlegri vörukynn-
I ingu og skila sér margsinnis í meiri
' framleiðni og veltu."
Videoið er hraðvirkt og ódýrt. Menn
i geta farið að horfa á myndina strax að
upptökunni lokinni. Filman fer ekki til
spillis ef efnið úreldist, því alltaf má