Tíminn - 15.04.1984, Blaðsíða 19

Tíminn - 15.04.1984, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984 menningarmál Manneskjan í tóminu ■ Leikfélag Rcykjavíkur: BROS ÚR DIÚPINU eftir Lars Norén. Þýðandi: Stefán Baldursson. Leikmynd og bún- ingar: Pekka Ojamaa. Leikstjóri: Kjart- an Ragnarsson. Bros úr djúpinu er vönduð leiksýning, heilleg og hnökralaus af hendi Kjartans Ragnarssonar og leikhópsins í Iðnó. Það sem mestan svip setur á hana er leik- mynd hins finnska listamanns, Pekka Ojamaa. Það er sérkennileg umgjörð sýningarinnar, fagmannlega gerð í hví- vetna. Eftir á að hyggja kann raunar að vera vafamál hvort stíll leikmyndar með grímum á vegg yfir sviðinu hæfir að fullu hinum raunsæislega stíl sem verkið sjálft er að mestu skrifað í og flutt samkvæmt. En leikmyndin dró hvergi athygli frá texta verksins, og augljóslega er fengur að því að fá til erlenda kunnáttumenn á þessu sviði. Lars Norén er, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, fertugur Svíi sem hefur á seinni árum unnið álit þar í landi fyrir leikritagerð, en áður orti hann einkum ljóð. Ljóðræna setur raunar verulegan svip á textann þótt að hinu leytinu sé hann fullur af næsta hryssings- legum natúralisma. En í verkinu er vissulega dýnamít og höfundur gengur nálægt persónum sínum, stundar eftir að afhjúpa þær uns þær standa naktar uppi. En að vísu reynist hið hugmyndalega inntak verksins býsna gamalkunnugt þegar upp er staðið. Hér er sem sé á ferðinni athugun á hvötum mann- eskjunnar þar sem allur ófarnaður er rakinn til öfugsnúinnar kynhegðunar, rétt eins og hjá Freud gamla. Leikurinn fjallar um Eðvarð rithöfund og konu hans, ballettdansmeyna Hel- enu. Eðvarð er uppþornaður höfundur, hefur ekki skrifað neitt í fjögur ár, og virðist ekki hafa annað að gera en velta sér upp úr sínum eigin vandamálum. Helena hefur eignast barn, gegn vilja sínum. vill hvorki heyra það né sjá og hefur er leikritið gerist verið þrjá mánuði á geðsjúkrahúsi. Á meðan hefur móðir hennar, Júlía, komið til aðstoðar og Eðvarð tekið að halda við Elínu systur eiginkonu sinnar. Hér kemur einnig við sögu Jane, kona sem verið hefur her- bergisfélagi Helenu á sjúkrahúsinu. í meginatriðum er þetta fjölskyldu- drama, lýsing á því nútímahelvíti sem svo títt blasir við í verkum manna nú á dögum. Þar eru manneskjurnar einangr- aðar hver í sínum lukta heimi, og tortímingaröfl leika lausum hala innra með þeim. Þetta er bölsýnt verk, fullt af þeirri tómhyggju sem er hin rökrétta afstaða sem tekin er í heimi sem hefur misst öll gildi, maðurinn rekst fyrir vindum og straumum eins og rekald, sviptur öllum leiðarstjörnum. I grein í leikskrá er haft eftir höfundi að hann vilji lýsa hinu óútreiknanlega í fari manna. „Persónur mínar,“ segir hann, „eiga ekki aðeins að koma áhorf- endum á óvart eins og í lífinu sjálfu, heldur líka hver annarri og ekki síst sjálfum sér." Ennfremur er haft eftir Norén að hann skrifi „til að öðlast þekkingu á sjálfum sér, lífi sínu og þeirri staðreynd að nauðsyn sé að breyta því. Það liggur í eðli leikritunar, segir hann, að höfundurinn getur haft áhrif á eigið líf aftur í tímann - næstum eins og í sálgreiningu." Ég hef tekið þetta upp til að varpa Ijósi á hugmyndir höfundarins. Okkur má auðvitað einu gilda hvort hann sækir efnivið til eigin fjölskyldumála, eins og hér er haft fyrir satt. En hitt er Ijóst að leikrit Noréns er afar mikil naflaskoðun í þeirri merkingu að þar er gruflað ákaft í hvatalífi fólks og ófarnaður rakinn til kynferðislegra áfalla. Helena hefur bor- ið ástarhug til föður síns, Jane vinkona hennar hefur mátt þola að eiginmaður- inn tæki upp hómósexúelt samband við son hennar, stjúpson sinn. I þessum áherslum er Norén í góðum félagsskap margra lærisveina Freuds. Af leik- skáldum sem vafalaust hafa skipt hann verulegu máli mætti benda á O’Neill eins og gert er í leikskrá. Edward Albee kemur einnig í hugann þótt ekki fari hér fram átök á borð við hið þrotlausa einvígi hjónanna í Hver er hræddur við Virginíu Woolf? - En angistin, óttinn við sjálfan sig er hinn sami; hið óbærilega líf gengur af fólki dauðu. Leikstjóri sýningarinnar í Iðnó hefur tekið mjög æskilega stefnu í uppsetning- Gunnar Slefánsson skrifar um leiklist unni. Framvinda sýningarinnar er hæg, bygging hennar markviss. Manni fannst raunar nóg um hægaganginn fram að hléi, en að sýningu lokinni er Ijóst að þessi aðferð var hárrétt. Persónurnar fá svigrúm til að kynna sig, áhorfandinn skynjar vanda þeirra smám saman, og í seinni hlutanum, þegar hin innibyrgða spenna leitar útrásar varð sýningin veru- lega sterk og áhrifamikil. í þessu leikriti reynir mjög á allar persónurnar, og leikendur skiluðu allir sínum hlut vel.Hanna María Karlsdóttir fór með hlutverk Helenu, og það varð góður sigur fyrir hana. Ég hef ekki séð Hönnu Maríu fyrr í svo veigamiklu hlutverki, og hún skilaði því af öryggi frá upphafi til loka. Þar sem mest á reyndi, í geðveikiatriðinu í lokin, náði hún einkar sannfæarandi tökum með góðri hjálp leikstjórans sem bersýnilega hefur haldið vel í alla þræði. Sigurður Skúlason í hlutverki Eðvarðs hafði far- sæl tök á verkefni sínu: Sigurður hefur verið vaxandi leikari og staðið sig vel í Iðnó í vetur. áður í kcnnaranum í Guð gaf mér eyra. Sama má segja um Guð- rúnu S. Gísladóttur í hlutverki Elínar. en sú persóna er að vísu öllu óljósari en aðrar frá höfundarins hendi; hún er systirin sem ætíð stóð í skugga eftirlætis- dótturinnar. Þá bælingu sem þetta hefur valdið hjá Elínu túlkaði Guðrún á sannfæarandi hátt. Sigríður Hagalín er svo margreynd og traust leikkona að manni finnst ekki annað en sjálfsagt að hún skili góðum verkum. Hún hafði líka í öllum höndum við hlutverk Júlíu. Valgerður Dan var hin ráðvillta móðir, Jane. Skarpar eru andstæður þeirra tveggja, en báðar hafa gengist undir móðurhlutverkið, þar sem Helena er enn á stigi barnsins eins og fram kemur þegar geðveikin hremmir hana á ný. Leikfélagið hcfur sem eðlilegt er bannað verk þetta börnum og ræður hneykslunargjörnu fólki frá að sjá það. Raunar get ég ekki séð að neinn hafi ástæðu til að hneykslast, nema hvað sumum kann að falla miður vel óheflaður talsmáti um kynferðismál. Sannast að segja átti ég von á verki sem væri meira ögrandi en Bros úr djúpinu reyndist. Og kannski líka nýstárlegra verki. miðað við það frægðarorð sem höfundinum fylgir, þar sem hann er auk heldur líkt við Strindberg. Lars Norén hefur ekki demón hins fræga landa síns, fjarri því. Engu að síður er leikrit hans vel samið og athyglisvert og sýningin til sóma þeim sem að henni stóðu. Stefán Baldursson leikhússtjóri þýddi leikinn á lipurt mál sem að vísu hefði mátt vera fágaðara í hinum Ijóðrænu köflum. 19 MERKI ÚRSMIDAFÉLAGS ÍSLANDS MERKI ÚRSMIÐAFÉLAGS ÍSLANDS TRYGGIR GÆÐI OG PJONUSTU TRYGGIR GÆÐI OG PJÓNUSTU LEITAÐU TIL FAGMANNSINS Nú hafa félagsmenn Úrsmiðafélags íslands sett upp félagsmerki sitt, í verslunargluggana. Par sem merkið er, getur þú notfært þér þekkingu og reynslu fagmannsins þegar kaupa á fallegt og vandað úr. Úrsmiðurinn tryggir einnig varahluta- og viðgerðarþjónustu. Tilkynning frá Byggðasjóði í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum er gert ráð fyrir útvegun fjármagns til lánveitinga til fyrirtækja, sem þurfa að bæta aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað. Samkomulag hefir verið gert milli Framkvæmda- stofnunar ríkisins og félagsmálaráðuneytisins um að lán þessi verði veitt úr Byggðasjóði af sérstöku fé, sem aflað verður í þessu skyni. Umsóknir um lán þessi skulu því sendar Byggða- sjóði, Rauðarárstíg 25, Reykjavík á umsóknar- eyðublöðum Byggðasjóðs, þar sem sérsaklega sé tekið fram að um sé að ræða lán vegna bætts aðbúnaðar, hollustuhátta og öryggis á vinnustað. Umsóknarfrestur er til 7. maí n.k. Endurnýja þarf umsóknir, er áður hafa verið sendar en ekki hlotið afgreiðslu. Sjálfvirkir, nákvæmir og vel einangraðir rafhitarar. Og nú á lækkuðu veröi: 13% afslátturvið staógreiðslu. 10% afsláttur með afborgunarskilmálum. Hagkvæm og heppileg lausn við hitun húsnæðis. Lækjargötu 22, Hafnarfirði. Símar: 50022, 50670.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.